Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 57
MENNING
Brúðkaupssýningin Já
Komdu og upplifðu
brúðkaupsævintýrið
í Vetrargarði Smáralindar
helgina 18.-20. mars.
Ný sending
Smáralind • Kringlunni
Teg. ARA 36335
ogaf
Teg. ARA 51866
Myndasögur hafa löngumverið nokkurs konar oln-bogabarn í listalífi hér-
lendis og víðar. Nú fer þó vaxandi
sá hópur innan listaheimsins sem
viðurkennir þetta unga listform þar
sem samruni mynd- og ritlistar nær
nýjum hæðum. Með almennri við-
urkenningu
höfunda eins og
Neil Gaiman,
Art Spiegelman
og Mike Mig-
nola, höfunda
sem daðra við mörk þjóðsagna,
sagnfræði og þjóðfræði, má segja
að viss öld upplýsingar sé að ganga
í garð. Undanfarna áratugi hefur
myndasagan ekki aðeins teygt sig
inn á nýjar slóðir, heldur hafa
myndlistarmenn einnig teygt sig
inn í veruleika og tjáningarform
myndasögunnar til að þenja mörk
myndlistarinnar. Á dögunum varð
undirritaður m.a. fyrir þeirri skyn-
víkkandi reynslu að lesa sögurnar
Bone eftir Jeff Smith og Blacksad:
Arctic Nation eftir Juan Diaz Can-
ales og Guarnido, í kjölfar umfjöll-
unar Heimis Snorrasonar, sem hef-
ur unnið þrekvirki í að kynna
áhugaverðar teiknimyndasögur
fyrir Íslendingum. Þessar sögur
eiga það sameiginlegt að að-
alsöguhetjan er gestur í einhverjum
veruleika þar sem ferðalagið leiðir í
ljós ýmiss konar sannleika, hvort
sem hann er siðfræðilegur, veru-
fræðilegur eða frumspekilegur, um
heiminn.
Myndasögumessan Nían, semverður opnuð í Hafnarhúsinu
í dag kl. 16, er til vitnis um þessa
hugarfarsbyltingu. Yfirskriftin „Ní-
an“ vísar beint til þess að mynda-
sögur eru gjarnan nefndar níunda
listformið. Það er Gisp!-hópurinn
sem stendur fyrir sýningunni, en
sami hópur tók sig saman fyrir
þrettán árum og hélt stóra sýningu
á Kjarvalsstöðum. Í tilefni af sýn-
ingunni gefur Gisp!-hópurinn út
viðamikla sýningarskrá sem inni-
heldur m.a. greinar um íslenskar og
erlendar myndasögur. Þá mun
Borgarbókasafn auka stórlega úr-
val sitt á myndasögum til útláns auk
þess sem Reykjavíkurtorgið í Gróf-
arhúsi verður vettvangur myndlist-
arsagna. Þá mun verslunin Nexus,
helsti griðastaður íslenskra mynda-
sagnaunnenda, stórauka úrval
myndasagna í tilefni sýningarinnar.
Bjarni Hinriksson, sýningarstjóriNíunnar, segir myndasögur
ekki hafa átt mikla hefð eða verið
áberandi hér á landi. „Þó hefur ver-
ið ýmislegt síðari árin sem bendir til
þess að ástandið sé að breytast og
batna,“ segir Bjarni. „Hér hafa ver-
ið starfandi misvirkir hópar mynd-
listarmanna og áhugamanna um
myndasögur sem hafa gert og gefið
út myndasögur, mjög óreglulega,
en þó alltaf eitthvað. Gisp!-
hópurinn hefur starfað frá 1990 og
er kannski einkennandi fyrir
myndasöguútgáfuna.
Með þessari sýningu viljum við
sýna fram á að þrátt fyrir að
myndasagan hafi ekki verið áber-
andi á Íslandi, hefur átt sér stað
töluverð gróska innan hennar síð-
ustu 15–20 árin.“
Bjarni segir sýninguna í raun
kanna tvo þræði, annars vegar ís-
lensku myndasöguna í samhengi við
erlendar myndasögur og hins vegar
íslensku myndasöguna í samhengi
við myndlistarheiminn. „Myndasög-
ur eru mjög fjölbreyttar og það er
annað sem við viljum sýna hér. Það
er ekki neitt eitt sem kalla má
myndasögu. Sumir höfundar leggja
meiri áherslu á orðin en aðrir láta
myndirnar tala í meira mæli,“ segir
Bjarni.
Óhætt er að segja að teikni-myndasögur hafi á margan
hátt mótað hugarheim ungs fólks
undanfarna áratugi, og ekki aðeins
hin miklu listaverk Gaimans og
Mignola og slíkra snillinga, heldur
má einnig nefna að margir kynntust
Hringadróttinssögu fyrst í gegnum
hálfklárað myndasöguverk. Þá hef-
ur franski listamaðurinn Franquin
upphafið kæruleysislegt og róm-
antískt viðhorf til lífsins í hugum
fjölda ungra lesenda með hinum
stórskemmtilegu sögum um Viggó
viðutan. Þá má einnig nefna sköpun
Svíans Charlie Christiansen, and-
hetjuna Arne Anka, sem ráfar með
timburmenn um götur Stokkhólms
og gubbar út úr sér óborganlegri
hversdagsvisku um velferðarsam-
félag, mannlegan breyskleika,
drykkjusýki og barnauppeldi.
Teiknimyndasögur eru einnig
mikilvægur hluti af myndasagna-
hefðinni og má ekki vanmeta gildi
þeirra sem bæði fagurfræðilegra og
heimspekilegra fyrirbæra.
Í tilefni sýningarinnar verður
Sýningarstjóraspjall sunnudaginn
20. mars kl. 15 auk þess sem nokkr-
ir listamanna sem verk eiga á sýn-
ingunni munu veita sérstaka leið-
sögn sunnudaginn 24. apríl.
Í umfjöllun fjölmiðla um mynda-
sögur hefur spurningin „Er þetta
ekki bara fyrir krakka?“ verið allt
annað en fáheyrð og ber þessi
spurning á vissan hátt vitni van-
þekkingu um breidd og vídd
myndasöguheimsins. Maður spyr
sig jafnvel hvort list almennt sé
ekki „bara fyrir krakka,“ því hlut-
verk hennar er að örva, ögra og
kalla fram hugmyndir þeirra sem
hennar njóta. Og ef listin er fyrir
krakka, er þetta þá ekki spurning
hvort við þurfum kannski öll í rík-
ara mæli að leyfa sjálfum okkur að
vera krakkar.
„Eitthvað
fyrir krakka?“
’Teiknimyndasögur erueinnig mikilvægur hluti
af myndasagnahefðinni
og má ekki vanmeta
gildi þeirra sem bæði
fagurfræðilegra og
heimspekilegra fyr-
irbæra.‘
AF LISTUM
Svavar Knútur
Kristinsson
svavar@mbl.is
Gjafaöskjur með ljóðum
Sölustaðir: sjá www.bergis.is
Ástarkveðja • Vinarkveðja,
Samúðarkveðja