Morgunblaðið - 18.03.2005, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hulda Höydahlfæddist í Akra-
koti á Álftanesi 12.
desember 1912. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Grund 9.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Lyder
Höydahl, fv. kaup-
maður í Vestmanna-
eyjum, f. í Noregi
27. janúar 1872, d. 3.
nóvember 1964 og
Þuríður Eyjólfsdótt-
ir Höydahl, f. á Felli
í Suðursveit 17. júlí
1877, d. 21. febrúar 1967. Systir
Huldu er Gerda, f. 31. október
1916, gift Poul Björlykhaug, þau
eru búsett í Noregi.
Hulda stundaði verslunarstörf
frá unga aldri, um árabil í
Burstagerðinni en
vann lengst af hjá
Kirkjugörðum
Reykjavíkur uns
hún lét af störfum.
Hulda tók virkan
þátt í starfi KFUK
og var einn af frum-
herjum í uppbygg-
ingu Vindáshlíðar
og sýndi því starfi
og kristniboðsstarfi
ávallt mikla ræktar-
semi og stuðning.
Hulda var mikil úti-
vistarkona og ferð-
aðist víða, bæði hér
heima og erlendis. Einnig lagði
hún stund á listmálun í frístund-
um.
Hulda verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Hún Hulda frænka mín var grann-
vaxin, brosmild og hraust kona sem
stundaði útivist af kappi og hafði
mikla ást á náttúru Íslands. Hún var
sjálfstæð og frjáls og skundaði upp
um fjöll og firnindi og málaði það
landslag sem fyrir augu bar, enda
mikil listakona. Hún lét aldrei veður
eða vind aftra sér frá því að njóta
náttúrunnar og ferðalaga.
Mér er mjög minnisstætt ferðalag
okkar Huldu með fjölskyldunni að
Reynivöllum í Suðursveit þegar ég
var fjórtán ára gömul. Á ferðalaginu
fræddi hún okkur um fjöllin, vötnin
og fossana í kring og mátti ég korn-
ung manneskjan hafa mig alla við að
halda í við hana í gönguferðum okkar
upp með Fellsfossi.
Í raun var þetta ekkert nýtt fyrir
mér því Hulda var vön að hlaupa á
undan mér upp hæðirnar fjórar
heima hjá sér án þess að blása úr nös
og fór létt með það í mörg ár eftir
þetta.
Sextíu ára aldursmunur er á mér
og Huldu, en við erum báðar fæddar
12. desember, en ég kom í heiminn á
sextugsafmælisdaginn hennar. Í
minni fjölskyldu var Hulda kölluð
stóra Hulda og ég litla Hulda til
aðgreiningar. Hún var nokkurs
konar amma mín, þar sem báðar
ömmur mínar féllu frá snemma í
mínu lífi. Þannig kenndi hún mér
ýmsa siði sem ömmum er tamt að
kenna þeim sem yngri eru.
Og ófáar eru minningarnar frá
Sunnubrautinni þegar Hulda kom í
heimsókn og útbjó sultutau og saft
úr rabarbara og rifsberjum sem þá
höfðu tekið sér bólfestu á Sunnu-
braut. En þannig var að plönturnar
hennar Huldu fluttu frá Grensásveg-
inum forðum daga til okkar á Sunnu-
braut í Kópavogi þar sem hún gat
ekki flutt þær með sér í Stóragerði.
Flestar plöntur þekkti Hulda og
hjálpaði hún mér að bera kennsl á
þær plöntur sem fyrir voru þegar ég
flutti í litla húsið við Kársnesbraut-
ina.
Hulda var ákaflega gestrisin kona
og eru kaffiboðin hennar Huldu mér
ákaflega minnisstæð. Þá var borðið
ávallt hlaðið kræsingum og enginn
mátti fara án þess að vera búinn að
fá góðan skerf af kræsingunum.
Eftir að móðir mín féll frá var
Hulda dugleg að sinna mér. Þannig
hjálpuðumst við iðulega að við jóla-
baksturinn fyrir jólin. Eflaust var lít-
ið gagn í mér við baksturinn en
Hulda var óþreytandi við að kenna
mér hvernig best væri að bera sig að
og hjálpaði þannig til við að halda
gömlu siðunum við sem eru manni
svo dýrmætir. Um jólin var svo vita-
skuld farið á jólabasarinn hjá KFUK
sem mér þótti ákaflega spennandi
viðburður. Þessar æskuminningar
eru mér afar dýrmætar og tel ég mig
vera ákaflega heppna að hafa fengið
að kynnast þessari stórkostlegu
frænku minni. Mér er mikill heiður
að bera nafnið hennar Huldu, enda
hefur hún verið mér sterk fyrirmynd
sem sjálfstæð kona.
Ég sé Huldu núna fyrir mér glað-
lega og vel til hafða eins og hún var
alltaf.
