Morgunblaðið - 14.03.2005, Qupperneq 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 13
Fundarboð/
Fræðslufundur
Efling-stéttarfélag og Matvæla- og veitingasam-
band Íslands boða félagsmenn sem starfa á veitinga-
og skemmtistöðum til fræðslufundar um skaðsemi
óbeinna reykinga og heilsuvernd starfsmanna.
Fundurinn verður haldinn
í Hvammi, Grand HótelI,
þriðjudaginn 15. mars kl. 15.00
Dagskrá:
1. Setning Sigurður Bessason
2. Erindi:
a. Kristinn Tómasson læknir
b. Siv Friðleifsdóttir alþingismaður
c. Erna Hauksdóttir SAF
Kaffihlé
3. Umræða
4. Niðurstaða fundarins
Samantekt Níels S Olgeirsson
Fundarstjóri: Guðmundur Þ Jónsson
Matvæla- og veitingasamband Íslands
VERSLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Arnór Sighvatsson
aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands
ER ÍSLANDSVÉLIN
AÐ OFHITNA?
Fundargjald með morgunverði kr. 2.500. Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að skrá þátttöku
fyrirfram á www.chamber.is, á fundir@chamber.is eða á skrifstofu Verslunarráðs í síma 510 7100.
LAND YFIRBOÐA!
ER HAGVÖXTUR BYGGÐUR Á SKULDSETNINGU?
ÁFRAM EÐA VEISLULOK?
Vilhjálmur Egilsson
hagfræðingur og ráðuneytisstjóri
Sigurjón Þ. Árnason
bankastjóri Landsbanka Íslands
Miðvikudaginn 16. mars 2005
Grand Hóteli, Reykjavík, Gullteig A
Morgunverðarfundur kl. 8:30-9:45
FRUMMÆLENDUR:
4. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
14,917,375 kr.
2,983,475 kr.
298,348 kr.
29,835 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
11,421,089 kr.
2,284,218 kr.
228,422 kr.
22,842 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
10,948,610 kr.
2,189,722 kr.
218,972 kr.
21,897 kr.
1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1,846,842 kr.
184,684 kr.
18,468 kr.
Innlausnardagur 15. mars 2005
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Rafrænt: 1: 1.8468424
1. og 2. flokkur 2001: Rafrænt: 1: 1.42303706
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800
HAGNAÐUR Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf. (HÞ) á árinu 2004 nam
121 milljón króna eftir skatta. Árið
áður var hagnaðurinn 58 milljónir.
Rekstrartekjur samstæðunnar voru
1.951 milljón og rekstrargjöld 1.557
milljónir.
Hagnaður HÞ fyrir afskriftir og
fjármagnsliði nam 394 milljónum á
árinu 2004, sem eru 20% af tekjum. Á
árinu 2003 var sambærilegur hagn-
aður 487 milljónir, eða 31% af tekjum.
Ef frá er talinn hagnaður af sölu
eigna á árinu 2003 var hlutfallið hins
vegar 22%.
Gengishagnaður HÞ af erlendum
lánum nam 226 milljónum á árinu
2004 samanborið við 37 milljónir á
árinu 2003.
Segir í tilkynningu frá HÞ að
rekstrarniðurstaða síðasta árs sé við-
unandi þrátt fyrir samdrátt í fram-
legð vegna gengis íslensku krónunnar
og mun minni afla til bræðslu en áður.
HÞ afskráð úr Kauphöllinni
HÞ hefur verið afskráð úr Kaup-
höll Íslands. Í tilkynningu kemur
fram að Kauphöllin hafi samþykkt
fram komna beiðni um afskráningu
hlutabréfa félagsins af Aðallista.
Símatún ehf. hafi eftir yfirtökutilboð
eignast 97,69% af heildarhlutafé fé-
lagsins og því uppfylli það ekki skil-
yrði skráningar um dreifingu hluta-
fjár.
HÞ hagnast um 161 milljón
SAMKVÆMT úttekt sem þránd-
heimska dagblaðið Adresseavisen
hefur unnið þurfa almennings-
hlutafélög frá miðhluta Noregs að
hrista fram 34 konur sem taka eiga
sæti í stjórnum þeirra áður en sum-
arið gengur í garð.
Eitt þessara fyrirtækja er BN
Bank sem brátt verður íslenskur,
eins og segir í fréttinni. Þar er með-
al annars vitnað í símasamtal við
Torvald Lind stjórnarformann BN
Kreditt, dótturfyrirtækis BN Bank,
sem segist ekki vita hvað BN Kred-
itt ætli að gera til þess að fá konur í
stjórn. „Ekki spyrja mig, spyrjið
formann kjörnefndar,“ segir Lind.
