Morgunblaðið - 18.03.2005, Qupperneq 24
Ísafjörður | Sjómennirnir á
togaranum Páli Pálssyni frá
Hnífsdal luku þátttöku sinni í
togararallinu í vikunni. Lagt var
að bryggju í Ísafjarðarhöfn og
gamla trollið híft frá borði en
það er notað við rannsóknina.
Það var þó haft tilbúið ef kallið
kæmi aftur. Venjulegu veiðar-
færin fóru hins vegar aftur um
borð. Þar á meðal voru steina-
stiklur botnvörpunnar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Steinastiklur um borð
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Menningar- ogumhverfis-verðlaun
Hornafjarðar voru veitt
og afhent á dögunum.
Menningarverðlaunin í
ár hlaut Gísli Sverrir
Árnason fyrir öflugt og
farsælt starf við upp-
byggingu Menningar-
miðstöðvar Hornafjarðar
og uppbyggingu menn-
ingarmála á Austurlandi
og á landinu öllu með
formennsku sinni í
Menningarráði Austur-
lands og í stjórn Safna-
ráðs.
Umhverfisverðlaunin
hlaut Elín Sigríður
Harðardóttir fyrir langt
og farsælt starf að um-
hverfismálum í sveitarfé-
laginu. Afhendingin fór
fram í Nýheimum.
Kemur þetta fram á
vef Hornafjarðarbæjar,
hornafjordur.is.
Verðlaun
Fimm manna hópur vaskra manna hélt á dögun-um á topp Heklu á KTM-mótorhjólum. Ekið vará toppinn norðaustan megin og gekk ferðin vel.
Hjólin voru útbúin sérstökum nagladekkjum með
„carbít“-endum, u.þ.b. 400 stykki í hvert dekk. Það var
heldur napurt á toppnum, vindur 10 til 12 metrar á sek-
úndu og frostið náði -35 til -40 stigum. Á myndinni eru
ferðafélagarnir Sölvi Árnason, Karl Gunnlaugsson,
Snorri Gíslason og Helgi Valur Georgsson.
Á toppnum
Landeigendur íReykjahlíð fóru ímál við ríkissjóð
og vildu fá yfir hundrað
milljónir frá Lands-
virkjun fyrir nýtingu
vatns í landi Reykjahlíð-
ar. Þar með kviknaði sú
spurning hjá Friðriki
Steingrímssyni í Mývatns-
sveit hvað menn ættu
langt niður.
Í helvíti er allt á iði
ofan jarðar geisar stríð;
kölski er máski leiguliði
landeigenda í Reykjahlíð.
Raggi Bjarna var með á
vorfagnaði karlakórsins
Hreims að Ýdölum. Frið-
rik orti limru:
Þó textavillt tíðum hann lendi
og tónana rólega sendi
þá klikkar hann ei
né koxar ónei
en syngur með hangandi
hendi.
Á föstudagsmorgun var
allt dautt á Rás 2 út af
mótmælum. Friðrik orti:
Fréttastofan stendur dauð uns
stríðsins verður rýmdur hóll,
því á meðan auður Auðuns
eftirlætis bíður stóll.
Af Ragga Bjarna
pebl@mbl.is
Hólmavík | Fjölmennur íbúafundur á
Hólmavík samþykkti ályktun þar sem
skorað er á samgönguráðherra og aðra
þingmenn Norðvesturkjördæmis að
tryggja að vegur um Arnkötludal og
Gautsdal verði lagður sem fyrst, vegna
stóraukinna þungaflutninga. Stefnt verði
að því að lagning vegarins verði boðin út
innan árs.
Engilbert Ingvarsson flutti tillöguna
og var hún samþykkt með lófataki.
Einkahlutafélagið Leið hefur undirbúið
framkvæmdir við veginn sem liggur af
Ströndun og yfir í Reykhólahrepp og
nefndur hefur verið Stranddalavegur.
