Morgunblaðið - 09.05.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 124. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Söngelskir
frændur
Skyldmennin hittast vikulega
og syngja saman | 15
Fasteignir og Íþróttir
Fasteignir | Stöðug fólksfjölgun í Grindavík Gólfhiti er nú-
tímahitagjafi Íþróttir | Guðjón Valur Evrópumeistari Íslend-
ingar sigursælir á NM í júdói Ástrali og Serbi til Fylkis
Moskvu. AFP, AP. | George W. Bush Bandaríkja-
forseti ræddi við Vladímír Pútín Rússlands-
forseta í gær og lauk lofsorði á rússnesku þjóð-
ina fyrir þátt hennar í sigrinum á þýskum
nasistum í síðari heimsstyrjöldinni fyrir 60 ár-
um.
Forsetarnir tveir héldu óformlegan fund á
sveitasetri Pútíns síðdegis í gær. Þrátt fyrir
ágreining ríkjanna að undanförnu um lýðræð-
isþróunina í Rússlandi og fleiri mál voru við-
ræður forsetanna vinsamlegar. Bush þakkaði
Rússum fyrir aðstoð í deilunni um kjarnorku-
áætlun Írans og við friðarumleitanir í Mið-
Austurlöndum. „Rússar eru stórkostleg þjóð og
ég hlakka til að vinna með þeim að lausn stórra
vandamála,“ sagði Bush. „Það er margt sem við
getum gert saman.“
Minntist fórna Rússa
Bush kvaðst ennfremur hlakka til hátíðar-
haldanna í Moskvu í dag í tilefni af því að 60 ár
eru liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
„Á þessari stundu viðurkennir heimsbyggðin
mikið hugrekki rússnesku þjóðarinnar og þær
miklu fórnir sem hún færði í sigrinum á nasism-
anum. Rússneska þjóðin þurfti að ganga í gegn-
um ótrúlegar þjáningar og þrengingar en samt
þvarr aldrei rússneski baráttuandinn.“
Vel fór á með forsetunum á sveitasetri Pútíns
í birkiskógi vestan við Moskvu. Bush fékk jafn-
vel að aka Volgu-bifreið Pútíns um heimreiðina
áður en þeir snæddu kvöldverð með eiginkon-
um sínum. „Ég hef svo mikla skemmtun af
þessu, við ætlum annan hring,“ sagði Bush.
Forsetarnir svöruðu ekki spurningum frétta-
manna en utanríkisráðherrar Bandaríkjanna
og Rússlands sögðu þá hafa rætt málefni Mið-
Austurlanda og verið sammála um margt, eink-
um um að ekki mætti gefa eftir í baráttunni
gegn hryðjuverkum.
Bush lofar hugrekki
rússnesku þjóðarinnar
AP
Vladímír Pútín tekur á móti George W. Bush
Bandaríkjaforseta við sveitasetur rússneska
forsetans nálægt Moskvu síðdegis í gær. Stuðlaði að/14
EVRÓPUBÚAR fjölmenntu á minningarathafnir og skrúðgöngur víða í
álfunni í gær í tilefni af því að sex áratugir eru liðnir frá lokum síðari
heimsstyrjaldar.
Aldraðir hermenn taka hér þátt í skrúðgöngu í miðborg Moskvu í
gær. Hátíðahöldin ná hámarki í borginni í dag þegar um 50 þjóð-
arleiðtogar verða viðstaddir sýningu á Rauða torginu, þeirra á meðal
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Um 50 milljónir manna létu lífið
í stríðinu, þar af um 26 milljónir Rússa.
Í Austurríki minntust þúsundir manna stríðslokanna í útrýming-
arbúðum nasista.
Reuters
Sigurdagsins minnst í
evrópskum borgum
STJÓRN Barnageðlæknafélags Ís-
lands mótmælir harðlega í yfirlýs-
ingu, sem birt er í Morgunblaðinu í
dag, því sem nefnt er fordómar og
rakalaus málflutningur í umræðu
að undanförnu um notkun geðlyfja
barna með ofvirkniröskun.
Heimsmeistaratitillinn
er ekki okkar
Vísað er á bug fullyrðingum í fjöl-
miðlaumræðunni um að notkun Rit-
alins, þ.e methylphenidats, sé
hvergi meiri en á Íslandi þar sem
hún er gjarnan eingöngu heimfærð
upp á börn og unglinga. Þess sé
hins vegar ekki getið að a.m.k. 30%
heildarnotkunarinnar sé meðal full-
orðinna. „Má í því sambandi geta
þess að af kvenkyns notendum lyfs-
ins er u.þ.b. helmingur notkunar-
innar meðal fullorðinna kvenna.
Einnig hefur þess ekki verið getið
að víða erlendis eru önnur lyf úr
flokki örvandi lyfja á markaði en
þau lyf hafa ekki reiknast með þeg-
ar verið er að bera saman notkun á
Íslandi við önnur lönd. Hinn um-
deildi og vafasami heiður að vera
handhafi heimsmeistaratitils í notk-
un örvandi lyfja er því ekki okkar
enn sem komið er,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Bent er á að stór hluti
barna sem njóta lyfjameðferðar
hafi mikið gagn af henni og hafi öðl-
ast nýtt líf m.t.t. líðanar, félags- og
námsstöðu.
