Morgunblaðið - 18.03.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 47
MINNINGAR
Bridsdeild FEBK,
Gjábakka
Föstudaginn 11. mars var spilaður
tvímenningur á 12 borðum.
Meðalskor var 216. Úrslit urðu
þessi í N/S:
Magnús Halldórss. – Þórður Jörundss. 250
Guðjón Hristjánsson – Magnús Odds. 245
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björns. 239
A/V
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 258
Magnús Ingólfss. – Siguróli Jóhannss. 239
Ólafur Ingvarss. – Þorsteinn Sveinss. 237
Reynir og Ragnheiður
efst fyrir norðan
Reynir Helgason og Ragnheiður
Haraldsdóttir sigruðu í Heilsu-
hornstvímenningnum sem nú er lokið
en spilað var í þrjú kvöld. Lokastaða
efstu para varð annars þessi:
Reynir Helgas. – Ragnheiður Haraldsd. 68
Sveinn Pálsson – Jónas Róbertsson 58
Pétur Guðjónss – Stefán Ragnarsson 58
Frímann Stefánsson – Björn Þorláksson 39
Gylfi Pálsson – Helgi Steinsson 31
Næstkomandi þriðjudag er spilað-
ur seinni einmenningur vetrarins.
Sunnudagsbrids var spilaður
sunnudaginn 6. mars, með þátttöku
10 para. Staða efstu manna var þann-
ig:
Pétur Guðjónss – Jónas Róbertsson 33
Hjalti Bergmann – Stefán Vilhjálmsson 23
Reynir Helgason – Brynja Friðfinnsd. 7
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 14 borðum fimmtu-
daginn 10. mars. Meðalskor 264. Efst
í N/S voru:
Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 353
Unnur Jónsdóttir - Jónas Jónsson 312
Leifur Jóhanness, - Aðalbj. Benediktss. 307
Sigtr. Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 287
A/V
Tómas Sigurðsson - Ernst Backman 357
Karl Gunnarss. - Gunnar Sigurbjörnss. 313
Stefán Ólafss. - Sigurjón H. Sigurjónss. 313
Kristinn Guðmss. - Guðm. Magnúss. 298
Spilaður var tvímenningur á 13
borðum mánudaginn 14. marz. Efst
vóru í N/S:
Sigtr. Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 350
Guðm. Guðveigss. - Leó Guðbrandss. 311
Karl Gunnarss. - Gunnar Sigurbergss. 299
Vilhjálmur Sigurðss. - Stefán Friðbjss. 295
A/V:
Jón Bjarnar - Óli Oddsson 248
Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 338
Ernst Backmann -Auðunn Bergsveins 335
Unnur Jónsdóttir - Jónas Jónsson 322
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 8. mars var spilað á
10 borðum og var meðalskor 216.
Úrslit í N/S:
Bragi Björns. - Auðunn Guðmundss. 255
Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 243
Guðm. Guðmundss. - Stígur Herlufsen 234
Knútur Björnss. - Sæmundur Björnss. 229
A/V
Anton Jónsson - Einar Sveinsson 258
Þorv. Þorgríms.- Sigurberg Elentínus. 246
Jón R. Guðmunds. - Kristín Jóhannsd. 231
Árni Guðmundss. - Hera Guðjónsd. 224
Ragnar og Georg bestir hjá
Bridsfélagi Kópavogs
Ragnar Jónsson og Georg Sverr-
isson voru sannfærandi síðasta kvöld-
ið í þriggja kvölda tvímenningi fé-
lagsins og stóðu uppi sem öruggir
sigurvegarar. Þrjú efstu pörin hlutu
glæsileg verðlaun sem verzlunin 11/
11 veitti og er henni þakkaður stuðn-
ingurinn.
