Morgunblaðið - 18.03.2005, Síða 45
minningarnar margar. Um hugann
líða minningar um góðan mann sem
hafði áhuga á lífinu. Það var ekki
komið að tómum kofunum þegar
rætt var um menn og málefni og
ótrúlegt var minni hans alla tíð.
Að alast upp á Sunnuveginum var
einstakt. Svolítið eins og að tilheyra
mjög stórri fjölskyldu. Allir sýndu
öllum áhuga og alltaf virtist vera
sumar. Kallarnir í götunni veiddu
saman hvort sem það var fiskur eða
fugl og oft fylgdu konur og börn
með og allir voru í Stangaveiði-
félaginu. Í endurminningunni er
það eins og við ættum öll saman
veiðihúsið í Hlíðarvatni. Ófá augna-
hár sviðnuðu þar yfir olíulömpun-
um. Friðrik var líka sjómaður og
það hafði hann fram yfir hina pabb-
ana. Hann fór á sjó þó að hann ynni
á Keflavíkurflugvelli. Það að vinna
þar þótti okkur svolítið útlenskt,
sérstaklega þegar Friðrik var kom-
inn í úniformið.
Við uxum úr grasi, urðum fullorð-
in og fluttum af Sunnuveginum. En
Friðrik fylgdist með okkur og þegar
börnin mín fæddust þá hafði hann
áhuga á þeim. Talaði við þau, spurði
um þau og þó þau væru orðin fjögur
þá fannnst honum ekki málið að
bæta einu við.
Kæra fjölskylda. Við getum ekki
verið með ykkur í dag en sendum
okkar bestu kveðjur. Hafðu þökk
fyrir allt.
Kristín, Ásbjörn, Tinna, Jón,
Tindur og Ylfa.
Ég vil hér í fáum orðum minnast
látins félaga okkar hjá Tollgæslunni
á Keflavíkurflugvelli.
Friðrik Guðmundsson hóf störf
hjá Tollgæslu Íslands 1938 í Vest-
mannaeyjum en hér á Keflavíkur-
flugvelli hóf hann störf um 1948 en
þá var tollgæslan undir stjórn Sýslu-
mannsins í Hafnarfirði. Hann var
síðan einn af fyrstu tollvörðum sem
ráðnir voru við nýstofnað embætti
Sýslumanns á Keflavíkurflugvelli
1951.
Hann lét af störfum 1987, sjötug-
ur og hafði þá skilað tæpri hálfri öld
í starfi. Það má segja að Friðrik hafi
verið sá sem gaf línuna og allir gátu
leitað til varðandi tollamál við emb-
ætti Sýslumannsins á Keflavíkur-
flugvelli. Hann var yfir almennri
deild og tollskrifstofu til ársins 1967
og frá þeim tíma til 1987 deildar-
stjóri tollskrifstofu og fraktaf-
greiðslu og hafði umsjón með öllum
tollútreikningum, bæði er tengdust
varnarliðinu og verktökum er unnu
innan vallar, auk innflutnings og út-
flutnings í flugfrakt. Friðrik var
fastur fyrir og vildi hafa allt í röð og
reglu og vildi ekki að verið væri að
bruðla með neitt. Allt átti að nýta
vel, hvort sem það voru tæki eða
pappír. Tollverðir muna enn forláta
reiknivél og risa stóra ritvél er Frið-
rik hafði á skrifborði sínu. Við sem
byrjuðum í tollgæslunni á áttunda
og byrjun níunda áratugarins minn-
umst hans af hlýhug og erum þakk-
lát fyrir þann tíma sem við áttum
saman.
Við vottum ættingjum Friðriks
okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd tollvarða á Keflavík-
urflugvelli,
Kári Gunnlaugsson aðal-
deildarstjóri Tollgæslunnar
á Keflavíkurflugvelli.
Fallinn er frá Friðrik Guðmunds-
son félagi okkar í Stangaveiðifélagi
Hafnarfjarðar. Á stuttu tímabili eru
farnir fjórir af fyrrum máttarstólp-
um félagsins og Friðrik var sann-
arlega í þeim hópi. Hann sat samtals
í 17 ár í stjórn og varastjórn félags-
ins og var á þeim tíma einn af þeim
sem drógu vagninn, og báru hag fé-
lagsins fyrir brjósti. Friðrik tók
virkan þátt í félagsstarfinu utan
stjórnarinnar og lagði mikið af
mörkum, hann var síðan gerður að
heiðursfélaga og var einn af fjórum,
en nú eru tveir eftirlifandi.
Á kveðjustund vill stjórn Stanga-
veiðifélags Hafnarfjarðar þakka
Friðriki Guðmundssyni fyrir vel
unnin störf og votta fjölskyldu hans
innilega samúð.
Hans Unnþór Ólason,
formaður SVH.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 45
MINNINGAR
Kjartan Reynir Jó-
hannsson hefur lokið
lífshlaupi sínu. Mikill
garpur er ekki lengur á
hlaupabraut lífsins.
