Morgunblaðið - 14.03.2005, Page 22

Morgunblaðið - 14.03.2005, Page 22
22 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Margrét Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 20. janúar 1941. Hún lést föstu- daginn 4. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Aðalheiður Tryggvadóttir hús- freyja, f. 28.2. 1910, d. 8.12. 1981, og Jón Pétursson málm- steypum., f. 22.6. 1914, d. 2.4. 2003, sem bjuggu á Eyrar- hrauni í Hafnarfirði. Margrét var þriðja af sex börnum þeirra. Þau eru: 1) Tryggvi Þór, f. 19.10. 1934, 2) Grétar Ólafur, f. 20.12. 1938, 3) Margrét, sem hér er kvödd, 4) Auðbjörg, f. 22.1. 1945, 5) Björn Hafsteinn, f. 27.7. 1948, og 6) Sig- ríður, f. 29.3. 1952, d. 13.11. 1968. Margrét ólst upp á Eyrarhrauni, gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar Dóttir hennar er Ísabella Margrét Benediktsdóttir, f. 14.10. 2003. 3) Víðir Þór, f. 2.12. 1964, kvæntur Helenu Richter, f. 23.12. 1967. Börn þeirra eru: Daníel Þór, f. 2.12. 1985, Gígja, f. 13.4. 1989, Guðmundur, f. 19.2. 1996, og Hekla Sól, f. 31.1. 2003. 4) Björk, f. 12.2. 1967, gift S. Úlfari Sigurðs- syni, f. 22.2. 1962. Synir þeirra eru: Dagur Sigurður, f. 28.11. 1994, Úlfar Máni, f. 28.8. 1997, og Magnús Gauti, f. 19.6. 2000. Margrét og Magnús bjuggu sinn búskap í Hafnarfirði að undan- skildum styttri tímabilum er fjöl- skyldan tók sig upp og flutti aust- ur í Neskaupstað vegna atvinnu Magnúsar. Þau skildu 1980. Margrét giftist 1.7. 1983 seinni manni sínum, Hreini Jónassyni, framkvæmdastjóra frá Akureyri, f. 7.7. 1934, d. 4.5. 2004. Bjuggu þau í Hafnarfirði. Margrét var lengst af heimavinnandi húsmóðir en starfaði einnig við ýmis versl- unarstörf. Meðan heilsan leyfði var hún einnig ómetanleg við að gæta barnabarna sinna. Útför Margrétar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. og síðan Flensborgar- skóla, þaðan sem hún lauk gagnfræðaprófi árið 1957. Margrét giftist 23. desember 1961 fyrri manni sínum, Magnúsi Ölverssyni, sjómanni frá Neskaupstað, f. 29.7. 1937, d. 4.3. 2004. Eignuðust þau fjögur börn. Þau eru: Sólveig Margrét, f. 18.3. 1961, gift Stefáni Karli Harðarsyni, f. 31.8. 1961. Börn þeirra eru: Hörður, f. 22.2. 1984, Silja Margrét, f. 28.2. 1987, Magnús, f. 23.7. 1990, og Hreinn Andri, f. 2.1. 1993. Sonur Sólveigar og Kristjáns Sigurðsson- ar, f. 9.3. 1961, var Magnús Ölver, f. 11.9. 1981, d. 8.2. 1982. 2) Jón Ölver, f. 20.4. 1962. Dóttir hans og Margrétar S. Pálsdóttur, f. 3.3. 1962, er Eva Björk, f. 5.4. 1981. Í dag kveðjum við elskulega móður mína, Margréti Jónsdóttur, hinstu kveðju. Það hefur verið skammt stórra högga á milli í fjölskyldunni. Fyrir réttu ári, hinn 4. mars 2004, lést fyrri maður móður minnar og faðir okkar systkinanna, Magnús Ölversson, af slysförum og 2 mánuðum síðar, seinni maður hennar, Hreinn Jónasson, eftir erfiða sjúkralegu. Þessi áföll bæði, ásamt löngum og erfiðum veikindum, slökktu lífsneistann hennar og ljósið. Eftir stöndum við fjölskylda móður minnar og minnumst hennar með ást og virðingu. Hún var einstaklega vel af Guði gerð og fékk marga yndislega eigin- leika í vöggugjöf. Hún var okkur systkinunum góð og skemmtileg móð- ir og ekki síst umburðarlynd. Hún var greind og vel að sér, sem kom sér oft vel þegar þurfti hjálp við skólabæk- urnar. Móðir mín hafði listilega fal- lega rithönd og átti auðvelt með að setja saman ljóð og texta. Hún kenndi mér svo margt, svo margt, og síðar einnig börnunum mínum. Hún gætti Harðar og Silju Margrétar, þegar ég fór að vinna frá þeim fárra mánaða gömlum. Þau voru í góðu yfirlæti hjá ömmu, þar til þau komust á leikskóla á 4. ári.Verður umhyggja hennar seint þökkuð. Móðir mín hafði ríka kímnigáfu og var oft hreint óborgan- lega fyndin og frumleg. En bjartasta ljósinu fylgja oft dimmir skuggar. Fyrir fimmtán árum fór að bera á sjúkdómi þeim er átti eftir að verða henni óbærilegur. Það voru oft erfiðir tímar, þó framan af ætti hún góð og gefandi tímabil. Þeim fór þó fækkandi og síðustu ár voru henni mjög sár og úrræðin líknuðu ekki. Svo ég vitni í hennar eigin orð: „Þá er það að lifa sjálfan sig, verst af öllu.