Morgunblaðið - 14.03.2005, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Þátttökugjald er kr. 1.500.-. Innifalið er: kynningarhefti um gerð
viðskiptaáætlana ásamt geisladiski sem hefur að geyma ýmis
hagnýt hjálpargögn, t.d. vandað reiknilíkan, hagnýt eyðublöð og
hljóðfyrirlestra. Frestur til að skila inn viðskiptaáætlun er
1. september 2005.
Hægt er að skrá þátttöku á www.nyskopun.is
eða með tölvupósti á nyskopun@nyskopun.is.
• Er hugmyndin áhugavert viðskiptatækifæri?
• Hversu mikil áhætta felst í framkvæmdinni og hver gæti
ávinningurinn orðið?
Þetta eru spurningar sem frumkvöðlar jafnt sem starfandi fyrirtæki
þurfa að leita svara við. Með því að taka þátt í Nýsköpun 2005 er
stigið fyrsta skrefið.
Kynningarfyrirlestur miðvikudaginn 16. mars kl. 17:10-19:10:
• Hvað prýðir góða viðskiptaáætlun?
G. Ágúst Pétursson, verkefnisstjóri í Nýsköpun 2005
• Fjármál og fjármögnun: fulltrúi frá Íslandsbanka með stutt erindi
Garðabæ
Félagsmiðstöðinni Garðabergi við Garðatorg 7
miðvikudaginn 16. mars kl. 17:10 - 19:10
SEM einn af nánustu samstarfs-
mönnum Ágústar Einarssonar,
fyrrum deildarforseta í viðskipta-
og hagfræðideild, tel ég mig vel
dómbæra á störf hans sem stjórn-
anda í háskólasamfélaginu.
Góður og samviskusamur
vinnufélagi
Ágúst hefur tvívegis
verið kjörinn deild-
arforseti og að öðrum
deildarforsetum ólöst-
uðum, sem allir eru
miklir ágætismenn, er
Ágúst yfirburðamaður
þegar kemur að
stjórnun, skipulagn-
ingu og fram-
kvæmdum.
Hann setur sig afar
vel inn í öll mál á ótrú-
lega skömmum tíma
og setur mál ein-
staklega skipulega
fram. Sá hæfileiki gerir það að verk-
um að samstarfsfólk hans á mjög
auðvelt með að vinna með honum
enda er það samdóma álit alls
starfsfólks í viðskipta- og hag-
fræðideild að Ágúst hafi alla þá
kosti sem góður stjórnandi þarf að
hafa.
Lipur í samskiptum
Ágúst er einstaklega lipur í sam-
skiptum og hógvær og betri vinnu-
félaga og samstarfsmann er ekki
hægt að fá. Í deildarforsetatíð hans
fylgdist ég grannt með því hversu
umhugað honum var
um samstarfsfólk sitt í
deildinni og hvernig
hann hvatti unga kenn-
ara til dáða, bæði í
rannsóknum og
kennslu. Honum er
mjög umhugað um að
Háskóli Íslands verði
vinnustaður þar sem
starfsfólki og nem-
endum líði vel og nú-
tímavinnuhættir verði í
hávegum hafðir.
Ég tel að okkur í
Háskóla Íslands standi
nú til boða einstakt
tækifæri til að velja til forystu mann
sem hefur yfirburða reynslu og
þekkingu í stjórnun og rekstri, bæði
í háskólasamfélaginu og í atvinnulíf-
inu og megum við ekki fyrir nokkra
muni láta slíkt tækifæri renna okk-
ur úr greipum. Á fimmtudaginn 17.
mars kjósum við stjórnanda eins
fjölmennasta vinnustaðar á landinu.
Kjósum Ágúst Ein-
arsson sem rektor
Háskóla Íslands
Kristín Klara Einarsdóttir
fjallar um kjör rektors við
Háskóla Íslands ’Ágúst er einstaklegalipur í samskiptum og
hógvær og betri vinnu-
félaga og samstarfsmann
er ekki hægt að fá.‘
Kristín Klara
Einarsdóttir
Höfundur er skrifstofustjóri
viðskipta- og hagfræðideildar.
NEYTENDUR
njóta þessa dagana
góðs af verðstríði lág-
vöruverðsverslana.
Risinn Bónus hefur
fengið öfluga sam-
keppni litlu aðilanna á
markaðnum eins og
Krónunnar. Verð mat-
væla lækkar með sama
hætti og Iceland Ex-
press heldur nú niðri
fargjaldaverði Flug-
leiða og Atlantsolía
verði bensíns hjá þeim
félögum Olís-Esso og
Shell.
Risinn Bónus argur
Risinn á markaðnum Bónus er
eðlilega argur útí þetta og í DV sl.
föstudag missir framkvæmdastjóri
Bónuss Guðmundur Marteinsson
stjórn á sér og segir: „Þetta er farið
að verða eins og keppni í hver sé
heimskasta konan,
þetta endalausa
mjólkurstríð.“ Hvað
er maðurinn að fara?
Finnst honum virk
samkeppni óeðlileg?
Finnst honum virk
samkeppni vera eins
og heimsk kona? Sú
samkeppni er honum
þá væntanlega ekki
þóknanleg? Er heimsk
kona versta skamm-
aryrði sem hann getur
hugsað sér? Eru kon-
ur ekki aðalviðskipta-
vinir matvöruverslana
eins og Bónuss? Eru þær ekki allar
jafnvirðingarverðar hver sem
greindarvísitala þeirra er? Er þetta
fyrirlitning á konum, sérstaklega
heimskum konum?