Elsku Hulda, takk fyrir allar dýr-
mætu stundirnar.
Hulda Jónasdóttir.
Elskuleg frænka okkar og vin-
kona, Hulda Höydahl, er látin og
langar okkur að minnast hennar með
nokkrum orðum. Hulda frænka og
mamma okkar voru systkinabörn.
Var mikill samgangur á milli heimila
þeirra og alveg frá fyrstu kynnum
hafa þær systur Hulda og Gerda ver-
ið frænkurnar sem okkur öllum þótti
svo vænt um. Þær voru glaðar konur
sem höfðu frá svo mörgu fróðlegu og
skemmtilegu að segja. Eftir að
Gerda giftist og fluttist til Noregs
ferðaðist Hulda mikið til fjarlægari
landa og hafði þá yndi af að skoða allt
það markverðasta sem hver staður
hafði upp á að bjóða. Listasöfn og
blómagarðar voru í sérstöku uppá-
haldi og þessu öllu deildi hún með
okkur þegar heim kom með mynda-
sýningum og frásögunum. Hún ferð-
aðist líka mikið um landið okkar, oft
á tveimur jafnfljótum á sínum yngri
árum. Hin síðari ár fór hún oft með
foreldrum okkar í bíltúr eitthvert
upp í sveit og hafði alltaf mjög gam-
an af. Hulda var mjög listfeng kona.
Myndlistin átti alltaf huga hennar
allan og í seinni tíð lærði hún að auki
postulínsmálun. Margir dýrgripirnir
urðu til í höndum hennar og má þar
nefna fjölmörg málverk af náttúru
landsins, dýrum og blómum og hand-
málaða postulínsgripi af ýmsum
toga. Afar falleg svæflaver fengu
nokkur barna okkar að gjöf frá
henni, útsaumuð af sama myndar-
skapnum. Hulda var ræktarsöm við
allt sitt samferðafólk. Oft bauð hún
okkur öllum til sín í dýrindis kaffiboð
og í okkar fjölskylduboðum var hún
ávallt heiðursgestur. Hún var stillt
kona og fáguð í framkomu en jafn-
framt hógvær og alltaf glaðleg. Hún
lifði sérlega góðu og innihaldsríku
lífi í rúm 92 ár og var ætíð sátt við
Guð og menn. Við þökkum henni
hjartanlega fyrir alla gæskuna og
samfylgdina í gegnum árin og kveðj-
um hana með versi úr uppáhalds-
sálminum hennar.
Þegar æviþrautin dvín,
þegar lokast augun mín,
þegar ég við sælli sól
sé þinn dóms- og veldisstól:
Bjargið alda, borgin mín,
byrg mig þá í skjóli þín.
(Matthías Jochumsson.)
Erna, Kristín og
Björk Norðdahl.
Hulda var mikil KFUK-kona og
kristniboðsvinur, þetta tvennt voru
hjartabörnin hennar, sem sjálf var
ógift og barnlaus, og miklu fórnaði
hún í þágu þessara. Bænabörnin
hennar voru óteljandi, litlu telpurnar
og unglingarnir sem komu í KFUM
og KFUK, Hlíðarstúlkan sem gist
hafði Vindáshlíð, starfsfólkið allt, og
þá ekki síður sendiboðarnir úti á
kristniboðsakrinum. Á bænalistan-
um hennar voru líka mörg eþíópísk
nöfn og hún naut þess að heyra um
fjarlæga vini í Konsó. Hug sinn til
„hjartabarna“ sinna sýndi hún best,
er hún gaf Sumarstarfi KFUK í
Vindáshlíð og Sambandi íslenskra
kristniboðsfélaga nánast allar eigur
sínar. Það gerði hún þegar hún flutti
úr íbúð sinni í Stóragerði inn á dval-
arheimili aldraðra í Espigerði. Síð-
asta árið dvaldi hún á Elliheimilinu
Grund. Ávallt heilsaði hún með geisl-
andi brosi, þakklát Guði og mönnum,
og þó minnið væri farið að bila var
hún fljót að finna réttar nótur þegar
farið var að tala um kristniboðana og
kristilega starfið, sem hún unni. „Já,
nú hef ég svo góðan tíma til að biðja,“
var með því síðasta sem hún sagði
við mig. Og þakklát er ég fyrir bæn-
irnar hennar mér og mínum til
handa.
Hulda og yngri systir hennar,
Gerda, áttu trúaða foreldra, íslenska
móður og norskan föður, og ólust
upp í Reykjavík. Ungar gerðu þær
Jesú Krist að leiðtoga lífs síns.
Gerda giftist til Noregs, en þær syst-
urnar heimsóttu oft hvor aðra, enda
mjög samrýndar. Á heimili Gerdu í
Osló ríkti gestrisni og margir Íslend-
ingar, nemar við Biblíuskólann á
Staffelsgötu, sem „Indre Misjonen“
rekur, eiga þaðan góðar minningar.