“ Alltaf hafði hún þó óbilandi trú á okkur, afkomendum sínum og fylgd- ist vel með öllu okkar amstri. Ég sakna móður minnar, en elska hennar og stolt mun lifa áfram í hjört- um okkar allra. Elsku mamma mín, hvíldu í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Sólveig. Elsku mamma, það er sárt að sjá á eftir þér. Þú fékkst þunga byrði að bera í þessu lífi, byrði sem læknavís- indum nútímans kunnu því miður ekki skil á og höfðu kannski í rauninni ekkert með að gera. Ekkert okkar getur sett sig í spor þín, elsku mamma, til að skilja þrautir þínar hvernig það er að verða ein í tíma og rúmi sem annan tilgang hefur en við hin þekkjum. Sumum sem við þekkj- um hefur gengið illa að skilja þrautir þínar, en lífið á ekki alltaf að vera okk- ur létt að umbera. Þeir sem veikir eru þurfa meiri ást og umhyggju en aðrir. En frelsið hefur þú nú á endanum fengið frá þrautum þínum og kjarkur þinn var mikill. Lífið hefur verið þér erfitt og þá sérstaklega síðasta árið þegar elskurnar þínar hurfu á braut. En það sem þú gafst okkur börnunum þínum í gegnum tíðina er okkur ómet- anlegt. Kærleika og sanna ást við fengum þér frá. Og þrátt fyrir þín erf- iðu veikindi síðustu árin þá gafstu alltaf af þér ást og hlýju. Þú stóðst alltaf með mér í mínum ákvörðunum í gegnum tíðina, þú reyndir aldrei að stjórna mér hvert ég færi í lífinu. Þið þrjú voruð mér öll styrkar stoðir á sínum tíma þegar ég mest á því þurfti að halda. Þú virtir okkur börnin þín sem manneskjur með sjálfstæðar hugsanir, og þrátt fyrir dýfur í lífinu þá komum við aftur upp á endanum sterkari en áður og reynslunni ríkari. Það hefur gefið mér frelsi að fylgja þinni hugmyndafræði í lífinu að mað- ur þurfi ekki alltaf að fylgja straumn- um í ákvörðunum sínum heldur eigin samvisku. Þú verður alltaf í huga mín- um, elsku mamma mín. En nú ertu komin á betri stað þar sem mjúkar hendur þig umlykja á alla vegu frá fólkinu okkar sem beðið hefur þín. Ég vil nú að lokum þakka umönn- unarfólki svo og vistfólki í Hátúni fyr- ir veitta hjálp og alúð í garð mömmu á liðnum árum og þá sérstaklega Guð- rúnu Blöndal. Gefi Guð þeim styrk á svo erfiðri stundu. Björk systir hefur af mikilli fórnfýsi hlúð að mömmu mest allra í gegnum árin og þarf því á okkar styrk að halda um þessar mundir. Þinn sonur, Víðir Þór Magnússon. Elsku mamma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þú varst einstök, mamma mín. Þín dóttir, Björk. Elsku amma mín, þá er komið að kveðjustundinni sem að ég bjóst aldr- ei við að yrði svona snemma. Ég hef hugsað mikið til þín und- anfarna daga og hef verið að rifja upp í huganum allar þær góðu stundir sem við áttum saman og voru þær ófáar. Þú varst nú alltaf einn mesti húm- oristi sem ég þekkti og er ég ekki frá því að ég hafi fengið þennan húmor í arf frá þér. Mér er ofarlega í huga ferð okkar Silju, þín og afa norður á Akureyri hér um árið þar sem við stoppuðum í Vaglaskógi til að sóla okkur smávegis. Þar áttum við góðar stundir við það að hrekkja greyið hann afa með því að kitla hann í nef- inu með strái þegar hann lá í sólinni afslappaður með lokuð augun. Það var svo mörgum árum seinna að hann hafði á orði þegar þessi ferð var rifjuð upp að það hefðu nú verið ansi marg- ar flugur þarna í skóginum þennan dag. Já, hann afi var nú yfirleitt fórn- arlamb brandaranna okkar. Önnur ómetanleg minning er frá því að við sátum uppi á Kelduhvammi fyrir MARGRÉT JÓNSDÓTTIR ✝ Ólafur Guð-mundsson fædd- ist á Naustum við Akureyri 15. maí 1918. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 5. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Guðmundsson bóndi og verkamaður á Naustum, f. 27. maí 1888, d. 15. septem- ber 1975, og Stein- unn Sigríður Sigurð- ardóttir, f. 20. september 1883, d. 13. ágúst 1924. Albróðir Ólafs er Sigurður, f. 16. apríl 1920, og hálfsystkini Stein- unn, f. 15. júlí 1928, Víglundur, f. 31. ágúst 1930, Magnús, f. 8. októ- dikt Sigurbjörnsson. 3) Herdís, f. 11. september 1944, maki Torfi Sverrisson. 4) Lilja Rósa, f. 26. júní 1947, maki Þorvaldur Benedikts- son. 5) Magnús, f. 3. apríl 1950, maki Anna Þóra Baldursdóttir. 6) Aðalheiður, f. 16. júní 1956, maki Ari Erlingur Arason. Einnig ólst að mestu upp hjá þeim hjónum dóttursonur þeirra Ólafur Jens- son. Barnabörnin eru 14, barna- barnabörn 35 og barnabarna- barnabörn eru þrjú. Ólafur vann lengst af við bygg- ingariðnað en síðasti vinnustaður hans var Slippstöðin á Akureyri þar sem hann starfaði fram á átt- ræðisaldur. Hann bjó lengi á Naustum og stundaði þar búskap samhliða öðrum störfum. Fjöl- skyldan fluttist til Akureyrar árið 1969 og síðast bjuggu Ólafur og Sveinbjörg í Rimasíðu 23c. Undan- farin ár dvaldist Ólafur á Hjúkr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri. Út- för Ólafs fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ber 1933, Sigríður, f. 28. júní 1937, og Rík- ey, f. 6. maí 1941. Steinunn og Víglund- ur eru látin. Hinn 30. desember 1940 kvæntist Ólafur Sveinbjörgu Baldvins- dóttur, f. á Hálsi í Öxnadal 6. desember 1916. Foreldrar henn- ar voru hjónin Baldvin Sigurðsson, f. 5. ágúst 1872, d. 29. júlí 1942, og Helga Guðbjörg Sveinsdóttir, f. 9. sept- ember 1884, d. 21. október 1924. Ólafur og Svein- björg eignuðust sex börn, þau eru: 1) Helga Steinunn, f. 14. júlí 1937, maki Jens Ólafsson, látinn. 2) Þór- ey, f. 15. febrúar 1942, maki Bene- Í dag er til moldar borinn faðir okkar, Ólafur Guðmundsson, frá Naustum við Akureyri. Við systk- inin viljum þakka honum ást og hlýju, stuðning og visku, sem var blönduð kímni og alvöru, og sprottin upp af lífsspeki sem í senn var einföld og ígrunduð. Öll framganga í lífi föður okkar einkenndist af hæglæti, velvild og festu. Haf þú, elsku faðir, þökk fyrir allt sem þú gafst okkur og fjölskyldum okkar. Við þökkum þér samfylgdina og biðjum Guð að blessa minningu þína. Aðalheiður, Magnús, Lilja Rósa, Herdís, Þórey og Helga Steinunn. Elsku afi minn. Þá ertu farinn, farinn frá ömmu og öllum afkomendum þínum. Það er erfitt að kveðja en hjá þér, afi minn, var biðin orðin löng. Á þinni lífsleið þurftir þú oft að taka á honum stóra þínum en þú varst höfuð fjölskyldunnar sem við treystum á, alltaf var hægt að koma til ykkar ömmu og fá alla þá aðstoð sem þið mögulega gátuð veitt, það stóð aldrei á því. Afi minn, við náðum ákaflega vel saman og á ég margar góðar minn- ingar frá því að ég var lítill polli og kom til ykkar í Naust og fékk að gista hjá ykkur ömmu og brasa með ykkur í öllu sem þurfti að gera í sveitinni. Síðan er þið flutt- ust í Skarðshlíðina kom ég til ykk- ar 11 ára gamall og fór ekkert aft- ur. Foreldrar mínir fluttu í burtu en hjá ykkur ömmu vildi ég vera þar sem mér leið alltaf afskaplega vel. Þú hjálpaðir mér að komast í mína fyrstu vinnu 11 ára og vorum við ekkert smástoltir þegar fyrstu launin komu. Alltaf hvattir þú mig áfram til þess að takast á við ýmis verkefni og varst svo glaður þegar vel hafði tekist til. Þá var gott að fá faðmlag og koss í kaupbæti. Þegar hugsað er til baka hrúgast fram minningar um allt það sem við höfum gert