Leið hefur fengið Náttúrustofu Vest-
fjarða til að annast umhverfismat og
Línuhönnun hf. til að undirbúa fram-
kvæmdir. Fram kemur í ályktuninni að
endanleg skýrsla um umhverfismat muni
væntanlega verða lögð fyrir Skipulags-
stofnun á næstunni. Fundurinn þakkaði
sérstaklega Jónasi Guðmundssyni,
sýslumanni í Bolungarvík, fyrir forystu
hans um að flýta rannsóknum og und-
irbúningi vegagerðarinnar.
Á fundinum sagði Ásdís Leifsdóttir
sveitarstjóri meðal annars frá rekstri
sveitarfélagsins síðustu tvö árin. Kom
meðal annars fram að rekstur hinnar
nýju íþróttamiðstöðvar er í svipuðu horfi
og áætlað hafði verið, en kostnaður við
byggingu hennar fór töluvert fram úr
upphaflegri kostnaðaráætlun.
Auk samgöngumála og fjármála sveit-
arfélagsins urðu umræður um umhverf-
is- og atvinnumál fyrirferðarmiklar. Í
þeim umræðum kom meðal annars fram
að verið er að athuga möguleika á stofn-
un héraðsskjalasafns á Ströndum.
Stranddala-
vegur verði
lagður
sem fyrst
Veiðar
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Íbúar Vel var mætt á íbúafundinn.
Íbúar á Hólmavík álykta
um samgöngumál
Vatnsdæla saga | Starfshópur um
verkefnið Á slóð Vatnsdæla sögu vinnur
að því að gera sögusviðið í Vatnsdal og
Þingi aðgengilegt og áhugavert fyrir
ferðafólk. Unnið er að skráningu sögu-
staða og fornleifarannsóknum og merk-
ingu þeirra. Hugmyndir hafa verið uppi
á svæðinu um að nýta Vatnsdæla sögu
við uppbyggingu ferðaþjónustu í hér-
aðinu.
Verkefnishópurinn hefur sett upp
þriggja ára áætlun sem miðar að því að
gera söguslóðina og veitti Byggðastofnun
2,5 milljóna króna styrk til þess að
hrinda henni í framkvæmd. Áður hafa
ýmsir aðilar veitt smærri styrki og ann-
an stuðning að því er fram kemur á vefn-
um huni.is.
Nýr formaður | Sandra D. Gunnars-
dóttir, varabæjarfulltrúi, var kosin formað-
ur Samfylkingarfélags Árborgar og ná-
grennis á aðalfundi félagsins sem haldinn
var í vikunni. Fráfarandi formaður, Arna Ír
Gunnarsdóttir, gaf ekki kost á sér til for-
mennsku en situr áfram í stjórn.
Með þeim í stjórn eru Björgvin G. Sig-
urðsson, Gylfi Þorkelsson, Sigríður Ólafs-
dóttir, Már Ingólfur Másson, Heiður Ey-
steinsdóttir, Tómas Þóroddsson og
Sigurbjörg Grétarsdóttir.
10 þúsund ferðamenn | Í það minnsta 18
skemmtiferðaskip koma til Ísafjarðar á kom-
andi sumri. Er þetta áþekkur fjöldi og síð-
asta sumar, en þar áður höfðu skipin flest
verið um 15 á einu ári. Nokkur þeirra munu
ekki leggjast að bryggju heldur liggja úti á
firðinum. Einungis eitt skip kemur í júní, ell-
efu skipakomur verða í júlí, fimm í ágúst og
eitt skip kemur til bæjarins í september.
Ljóst er að hátt í 10 þúsund ferðamenn koma
til bæjarins með þessum skipum í sumar.
Nokkur skipanna eru sannkallaðir Ísafjarð-
arvinir, segir á vef Bæjarins besta, en þar
má nefna Funchal og Hanseatic sem hafa
verið tíðir sumargestir á Ísafirði.
Stundarfriður | Leikfélag Hörgdæla
frumsýnir í kvöld, föstudagskvöldið 18.
mars, leikritið Stundarfrið eftir Guðmund
Steinsson. Leikritið lýsir lífi sundraðar fjöl-
skyldu í Reykjavík,
Sýnt er á Melum í Hörgárdal kl. 20.30.
Alls eru níu leikarar í sýningunni og leik-
stjóri er Saga Jónsdóttir sem áður hefur
leikstýrt Hörgdælum.