Lokastaðan:
Georg Sverrisson - Ragnar Jónsson 934
Ragnar Björnss. - Sigurður Sigurjónss. 906
Hermann Friðriks.-Sigurjón Tryggvas 894
Guðlaugur Bessason - Jón S. Ingólfs. 876
Jón P. Sigurjónsson - Stefán Jónsson 868
Hæsta skor í N/S síðasta spila-
kvöldið:
Hermann Friðriks. - Sigurj. Tryggvas. 335
Ragnar Björns. - Sigurður Sigurjónss. 326
Freyja Sveinsdóttir - Sigríður Möller 290
Loftur Pétursson - Sigurjón Karlsson 290
AV:
Georg Sverrisson - Ragnar Jónsson 322
Elín Jóhannsd. - Hertha Þorsteinsd. 300
Vilhjálmur Sigurðs. - Þórður Jörundss. 296
Lokastaðan:
Georg Sverrisson - Ragnar Jónsson 934
Ragnar Björnss. - Sigurður Sigurjónss. 906
Hermann Friðriks. - Sigurj. Tryggvas. 894
Guðlaugur Bessason - Jón S. Ingólfs. 876
Jón P. Sigurjónss. - Stefán Jónsson 868
Næsta fimmtudagskvöld verður
eins kvölds páskaeggjatvímenningur.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, fimmtud. 10. mars.
Spilað var á 12 borðum. Meðalskor
216 stig og árangur N-S
Sæmundur Björnss. - Oliver Kristófss. 262
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjáns. 255
Jón Karlsson - Sigurður Karlsson 243
Árangur A-V
Ragnar Björnsson - Pétur Antonsson 274
Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 256
Helgi Hallgrímsson - Jón Hallgrímss. 243
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 15. mars var spilað á
7 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S:
Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 204
Bragi Björnsson - Auðunn Guðmunds. 199
Guðm. Guðmundss. - Stígur Herlufsen 186
A/V
Þorvarður Guðmundss. - Guðni Ólafss. 209
Sófus Berthelsen - Stefán Ólafsson 184
Anton Jónsson - Guðrún Gestsdóttir 183
Bridsdeild FEBK, Gjábakka
Föstudaginn 11. mars var spilaður
tvímenningur á 12 borðum.
Meðalskor var 216. Úrslit urðu
þessi í N/S:
Magnús Halldórss. – Þórður Jörundss. 250
Guðjón Hristjáns. – Magnús Oddsson 245
Albert Þorsteins. – Sæmundur Björns. 239
A/V
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 258
Magnús Ingólfss. – Siguróli Jóhannss. 239
Ólafur Ingvarss. – Þorsteinn Sveinss. 237
Bridsfélag Reykjavíkur
Annað kvöldið í Butler-tvímenn-
ingi félagsins var spilað þriðjudaginn
15. mars. Hæsta skori kvöldsins náðu
eftirtalin pör:
Stefán Stefánsson – Guðjón Sigurjóns. 63
Jón Stefánsson – Guðlaugur Sveinsson 57
Ljósbrá Baldursd. – Ísak Ö. Sigurðsson 42
Hermann Friðriks. – Guðjón Bragason 42
Staða efstu para er þessi að aflokn-
um tveimur kvöldum af þremur:
Hermann Friðriksson – Guðjón Bragas. 89
Jón Stefánsson – Guðlaugur Sveinsson 82
Geirlaug Magnúsdóttir – Torfi Axelsson 60
Ísak Örn Sigurðss. – Hlynur Angantýss. 39
Garðar Garðarss. – Kristján Kristjánss. 35
ATH. Þriðjudaginn 22. mars verð-
ur ekki spilaður Butler-tvímenning-
ur, heldur verður spilaður eins kvölds
páskaeggja-tvímenningur. Skráning
á staðnum.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Annað kvöldið í barómeterkeppni
félagsins fór fram mánudaginn 14.
mars og voru þar umskipti á toppn-
um. Garðar V. Jónsson og Björn
Árnason náðu hæsta skori kvöldsins
og eru komnir með 7 stiga forystu.
