Morgunblaðið - 18.03.2005, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
MIKIÐ austan hvassviðri gekk yf-
ir sunnanvert landið í gær. Á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum
mældist vindur mest 41 m/s í
gær. Að sögn Óskars J. Sigurðs-
sonar, veðurathugunarmanns og
vitavarðar, var vindurinn í gær „í
hærri kantinum“ en þó ekki met í
vetur því í september mældist
vindur þar 44 m/s. Skyggni á
Höfðanum var aðeins um 500 m í
gær vegna úrkomu og særoks.
Mikið landfok
við Gunnarsholt
„Þetta var slæmur dagur,
frameftir degi,“ sagði Ásgeir
Jónsson, landfræðingur hjá Land-
græðslu ríkisins. „Það var mökk-
ur vestur Rangárvellina og ég
reikna með að hann hafi haldið
áfram alveg út yfir Þjórsá.“ Ás-
geir býr nálægt Gunnarsholti á
Rangárvöllum. Þar, líkt og víðar
á Suðurlandi, var mikið landrof
og -fok í storminum í gær. Þegar
leið á daginn snerist austanáttin
meira til norðurs og þá dró úr
landfokinu. Ásgeir taldi að land-
fokið á láglendi í gær hefði jafn-
ast á við það sem varð í stórviðr-
inu í október síðastliðnum. Það
hefði bjargað miklu nú að snjór
væri yfir hálendinu. Í kringum
Gunnarsholt er talsverður trjá-
gróður og sagði Ásgeir greinilegt
hvað skjólbeltin slógu mikið á
vindinn.
Andrés Arnalds, fagmálastjóri
hjá Landgræðslu ríkisins, taldi
landrofið og -fokið í gær undir-
strika mikilvægi þess að farið
verði í skógrækt með jarðvegs-
vernd að markmiði á illa förnum
landfokssvæðum Suðurlands.
Með ræktun kjarrs eða birki-
skóga mætti koma í veg fyrir að
vindur næði að feykja jarðvegi.
Þetta minnti einnig á mikilvægi
þess að koma illa förnu landi í
lag, svæðum sem blásið hefðu
upp á síðustu öldum. Það þyrfti
að gera til að hemja gjósku og
önnur laus jarðefni.
„Þetta var slæmur dagur“
Morgunblaðið/RAX
Rok og ryk í lofti stöðvaði ekki menn við vinnu hjá Vatnsendahvarfi í Kópavogi í gær.
SKRÁÐ félög í Kauphöll Íslands sóttu 170
milljarða króna á hlutabréfamarkaði á árinu
eða sem nemur um 16% af virði skráðra fyr-
irtækja í árslok. Hvergi í Evrópu aflaðist
meira fjármagn í hlutfalli af markaðsstærð
en fjárhæðin sjálf er þrefalt hærri en skráð
fyrirtæki í Ósló sóttu á markað og ámóta
þeirri sem félög skráð í dönsku kauphöllinni
öfluðu. Eru þessir markaðir þó hvor um sig
nærri tífalt stærri en sá íslenski. Þetta kom
fram í máli Bjarna Ármannssonar, stjórn-
arformanns Eignarhaldsfélagsins Verð-
bréfaþings sem á og rekur Kauphöll Ís-
lands, á aðalfundi félagsins í gær.
Metvelta var bæði á hlutabréfa- og
skuldabréfamarkaði á síðasta ári. Heildar-
velta skráðra verðbréfa nam 2.218 milljörð-
um sem samsvarar um 8,9 milljarða króna
dagsveltu. Veltuaukning frá fyrra ári var
ríflega 40%.
Sóttu 170
milljarða á
hlutabréfa-
markað
Velta/16
LÖGÐ verður tillaga fyrir aðalfund
KB banka hf. sem haldinn verður í
dag um nafnbreytingu fyrirtækis-
ins. Samkvæmt tillögunni verður
nýtt nafn félagsins Kaupþing banki
hf. Þar með heyrir nafn Búnaðar-
bankans endanlega sögunni til en
bankinn tók til starfa á fyrsta degi
júlímánaðar árið 1930.
Síðasta nafnbreyting fyrirtækis-
ins var gerð um áramótin 2003–
2004 eða fyrir rétt rúmu ári en þá
var nafni þess breytt úr Kaupþing
Búnaðarbanki í KB banki.
Hið nýja nafn bankans er í sam-
ræmi við nafn það sem bankinn
starfar undir erlendis, Kaupthing
Bank.
KB banki
verður
Kaupþing
banki
REYKJAVÍKURBORG ætlar að bjóða öllum
börnum á leikskólaaldri allt að sjö klukkustunda
vist á dag á leikskólum borgarinnar án endur-
gjalds, í áföngum á næstu árum. Næsta skrefið
verður tekið haustið 2006 þegar öll börn fá tvær
stundir á dag ókeypis.
„Það er mín bjargfasta trú að leikskólinn eigi
að vera almenn grunnþjónusta sem samfélagið á
að veita án þess að vera með íþyngjandi gjald-
töku,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri þegar hún kynnti áætlunina í gær. „Ég
tel að með þessu sé Reykjavíkurborg að brjóta í
blað meðal íslenskra sveitarfélaga og taka ákveð-
ið frumkvæði í þessum málum.“ Reiknað er með
því að árið 2008 verði öll börn farin að fá fjórar
klukkustundir á dag ókeypis, en fimm ára börn
allar sjö stundirnar. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær síðasti áfanginn, þrjár stundir fyrir börn
yngri en fimm ára, verður að veruleika.
