Morgunblaðið - 18.03.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 21
ERLENT
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
0
3
. 0
5
OFFITA er orðin svo alvarlegur
heilbrigðisvandi í Bandaríkjunum,
sérstaklega meðal barna, að nú
telja vísindamenn að hún geti stytt
meðalævi fólks um nokkur ár. Síð-
ustu 200 ár hafa lífslíkur Banda-
ríkjamanna, eins og flestra vest-
rænna þjóða, aukist jafnt og þétt
vegna framþróunar í læknavísind-
um og bættra lífsskilyrða almennt
en nú stefnir í að breyting verði
þar á.
Þetta kemur fram í nýlegri
rannsókn sem sagt er frá í lækna-
tímaritinu The New England
Journal of Medicine.
Talið er að offita þjaki nú tvo af
hverjum þremur Bandaríkja-
manna en afleiðing þessa heil-
brigðisvanda birtist m.a. í hárri
tíðni hjartasjúkdóma, fjölgun
krabbameinstilfella og mikilli út-
breiðslu sykursýki. Offituvandinn
eins og hann blasir við nú er aðeins
toppurinn á ísjakanum að mati
David Ludwig, vísindamanns sem
tók þátt í rannsókninni. Hann seg-
ir offitufaraldurinn í Bandaríkjun-
um langt frá því að hafa náð há-
marki og afleiðingarnar fyrir
heilsu fólks komi ekki í ljós fyrr en
að mörgum árum liðnum. Ef börn
þjást af offitu 12–14 ára gömul,
eiga þau á hættu að fá hjartaáföll
og nýrnabilanir á unga aldri að
sögn Ludwigs.
Vísindamenn benda sérstaklega
á fjölgun sykursýkistilfella vegna
offitu meðal barna, en þeir reikna
með að lífslíkur þeirra skerðist um
allt að níu mánuði.
Jay Olshansky, faraldursfræð-
ingur við Illinoisháskóla í Chicago,
sem stjórnaði rannsókninni, spáir
því að faraldurinn eigi eftir að
stytta meðalævi Bandaríkjamanna
um tvö til fimm ár á nokkrum ára-
tugum. Olshansky telur að offita
eigi jafnvel eftir að hafa meiri áhrif
á dánartíðni en bæði hjartasjúk-
dómar og krabbamein, sem eru al-
gengustu dánarorsakirnar í dag.
Árið 2003 voru meðalævilíkur í
Bandaríkjunum 77,6 ár.
Offita gæti stytt
ævilíkurnar
Washington. AFP.
PAKISTÖNSK kona, Mukhtiar Mai, krafðist í gær
handtöku fjögurra manna sem nauðguðu henni, en
þeim var sleppt úr haldi nýverið.
Ættbálkaráðið í þorpi þeirra fyrirskipaði nauðg-
unina sem refsingu fyrir samband bróður hennar við
konu af hærri stigum. Mennirnir voru sýknaðir nýlega
eftir áfrýjun dauðadóms sem þeir höfðu hlotið. Þeir
dveljast í þorpinu þangað til málið kemur fyrir hæsta-
rétt. Mai sést hér, ásamt þingkonunni Kashmala Tariq,
á blaðamannafundi í Islamabad í gær.
AP
Krefst réttlætis