saman, útilegur – spilað – sungið – dansað. Já, dans- að, það var alveg frábært þegar ég var að kenna þér skottísinn heima í stofu, við vorum við ekki alltaf í takt en það kom að lokum og amma sat í stólnum og grét af hlátri. Þegar ég kynntist Hönnu, konunni minni, tókuð þið á móti henni eins og ykkar dóttur. Bjugg- um við hjá ykkur í tæp tvö ár ásamt Jenna okkar hans fyrstu mánuði. Þegar við fórum sjálf að búa, fyrst í sömu blokk og seinna annars staðar var alltaf mikill sam- gangur á milli okkar og eyddum við t.d. flestum áramótum saman ef hægt var. Þú vannst alltof lengi, afi minn, alveg til 75 ára aldurs og sást þú oft eftir því að hafa ekki hætt fyrr. Því miður bilaði heilsan of snemma og þið amma gátuð ekki notið þess sem þið ætluðuð að gera saman í ellinni, eins og þú sagðir. Síðustu árin dvaldir þú á Hlíð þar sem heilsu þinni hrakaði smám saman. Þó að þú segðir ekki alltaf mikið þessi síðustu ár varstu alltaf svo glaður þegar kíkt var inn og man ég eftir gleðitárunum þeg- ar þú hittir Mána Stein, litla langa- langafa strákinn, í fyrsta skipti og fékkst að halda á honum. Á 83. ára afmælisdeginum þínum fórum við amma með þig í bíltúr að skoða bæinn og Naust að sjálfsögðu og fengum okkur síðan ís í Brynju, þú varst þreyttur en ákaflega glaður þegar komið var til baka. Elsku afi minn, að lokum vil ég þakka þér fyrir allt það sem þú varst mér. Jenni, Erna Hrönn og Brynjar eiga góðar minningar um góðan og skemmtilegan langafa. Guð styrki þig, elsku amma mín, og alla stóru fjölskylduna ykkar afa. Þinn nafni, Ólafur Jensson. Með nokkrum orðum vil ég minnast tengdaföður míns, Ólafs Guðmundssonar, sem lést hinn 5. mars sl. eftir langa dvöl á hjúkr- unarheimili og þakka honum sam- fylgdina. Undirrituð kom í fjöl- skylduna árið 1972 og var þá strax vel tekið. Minnist ég sérstaklega trausts og hlýs viðmóts verðandi tengdaföður míns. Um árabil skildu leiðir vegna búsetu og það var í raun ekki fyrr en frá árinu 1987 þegar við hjón fluttum til Ak- ureyrar að ég kynntist Ólafi. Viðmótið trausta og hlýjan var ætíð fyrir hendi. Ólafur var ró- lyndur maður og gott að vera í ná- vist hans, hann var fastur fyrir væri því að skipta en mildi réð oft- ast ferð. Hjá tengdaforeldrum mínum hefur verið gott að leita ráða um stórt og smátt. Ólafur sýndi börnum sínum, tengdabörn- um og ekki síður barnabörnum og barnabarnabörnum alltaf áhuga, þótt hópurinn færi sístækkandi og vildi fylgjast sem best með hvað hver og einn hafði fyrir stafni og hvað hann var að sýsla með þá stundina bæði í leik og starfi. Ólafur, sem ættaður var frá Naustum við Akureyri, hélt ætíð mikla tryggð við æskustöðvar sín- ar þar sem hann þekkti hverja hæð og hvern hól. Hugur hans hvarflaði oftar en hitt suður í Naust og talaði hann um æsku- stöðvarnar af mikilli hlýju. Hann var söngelskur og hafði ágæta söngrödd, söng enda í karlakórum á Akureyri í meira en 40 ár, lengst af í Karlakór Akureyrar og þar átti hann margar ánægjustundir. Á góðum stundum, sem ljúft er að minnast, naut hann sín hvað best við söng einn eða í félagi við vini og vandamenn. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Nú þegar komið er að leiðarlok- um þökkum við, Magnús og Bjarni Már, fyrir allar góðar stundir og minnumst sérstaklega heimsókna til okkar í Svíþjóð og samveru- ÓLAFUR GUÐMUNDSSON Elsku amma. Þú varst frábær amma, ég gleymi þér ekki. Úlfari og Magnúsi fannst það líka. Ég á eftir að sakna þess t.d. að sækja þig á spítalana, brauðsins eða kökunnar sem þú baðst alltaf um, að koma í heimsókn, og auðvitað á ég eftir að sakna þín líka. Þakka þér fyrir að koma alltaf þegar ég var lítill og var lasinn. Þinn Dagur Sigurður. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.