Kostar 850 milljónir
Þegar allir áfangar verða komnir til fram-
kvæmda munu leikskólagjöld fyrir foreldra með
eitt barn sem er átta klst. á leikskóla hafa lækkað
um 246 þúsund krónur á ári frá því sem nú er. Þá
mun kostnaður einstæðra foreldra og náms-
manna hafa lækkað um tæplega 98 þúsund krón-
ur á ári.
Kostnaður borgarinnar vegna þessa verður
verulegur, um 850 milljónir króna, en Steinunn
Valdís sagði að í ljósi umræðunnar í landsmálum,
þar sem stjórnmálaflokkar hefðu lýst því yfir að
leikskólinn ætti að vera gjaldfrjáls, mætti gera
sér vonir um þátttöku ríkisins í þessum kostnaði.
Það mætti t.d. gera með því að ríkið færi að
greiða fasteignagjöld en einnig með endur-
greiðslu hluta húsaleigubóta.
Reykjavíkurborg ætlar sér að bjóða sjö stundir á leikskóla án endurgjalds
Leikskólagjöld lækka
um allt að 246 þúsund
Leikskólagjöld/6
TVEIR fyrrverandi útgefendur hjá
Vöku-Helgafelli, þeir Ólafur Ragn-
arsson og Pétur Már Ólafsson, hafa
ákveðið taka höndum saman að
nýju og hefja almenna bókaútgáfu
síðar á þessu ári. Verður það undir
merkjum nýs forlags sem nefnist
Veröld.
Pétur Már og Ólafur segjast sjá
sóknarfæri í útgáfu á Íslandi og er-
lendis, bæði í almennri bókaútgáfu
og eins á öðrum sviðum. Þeir segj-
ast munu leggja áherslu á íslensk og
þýdd skáldverk, ævisögur, bækur
almenns efnis og barnabækur. Pét-
ur bendir á að þeir hyggist brydda
upp á ýmsum nýjungum á sviði út-
gáfu. „Bókaútgáfa veltur ekki síst á
því að fá góðar hugmyndir og af
þeim höfum við nóg,“ segir Pétur.
Ólafur segist hafa fengist við
skriftir eftir að hann lét af störfum
sem stjórnarformaður Eddu – út-
gáfu fyrir rúmum tveimur árum og
meðal annars gefið út bók um Hall-
dór Laxness og kynni sín af honum.
Þótt talsvert sé um liðið frá því að
hann hætti beinum daglegum af-
skiptum af útgáfumálum neitaði
hann því ekki að útgáfubakterían
hefði áfram blundað í sér.
„Bókamarkaðurinn á Íslandi er
ekki stór en hann er spennandi
enda hefur þjóðin einlægan áhuga á
bókum,“ segir Ólafur og bendir á að
þótt forlögin séu allmörg og titla-
fjöldinn drjúgur á hverju ári sé
ávallt rúm fyrir forvitnilegar bæk-
ur.
Ólafur stofnaði bókaútgáfuna
Vöku árið 1981. Hann keypti síðar
hið rótgróna forlag Helgafell, sam-
einaði það Vöku og tók þá meðal
annars að gefa út verk Halldórs
Laxness, og hóf kynningu og samn-
ingagerð gagnvart erlendum for-
lögum. Ólafur var fyrsti stjórnar-
formaður Eddu – miðlunar og
útgáfu þegar rekstur Vöku-Helga-
fells og Máls og menningar var
sameinaður í því fyrirtæki árið
2000.
Pétur Már gekk til liðs við Vöku-
Helgafell árið 1991. Hann var út-
gáfustjóri forlagsins þar til í byrjun
árs 2004 en hann var þá jafnframt
forstöðumaður útgáfusviðs Eddu –
útgáfu, auk þess að vera yfir Rétt-
indastofu Eddu sem annast sölu á
útgáfurétti til erlendra bókaforlaga.
Ólafur Ragnarsson og
Pétur Már með nýtt forlag
HLJÓMAR og karlakórinn Heimir munu
halda þrenna tónleika saman á næstu dög-
um. Fyrstu tónleikarnir verða á Sauðár-
króki hinn 26. mars en tvennir þeir síðari
verða í Stapa, Reykjanesbæ, og í Há-
skólabíói, tveimur vikum síðar.
Þá er Rúnar Júlíusson, einn meðlimur
Hljóma, klár með sólóplötu sem út kemur
á sextugsafmæli hans, hinn 13. apríl. Mun
hún heita Blæbrigði lífsins og eru undir-
leikarar Rúnars reggíhljómsveitin Hjálm-
ar, sem vakti mikla athygli á síðasta ári
fyrir fyrstu plötu sína, Hljóðlega af
stað./61
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Hljómar leika
með karla-
kórnum Heimi
♦♦♦
LAG frá tónleikum bresku hljómsveitar-
innar Keane hér á landi verður á nýrri
hljómleikastuttskífu hennar, sem kemur
út 4. apríl. Það er lagið „Everybody’s
Changing“, en Rás 2 tók upp tónleika
sveitarinnar sem haldnir voru á Iceland
Airwaves-hátíðinni 23. október sl./58
Morgunblaðið/Árni Torfason
Upptaka frá
Airwaves á
plötu Keane