Hann rann skeiðið með
miklum tilþrifum á
bestu árum ævinnar.
Ég vil minnast hans í fáeinum fá-
tæklegum orðum. Ég undrast yfir
því, að saga hans var ekki rituð. Svo
mjög setti hann spor í sandinn, sem
mörgum voru vel ljós í áratugi.
Vinátta okkar spannar nær sextíu
ár. Þegar Kjartan kemur til Akureyr-
ar 1948, er hann landsþekktur Norð-
urlanda- og Íslandsmeistari í 800
metra hlaupi.
Enginn gat fylgt honum eftir.
Keppnisharkan var einstök. Fyrir-
mynd margra í hlaupum á árunum á
undan var hinn sænski Gunder Hägg.
Fljótlega eftir komuna til Akureyrar
tók Kjartan okkur nokkra í hlaup með
sér. Ekki þarf að orðlengja, að enginn
gat fylgt honum vel eftir. Ég minnist
hans, eftir hlaup í innbænum og svo
upp Spítalastíginn.
Hann hvarf við brún, er við hinir
vorum að springa í miðjum hlíðum.
Hann dokaði við, var glettinn og
spurði: „Strákar, eruð þið að geispa
golunni?“
Tíminn líður og leiðir skiljast í
nokkur ár. En nákvæmlega tíu árum
síðar erum við komnir andspænis
hvor öðrum á Klapparstígnum.
Hann tekur mér mjög vel og fundir
okkar verða tíðir. Einn daginn segir
hann eitthvað á þessa leið: „Ég er orð-
inn þreyttur á bílabransanum og vil
stofna til viðskipta með veiðarfæri og
fleira tengt sjávarútveginum.“ Þetta
þróast upp í það, að hann gengst fyrir
stofnun á Asíufélaginu með fleiri
þekktum mönnum úr viðskiptalífinu.
Kjartan hefur heyrt um veiðarfæri
úr næloni frá Japan og hann undirbýr
ferð þangað.
Það var mér mikið gleðiefni að
setja saman fyrstu pöntunina hjá
þeim og kaupa hana síðar.
Netin reyndust afar vel og dugn-
aður hans skilaði miklum árangri á
þessu sviði.
Árið 1962 er Kjartan með plast-
kassa fyrir fisk. Sameiginlega reynd-
um við að fá smástyrk til kaupa á 200
kössum og ísa fiskinn um borð. Eng-
inn vildi hlusta á þessa hugmynd þá.
Árin líða og Kjartan ryður kössum
fyrir fisk og síld og plastflotum á síld-
arnætur braut.
Gríðarlegur ávinningur er af þessu
fyrir fiskiflotann.
Liðlega tíu árum seinna er Kjartan
enn með stórfelldar hugmyndir.
Hann getur talið menn á að kaupa tíu
skuttogara frá Japan. Þetta þótti
KJARTAN R.
JÓHANNSSON
✝ Kjartan R. Jó-hannsson fæddist
að Jaðri á Dalvík 17.
júní 1924. Hann lést
á líknardeild Landa-
kotsspítala 31. jan-
úar síðastliðinn og
var útför hans gerð í
kyrrþey.
mörgum nær óraun-
hæft fyrst í stað.
Togararnir komu.
Þeir skiluðu vel sínu.
Áfram barðist Kjart-
an af alkunnum dugnaði
og Asíufélagið varð síð-
ar Asiaco. Um mörg ár
langstærsta veiðar-
færaverslun landsins.
Ekki var þetta alltaf
rósadans hjá Kjartani.
En keppnisskapið, góð
lund og margar langar
samræðustundir skil-
uðu miklum árangri í
mörg ár.
Allir vita, að ekki er alltaf vissa fyr-
ir góðum aflafeng. „Svipull er sjáv-
arafli,“ segir máltækið.
Svo fór, að vind þvarr í seglin. Byr
gaf ekki. Beitivind var ekki unnt að
sigla lengur.
Kraftur og áræði þvarr einnig.
Kjartan varð að þola ósigur á hlaupa-
brautinni. Hann tók því með reisn.
Brosið og góðvildin fylgdi honum.
Fyrir tæpum þremur mánuðum
var hinsta samvera okkar. Hann
sagðist vera búinn að þreki.
Við slógum á létta strengi. Akur-
eyrartíminn var báðum í huga og sig-
urárið 1947, hið mikla hlaupaár Kjart-
ans. Hann hélt til síns heima með bros
á vör.
Jón Ármann Héðinsson.
Hinn 31. janúar sl. lést í Reykjavík
á 81. aldursári, Kjartan R. Jóhanns-
son fyrrverandi forstjóri Asíufélags-
ins, síðar Asiaco.
Kjartan lauk námi frá Samvinnu-
skólanum í Reykjavík árið 1943.
