Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 56
VÉLMENNI, eða Robots, er þriðja
myndin sem gerð er af Blue Skyes
Entertainment, tölvuteiknimynda-
deild Fox kvikmyndaversins, en
síðasta mynd þess Ísöld sló ræki-
lega í gegn. Myndin og húmorinn
í Vélmennum sver sig líka mjög í
ætt við Ísöld, en í stað forsögulegra
furðuskepna eru vélmenni stór og
smá í aðalhlutverkum.
Myndin fjallar um Sindra, ungt
ryðgað vélmenni sem orðið hefur að
sætta sig við, sökum vanefna for-
eldranna, að fá varahluti úr gömlum
og notuðum vélmennum. Í unga
járnaruslinu blundar efnilegur vís-
indamaður og ákveður hann því að
freista gæfunnar, leita uppi mesta
og besta vélmenni allra, Stórvald, og
kynna honum nýja uppfinningu sína.
En Stórvaldur er bugaður og undirBANDARÍSKI hip-hop listamaðurinn
Fatman Scoop er kominn til landsins
og kemur fram á Sjallanum á Akureyri
í kvöld og Broadway í Reykjavík annað
kvöld, laugardagskvöld. Scoop hefur
gert garðinn frægan með plötunum I’ll
Be Faithful og It Takes Scoop, en hann
er einnig meðal vinsælustu hip-hop út-
varpsmanna Bandaríkjanna.
Scoop hefur starfrækt morgunþátt á
hip-hop útvarpsstöðinni Hot 97 í New
York í átta ár. Þá hefur hann einnig
verið með þátt sem útvarpað er um öll
Bandaríkin síðasta árið eða svo.
Scoop hefur samið tónlist fyrir kvik-
myndir á borð við You Got Served og
Save the Last Dance, auk þess sem
hann hefur fengist töluvert við að
semja tónlist fyrir auglýsingar. Þar má
nefna auglýsingar fyrir Mountain Dew,
Reebok, Nike og Bombay Sapphire.
Fatman Scoop kemur fram á Sjall-
anum á Akureyri í kvöld og Broadway í
Reykjavík annað kvöld, ásamt Tiny úr
Quarashi, Igore, Kritical Mass, Steina
úr Quarashi, Önnu Lin, Dj B Ruff og Dj
Skinny T.
ALAN McGee, einn áhrifa-
mesti tónlistarmógúll Bret-
landseyja á níunda og tíunda
áratugnum, mun sjá um skífu-
þeytingar á Gauki á Stöng,
hinn 1. og 2. apríl, sem er föstu-
og laugardagur. McGee hefur
undanfarin ár staðið fyrir
klúbbakvöldum sem hann kall-
ar Death Disco og spilar hann
rokk og ról en á spilunarlist-
anum er m.a. Strokes, Jesus &
Mary Chain, Ramones, Clash,
Bítlarnir, Fall, Bowie, Mothor-
head, Slits, Pixies, Dinosaur
Jr., Byrds, Iggy Pop, Rolling
Stones, Who og Talking Heads
svo fátt eitt sé nefnt.
Alan McGee stofnaði útgáfufyr-
irtækið Creation snemma á níunda
áratugnum og átti það eftir að verða
ein helsta óháða útgáfa Bretlands
næstu árin, þar sem merkið tryggði
ávallt gæði. Í gegnum Creation
færði McGee tónlistaráhugamönn-
um sveitir á borð við Jesus & Mary
Chain, House of Love, Primal
Scream og My Bloody Valentine.
Síðar átti McGee svo eftir að upp-
götva Oasis – samdi við þá á staðn-
um eftir afdrifaríka tónleika – og
hann er í dag umboðsmaður The
Libertines. Saga Creation hefur ver-
ið skráð í tvær bækur en McGee
lagði merkið niður árið 2000 og rek-
ur nú Poptones-útgáfuna.
Það er Guðbjartur Finnbjörnsson
(Kris Kristoffersson, Beach Boys,
The Wall og Dark Side of the Moon
tónleikaraðirnar) sem flytur McGee
inn. Ekki nóg með það heldur er
hingað væntanlegur um sömu helgi
útsendari frá umboðsskrifstofunni
10th Street Entertainment og fór
hann þess á leit við Guðbjart að
hann myndi setja upp tónleika fyrir
hann þar sem hann er mjög áhuga-
samur um íslenska tónlist. Nafn
hans er Jason Spies og kemur hann
hingað frá New York
Guðbjartur segir í samtali við
Morgunblaðið að í starfi sínu sem
tónleikahaldari hafi hann augun opin
fyrir hugsanlegum viðburðum.
„Þegar ég frétti af þessum kvöld-
um hans McGee fannst mér strax
mjög sniðugt að reyna að fá þau
hingað yfir. Þetta er svolítið öðruvísi
en þetta venjubundna tónleikahald.
