Morgunblaðið - 18.03.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.03.2005, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRAM kom í máli þingmanna stjórnarandstöðunnar í umræðum á Alþingi í gær að ekki væri nægilega langt gengið í tillögum tekjustofna- nefndar um breytingar á tekjustofn- um sveitarfélaga. Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti tillögur nefndarinnar í upphafi þingfundar. Þess má geta að einn nefndar- manna, Lúðvík Geirsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, skilaði séráliti. Lúðvík segir m.a. í álitinu að sam- komulag nefndarinnar sé ákveðinn áfangi, en langt í frá viðunandi lausn. Félagsmálaráðherra sagði niður- stöðu nefndarinnar hins vegar vel viðunandi. Mestu máli skipti, í þessu sambandi, að ráðstöfunarfé sveitar- félaganna myndi aukast um 9,5 millj- arða króna á árunum 2005 til 2008. „Niðurstaðan, sem nú hefur náðst, er að mínu mati vel ásættanleg fyrir sveitarfélögin. Þegar tillögurnar eru skoðaðar í heild tel ég óhætt að full- yrða að komið hafi verið til móts við sjónarmið bæði þéttbýlissveitar- félaga og dreifbýlissveitarfélaga, en áherslan í starfi nefndarinnar var þó ótvírætt á að jafna aðstöðumun sveitarfélaga til tekjuöflunar. Sér- stakt framlag í jöfnunarsjóð sveitar- félaga og aðgerðir til að taka á rekstrarvanda félagslega húsnæðis- kerfisins skipta þessi sveitarfélög mestu máli. Stærri sveitarfélögin munu aftur á móti fá varanlega tekjuaukningu vegna fækkunar und- anþágna frá fasteignaskatti.“ Nánar er greint frá niðurstöðu nefndarinnar á öðrum stað í blaðinu í dag. Fjölmargir þingmenn tjáðu sig um tillögurnar í umræðum á Alþingi í gær. Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, líkti þeim við hungurlús, Guðmundur Árni Stef- ánsson, Samfylkingu, sagði þær plástra til skemmri tíma og Einar Már Sigurðarson, Samfylkingu, tal- að um smáskammtalækningar, í þessu sambandi. Sá síðarnefndi kvaðst m.a. óttast að tillögurnar næðu ekki að tryggja þá sátt sem nauðsynleg væri til að efla sveitar- stjórnarstigið. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagðist hafa miklar efasemdir um að tillögurnar skiptu sköpum fyrir sveitarfélögin í land- inu. Hann sagði m.a. að menn þyrftu að horfast í augu við að fjárhags- vandi sveitarfélaganna væri að aukast. Þá sagði Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, m.a. að byggðavandinn yrði ekki leystur nema ríkisstjórnin færi frá völdum og tillögur Frjálslynda flokksins um fiskveiðistjórn næðu fram að ganga. Engin hungurlús Stjórnarliðar lögðu á hinn bóginn áherslu á að umræddar tillögur væru stórt skref. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði þær áfanga á langri leið og Siv Frið- leifsdóttir, Framsóknarflokki, sagði að ekki væri hægt að halda því fram að tillögur sem næmu milljörðum króna væru hungurlús. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók í sama streng og sagði að ríflega níu millj- arða ávinningur fyrir sveitarfélögin skipti að sjálfsögðu gríðarlega miklu máli. Ekki síst fyrir þau sveitarfélög sem hvað höllustum fæti stæðu. Þá sagði Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, að það væri rangt að sveitarfélögin í landinu glímdu almennt við fjárhagsvanda, þótt vissulega væri rétt að ýmis sveitarfélög glímdu við mikinn fjár- hagslegan vanda. Vandinn væri ekki almennur heldur sértækur. Stjórnarandstaðan segir tillögur tekjustofnanefndar skammtímalækningar Morgunblaðið/Þorkell Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti tillögur um sameiningu sveit- arfélaga sl. vor. Sveitarstjórnarmenn hafa lagt mikla áherslu á að styrkja fjárhag sveitarfélaganna áður en gengið verður til kosninga. Félagsmálaráðherra segir niðurstöðuna vel viðunandi „RÍKISSTJÓRN Íslands verður að marka heild- arstefnu í málefnum aldraðra,“ sagði Gunnar Ör- lygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, í um- ræðu utan dagskrár á Alþingi í vikunni um fjárhagsstöðu ellilífeyrisþega. Gunnar var máls- hefjandi umræðunnar. Hann sagði m.a. að upphæðir grunnlífeyris al- mannatrygginga og tekjutryggingar hefðu á und- anförnum tíu árum lækkað verulega sem hlutfall af launum. Þá sagði hann að skv. tölum almannatrygg- inga hefðu aðeins 314 einstaklingar af tæplega 27 þúsund lífeyrisþegum fengið greiddan óskertan tekjutryggingarauka á árinu 2003. „Það er bæði óheiðarlegt og rangt gagnvart eldri borgurum í okkar ríka landi að halda því fram að kjaraþróun eldri borgara hafi verið eðlileg og rétt- lát á umliðnum árum.