Morgunblaðið - 14.03.2005, Page 14
14 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
5
0
2
SMS heimasími
Panasonic KX-TCD300
Tilboð í vefverslun: 8.980 kr.
25% afsláttur
úr heimasíma
í 6 númer
Skráðu þig á siminn.is
Nú getur þú sent SMS
siminn.is/vefverslun
980
Léttkaupsútborgun:
og 750 kr. á mán. í 12 mán.
kr.
Tiboðsverð: 9.980 kr.
Hægt er að senda og taka á móti SMS. Númerabirting fyrir allt að 30 númer.
Símaskrá fyrir 200 símanúmer og nöfn. Innbyggður hátalari fyrir handfrjálsa
notkun. Dagsetning og tími og raddstýring á 20 númerum.
ÍSRAELAR hafa samið áætlanir
um árásir á skotmörk í Íran ef
samningaviðræður um meintar til-
raunir Írana til að framleiða
kjarnavopn fara út um þúfur, að
sögn breska blaðsins The Sunday
Times í gær.
Blaðið sagði að valdamestu ráð-
herrarnir í stjórn Ariels Sharons,
forsætisráðherra Ísraels, hefðu lagt
blessun sína yfir þessar áætlanir á
fundi í síðasta mánuði á búgarði
hans í Negev-eyðimörkinni.
Ísraelsher er sagður hafa reist
byggingu, sem líkist íranskri verk-
smiðju sem notuð er til að auðga
úran, í eyðimörkinni til að æfa árás-
ir á hana. Sagt er að herinn hafi
meðal annars æft skyndiárás sér-
sveitar og loftárásir orrustuþotna.
The Sunday Times segir að Ísr-
aelsstjórn hafi rætt þessar áætlanir
við bandaríska embættismenn sem
hafi gefið til kynna að þeir myndu
ekki reyna að hindra árásirnar ef
öll önnur úrræði brygðust og ekki
yrði hægt að leysa deiluna með
friðsamlegum hætti. Condoleezza
Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði þó í gær að bandaríska
stjórnin hefði ekki samþykkt slíka
árás.
Atkvæðamikill þingmaður í Ísr-
ael, Ephraim Sneh, fyrrverandi
hershöfðingi sem situr nú í varnar-
og utanríkismálanefnd þingsins,
sagði að það myndi „ógna tilvist
Ísraelsríkis“ ef Íranar eignuðust
kjarnavopn. Hann bætti hins vegar
við að reynt yrði til þrautar að
leysa deiluna með friðsamlegum
hætti og hernaðaraðgerðir gætu að-
eins verið neyðarúrræði.
Mohammed Khatami, forseti Ír-
ans, sagði í gær að Íranar hefðu
samþykkt að fresta auðgun úrans
um óákveðinn tíma til að sannfæra
heimsbyggðina um að þeir hefðu
ekki í hyggju að framleiða kjarna-
vopn. Hann bætti við að Íranar
myndu þó ekki afsala sér réttinum
til að hagnýta kjarnorkuna í frið-
samlegum tilgangi.
Íranar segjast ætla að nota auðg-
aða úranið til orkuframleiðslu en
Bandaríkjastjórn telur að þeir ætli
einnig að nýta það í kjarnavopn.
Fellst á að Íran fái
aðild að WTO
Skýrt var frá því um helgina að
stjórn Bandaríkjanna hefði mildað
afstöðu sína í deilunni um kjarn-
orkuáætlun Írana og fallist á áform
Evrópuríkja um að umbuna Írönum
efnahagslega fyrir að framleiða
ekki kjarnavopn. Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
gaf þó til kynna að Íranar þyrftu að
samþykkja þetta fljótlega, ella ættu
þeir yfir höfði sér refsiaðgerðir af
hálfu öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna.
Innanríkisráðuneyti Írans tók
stefnubreytingu Bandaríkjastjórn-
ar fálega og sagði að „mútur og
hótanir“ dygðu ekki til að knýja Ír-
ana til að afsala sér réttinum til að
hagnýta kjarnorkuna.
Bandaríkjastjórn hefur til þessa
sagt að Íranar verðskuldi ekki
umbun fyrir að virða alþjóðasamn-
inga sem banna útbreiðslu kjarna-
vopna.
Stjórn Bush féllst á að falla frá
andstöðu sinni við að Íran fengi að-
ild að Heimsviðskiptastofnuninni
(WTO) og að leyft yrði að selja
Írönum varahluti í farþegavélar.
Dugi þessi umbun ekki ætla Evr-
ópuríkin að falla frá andstöðu sinni
við þá kröfu Bandaríkjastjórnar að
deilunni verði vísað til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna til að það geti
rætt hugsanlegar refsiaðgerðir
gegn Íran. Í trúnaðarskjali, sem
fréttastofan AP hefur undir hönd-
um, varar Evrópusambandið við því
að það eigi einskis annars úrkosti
en að samþykkja að málinu verði
vísað til öryggisráðsins fallist Ír-
anar ekki á að hætta öllum til-
raunum til að þróa kjarnavopn.
Sagðir undirbúa
árásir á Íran
London, Vín. AP, AFP.
Rice neitar því að
stjórn Bush hafi
samþykkt áætl-
anir Ísraela
Ísraelar segja írönsk kjarnavopn „ógna tilvist Ísraels“
ÞJÓÐVERJINN Paul Schäfer, fyrr-
verandi nasisti sem stofnaði um-
deilda þýska nýlendu í Chile, var
fluttur þangað í gær frá Argentínu
þar sem hann var handtekinn fyrir
mannréttindabrot.
Dómari í Chile hafði óskað eftir
því að Schäfer, sem er 83 ára, yrði
handtekinn vegna máls andófs-
manns sem hvarf sporlaust á valda-
tíma Augustos Pinochets, fyrrver-
andi einræðisherra Chile. Schäfer á
einnig yfir höfði sér ákæru um að
hafa misþyrmt börnum kynferðis-
lega í Colonia Dignidad, þýskri ný-
lendu sem hann stofnaði árið 1961 á
afskekktu svæði í suðurhluta Chile.
Schäfer var fluttur í lögreglustöð í
Santiago og á að koma fyrir dómara í
dag.
Pyntingar og aftökur
Fyrrverandi leiðtogar nýlendunn-
ar hafa einnig verið sakaðir um sam-
starf við öryggissveitir Pinochets og
að hafa leyft þeim að nota hús í ný-
lendunni til að pynta fanga og taka
þá af lífi. Þeir neita þessum sakar-
giftum.
Nýlendan var sjálfri sér nóg um
flesta hluti, rak eigið sjúkrahús og
skóla og byggði upp öflugan land-
búnað. Leiðtogarnir voru m.a. sak-
aðir um að hafa haldið íbúunum
nauðugum í nýlendunni. Íbúar henn-
ar voru yfir 300.
Þýskur flóttamaður
framseldur til Chile
Reuters
Þýski flóttamaðurinn Paul Schäfer í hjólastól á flugvelli í Buenos Aires
áður en hann var fluttur þaðan með herflugvél til Chile um helgina.
Santiago. AP.