Samkvæmt Adresseavisen þurfa
samtals þrjár konur að eiga sæti í
stjórnum BN Bank og BN Kreditt
en Gunnar Jerven, bankastjóri
bankans, er ekki bjartsýnn á að
markmiðið náist. „Samkvæmt lög-
um á bankastjóri að eiga sæti í
stjórn og ég er karlmaður. Fulltrúi
starfsmanna er karlmaður og
stjórnarformaður bankans er karl-
maður. Nýir eigendur óska örugg-
lega eftir því að fá mann í stjórn og
forstjóri Íslandsbanka er maður.
Það verður hörkuvinna að fjölga
konum í stjórn í ár,“ segir Jerven.
Kvennafár í Noregi
HAGNAÐUR Hampiðjunnar á síð-
asta ári nam 276 milljónum króna
eftir skatta. Árið áður var hagn-
aðurinn 160 milljónir. Rekstrar-
tekjur félagsins á árinu 2004 voru
svipaðar og á árinu 2003, eða 4.392
milljónir samanborið við 4.386
milljónir árið áður. Meðtalið í
rekstrartekjum eru 93 milljónir
sem voru hagnaður af sölu var-
anlegra rekstrarfjármuna, sem var
20 milljónir árið 2003.
Hagnaður fyrir afskriftir og
hrein fjármagnsgjöld (EBIDTA),
nam 496 milljónum samanborið við
420 milljónir árið 2003. Hrein fjár-
magnsgjöld námu 38 milljónum til
tekna samanborið við 13 milljónir
til gjalda árið 2003.
Heildareignir samstæðunnar
voru 6,4 milljarðar í árslok 2004,
skuldir námu 3,7 milljónum og eig-
ið fé 2,7 milljörðum.
Í tilkynningu frá Hampiðjunni
segir að vöruframboð samstæð-
unnar sé fjölbreyttara en áður með
vaxandi hluta tekna hennar af sölu
vara sem bundnar séu einkaleyf-
um. Hátt gengi íslensku krónunnar
geri samkeppnisstöðu íslenskra
veiðarfæragerða hins vegar erfiða
gagnvart innflutningi. Þá sé
rekstrarumhverfi innlendra við-
skiptavina Hampiðjunnar erfitt og
smitist það yfir á þjónustuaðila
þeirra.
Stjórn Hampiðjunnar leggur til
við aðalfund félagsins að greiddur
verði 12% arður til hluthafa.
Aukinn
hagnaður
hjá Hamp-
iðjunni
HAGNAÐUR HB Granda hf. árið
2004 nam 603 milljónum króna eftir
skatta, en var 763 milljónir króna ár-
ið áður. Rekstrartekjur félagsins
námu 9.356 milljónum króna, en
voru 4.829 milljónir árið 2003. Þessi
hækkun veltu skýrist af
samruna Granda við
Harald Böðvarsson hf.,
Tanga hf. og Svan
RE-45 ehf.
Rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir á árinu
2004 var 1.585 milljónir,
eða 16,9% af rekstrartekjum, sam-
anborið við 842 milljónir, eða 17,4%,
árið áður. Rekstrartap af eigin starf-
semi var 89 milljónir samanborið við
180 milljóna hagnað árið áður. Heild-
arafskriftir ársins voru 1.673 millj-
ónir. Þar af voru afskriftir af var-
anlegum aflaheimildum 492 millj-
ónir.
Hreinar fjáreignatekjur HB
Granda á árinu 2004 voru 932 millj-
ónir, en voru 601 milljón króna árið
2003. Gengismunur og verðbætur
voru jákvæð um 1.296 milljónir, en
um 127 milljónir árið 2003. Vaxta-
gjöld hækkuðu úr 257
milljónum í 493 milljónir
króna á milli ára. Hagn-
aður fyrir frádrátt
tekjuskatts nam 835
milljónum á móti 853
milljónum á fyrra ári.
Heildareignir HB
Granda námu 26,7 milljörðum í árs-
lok 2004, samanborið við 14,4 millj-
arða ári áður. Þá var eigið fé tæplega
9,1 milljarður en 5,8 milljaðar ári áð-
ur.
Fram kemur í tilkynningu frá HB
Granda að stjórn félagsins muni
leggja til við aðalfund að greiddur
verði 15% arður fyrir árið 2004.
Minni hagnaður
HB Granda
mbl.is
smáauglýsingar