“ Spurði hann heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Jón Kristjánsson, að því hvort hann hefði í hyggju að beita sér fyrir umtals- verðri hækkun á greiðslum almannatrygginga til eldri borgara. Áfram unnið með samtökum eldri borgara Ráðherra sagði það teygjanlegt hvað umtalsverð hækkun á greiðslum almannatrygginga fæli í sér „en eins og fram kemur í fjárlögum ársins er ekki gert ráð fyrir stökkbreytingum í greiðslum al- mannatrygginga á árinu 2005.“ Hann sagði hins vegar rétt að halda því til haga að skv. fjárlögum hækkuðu framlög til ellilífeyrisþega á árinu um tæpa tvo milljarða kr. Sú breyting væri vegna hækkunar bóta og fjölgunar ellilífeyrisþega. Hækk- unina mætti einnig rekja til samkomulags sem gert var við samtök aldraðra á árinu 2002. Ráðherra kvaðst áfram ætla að vinna að mál- efnum eldri borgara og sagði: „Fulltrúar ríkis- stjórnarinnar hafa nú ákveðið í samráði við Lands- samband eldri borgara á fundi í síðustu viku að starfshópur haldi áfram því samstarfi sem tókst svo vel fyrir skemmstu og það er hugsanlegt – ég undir- strika hugsanlegt – að þar verði t.d. tekinn til um- fjöllunar jaðarskattavandinn, sem svo er nefndur, ásamt öðrum málum, sem háttvirtur málshefjandi hefur rætt um. Árangurinn verður svo að koma í ljós þegar starfinu hefur miðað fram.“ Engar stökkbreytingar í greiðslum almannatrygginga Í FRUMVARPI félagsmálaráðherra, þar sem lagt er til að kosningar um sameiningu sveitarfélaga fari fram 8. október 2005 í stað 23. apríl nk. er gerð ein undantekning. Gert er ráð fyrir að heimiluð verði atkvæða- greiðsla um sameiningu sveitarfé- laga í Borgarfirði 23. apríl. „Markvisst hefur verið unnið að undirbúningi sameiningar þessara sveitarfélaga allt frá árinu 2003 og er ekki talin ástæða til að fresta at- kvæðagreiðslu um tillögu um sam- einingu þessara sveitarfélaga,“ sagði Árni Magnússon félagsmála- ráðherra, er hann mælti fyrir frum- varpinu á Alþingi í gær. Ráðherra mælti hins vegar fyrir því að kosningum um sameiningu annarra sveitarfélaga yrði frestað fram á haust. „Kjördagur sá sem lagður er til í frumvarpinu er valinn með hliðsjón af því að upphaflegar tillögur sameiningarnefndar voru kynntar í lok september 2004 og síð- an þá hefur átt sér stað mikil um- ræða um tillögurnar. Verður að ætla að sveitarstjórn- um sé með þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu veittur nægur tími til að kynna tillögur nefnd- arinnar og undirbúa atkvæða- greiðslu um þær.“ Kosningum frest- að fram á haust ÞINGMENN Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs vilja leggja niður útvarpsráð Ríkisútvarpsins í núverandi mynd og taka þess í stað upp dagskrárráð, sem fjalli m.a. um útsenda dagskrá Ríkisútvarpsins og fylgist með því að stofnunin sinni lögbundnum skyldum sínum. Þess- ar tillögur ásamt fleirum koma fram í frumvarpi um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið, sem þingflokkur Vinstri grænna hefur lagt fram á Alþingi. Þingmenn flokksins kynntu frumvarpið á blaðamannafundi í gær. Kom fram í máli þeirra að þeir telja nýtt frumvarp menntamála- ráðherra um Ríkisútvarpið algjör- lega óviðunandi. Þeir segjast m.a. ósáttir við það rekstrarfyrirkomu- lag sem þar er lagt til. Auk þess segja þeir frumvarp ráðherra vekja ýmsar spurningar. Þuríður Back- man þingmaður segir til að mynda óljóst hvaða áhrif sameignarfélag hafi á kjör starfsmanna Ríkisút- varpsins. Endurspegli ólík sjónarmið Í frumvarpinu, sem Vinstri græn- ir kynntu í gær, eru lagðar til grundvallarbreytingar á stjórn- sýslu Ríkisútvarpsins, útskýrði Ög- mundur Jónasson þingmaður. „Í frumvarpinu er tekið á ýmsum þeim vandamálum sem að stofnuninni steðja,“ sagði hann. „Við leggjum til að útvarpsráð í núverandi mynd verði lagt niður og að hoggið verði á þau valdapólitísku tengsl sem eru milli ríkisstjórnarmeirihlutans og Ríkisútvarpsins. Jafnframt leggjum við til að tengsl Alþingis og stofn- unarinnar verði tryggð á grundvelli viðhorfa en ekki valda.