Gestrisni var Huldu líka í blóð borin
og óhugsandi að líta inn til hennar
nema þiggja veitingar. Hulda var
alla tíð í hópi „hinna kyrrlátu og hóg-
væru í landinu,“ en eftirminnileg
hvar sem hún fór, þessi fallega,
virðulega kona. Hún tók virkan þátt í
starfi KFUK og lét sig sjaldan vanta
á AD-fundi (aðaldeild). Um árabil sat
hún í stjórn félagsins þar sem hún
gegndi ritarastörfum. Rithönd henn-
ar var einstaklega falleg, nokkuð
sem ekki breyttist þrátt fyrir háan
aldur. Huldu var margt til lista lagt,
málaði og saumaði listavel. Áratug-
um saman stundaði hún vikulega
saumafundi fyrir basar KFUK. Í
Kristniboðsfélagi kvenna var hún
trúfastur meðlimur og ófáa muni gaf
hún til ágóða fyrir kristniboðið.
Handbragðið var slíkt að aðdáun
vakti. Síðasta dúkinn saumaði hún
ekki löngu fyrir andlátið, þá komin
yfir nírætt. Það var gott að vera í ná-
vist Huldu, henni fylgdi hlýja og
Guðs blessun.
Þegar blásið var til sóknar við
byggingu skála fyrir sumarstarf
KFUK í Vindáshlíð fyrir rúmlega
hálfri öld var Hulda meðal frum-
herja. Ég minnist hennar íklæddri
olíustakk við vegagerð og alls kyns
erfiðisvinnu í úrhellisrigningu þar
sem ekkert var eftir gefið. En dýr-
mætust er minningin um hana er
hún á sinn hljóðláta og milda hátt
sagði frá því sem Jesús gerði fyrir
hana. Líf hennar allt var sannarlega
vitnisburður um það hvernig sá sem
lifir nálægt Guði helgast honum.
Þökk sé Guði fyrir Huldu, líf hennar
og starf.
Ég og fjölskylda mín vottum
Gerdu og Paul Björlykhaug, eigin-
manni hennar, innilega samúð.
Katrín Þ. Guðlaugsdóttir.
Ég man eftir henni frá frum-
bernsku minni og alla tíð síðan. Hún
vann á skrifstofunni hjá föður mín-
um í Burstagerðinni á Laugavegin-
um. Ég fann strax og sá að það var
eitthvað sérstakt við hana Huldu.
Ekki bara það að hún væri falleg.
Það var einhver dásamleg birta og
friður yfir persónu hennar. Hún var
glöð, glettin og hlátur hennar var
mildur og góður.
Móðir mín bauð henni alltaf í
formiðdagskaffið og vorum við
krakkarnir send fram á skrifstofu
eftir henni. Mér fannst alltaf heppn-
in leika við mig þegar ég var send
fram að sækja hana, því þegar ég
stóð dyragættinni og sagði: „Hulda,
mamma segir að þú sért velkomin í
kaffið,“ þá ljómaði andlit hennar og
hún neri saman höndunum af
ánægju, hló sínum glaðværa hlátri
og þakkaði gott boð. Ég get ekki
gleymt þessum þægilegu viðbrögð-
um hennar. Þau yljuðu minni barns-
sál og ylja mér enn þegar ég minnist
þeirra.
Hulda var falleg og virðuleg kona
og yfir henni hvíldi einhver dásam-
leg heiðríkja. Áhrif heiðríkjunnar í
dagfari hennar á mig, barnið, voru
m.a. þau að mér finnst útilokað að
hún hafi nokkurn tíma sleppt
styggðaryrði um nokkurn mann
fram yfir varir sínar.
Ég veit að hún vann öll sín störf af
mikilli samviskusemi og leikni sem
mótaðist af hinni glöðu lund hennar
og jákvæðri afstöðu til þeirra sem
hún umgekkst. Ég hugsaði oft sem
barn hve við værum stálheppin að
hafa Huldu á skrifstofunni og ein-
hvern veginn fannst mér að hún til-
heyrði fjölskyldunni okkar. Foreldr-
ar mínir og við systkinin höfum átt
því mikla láni að fagna að eiga hana
sem náinn fjölskylduvin.
Í frítíma sínum naut Hulda þess
að mála bæði með vatnslitum og olíu
og prýða verk eftir hana veggi víða.
Hún var alla sína tíð einlæg trú-
kona, áhugasamur og traustur með-
limur í KFUK og dyggur stuðnings-
maður og fyrirbiðjandi kristni-
boðsins.
Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá
sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.
Og hver sem lifir og trúir á mig, mun
aldrei að eilífu deyja.“
(Jóh. 11:25–26.)
