Morgunblaðið - 18.03.2005, Side 54
54 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
GIMSTEINAR sígildrar tónlistar
yrðu fljótt óbærilega firrtir mann-
legum skilningi án kómískra fag-
manna eins og
Victors Borge og
P.D.Q. Bachs! Nú
er Borge að vísu
allur, en enn mætti
reyna að fá P.D.Q.
hingað á Listahá-
tíð. Væri sízt van-
þörf á, meðan
mætast stálin stinn
í núverandi stein-
geldri bókhalds-
umræðu um stöðu
hálistar gagnvart
hagsýnum rekstr-
arsjónarmiðum.
Í millitíðinni gef-
ast þó sem betur
fer stakir tilburðir
til að létta hefð-
bundnasta helgi-
farginu af „dísarhöllum“ landsins.
Nýjast á síðustu hádegistónleikum
vetrarins í Íslensku óperunni s.l.
þriðjudag. Fyrsta atriðið, Tóbaks-
söngur enska 17. aldar fríbýtt-
aratónskáldsins Tobiasar Humes í
einflutningi Deans Ferrells, hafði áð-
ur hljómað á uppistandstónleikum
SÍ-kontrabassaleikarans í Borg-
arleikhúsinu s.l. desember („Mús-
íkalski sjóræninginn“). Í hinni kunnu
kvöldlokku Don Giovannis eftir Moz-
art lék Dean mandólínsplokk flag-
arans (kynningarstef sígildu útvarps-
rásarinnar „Mandólíns“ júlí 2003) á 5
strengja kontrabassa sinn aðskilj-
anlegum áttundum neðar undir
hljómmikinn buffo-bassasöng Davíðs
Ólafssonar. Davíð flutti síðan, þó ekki
eins liðugt, bassaaríuna Amor tradi-
tore úr veraldlegu kantötu Bachs við
lipra fylgirödd (obbligato) kontra-
bassans. Sú var að sögn upphaflega
samin fyrir það hljóðfæri, þótt ekki
fyndi ég neitt um það í mínum heim-
ildum. Það átti hins vegar við með
vissu um hina ljúfu aríu A. Müllers,
Lied an den Contrabass, er var nokk-
uð fyndin í túlkun þeirra félaga. Hin-
ar krefjandi virtúósu meðspilslínur
kontrabassans í Per questa bella
mano eftir Mozart flugu síðan glæsi-
lega fyrirstöðulítið um loft. Sjálfsagt
var það flestum ný frétt í kynningum
söngvarans að Wolfgang hefði átt sér
þetta flinkan uppáhaldsbassista og
samið sérstaklega fyrir hann.
Síðasta atriðið var kvöldstjörnu-
aría Wolframs úr Tannhäuser Wagn-
ers. Í fyrstu án kontrabassans, er
laumaðist inn á lymsku „lontano“-
plokki í seinni hlutanum neðan úr
myrkviðum hljómsveitargryfjunnar.
Davíð söng sem fyrr með góðri hljóm-
fyllingu við dyggan stuðning Kurts
Kopeckys, þó að hendingamótunin
hefði mátt vera frjálslegri. Lauk
þannig notalegum litlum hádegistón-
leikum í fagurri viðhafnarumgjörð
Toscu-sviðsmyndar Íslenzku óper-
unnar.
TÓNLIST
Íslenzka óperan
Verk eftir Hume, Mozart, Bach, Müller og
Wagner. Davíð Ólafsson bassi, Dean Ferr-
ell kontrabassi og Kurt Kopecky píanó.
Þriðjudaginn 15. marz kl. 12:15.
Hádegistónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Davíð Ólafsson
Dean Ferrell
EITT hundrað og fjörutíu nemendur
í FG setja upp söngleik sem byggður
er á kvikmyndinni Moulin Rouge
með dyggri aðstoð og stuðningi
kennara sinna. Þau kaupa sér leik-
stjóra, tónlistarstjóra, danshöfund
og ljósahönnuð en gera allt annað
sjálf og útkoman er glæsileg.
Björk Jakobsdóttir leikstýrir nú
söngleik í fyrsta sinn en hún hefur
ekki fengist við leikstjórn að ráði
fyrr. Hún sýnir hér og sannar að hún
á erindi í leikstjórn. Í stað þess að
þýða kvikmyndina gerir hún vel
heppnaða leikgerð fyrir svið og stað-
færir að hluta. Þó að sagan eigi að
gerast í París fyrir um það bil hundr-
að árum gengur alveg jafn vel upp að
staðfæra eitt og annað hjá NFFG
rétt eins það gekk upp að byggja
kvikmyndina á nútíma poppi og
rokki. Hallur Ingólfsson tónlistar-
stjóri þýddi söngtexta ásamt Björk
en oft setja þau þekkt íslensk popp-
lög inn í stað þeirra erlendu og
hljómar það ákaflega vel. Hallur sér
um allan undirleik sem hljómar úr
hátölurum, kraftmikill og flottur.
Dansar Lovísu Gunnarsdóttur eru
líflegir og fjölbreyttir og lýsingin er
jafnglæsileg og rómantísk og allt
hitt. Þar fyrir utan eru búningarnir
mjög fallegir en nemendahópur sá al-
farið um að hanna þá og sauma.
Í örstuttu máli fjallar Múlan Rús
um ungan rithöfund sem lendir í því
að skrifa leikrit fyrir dansara og hór-
ur á skemmtistaðnum alræmda.
