Morgunblaðið - 18.03.2005, Qupperneq 18
Orðstír Glasgow snýst um verslun,
en í borginni er stærsta
verslunarhverfi Bretlands utan
London – og allt í göngufæri. Mílu
vegar í miðborginni er hver
tískuverslunin af annarri ásamt
forvitnilegum verslunum við
breiðgötur, glæsilegar
stórverslanamiðstöðvar og
íburðarmikil vöruhús Merchant
City hverfisins.z
Merchant City er einnig
miðpunktur götuveitingahúsa
Glasgow. Borgarbúarnir virðast
kunna best við latte-kaffið sitt á
opnum stöðum. Þið ættuð að prófa
Merchant Square, Candleriggs,
Royal Exchange Square eða
umhverfi Mercury styttunnar í
ítalska hverfinu. Þar sem klassíska
húsagerðarlist er að finna er
venjulega þjónn nærri.
Íbúar Glasgow þekkja húsagerðarlist sína og benda mönnum á uppáhaldsbyggingar
sínar eins og gamla vini. Flestir munu benda ykkur á Glasgow listaskólann,
snilldarverk nýlistafrumkvöðulsins Charles Rennie Mackintosh. Hann var talinn
upphafsmaður Glasgowstílsins og áhrif hans má sjá á húsagerðarlist og hönnum um
alla borgina, allt frá nýbyggingum til framhliða verslunarhúsa.
En húsagerðarlistin á hvorki upphaf né endi hjá Mackintosh. Glasgow er best
varðveitta breska borgin frá Viktoríutímabilinu, uppbyggð ekki ósvipað og
Manhattan, sem býður upp á sérstakt svipmót rauðs og ljóss sandsteins. Fyrsta
ráðlegging Glasgowbúa er að gestir muni eftir að líta upp á við.
Allir íbúar Glasgow hafa skoðun á list. Opinber söfn borgarinnar eru víða talin
meðal hinna bestu í Evrópu og eru opin alla vikuna. Góður staður til að byrja á er
McLellan listasafnið sem er rétt fyrir hornið á listaháskólanum. Á Kelvingrove
sýningunni (Art Treasures of Kelvingrove) er fjöldi verka gömlu meistaranna og
þar er salur helgaður Glasgowstílnum.
Ef menn hafa áhuga á Mackintosh og listasöfnum er hægt að fara gegnum
Kelvingrove garðinn að Glasgowháskóla, en nýgotnesk turnspíra hans sést í margra
kílómetra fjarlægð. Í Hunterian listasafni háskólans eru geymd bú Mackintosh og
James McNeill Whistler auk margra sýningargripa Glasgowdrengjanna og skoskra
listmálara (“Scottish Colourists”), en þeir máluðu í sérstökum stíl. Þar er einnig
Mackintosh húsið, sem er endurbygging ástarhreiðurs, sem hjónin hönnuðu fyrir sig.
Þaðan ætti að fara í göngu niður að Byres Road, sem er aðalgatan í þeim hluta
borgarinnar sem kallaður er West End. Svæðið er afslappað og frjálslegt og þar er
að finna fjölda kaffihúsa, tehúsa og bókaverslana alla leið að grasagarðinum.
Rétt aftan við Byres Road eru steinlagðar götur þar sem hesthúsum hefur verið
breytt í skemmtilegar verslanir, veitingastaði og kaffihús. Ef Byres Road er hjarta
vesturbæjarins er Ashton Lane sál hans. Þar er aðlaðandi götulíf og fullkomin
síðkvöldsstemning í bestu veitingahúsum og ölkrám Skotlands. Þar er einnig
huggulegt kvikmyndahús með sófum
fyrir tvo aftantil.
Rómantískt fólk mun einnig njóta
útiveru í 70 skemmtigörðum víða um
borgina. Glasgow þýðir “elsku græni
staðurinn” og það ekki að ástæðulausu.
Einna bestur er stóri Pollok
skemmtigarðurinn í sunnanverðri
borginni, en þar halda til hjarðir
sérkennilegra lubbhærðra rauðra
hálandanautgripa.
Í miðjum garðinum er Pollok House,
stórkostlegt herrasetur frá
Georgstímabilinu, sem hýsir frægt
spænskt listaverkasafn, garða og
húsgögn frá tímabilinu. Kunnugir
Glasgowbúar fara beint niður stigann til
að fá heimabakstur í eldhúsinu sem er
frá Játvarðartímabilinu.
Frá þessum stað er aðeins tíu mínútna gangur í Burrellsafnið bak við trén. Þar er
mikið safn málverka, höggmynda og allskonar listmuna til sýningar í byggingu,
sem nýtir á undraverðan hátt ljósbrigðin og skógi vaxið umhverfi. Burrellsafnið er
vissulega á heimsmælikvarða og eitt af bestu listasöfnum, sem menn geta upplifað.
Þegar kvölda tekur er nóg að sjá af listviðburðum borgarinnar, en sumir staðirnir
eru eins frægir og listamennirnir sem þeir draga að sér. Sumir þeirra þekkjast á
gælunöfnum eins og “Armadillo” og “the Citz”, meðan Barrowland, The Arches og
King Tut’s eru þekktir um allt Bretland fyrir áræðni. En hvort sem menn sjá og
heyra hundrað manna hljómsveit í konunglegu hljómleikahöllinni eða taka þátt í
“ceilidh” dansi í Renfrew ferjunni geta allir fallist á að í Glasgow gerirðu það
með stæl.
‘Stærsta borg Skotlands, yfirfull af stíl og menningu, er opinberun,’ Þannig lýsti tímaritið
Time borginni Glasgow nýverið. Þetta er ekkert nýtt fyrir Skota, sem löngum hafa litið á
Glasgow sem raunverulega höfuðborg hvað varðar verslun, næturlíf og listir. Þetta spyrst út,
Glasgow er “inni”.
SKOÐIÐ WWW.SEEGLASGOW.COM