„Gagnrýnisraddir tala um sjúk-
dómsvæðingu, ofgreiningu, oflyfjun
barna eða þá að verið sé að með-
höndla hegðun eða óþekkt með
lyfjagjöf. Það er áleitin spurning af
hverju börn með þroskaraskanir
þurfi að vera skotmark ólíkra aðila
með rakalausum málflutningi.
Börn eru auðveld bráð þar sem
þau geta ekki sjálf borið hönd fyrir
höfuð sér og foreldrar þeirra svara
ógjarnan fyrir sig. Það skyldi þó
ekki vera svo að skyldmennin fá-
fræði og fordómar og aðrir úr þeirri
ætt séu á ferli?“ segir m.a. í yfirlýs-
ingunni.
Börnin eiga rétt á griðum
Undir lok yfirlýsingarinnar er
vitnað í kveðskap Egils Skalla-
grímssonar um kukl: „„Skalat maðr
rúnar rista nema ráða vel kunni.
Það verðr mörgum manni er um
myrkvan staf villist.“ Það hefur
vakið áhyggjur hvernig og hvert
ráðuneytið hefur leitað faglegrar
ráðgjafar um málefni barna með
geðraskanir og svo virðist nú sem
bæði þing og ráðuneyti fari stafa-
villt.
Það hefur alltaf verið ósk okkar
að friður skapist um þennan mála-
flokk þannig að við og aðrir getum
veitt þessum börnum og öðrum að-
stoð með þeim aðferðum sem við
þekkjum best hverju sinni. Börnin
eiga rétt á griðum fyrir fordómum
þjóðfélagsins,“ segir í yfirlýsingu
stjórnar Barnageðlæknafélagsins.
Barnageðlæknafélagið gagnrýnir
umræðu um notkun geðlyfja
Börn eru skot-
mark rakalauss
málflutnings
Yfirlýsing/28
Taldir eiga
um sex kjarn-
orkusprengjur
Washington. AFP. | Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin (IAEA) telur að Norður-Kóreu-
menn eigi um það bil sex kjarnorkusprengj-
ur. Mohamed ElBaradei, yfirmaður
stofnunarinnar, staðfesti þetta í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina CNN í gær.
Þegar ElBaradei var spurður hvort það
væri mat Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar að Norður-Kóreumenn réðu þegar yf-
ir allt að sex sprengjum svaraði hann: „Ég
tel að það sé nálægt mati okkar. Við vissum
að þeir réðu yfir plútoni sem hægt væri að
nota til að smíða 5–6 norður-kóresk vopn.
Við vitum að þeir ráða yfir tæknibúnaði til
að breyta þessu plútoni í vopn.“
Samkvæmt skýrslum bandarískra leyni-
þjónustustofnana er talið að Norður-Kór-
eumenn ráði yfir einni eða tveimur kjarn-
orkusprengjum. Þeir lýstu því yfir í febrúar
að þeir hefðu þróað kjarnavopn og fregnir
herma að þeir séu að búa sig undir að
sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í
tilraunaskyni.
ÍSLENDINGUR var í hópi öryggisvarða
sem urðu fyrir bílasprengjuárás í miðborg
Bagdad í Írak um helgina að því er fram
kemur í fréttum erlendra fréttastofa í gær.
Íslendingurinn slasaðist ekki alvarlega og
fékk að fara af sjúkrahúsi eftir aðhlynn-
ingu. Alls létu 22 lífið í árásinni, þar á meðal
tveir bandarískir öryggisverðir að því er
haft er eftir bandaríska sendiráðinu í Írak.
Utanríkisráðuneytinu hér á landi höfðu í
gærkvöldi ekki borist neinar fregnir af því
að Íslendingur hefði verið meðal þeirra sem
urðu fyrir árásinni og engar fregnir hafa
borist af Íslendingum á þessum slóðum.
Einn Íslendingur hefur verið í Írak á veg-
um íslensku friðargæslunnar en er staddur
hér á landi þessa dagana.
Í fréttum erlendra fjölmiðla kemur fram
að árásin var gerð á bílalest öryggisvarða á
vegum bandaríska ráðgjafarfyrirtækisins
CTU Consulting. Í tilkynningu frá fyrir-
tækinu í gær segir að auk Bandaríkjamann-
anna tveggja sem létust hafi Ástrali, Ís-
lendingur og þrír bandarískir öryggisverðir
á vegum fyrirtækisins meiðst í árásinni.
Enginn þeirra hafi þó slasast lífshættulega.
Samkvæmt AP-frétt segjast Al-Qaida-
samtökin hafa staðið fyrir árásinni.
22 féllu í bílasprengjuárás á
öryggisverði í miðborg Bagdad
Íslendingur
sagður hafa
meiðst í
árásinni
Reuters
Bílar öryggisvarðanna í ljósum logum.
♦♦♦