Hann verður ástfanginn af aðal-
leikkonunni sem er vændiskona á
staðnum. Hún verður líka ástfangin
af honum en í veginum er þýskur
hertogi sem vill fá stúlkuna fyrir að
fjármagna leiksýninguna. Auk þeirra
kemur stjórnandi vændishússins við
sögu, leikflokkur, dansarar og fleiri.
Leikur, dans og söngur voru mjög
vel fluttir á frumsýningunni. Stór
dans- og söngatriði ríghéldu áhorf-
endum en minni atriði gerðu það líka
þar sem leikurinn var svo jafn og
skýr. Framburður var til fyrir-
myndar í leik og söng. Nokkrir
krakkar skáru sig úr. Fremstur í
flokki var Jóhannes G. Sigurðsson í
hlutverki hertogans því hann geislaði
í hlutverkinu, hvort sem var í söng, í
mjög fyndnu dansatriði eða í leikn-
um. Hann sýndi margar ólíkar hliðar
hins hégómlega illmennis þannig að
hann varð allt í senn, fyndinn, hættu-
legur og brjóstumkennanlegur.
Einnig sýndi Pétur Rúnar Heim-
isson mikla leikhæfileika í hlutverki
hins góða og saklausa Kristjáns,
unga rithöfundarins, og söng hann
líka mjög vel. Það var auðvelt fyrir
hann að vekja hlátur, tár og róm-
antískar tilfinningar. Ingibjörg Elín
Viðarsdóttir lék stórt hlutverk hinn-
ar fögru, ástföngnu og veiku Satínar
vel og söng einnig afar fallega en hún
steig hér á svið í fyrsta sinn. Hrefna
Bóel var feiknaörugg og söng vel í
hlutverki hórumömmunnar.
Í heildina var söngurinn, dansinn
og leikurinn jafn og kraftmikill, tón-
listin ágeng og rómantísk í bland,
leikstjórnin öguð en gleðirík og um-
gjörðin glæsileg. Fyrir svona sýn-
ingu er bara hægt að hrópa húrra.
LEIKLIST
Nemendafélag Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ
Leikgerð og leikstjórn: Björk Jak-
obsdóttir. Tónlistarstjórn: Hallur
Ingólfsson. Danshöfundur: Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir. Ljósahönnun:
Magnús Helgi Kristjánsson.
Frumsýning í FG 11. mars 2005.
Múlan Rús
Hrund Ólafsdóttir
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau 2/4 kl 14 – AUKASÝNING
Su 3/4 kl 14 – AUKASÝNING
Lokasýningar
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Su 20/3 kl 20,
Su 3/4 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
SEGÐU MÉR ALLT -
Taumlausir draumórar?
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Í kvöld 18/3 kl 20,
Fi 31/3 kl 20,
Fö 1/4 kl 20
Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - SÓLÓ
Tinna Þorsteinsdóttir
Lau 19/3 kl 15:15
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Lau 19/3 kl 20 Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20
Síðustu sýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Mi 23/3 kl 20,
Fi 24/3 kl 15,
Fi 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Lau 19/3 kl 20,
Su 20/3 kl 20.
Fö 1/4 kl 20.
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld 18/3 kl 20 - UPPSELT,
Lau 19/3 kl 20 - UPPSELT,
Su 20/3 kl 21, - breyttur sýningartími!
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 20,
Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 2/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 14/4 kl 20, Fö 15/4 kl 20 - UPPSELTHÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20,
Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20,
Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Lau 19/3 kl 20,
Su 20/3 kl 20,
Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20,
Síðustu sýningar
Mögnuð fjölskyldusýning sem sameinar
leikhús, sirkús og töfrabrögð
Tryggðu þér miða í síma 568 8000
sýningar: 23. mars kl. 20
24. mars kl. 15 og 20
26. mars kl. 15 og 20
Græn tónleikaröð #4 HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
Engelbert Humperdinck ::: Forleikur að óperunni Hans og Gréta
Anatolíj Ljadov ::: Baba Jaga
Anatolíj Ljadov ::: Töfravatnið
Pjotr Tsjajkovskíj ::: 1. og 3. þáttur úr ballettsvítunni Þyrnirós
Franz Liszt ::: Dauðadans fyrir píanó og hljómsveit
César Franck ::: Les Djinns fyrir píanó og hljómsveit
Richard Wagner ::: Skógarþytur úr óperunni Siegfried
Gustaf Holst ::: Perfect Fool Ballet
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Liene Circene
Galdrar og goðsagnir
Rumon Gamba, listrænn stjórnandi SÍ, vill með þessum tón-
leikum laða fram töfraveröld ævintýra, goðsagna og galdra og
víst er að efnisskráin býður upp á slíka veislu. Einleikarinn,
Liene Circene, hefur áður leikið á Íslandi og fékk þá einróma
lof gagnrýnenda. Nú leikur hún í fyrsta sinn með Sinfóníunni.
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Aðeins
tvær sýningar
eftir
Óliver! Eftir Lionel Bart
Lau. 26.3 kl 14 Örfá sæti
Lau. 26.3 kl 20 Örfá sæti
Allra síðustu sýningar
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Pakkið á móti Eftir Henry Adams
Frumsýning
Fös. 15.43 kl 20
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
í kvöld
sýnir
PATATAZ
fjölmenningarlegan
fjölskylduleik
Höfundur: Björn Margeir
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Sýnt í Stúdíó 4,
Vatnagörðum 4
Í kvöld fös. 18. mars
Lau. 19. mars
Mið. 23. mars
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir í s. 551 2525
midasala@hugleikur.is