Morgunblaðið - 14.03.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 17
DAGLEGT LÍF
Leyfðu okkur að vera þinn fyrsti kostur
Síðumúla 13 - 108 Reykjavík Sími: 517-0077 www.granithusid.is
Varanlegt Sígild
Efni Hönnun
Granít Flísar
Marmari Handlaugar
Travertine Blöndunartæki
Onyx Arinfrontar
Sandsteinn Sérlausnir
OPNUNARTÍMI
MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA.......
LAUGARDAGA.....................................
SUNNUDAGA.......................................
14 - 18
11 - 16
13 - 16
Hægindastóll
• Microfiber áklæði
• Verð áður 42.600,-
Ver› kr. 29.800
30%
afsláttur
Vaxtalaust í 3 mánuði
eða aðeins 9.934,- á mánuði
SETT EHF • HLÍ‹ASMÁRA 14 • 201 KÓPAVOGUR
SÍMI 534 1400 • SETT@SETT.IS
Einstakt tilboð
Glæsileg húsgögn frá Brasilíu
Kirkjulundi 17 (v/Vífilsstaðaveg) Garðabæ
Sími: 565 3399
FYRIR HEIMILIÐ
OG BÚSTAÐINN
Þú flytur með okkur!
Klettagarðar 1 • Sími: 553 5050
SENDIBÍLASTÖÐIN H.F
sendibilastodin.is
NÝSMÍÐI - BREYTINGAR - VIÐGERÐIR
HLYNUR SF
alhliða byggingastarfsemi
Pétur J. Hjartarson
húsasmíðameistari
SÍMI 865 2300
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
NÆTURVÆTA eða enuresis nocturna er
skilgreind sem ósjálfráð þvaglát að nóttunni
eftir að fimm ára aldri er náð, einu sinni í
mánuði eða oftar í þrjá mánuði samfellt.
Vandamálið er algengara hjá drengjum
(60% drengir, 40% stúlkur) og á sér lík-
amlegar orsakir. Um það bil 15% heilbrigðra
barna pissa undir við fimm ára aldur en þó að
þessi tala lækki árlega um 1% er næturvæta
enn til staðar hjá 0,5–1% átján ára ein-
staklinga. Algengt er að börn með næturvætu
séu kvíðin og spennt en það ástand er afleið-
ing næturvætu en ekki orsök. Næturvæta er
algengari hjá börnum með athyglisbrest og
ofvirkni en sértæk lyfjameðferð við þeim
vandamálum læknar þó ekki næturvætuna.
Erfðir virðast hafa mikið að segja en ekki er
enn ljóst með hvaða hætti þeim áhrifum er
miðlað.
Breytt nálgun
Aukin þekking á orsökum og meinalífeðlis-
fræði næturvætu hefur á allra síðustu árum
breytt nálgun vegna vandamálsins en blöðru-
rýmd, drykkjumynstur, þvagmyndun (rúm-
mál) yfir nóttina og aldur barns eru þær
breytur sem mestu máli skipta þegar velja
skal meðferð. Nákvæm skráning á því hve
mikið barnið drekkur og pissar í ákveðinn
tíma er einföld og ódýr aðferð til þess að nálg-
ast upplýsingar um ofangreind atriði. Eldri
flokkun næturvætu þar sem fyrst og fremst er
litið á það hvort vandamálið hefur staðið sam-
fellt eða hvort barnið hafði átt langt þurrt
tímabil áður en vandinn tók sig upp aftur hef-
ur mjög takmarkaða þýðingu og engin áhrif á
val meðferðar. Þau börn sem hafa næturvætu
og eðlilega blöðrustarfsemi samkvæmt
sjúkrasögu og þvaglátaskrá þarf ekki að rann-
saka frekar en sjálfsagt er þó að gera almenna
þvagskoðun við fyrstu heimsókn til læknis.
Ekki er mælt með því að næturvæta sé með-
höndluð hjá börnum yngri en fimm ára. Eftir
að þeim aldri er náð er mikilvægt að fullt tillit
sé tekið til óska foreldra og barnanna sjálfra
þegar ákvörðun er tekin er um það hvort með-
höndla skuli vandamálið eða ekki.
Val á meðferð
Við val á meðferð er almenna reglan sú að
lyfjameðferð hentar vel fyrir þá einstaklinga
sem mynda mikið þvag á nóttunni en næt-
urþjálfameðferð ef blöðrurýmd er lítil. Börn-
um á aldrinum 5–7 ára er oftast boðin lyfja-
meðferð þar sem reynslan sýnir að þau svara
mun síður næturþjálfa en eldri börnin. Eftir
að 7–8 ára aldri er náð aukast líkur á svörun
við næturþjálfameðferð til muna og á það
reyndar sérstaklega við hjá börnum sem hafa
litla þvagblöðru. Rétt er að taka það fram að
meðferð með næturþjálfa er nokkuð vanda-
söm og er mikilvægt að heilbrigðisstarfs-
maður með reynslu af notkun næturþjálfa
kenni foreldrum og barni rétta notkun hans
og styðji fjölskylduna meðan á meðferð stend-
ur. Mjög mikilvægt er að meðhöndla blöðru-
vandamál áður en sértæk meðferð er hafin við
næturvætu en sé það ekki gert verður árang-
ur meðferðar mun lakari.
Þótt um það bil 15% barna með næturvætu
vaxi árlega frá vandanum getur biðin eftir
sjálfkrafa bata reynst bæði börnum og for-
eldrum erfið en sjálfsagt er að leita til læknis
vegna næturvætu sé hún enn fyrir hendi eftir
að 5–6 ára aldri er náð.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið
Um 15% heilbrigðra 5 ára
barna með næturvætu
Viðar Eðvarðsson barnalæknir,
sérfræðingur í nýrnalækningum barna,
Barnaspítala Hringsins,
Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
SPÆNSKA hönnunarfyrirtækið DeBuena-
Tinta hefur hannað kerfi fyrir þvottavélar
sem þvingar karlmanninn á heimilinu til að
nota þvottavélina til jafns við konuna. Þetta
var gert að beiðni forsvarsmanna verslunar-
innar Servei Estacio sem voru orðnir þreyttir
á hefðbundinni verkaskiptingu kynjanna þar
sem konurnar sjá um þvottinn.
Kerfið nefnist Lazy Man Syst-
em og hentar öllum tegundum
þvottavéla, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
hönnunarfyrirtækinu. Í því er
fingrafaraskynjari þar sem fingraför
hjónanna eru geymd. Skynjarinn hindrar að
aðeins annað hjónanna geti séð um allan
þvott, því manni er meinaður aðgangur eftir
tvo þvotta í röð. „Einföld leið til að skipta
ábyrgðinni á þvottinum á heimilinu ná-
kvæmlega til helminga,“ segir í frétta-
tilkynningu fyrirtækisins þar sem
kaldhæðnin skín reyndar í gegn en
hún var send út á alþjóðlega
kvennadaginn 8. mars.
DeBuentaTinta fannst líka
kominn tími til að karlmenn
gerðust liðtækir með straujárnið
svo á stofunni var hannað tæki
sem tengt er straujárninu og þjálf-
ar vöðva þeirra á meðan þeir
strauja skyrtur eiginkvenna sinna,
eins og segir í fréttatilkynningunni.
Tryggir að
bæði kynin
noti þvotta-
vélina
JAFNRÉTTI
Tæki er tengt strau-
járninu sem þjálfar
síðan vöðva á meðan
straujað er.
Fingrafaraskynjari hindrar að
aðeins annað hjónanna geti séð
um allan þvottinn.