Eru neytendur eins og „heimskar
konur“? Er það merki um heimsku
að kaupa ódýrustu vöruna? Var það
ekki einmitt tilgangur frumherj-
anna með stofnun Bónuss að
tryggja neytendum sem lægst vöru-
verð?
Ég skora á Guðmund Marteins-
son verslunarstjóra Bónuss að
draga ummæli sín til baka, biðja ís-
lenskar konur afsökunar og sætta
sig við að virk og áframhaldandi
samkeppni við Bónus er það besta
sem getur hent íslenska neytendur.
Getur virk samkeppni
verið keppni um það hver
sé heimskasta konan?
Helga Kristín Auðunsdóttir
fjallar um ummæli fram-
kvæmdastjóra Bónuss um verð-
stríð lágvöruverðsverslana
’Er lágt matvælaverðeins og heimsk kona að
mati verslunarstjóra
Bónuss?‘
Helga Kristín
Auðunsdóttir
Höfundur er er stjórnarmaður í
Heimdalli félagi ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík.
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöð-
unni er að láta TR ganga inn
í LHÍ og þar verði höfuð-
staður framhalds- og háskóla-
náms í tónlist í landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég
er ein af þeim sem heyrði
ekki bankið þegar vágest-
urinn kom í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson:
„Forystumennirnir eru und-
antekningarlítið menntamenn
og af góðu fólki komnir eins
og allir þeir, sem gerast
fjöldamorðingjar af hugsjón.
Afleiðingar þessarar auglýs-
ingar gætu því komið á
óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn
að halda í þeirri list að þola
góða daga en á helvítis-
prédikunum á valdi óttans
eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Jakob Björnsson: „Það á að
fella niður með öllu aðkomu
forsetans að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon:
„Ljóst er að án þeirrar hörðu
rimmu og víðtæku umræðu í
þjóðfélaginu sem varð kring-
um undirskriftasöfnun Um-
hverfisvina hefði Eyjabökk-
um verið sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir:
„Viljum við að áherslan sé á
„gömlu og góðu“ kennsluað-
ferðirnar? Eða viljum við að
námið reyni á og þjálfi sjálf-
stæð vinnubrögð og sjálf-
stæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson:
„Ég hvet alla sjómenn og út-
gerðarmenn til að lesa sjó-
mannalögin, vinnulöggjöfina
og kjarasamningana.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
„EF ÞÚ átt vin í raun – Guði
sé laun,“ söng formaður fjár-
laganefndar með hljómsveitinni
Upplyftingu sem í þá tíð var
skólahljómsveit nemenda í Bif-
röst. Nú er hún Snorrabúð
stekkur; Samvinnuskólinn, sem
áður var útungunarvél sam-
vinnuhreyfingarinnar og Fram-
sóknarflokksins er nú „Við-
skiptaháskóli“ og þar ræður nú
Samfylkingin ríkjum.
En þrátt fyrir breytinguna
má enn þann dag í dag finna
trausta vini að Bifröst, en það
eru Ingibjörg Þorsteinsdóttir
deildarforseti lagadeildar og
Bryndís Hlöðversdóttir stunda-
kennari við skólann. Ingibjörg
Þ. hefur ákveðið að fórna hinu
eftirsóknarverða deildarforseta-
starfi fyrir vinkonu sína Bryn-
dísi og Bryndís hefur ákveðið að
fórna þingmennsku fyrir deild-
arforsetastarfið fyrir vinkonu
sína Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, sem nú kemst á þing.
Það er auðvitað tilviljun að
Ingibjörg Þ. skuli vera formað-
ur í lýðræðishóp framtíðar-
nefndar Samfylkingarinnar,
sem Ingibjörg Sólrún veitir for-
stöðu en sú síðarnefnda hefur
gefið kost á sér til formennsku í
Samfylkingunni. Það hefur
einna helst staðið framboði
hennar fyrir þrifum að hún væri
ekki þingmaður. Það er samt til-
viljun að stuðningsmaður Ingi-
bjargar Sólrúnar skuli nú hafa
ákveðið að segja af sér þing-
mennsku. Það er að sjálfsögðu
tilviljun að þetta skuli tilkynnt
með hálfs árs fyrirvara, þegar
formannsslagurinn stendur sem
hæst.
Deildarforsetastarfið að Bif-
röst hlýtur að vera mjög spenn-
andi og vel launað starf, úr því
þingmennsku er fórnandi fyrir
það. Segir það sig því sjálft að
mikill fjöldi hæfra lögfræðinga
og háskólamanna hefði sótt um
starfið, hefði það verið auglýst.
Það er auðvitað tilviljun að sam-
fylkingarmaðurinn rektorinn að
Bifröst skyldi hitta einmitt á
kandídatinn í deildarforseta-
starfið sem hefur mestu mennt-
unina, mestu akademísku þekk-
inguna og mestu stjórnunar-
reynsluna án þess að auglýsa
stöðuna lausa.
Greinilegt er að traustur vin-
ur getur gert kraftaverk.
Sveinn Andri Sveinsson
Traustur vinur
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn VOR 2005
Sölustaðir: sjá www.bergis.is
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Páskaeggjamót
Verð 450 og 795 • 5 stærðir