Staða efstu para að afloknum
tveimur kvöldum ef þremur er nú
þannig:
Björn Árnason – Garðar V. Jónsson 72
Þóranna Pálsdóttir – Ragna Briem 65
Páll Þórsson – Gunnlaugur Karlsson 59
Guðjón Sigurjónsson – Stefán Stefáns. 54
Rúnar Einarsson – Gunnar Birgisson 42
Eftirtalin pör náðu hæsta skori
kvöldsins:
Björn Árnason – Garðar V. Jónsson 53
Hermann Friðriksson – Stefán Jónsson 47
Þóranna Pálsdóttir – Ragna Briem 46
Unnur Sveinsd. –Inga Lára Guðmundsd. 41
Sigrún Pétursd. – Unnar A. Guðmss 41
Firmakeppni á Akureyri
Nú er nýlokið tveggja kvölda ein-
menningskeppni félagsins en síðara
kvöldið var jafnframt firmakeppni
þar sem spilarar kepptu fyrir hönd
fyrirtækja sem gerst höfðu svo góð
að styrkja félagið. Efstu menn og fyr-
irtæki í Firmakeppninni urðu:
Magnús Magnússon,
STS teiknistofa: 63,8%
Hermann Huijbens,
Friðrik V: 59,6%
Haukur Harðarson,
Höldur: 58,8%
Sigurður Erlingsson,
JMJ/Joe’s: 58,5%
Stefán Vilhjálmsson,
Tannlæknastofa Bessa: 55,0%
Þeir sem mættu bæði kvöldin voru
með í baráttunni um að verða Ein-
menningsmeistari BA en meðaltalið
gilti. Einmenningsmeistari 2005 varð
Gissur Jónasson en efstu menn voru:
Gissur Jónasson 57,5%
Steinarr Guðmundsson 52,1%
Reynir Helgason 51,8%
Gissur Gissurarson 50,4%
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Árni Jens, kæri
fermingarbróðir minn
og æskuvinur. Ég sat
eins og lamaður eftir að
ég fékk þessa hræði-
legu hringingu. Við sem
vorum búnir að ákveða
að reyna að hittast
þessa helgi og rifja upp góðar stundir
og skemmta okkur saman af því að
það var svo langt síðan við hittumst
síðast. Ég hugsa um þetta símtal aft-
ur og aftur. Alltaf varst þú sannur
vinur minn, alveg sama á hverju gekk,
þá varst þú alltaf til staðar og stóðst
með mér þegar þurfti. Stundum
finnst mér eins og að ég geti ennþá
tekið upp símann og hringt í þig.
Ég er svo þakklátur fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum saman sem
voru svo margar og ég er svo þakk-
látur fyrir að fá að kynnast þér svona
vel.
Við vorum alveg sérstakir saman
eins og t.d. þegar krakkarnir í bekkn-
um kölluðu okkur Beavis og Butthead
vegna þess að við gátum hlegið allan
liðlangan daginn að bullinu í hvor öðr-
um. Og öll skiptin sem ég var hjá þér
á Sigurðarstöðum og við lékum okkur
á mini-krossaranum klukkustundun-
um saman og margar aðrar minning-
ar sem ég mun aldrei gleyma.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast, svo margt
sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Þinn vinur,
Ingi Þór.
Sætur lítill prakkari kemur upp í
huga minn þegar ég hugsa um hann
Árna Jens. Ég hitti hann fyrst þegar
hann var í vöggu og hef þekkt hann
síðan. Síðast þegar ég hitti hann var
hann glaður ungur maður, fallegur,
ánægður með lífið og gekk vel í skól-
anum. Það er erfitt að sætta sig við að
ungur maður í blóma lífsins skuli fara
eins og hendi sé veifað og stundum
vottar jafnvel fyrir reiði. Það voru for-
réttindi að fá að kynnast þér, elsku
drengurinn.
Blessuð sé minning þín, Árni Jens.