“ Samkvæmt frumvarpinu eiga all- ir þingflokkar að tilnefna fulltrúa í dagskrárráð, ásamt Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga, Bandalagi listamanna og Neytendasamtökum. Þá er gert ráð fyrir því að æðstu menn stjórnsýslu RÚV eigi sæti í dagskrárráði, sem og fulltrúi starfs- manna. „Ráðið á að endurspegla ólík sjónarmið í þjóðfélaginu en ekki valdahlutföll, auk þess sem að- ild starfsmanna stuðlar að tengslum við innra starf stofnunarinnar,“ segir í greinargerð frumvarpsins. Eina hlutverk dagskrárráðs við mannaráðningar, felst í því að gera tillögu um útvarpsstjóra, sem ráð- herra síðan skipar, skv. frumvarp- inu. Í frumvarpinu er lagt til að af- notagjöldum verði breytt á þann veg að stofn þeirra taki mið af íbúð- um og atvinnuhúsnæði eftir því sem við eigi. „Því er slegið á föstu að hverri íbúð fylgi réttur til að nýta þá þjónustu sem Ríkisútvarpið veit- ir landsmönnum. Fyrir þann rétt sé síðan greitt afnotagjald eftir nánari reglum sem settar verða í sér lög- um,“ segir í greinargerð frumvarps- ins. Þingmenn Vinstri grænna leggja áherslu á að frumvarp þeirra verði rætt samhliða frumvarpi mennta- málaráðherra á Alþingi. Þeir vilja auk þess að umræðurnar um þessi frumvörp fái góðan tíma. Mikilvægt sé að skoða allar þær tillögur sem fram koma í þessum málum. Vinstrihreyfingin leggur fram nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið Dagskrárráð í stað útvarpsráðs TANNLÆKNUM verður gert skylt að auglýsa gjaldskrá sína árlega, ef frumvarp þingmanna Samfylk- ingar, Framsókn- arflokks, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins, nær fram að ganga. Frumvarpið var lagt fram á Al- þingi í gær. Fyrsti flutnings- maður þess er Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Í frumvarpinu er gerð tillaga um að tannlæknum verði skylt að aug- lýsa gjaldskrá sína árlega, eins og áður sagði, sem og þegar gerðar eru breytingar á henni. Einnig er gerð tillaga um að gjaldskrá tann- lækna skuli vera sýnileg. Flutningsmenn segja í grein- argerð að það sé mikilvægt að þeir sem hyggist leita sér tann- læknaþjónustu geti haft greiðan að- gang að gjaldskrám einstakra tann- lækna. Lagt er til í frumvarpinu að ráðherra ákveði, með reglugerð, hvar birta beri auglýsingar um gjaldskrár. Skv. núgildandi lögum er starfandi tannlæknum bannað að auglýsa starfsemi sína sem og gjaldskrár. Tannlæknar þurfi að auglýsa gjaldskrá sína Jón Gunnarsson EKKI verður séð að hvalveiðarnar sumarið 2003 hafi haft áhrif á al- menna ímynd Íslands á helstu mark- aðssvæðum ferðaþjónustunnar. Þannig hljóðar niðurstaða skýrslu samgönguráðherra, Sturlu Böðv- arssonar, um áhrif hvalveiða á ímynd Íslands sem ferðamanna- lands. Skýrslan var lögð fram á Al- þingi í gær. Hún var unnin skv. beiðni Marðar Árnasonar og fleiri þingmanna Samfylkingarinnar. Í skýrslunni eru tekin saman ýmis gögn t.d. kannanir meðal erlendra ferðamanna og söluaðila á markaðs- svæðum erlendis. „Ekki verður séð eftir lestur þess- ara gagna að hvalveiðarnar sumarið 2003 hafi haft áhrif á almenna ímynd Íslands á helstu markaðs- svæðum ferðaþjónustunnar. Þar koma aftur á móti fram varnaðarorð um að hvalveiðar í meira umfangi og í atvinnuskyni gætu skaðað ímynd okkar. Sömu varnaðarorð hafa heyrst undanfarið hjá forsvars- mönnum ferðaþjónustunnar á Ís- landi,“ segir m.a. í skýrslunni. Ekki haft áhrif á ímynd Íslands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.