Morgunblaðið - 14.03.2005, Qupperneq 32
32 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
„Tveir bassar og annar með strengi“
Hádegistónleikar þriðjudaginn 15. mars kl.12.15
Davíð Ólafsson, bassi, Dean Ferrell, kontrabassi og Kurt Kopecky, píanó
flytja verk eftir, meðal annars, Mozart og Bach.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Hádegistónleikar
Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is
Miðasala í síma 568 8000 -
og á netinu: www.borgarleikhus.is
STÓRKOSTLEG SPENNUATRIÐI, TRÚÐAR, ELDUR
OG SPRENGINGAR, GAMAN OG GALDRAR.
Tryggðu þér miða í síma 568 8000
sýningar: 23. mars kl. 20
24. mars kl. 15 og 20
26. mars kl. 15 og 20
!" # $#%
& '( )* +,- + " ".
& '( )* +-/ + " ".
") ) 0
" 2
++ #32 4
5
6 +7+,
8" '9:
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Allra
Síðustu
sýningar
Óliver! Eftir Lionel Bart
Lau. 26.3 kl 14 Nokkur sæti
Lau. 26.3 kl 20 Örfá sæti
Allra síðustu sýningar
Ath: Ósóttar pantanir
seldar daglega!
TVÖ hundruð ára fæðingarafmæli
danska ævintýraskáldsins Hans
Christian Andersens er fagnað
víða um lönd um þessar mundir og
er sýning Þjóðleikhússins, Klaufar
og kóngsdætur, einmitt til orðin
vegna þessa tilefnis. Hér er um að
ræða sýningu sem er sett saman
úr sex af ævintýrum skáldsins
(auk tilvísana í fleiri) og er það
þríeykið Ármann Guðmundsson,
Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason sem hefur valið æv-
intýrin og skrifað handrit sýning-
arinnar. Auk þess hafa þeir Sævar,
Ármann og Þorgeir samið söng-
textana og tveir þeir síðarnefndu
einnig samið sönglögin. Þótt þeir
Ármann, Sævar og Þorgeir séu
hér að vinna í fyrsta skipti fyrir
Þjóðleikhúsið eru þeir síður en svo
byrjendur í skrifum fyrir leikhús
því þeir hafa skrifað saman fjölda
verka fyrir ýmis áhugaleikhús á
undanförnum fjórtán árum. Ég
hygg að þeir séu einna þekktastir
fyrir skrif sín fyrir leikfélagið
Hugleik og var ekki laust við að
maður fyndi fyrir þeim krafti og
þeim skemmtilega húmor sem sýn-
ingar Hugleiks eru frægar fyrir í
Klaufum og kóngsdætrum.
Ekki þarf hér að fjölyrða um
töfra ævintýra H.C. Andersens en
aðeins látið nægja að minna á að
þeir felast hvort tveggja í hinni
listrænni útfærslu þeirra sem og
siðferðilegu gildi. Þá kunni skáldið
þá list að skrifa texta sem höfðar
jafnt til barna og fullorðinna og
ævintýri hans spanna allt litróf
mannlífsins og mannlegra tilfinn-
inga. Mér virðist sem listamenn-
irnir sem standa að þessari sýn-
ingu hafi leitast við að endurspegla
þessa vídd í verkum skáldsins þó
svo að heildaryfirbragðið sé létt og
meiri áhersla á hið skoplega en
það sorglega.
Það er Sigurður Skúlason sem
leikur H.C. Andersen sjálfan, en
skáldið er n.k. leiðsögumaður sýn-
ingarinnar og bindur hin ólíku æv-
intýri saman, ef svo mætti að orði
komast. Í fyrri hluta sýningarinnar
eru leikin þrjú ævintýri: Eldfærin,
Næturgalinn og Hans klaufi, og í
síðari hlutanum eru leikin önnur
þrjú: Svínahirðirinn, Förunaut-
urinn og Litla stúlkan með eld-
spýturnar. Litla ljóta andarung-
anum bregður einnig fyrir í
milliþáttum sýningarinnar í gervi
brúðu sem stjórnað er af brúðu-
gerðarmanninum sjálfum, Bernd
Ogrodnik, sem einnig er höfundur
brúðunnar sem fer með titilhlut-
verkið í Litlu stúlkunni með eld-
spýturnar. Eins og þeir sem þessi
ævintýra þekkja sjá kannski eru
þessi sex ævintýri innbyrðis mjög
ólík og hefur hvert þeirra sinn eig-
in tón. Í Eldfærunum mætum við
norninni, töfragrip hennar og
augnstóru hundunum, dátanum
káta og kóngsdótturinni; í Næt-
urgalanum kveður við allt annan
tón, spurt er um gildi sannrar list-
ar og skilyrði hennar í heimi sem
virðist stundum meta eftirhermuna
og gervimennskuna hærra. Í Hans
klaufa fær lítilmagninn að njóta
sín og slá þeim sem þykist meiri
við; í Svínahirðinum er spurt um
eðli ástarinnar … og svo mætti
lengi halda áfram að lesa úr hinum
mismunandi ævintýrum meist-
arans.