ÁRNI JENS
VALGARÐSSON
✝ Árni Jens Val-garðsson fæddist
2. apríl 1984. Hann
lést í umferðarslysi
3. mars síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Raufarhafn-
arkirkju 12. mars.
Ég bið guð að gefa
foreldrum hans,
bræðrum og fjölskyldu
styrk í sorginni.
Þerraðu kinnar þess er
grætur,
þvoðu kaun hins særða
manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta
sólargeisla kærleikans.
(Erla.)
Hildur Harðardóttir.
Elsku Árni Jens. Ég
ætlaði ekki að trúa
mínum eigin eyrum þegar ég fékk
símhringingu um að þetta hefði
gerst. Ég varð virkilega sár og reið,
skildi ekki hvernig Guð gæti verið
svona ósanngjarn. Mér fannst alltof
langt síðan ég sá þig seinast og gat
ekki hugsað mér að ég ætti aldrei
eftir að hitta þig aftur.
Seinasta minning mín um þig var
þegar þú sóttir mig á flugvöllinn á
Akureyri fyrir þorrablótið í fyrra
heima á Raufarhöfn. Þú skutlaðir
mér í bílinn hennar Elvu og við
keyrðum í samfloti til Raufarhafnar.
Ég fann að eitthvað var ekki í lagi
með bílinn þannig að ég auðvitað
spurði þig og þú fórst á fjóra fætur til
að þrífa felgurnar á bílnum, og þér
var alveg sama þótt þú værir renn-
andi blautur og ískuldi væri úti.
Þetta sýndi það og sannaði hvernig
sál þú varst.
Aldrei sagðir þú nei við nokkurn
mann og það sem þú tókst þér fyrir
hendur gerðir þú af heilum hug. Það
eru samt svo margar minningarnar,
skólaferðalögin, bekkjarpartíin, það
var alltaf skemmtilegast að fara til
þín í sveitina.
Ég var að skoða myndir af okkur
úr allra síðasta skólaferðalagi sem
við fórum í. Þar ert þú alltaf sá eini
sem horfir ekki í myndavélina, sá
eini sem situr lengst frá okkur öllum
og þú varst alltaf sá eini einhvers
staðar. Ekki vegna þess að eitthvert
ósætti væri á milli okkar allra, held-
ur af því að þú vildir alltaf vera sér-
stakur. En, Árni minn, þú varst ein-
stakur. Hver annar hefði komið með
sviðakjamma í nesti? Ég veit það vel
að án þín hefði skólinn ekki verið sá
sami. Hláturinn fylgdi þér hvert sem
þú fórst og allir urðu glaðir í kring-
um þig.
Við vorum nú bara sex í okkar ár-
gangi þannig að öll urðum við nokk-
uð náin. Ég græt við að hugsa til þess
að við séum bara fimm eftir.
Ég kveð þig, elsku Árni minn, með
þessum orðum, og bið þess að þú haf-
ir það gott þar sem þú ert núna, þín
verður sárt saknað og þú verður allt-
af efst í huga mér. Þú varst ham-
ingjusamur strákur í blóma lífsins,
en nú þjónar þú öðrum tilgangi, að
vaka yfir bræðrum þínum og foreldr-
um.
Elsku Þóra, Valli, Elvar, Daníel,
Brynja Vala og aðrir aðstandendur,
minn hugur er hjá ykkur og ég bið að
Guð gefi ykkur styrk á þessum erf-
iðu tímum.
Elsku Árni, við sjáumst þótt síðar
verði.
Þín fermingarsystir,
Jóna Dröfn.
Elsku amma. Amma
er stórt orð og þú
stóðst svo sannarlega
undir því þó þú værir
minnsta kona sem ég
hef þekkt. Stundum fannst mér eins
og þú værir amma allra í heiminum
og þú hefðir getað verið það því nóg
var hjartahlýjan fyrir þau börn sem
til þín komu. Þegar ég hugsa um að
þú sért farin finnst mér það svo
ÁSDÍS
EMILSDÓTTIR
✝ Ásdís Emilsdótt-ir fæddist á Seyð-
isfirði 16. júní 1921.