Hann vann við ýmis verslunar- og
skrifstofustörf að námi loknu og um
tíma var hann framkvæmdastjóri bif-
reiðaverkstæðisins Þórshamars á Ak-
ureyri. Árið 1955 var hann við nám í
Cambridge (Diploma of Business Ad-
ministration). Að lokinni kynnisför
um Austurlönd fjær varð hann árið
1958 framkvæmdastjóri og jafnframt
meðeigandi nýstofnaðs fyrirtækis,
Asíufélagsins, (síðar Asiaco) í Reykja-
vík, sem varð fyrst fyrirtækja hér á
landi til þess að hefja viðskipti, a.m.k.
að einhverju marki, við þá fjarlægu
heimsálfu, Asíu. Asiaco flutti einkum
inn veiðarfæri úr gerviefnum, sem þá
var nýjung, frá Japan, auk margvís-
legra annarra útgerðarvara víða að,
ásamt því að flytja út sjávarafurðir í
vaxandi mæli er tímar liðu.
Fyrirtækið efldist og dafnaði. Þar
störfuðu margir tugir manna á skrif-
stofum, lager og netaverkstæði.
Laust upp úr 1970 hafði Asiaco
milligöngu um kaup og smíði 10 skut-
togara frá Japan. Heildarverðmæti
samninga var það mesta sem fyrir-
tæki hér á landi hafði haft milligöngu
um. Er mér til efs að það met hafi ver-
ið slegið fyrr en nú nýverið með
samningum Flugleiða við Boeing um
kaup á 10 nýjum þotum að andvirði 40
milljarða króna.
Kynni okkar Kjartans hófust laust
undir 1960. Um það leyti tók hann að
sér formennsku í frjálsíþróttadeild
ÍR. Áður hafði hann verið í aðalstjórn
félagsins. Kjartan var áður margfald-
ur Íslandsmeistari og methafi einkum
í 400 og 800 m hlaupum svo og í boð-
hlaupum. Hann var meðal keppenda á
Evrópumeistaramótinu í Ósló árið
1946 og hann tók þátt í frægri keppn-
isför ÍR-inga um Norðurlönd árið
1947. Keppnisferill hans var stuttur
en glæsilegur. Hann þótti harður
keppnismaður. Kraftmikið starf var í
deildinni í formannstíð hans. Var gott
til hans að leita á þessu tímabili sem
og ávallt síðar.
Minnisstæð er mér för er ég fór
með þeim hjónunum, Kjartani og
Önnu, ásamt börnum þeirra tveimur,
þá ungum, að Kolviðarhóli, en ÍR átti
Kolviðarhól á árunum 1938–’55. Mikil
áform voru uppi um framkvæmdir
þar á vegum félagsins, en þau fóru
ekki eftir af ýmsum utanaðkomandi
ástæðum. Rifjaði Kjartan upp góðar
minningar frá dvölinni þar, æfingum
og íþróttamótum og sýndi okkur m.a.
með tilþrifum Kolviðarhólsíþróttina
„Glenning“.
Heimsókninni á Kolviðarhól lauk
með því að Kjartan skoraði á mig, 17
árum yngri og í fullu fjöri, í kapphlaup
á aflögðum malarvegi, báðir í spari-
skóm. Anna var ræsir. Kjartan vann á
sjónarmun, – og hló! Hálfur annar
áratugur var þá liðinn frá því að hann
lagði hlaupaskóna á hilluna. Lagði ég
eitthvað harðar að mér við sprett-
hlaupsæfingar eftir þetta.
Þær eru margar og góðar minning-
arnar sem ég á um Kjartan og fjöl-
skyldu hans, sem og um heimsóknir á
skrifstofur Asiaco. Jafnan var þar
gestkvæmt innlendra og erlendra við-
skiptamanna. Vildi þá stundum, eink-
um á góðum degi, svífa léttur andi yfir
vötnum.
Kjartan heitinn var ljúfur maður.
Örlátur, skarpur og áræðinn, bar sig
vel og þrek hans lengst af mikið, sama
að hverju hann gekk.
Kvaddur er kær vinur og vel-
gjörðamaður og velunnari Íþrótta-
félags Reykjavíkur með þökk fyrir
góða vináttu og stuðning.
Eftirlifandi eiginkonu hans, Önnu
Jónu, börnum þeirra, Kjartani Erni
og Elínu, barnabörnum og öðrum
ættingjum er vottuð innileg samúð
við fráfall hans. Blessuð sé minning
Kjartans R. Jóhannssonar.
Hvíl í friði.
Jón Þórður Ólafsson.
Lokað
Vegna jarðarfarar HELGU BJARGAR SVANSDÓTTUR verða
skrifstofur Landsnets hf. í Reykjavík lokaðar í dag, föstudaginn
18. mars 2005, frá kl. 12:00.
Landsnet hf.,
Krókhálsi 5C.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
bróður og mágs okkar,
HELGA ARASONAR
fyrrv. aðstoðarstöðvarstjóra
Búrfellsvirkjunar.
Kristinn Arason og Elín Kröyer.