Auk Sigurðar Skúlasonar eru
það sjö aðrir leikarar sem fara
með öll hlutverk í Klaufum og
kóngsdætrum. Hver leikari bregð-
ur sér í mörg gervi og allir fá að
njóta sín í „aðalhlutverkum“ eins
og níu ára athugul fylgdarmær
mín í leikhúsið benti á. Ágústa
Skúladóttir leikstjóri velur víða að
nota ærslafullan leikstíl með ýkt-
um sviðshreyfingum sem vakti oft
mikla kátínu hjá áhorfendum.
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur
kóngsdætur í Eldfærunum og
Hans klaufa og sýnir í báðum til-
vikum að hún hefur alla burði til
afbragðsgamanleiks. Þórunn Lár-
usdóttur naut sín vel sem kóngs-
dóttir í álögum í Förunautnum og
ekki síður sem útsmogna nornin í
Eldfærunum. Arnbjörg Hlíf Vals-
dóttir hefur áður sannað hæfileika
sína í kómík og átti hún mörg
skemmtileg augnablik í sýningunni
hvort sem hún var í hlutverki hirð-
meyjar eða bóndasonar. Um hæfni
Arnar Árnasonar í gamanleik þarf
ekki að fjölyrða, hann var
skemmtilegur dáti og enn
skemmtilegri Kínverji, svo fátt eitt
sé nefnt. Björgvin Franz Gíslason
naut sín í gervi svínahirðisins sem
í þessari sýningu er spænskætt-
aður sem aftur var uppspretta
skemmtilegs sprells í formi söngva
og dansa. Kjartan Guðjónsson var
sérdeilis fínn Hans klaufi og átti
marga fína takta í minni hlut-
verkum. Randver Þorláksson brá
sér áreynslulaust í hlutverk kóngs,
keisara, bónda og draugs. Þegar á
heildina er litið verður ekki annað
sagt en leikhópurinn hafi verið
samstilltur og leikgleðin skilað sér
vel til áhorfenda.
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og
Frosti Friðriksson búa Klaufum og
kóngsdætrum umgjörð sem er um-
fram allt fjörleg í litagleði og end-
urspeglar kátínu sýningarinnar
vel. Umgjörðin tekur alltaf mið af
efninu og yfirbragðið breytist frá
einu ævintýri til annars; tónar
urðu dekkri þegar slíkt hæfði efni-
viðnum. Mikil og skemmtileg sund-
urgerð er í búningum Þórunnar en
leikmynd Frosta er einfaldari en
margar skemmtilegar lausnir þjón-
uðu sýningunni vel. Lýsing Páls
Ragnarssonar átti einnig stóran
þátt í að skapa hið fjölbreytilega
andrúmsloft sem sýningin kallar á.
Tónlistin setti síðan punktinn yfir
i-ið, hvort sem um var að ræða
fjöruga söngva handritshöfund-
anna eða millispil þeirra Hjörleifs
Valssonar, Tatu Kantomaa og Jó-
hanns G. Jóhannssonar.
Klaufar og kóngsdætur er sýn-
ing sem ætti að höfða til áhorfenda
á öllum aldri og hér gefst íslensk-
um leikhúsgestum kærkomið tæki-
færi til að rifja upp kynnin við
þennan mikla meistara ævintýr-
anna og miðla arfi hans til nýrra
kynslóða. Sýningin er leikhúss-
kemmtum af besta tagi; ég mæli
með því að stórfjölskyldurnar fjöl-
menni saman til að skemmta sér
og heiðra minningu H.C. And-
ersen.
„Klaufar og kóngsdætur er sýning sem ætti að höfða til áhorfenda á öllum aldri.“
„… á hugarflugi háu
með H.C. Andersen“
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Hans Christian Andersen.
Handrit og söngtextar: Ármann Guð-
mundsson, Sævar Sigurgeirsson og
Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri og
sviðshreyfingar: Ágústa Skúladóttir.
Aðstoðarleikstjóri og sviðshreyfingar:
Aino Freyja Järvelä. Leikarar: Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir, Björgvin Franz Gíslason,
Kjartan Guðjónsson, Randver Þorláks-
son, Sigurður Skúlason, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir, Þórunn Lárusdóttir og Örn
Árnason. Leikmynd: Frosti Friðriksson.
Búningar: Þórunn E. Sveinsdóttir. Tónlist-
arstjórn: Jóhann G. Jóhannsson. Hljóð-
færaleikarar: Hjörleifur Valsson, Jóhann
G. Jóhannsson og Tatu Kantomaa. Brúð-
ur og brúðuleikstjórn: Bernd Ogrodnik.
Lýsing: Páll Ragnarsson. Stóra sviðið,
13. mars 2005.
Klaufar og kóngsdætur
Soffía Auður Birgisdóttir
UM helgina var opn-
uð í sýningarsal
Listasafns Reykja-
nesbæjar í Duus-
húsum sýningin
Erlingur Jónsson og
samtímamenn, en
Erlingur varð fyrstur
til að hljóta heið-
ursnafnbótina Lista-
maður Keflavíkur
(nú Listamaður
Reykjanesbæjar).
Á sýningunni er
lögð áhersla á að
sýna lágmyndir Erlings Jónssonar
og höfuðmyndir en þær hafa ekki
áður verið sýndar saman og sumar
aldrei sést opinberlega fyrr. Einnig
er persónuleika Erlings gerð skil
með ljósmyndum og myndbandi,
því maðurinn sjálfur er lífsins lista-
verk.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
13.00–17.30 og stendur til 24. apríl.
Erlingur og samtíma-
menn í Reykjanesbæ