Morgunblaðið - 18.03.2005, Side 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Litli Svalur
© DUPUIS
ERTU AÐ
SKEMMTA ÞÉR?
BÍDDU, ÞETTA VAR
FREKAR SKEMMITLEGT
VEGNA ÞESS AÐ MÉR LEIÐIST!
MAÐUR
EIGNAST
MARGA VINI
ÞEGAR
MAÐUR BÝR
TIL VÖFLUR
ÉG ER EKKERT
VEIKUR!
HVAÐ ER
ÞETTA?
MEIÐIR ÞAÐ?!
ÞETTA ER
SPÝTA TIL
ÞESS AÐ
HALDA
NIÐUR
TUNGUNNI
HVAÐ ER
ÞETTA?
MEIÐIR
ÞAÐ?!
ÞETTA ER
HLUSTUNAR-
PÍPA, HÚN
MEIÐIR EKKI
NEITT
HVAÐ ER
ÞETTA?
MEIÐIR
ÞAÐ?!
ÞETTA ER
STUÐTÆKI, ÞAÐ
MEIÐIR ÖRLÍTÐ
MINNA EN EF ÉG
MUNDI BRENNI-
MERKJA ÞIG
LITLIR KRAKKAR HAFA
ENGAN HÚMOR FYRIR
SVONA LÖGUÐU
GÓÐAN DAGINN
BATMAN! ER ALLT
GOTT AÐ FRÉTTA?
HVA? ERTU
KLIKKAÐUR?
ERTU AÐ TALA
VIÐ DOKSA?
HANN HEITIR EKKI
DOKSI HELDUR
BATAMAN. HANN
SAGÐI MÉR ÞAÐ
SJÁLFUR
ÞAÐ HLAUT AÐ KOMA AÐ
ÞVÍ. ÞAÐ VANTAR Í HANN
NOKKRAR SKRÚFUR. TALA
VIÐ DÝR!
MUUUU!!
HANN TALAR VIÐ MIG OG
HANN SKILUR MIG! HÉR
KEMUR SÖNNUN FYRIR
ÞVÍ. HLAUPTU BATMAN!
ÞETTA ER SKIPUN
KENNARI,
KENNARI!
SVALUR
SKIPAÐI DOKSA
AÐ HLAUPA OG
VIÐ FINNUM
HANN HVERGI
HANN GETUR EKKI HAFA
FARIÐ LANGT Í BURTU. VIÐ
LEITUM SEINNA. TÍMINN ER
BYRJAÐUR
FARIÐ ÖLL Í
SÆTIN YKKAR
HANN... HANN
VAR HÉR Á
STÓLNUM.
UNDIR RASS...
UNDIR PILS...
UNDIR HVERJU...!? NEHEI!! BATMAN VILL EKKI SEGJA SVIKURUM EINS OG YKKUR HVAÐ HANN SÁ
Dagbók
Í dag er föstudagur 18. mars, 77. dagur ársins 2005
Víkverji er með hálf-gert ofsóknaræði.
Þeir, sem ofsækja
hann, eru aðilar. Þeir
skjóta alls staðar upp
kollinum, þessir árans
aðilar, og þar sem Vík-
verji á sízt von á. Sam-
keppnisaðilar reka
fram ótótlegan haus-
inn þar sem Víkverji
bjóst við keppinauti.
Innflutningsaðilar
hafa komið sér fyrir
þar sem Víkverji átti
von á innflytjendum.
Umönnunaraðilar
Víkverja frá gamalli
tíð stukku einu sinni á hann þegar
hann ætlaði bara að heimsækja for-
eldra sína. Og stundum þegar Vík-
verji hefur leitað vinar í raun hefur
hann bara fundið stuðningsaðila.
x x x
Í gærmorgun, þegar Víkverji varhálfpartinn enn í svefnrofunum,
ullaði enn einn bévaður aðilinn á
hann af forsíðu Morgunblaðsins,
sem Víkverji var að taka upp af
dyramottunni. Í aðalfréttinni á for-
síðunni var haft eftir Guðmundi
Marteinssyni, framkvæmdastjóra
Bónuss: „Starfsmaður í búðinni hjá
mér benti verðkönnunaraðila á að
það væru komin ný
[svo] verð á einhverjar
vörur sem verið var að
taka.“
Verðkönnunaraðili,
já. Þegar Víkverji hélt
að hann hefði kynnzt
öllum ljótustu aðilum
sem skúmaskot stofn-
anamállýzku og
óskýrrar hugsunar
geyma, kom nýtt og
andstyggilegt afbrigði
fram á sjónarsviðið.
x x x
Hvað skyldi nú verð-könnunaraðilinn
heita á ómenguðu mannamáli? Vík-
verja finnst liggja í augum uppi að
rétt eins og sá, sem kannar lönd,
heitir landkönnuður og sá, sem
kannar sálarlífið, heitir sálkönnuður,
sé sá sem kannar verð kallaður verð-
könnuður. Það er fallegt starfsheiti
handa vaxandi stétt manna, sem
hafa greinilega nóg að gera að fylgj-
ast með iðju verzlunarauðvaldsins.
Víkverji óskar verðkönnuðum
góðs gengis í starfi sínu. Hann vonar
að þeir rekist hvorki á rekstraraðila
né viðskiptaaðila á sínum daglega
rúnti um verzlanir bæjarins og hitti
sízt af öllu æstan árásaraðila í þjón-
ustu einhverrar verzlanakeðjunnar.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Gerðuberg | Híbýli vindanna, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu, hefur notið
mikilla vinsælda undanfarið. Nú hefur Borgarleikhúsið útbúið 45 mínútna
dagskrá um vesturfarana sem tengist sýningunni Híbýlum vindanna og býð-
ur hana til sýningar í félagsmiðstöðvar eldri borgara og á allar þær stöðvar
aldraðra þar sem haldið er uppi félagsstarfi.
Fjórar leikkonur Leikfélags Reykjavíkur, þær Birna Hafstein, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Marta Nordal og Sigrún Edda Björnsdóttir, leika,
syngja og lesa upp í sýningunni, sem er í leikstjórn Guðjóns Pedersen, leik-
hússtjóra.
Leikkonurnar komu fram fyrir gesti Gerðubergs á miðvikudag og var
þeim afar vel tekið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vesturfaraskemmtan
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til
dýrðar. (Róm. 15, 7.)