Þessi kvöld hafa slegið í gegn í
London og er McGee nýbyrjaður að
færa út kvíarnar, er nú búinn að
heimsækja Nýja-Sjáland, Ástralíu,
New York og Spán.“
Guðbjartur fékk svo skeyti frá
áðunefndum Spies og segist hann
hafa ákveðið að samþætta heim-
sóknir þessara tveggja manna.
„Úr því að ég var búinn að bóka
Gaukinn þessi tvö kvöld ákvað ég að
setja upp hálfgerða áheyrnarprufu
fyrr um kvöldið og fá íslenskar
hljómsveitir til að spila þar sem á
staðnum verða tveir valdamiklir
menn úr tónlistarbransanum. Þann-
ig að þetta verða tónleikar og svo
bara partí á eftir. Ég ætla að bjóða
upp á fína blöndu af sveitum og
koma þær úr ýmsum áttum.“
Þær sveitir sem að öllum líkindum
munu troða upp verða Dúndur-
fréttir, Jan Mayen, Brúðarbandið,
Singapore Sling, Líkn, Igore og
Helgi Valur. Þrjár til fjórar sveitir
munu spila á hvoru kvöldi.
Gestaplötusnúður á báðum kvöld-
um verður Óli Palli Rokklands-
kóngur.
Tónlist | Alan McGee á Íslandi 1. og 2. apríl
Guðfaðir Brit-rokksins
þeytir skífur á Gauknum
Fáir menn hafa haft jafn rík áhrif á
þróun breskrar dægurtónlistar síð-
ustu tvo áratugi og Alan McGee.
arnart@mbl.is
Frumsýning | Vélmenni (Robots)
Í veröld vélmenna
Félagarnir Sindri og Ventill þurfa
aldeilis að herða á skrúfunum til
að verða ekki að járnarusli.
hælnum hjá valdagráðugum undir-
manni sínum sem undir handleiðslu
skelfilegrar móður sinnar hefur í
hyggju að útrýma öllum varahlutum
svo öll vélmenni verði að fá sér rán-
dýrar og glansandi uppfærslur.
Sindri er hugrakkt vélmenni og með
aðstoð nokkurra skrautlegra og
skröltandi undirmálsvélmenna reyn-
ir hann að berjast gegn hinum illu
öflum frelsa Stórvald.
Vélmenni situr nú sem fastast á
toppi bandaríska listans þar sem
hún var frumsýnd um síðustu helgi
við mikla aðsókn. Að vanda verða
bæði frumsýndar hér ensk og ís-
lensk útgáfa. Í þeirri ensku tala stór-
stjörnur á borð við Ewan McGregor,
Robin Williams, Halle Berry, Drew
Carey, Mel Brooks og Greg Kinnear
fyrir aðalvélmenni myndarinnar en í
íslensku útgáfunni eru ekki síður
valinkunnir leikarar. Friðrik Frið-
riksson talar fyrir Sindra, Laddi
leysir af Robin Williams líkt og í
Aladdín og talar fyrir hinn kexklikk-
aða Ventil og aðrar raddir sem koma
við sögu eru eign Hilmis Snæs
Guðnasonar, Þórunnar Lárusdóttur,
Jóhönnu Jónas, Gísla Rúnars Jóns-
sonar, Álfrúnar Örnólfsdóttur og
Atla Rafns Sigurðarsonar.
ERLENDIR DÓMAR
Roger Ebert Metacritic.com 64/100
Variety 80/100 (skv. metacritic)
New York Times 40/100 (skv.
metacritic)
Empire HROLLVEKJAN The Ring
hræddi líftóruna úr mörgum sem
hana sáu. Nú er komin framhalds-
mynd og leikur Naomi Watts aftur
rannsóknarblaðakonuna, Rachel
Keller.
Myndin gerist sex mánuðum
eftir að skilið var við Rachel síð-
ast. Hún ákveður að flytjast ásamt
syni sínum Aidan (David Dorf-
man) frá Seattle til smábæjarins
Astoria í Oregon en tilgangurinn
er að flýja undan þeim hörm-
ungum sem áttu sér stað í fyrri
myndinni. En fyrr en varir gerast
kunnuglegir atburðir þegar
ómerkt myndbandsspóla finnst þar
sem glæpur hafði átt sér stað.
Draugurinn Samara er kominn
aftur á kreik.
Leikstjóri framhaldsmynd-
arinnar er Hideo Nakata sem leik-
stýrði upprunalegu japönsku
myndunum Ring 1 og 2.
Aðrir leikarar framhaldsmynd-
arinnar eru m.a. Simon Baker og
Óskarsverðlaunahafinn Sissy
Spacek.
Frumsýning |
The Ring Two
Rachel Keller (Naomi
Watts) og sonur henn-
ar losna ekki svo auð-
veldlega undan
óhugnaðinum.
Hring
eftir hring
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 47/100
Entertainment Weekly 50/100
Hollywood Reporter 70/100
Variety 50/100 (metacritic)
56 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Fatman
Scoop kominn
til landsins