Ég og fjölskylda mín vottum
Gerðu og Paul okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Huldu.
Margrét Hróbjartsdóttir.
Kveðja frá KFUK í Reykjavík
Hulda Höydahl var glæsileg kona
sem geislaði af. Hún bar með sér
sterka sjálfsmynd og yfir henni var
mikil reisn. Það var enginn asi á
henni, hún var hljóðlát og valdi að
láta verkin tala. Hún var gædd list-
rænum hæfileikum og allt hennar
handbragð bar af.
Hulda var í hópi kvenna sem unnu
brautryðjendastarf í þágu íslenskra
stúlkna og kvenna á vegum KFUK.
Hún tók þátt í öllu starfi KFUK og
sat í stjórn félagsins í mörg ár,
lengstum sem gjaldkeri. Á yngri ár-
um stýrði hún vikulegum fundum
fyrir stúlkur og tók virkan þátt í
starfi aðaldeildar félagsins. Fjáröfl-
un er stór hluti af starfi frjálsra fé-
lagasamtaka eins og KFUK og lét
Hulda sitt ekki eftir liggja þar.
Listaverkin sem Hulda saumaði og
gaf í gegnum árin bera vitni um fórn-
fýsi hennar og einstaka smekkvísi.
Þegar aldurinn færðist yfir hélt hún
áfram að vera virkur þátttakandi í
basarhópi KFUK.
Hulda tók mikinn þátt í uppbygg-
ingu sumarstarfsins í Vindáshlíð.
Hulda og vinkonur hennar byggðu
Vindáshlíð í orðsins fyllstu merk-
ingu. Þær grófu grunna, smíðuðu,
máluðu, elduðu og sinntu stúlkum
sem dvöldu í Hlíðinni. Þær boðuðu
trú á Jesú Krist, kenndu bænir og
sinntu félagslegum þörfum stúlkn-
anna. Þær gengu í öll störf af hug-
sjón og trú á Guð.
Einkunnarorð KFUK eiga vel við
Huldu Höydahl: „Ekki með valdi né
krafti heldur fyrir anda minn segir
Drottinn.
Hulda var kona sem valdi að fara
hljóðlátar leiðir en var dugnaðar-
forkur. Slíkar konur eru sjaldan á
forsíðum blaðanna en koma ótrúleg-
um hlutum til leiðar. Andi Guðs er
bæði kröftugur og skapandi og í
þeim anda starfaði Hulda allt sitt líf.
KFUK konur þakka Huldu sam-
fylgd, óeigingjarnt starf og allar góð-
ar minningar. Veri hún góðum Guði
falin.
Hildur Þ. Hallbjörnsdóttir og
Ragnheiður Sverrisdóttir.
Að endingu, bræður, allt sem er satt, allt
sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er
elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er
dyggð og hvað sem er lofsvert, hugfestið
það.
(Fil 4:8)
Þetta eru orð sem koma upp í
huga minn þegar ég kveð vinkonu
mína Huldu Höydahl. Ég var
sautján ára þegar ég kynntist Huldu
fyrst. Þá hóf ég að starfa í YD
KFUK í Langagerði. Hún var þá í
forsvari fyrir deildinni þar. Tveimur
árum seinna bauð hún mér að vera
með í hópi sem hittist reglulega og
útbjó hluti fyrir basar KFUK þar
sem hún vissi að ég deildi sama
áhugamáli, handavinnu. Það var
gæfa unglings að fá að kynnast slíkri
konu sem Hulda var og fá að starfa
með henni eða réttara sagt læra af
henni. Hún var vönduð bæði til orðs
og æðis. Hún var líka stórglæsileg.
Hulda var afar fundvís á verk kær-
leikans og henni féll aldrei verk úr
hendi. Hún saumaði, bakaði, málaði
og sultaði og gaf það til eflingar Guðs
ríkis. Hjarta hennar sló fyrir KFUK
og kristniboðið. Í yfir 40 ár störfuð-
um við saman í vinnuhópnum okkar.
Þar verður hennar sárt saknað. Með
þökk og virðingu fyrir allt.
Helga K. Friðriksdóttir.
HULDA
HÖYDAHL
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN ÓLAFSSON,
Krosseyrarvegi 9,
Hafnarfirði,
sem lést laugardaginn 12. mars, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
22. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en bent er á hjúkrunarþjón-
ustuna Karitas og Líknarsjóð krabbameinsdeildar 11E á Landspítala.
Elín Jónsdóttir,
Gyða Björnsdóttir,
Gyða Björnsdóttir, Brynjar Viðarsson,
Jón R. Björnsson, Auður Erla Gunnarsdóttir,
Andri B. Björnsson,
Anna Helga Björnsdóttir
Elín Anna, Anna Margrét,
Birna, Andrea Helga og Rebekka.