Hún lést á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu
Garðvangi þriðju-
daginn 22. febrúar
síðastliðinn og var
útför hennar gerð í
kyrrþey frá Kefla-
víkurkirkju 1. mars.
ótrúlegt því að ég hélt
að þú myndir alltaf
vera nálægt mér.
Það renna í gegnum
huga minn þær ótal
samverustundir sem
við áttum saman við
eldhúsborðið heima
hjá ykkur afa á Hring-
brautinni og svo síð-
ustu árin á Kirkjuveg-
inum. Það eru margar
stundir sem ég get
rifjað upp með bros á
vör og munu ylja mér
þegar ég minnist þín,
elsku amma mín. Ég
minnist þess að þegar þú brostir
var það með öllu andlitinu, öll skipt-
in saman á Laugarvatni, ferðinni til
Glasgow sem við Gerður fórum með
ykkur afa. Þegar ég gisti hjá ykkur
afa og dansaði ballett fyrir ykkur
áður en ég fór að sofa. Þú varst allt-
af til staðar fyrir ömmubörnin og
þú dekraðir við okkur í mat og um-
hyggju sem alltaf var til nóg af hjá
þér. Þetta er bara brot af því sem
rennur í gegnum huga minn því ég
hef átt því láni að fagna að þið afi
voruð stór hluti af mínu lífi alla
mína tíð.
Ég er þakklát fyrir að Tara Ósk
og Belinda Sól hafi verið svo lán-
samar að kynnast þér, þú hefur ver-
ið stór þáttur í þeirra lífi og þær
munu sakna þín.
Síðasta skiptið sem við sáumst,
elsku amma, þá spurðir þú um
stelpurnar Töru, Belindu og litla
ófædda ömmubarnið þitt, sem sýnir
svo sannarlega hversu mikils virði
börnin voru fyrir þig og það minnir
mig á að þú sagðir einu sinni við
mig í heita pottinum þegar við vor-
um með stelpurnar með okkur að
leyfa þeim að busla, að börnin
færðu þér kraft og ættu að fá að
busla.
Ég veit og trúi því, amma, að þú
sért nálægt mér og fylgist með okk-
ur öllum, að þú verðir nálægt þegar
litla barnið okkar Ellerts fæðist. Þú
munt lifa í hjarta okkar allra um
ókomna tíð.
Elsku afi, guð geymi þig og gefi
þér styrk.
Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir
og fjölskylda.
Fréttir á SMS
I.O.O.F. 1 1853188 Sk.
I.O.O.F. 12 1853188½ Bi.
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík
Opið hús. Nemendur úr hópum
verða með heilun, ýmislegt
annað áhugavert og brydda upp
á nýjungum í opnu húsi föstu-
daginn 18. mars í Garðastræti 8.
Húsið opnað kl. 19.00 og lokað
kl. 19.30.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Aðgangseyrir.
SRFÍ.
Í kvöld kl. 20.30 heldur Jón L.
Arnalds erindi „Hugakvíar“ í
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 Í umsjá Gísla V. Jóns-
sonar sem fjallar um „Andlega
viðleitni“. Hugræktarnámskeið
Guðspekifélagsins verður fram-
haldið fimmtudaginn 30. mars
kl. 20.30, í umsjá Jóns Ellerts
Benediktssonar, „Agni-jóga“.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.
Aðalfundur Skógarmanna
KFUM
Aðalfundur Skógarmanna
KFUM verður haldinn mánudag-
inn 21. mars kl. 20:00 í húsi
KFUM og KFUK við Holtaveg.
Á fundinum verða:
Venjuleg aðalfundarstörf
Fréttir frá starfinu í Vatnaskógi
Markmið ársins kynnt
Kaffiveitingar.
Skógarmenn KFUM
Félagslíf