Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 6
FEÐUR sem er sagt upp störfum
vegna fæðingarorlofstöku eru
farnir að leita til Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur (VR) í ríkari
mæli eftir að lög um jafnan rétt til
fæðingarorlofs tóku gildi. Elías
Magnússon, forstöðumaður kjara-
málasviðs VR, segir að þetta sé
nýr málaflokkur hjá VR og að svo
virðist sem það halli smám saman
jafnmikið á karla og konur í þess-
um efnum. Hann giskar á að VR
fái í kringum tuttugu mál á ári
þar sem uppsögn tengist beint
fæðingarorlofi eða þungun.
Elías segir þó að enn sé munur
á kynjunum í þessum efnum.
„Konur lenda frekar í því að vera
sagt upp þegar þær tilkynna
þungun eða eru að koma til baka
úr fæðingarorlofi. Karlar lenda
hins vegar frekar í því síðar enda
taka þeir oft fæðingarorlofið
seinna en konurnar.“ Elías bendir
á að karlar hafi átján mánuði til
að taka orlofið og að margir taki
kannski mánuð fyrst en bíði svo
með að taka hitt. „Þá dreifist fæð-
ingarorlofið á lengra tímabil. Þá
vakna spurningar um það að ef
karlar geyma réttinn í allt að 18
mánuði, hvort megi segja þeim
upp á þeim tíma,“ segir Elías og
bendir á að meðan á fæðing-
arorlofi stendur njóti fólk lög-
bundinnar verndar.
Missa vinnuna
vegna
feðraorlofs
6 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMKIRKJULEG minningar- og
bænastund var haldin í Hallgríms-
kirkju í gær til minningar um að
sextíu ár eru liðin frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar.
Biskupinn yfir Íslandi, Karl Sig-
urbjörnsson, boðaði til athafn-
arinnar, en fulltrúar rómversk-
kaþólskra, rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar og prestur af
Keflavíkurflugvelli tóku þátt í
bænastundinni, auk þess sem
rabbíni tónaði hina hebresku bæn,
Kaddish, til minningar um þá sem
létu lífið í helförinni. Davíð Odds-
son forsætisráðherra flutti ávarp
og fulltrúi íslenskra sjómanna sem
sigldu í skipalestunum í heims-
styrjöldinni síðari las ritning-
arlestur.
Biskup Íslands sagði í ávarpi
sínu að enn væru á meðal okkar
þau sem lifað hefði heimsstyrjöld-
ina síðari og þau minntust þessa
dags fyrir sextíu árum sem fegins-
dags og léttis yfir því að hatursbál
hildarleiksins var slökkt, dags
þakklætis og fagnaðar yfir friði og
frelsi.
Slær á sára stengi
„En minning stríðslokanna slær
og aðra strengi og sárari. Aldrei í
veraldarsögunni hafa hernaðarátök
valdið óbreyttum borgurum, sak-
lausum almenningi, öðrum eins
þjáningum og heimsstyrjöldin síð-
ari. Henni fylgdu ólýsanleg
grimmdarverk og eyðilegging, og
djöfulleg, kaldrifjuð útrýming fólks
í milljónatali, helför, þjóðamorð,
sem er smánarblettur á sögu og
minningu mannkynsins. Því má
mannkyn aldrei gleyma! Hér mun-
um við sérstaklega minnast þess
er við fáum að hlýða á hið hebr-
eska bænamál, Kaddish, bænina
fyrir þeim látnu.“
Hann sagði að þessi stund með
þátttöku ríkisstjórnar Íslands, full-
trúa annarra þjóða og trúfélaga og
trúarbragða, væri áminning um að
varanlegur friði yrði ekki fyrr en
einstaklingar, stjórnvöld og trúar-
brögðin tækju höndum saman að
sameina réttlæti og miskunnsemi.
„Mannkyn er samt við sig. Skefja-
laus valdafíkn, hernaðarhyggja og
kynþáttahatur leiddu Evrópu og
heimsbyggðina alla út í hildarleik
heimstyrjaldarinnar. Þau reginöfl
leika enn lausum hala í mannlífinu.
Þau mega aldrei ná undirtökunum,
afvegaleiða, blinda og blekkja ein-
staklinga og þjóðir og ginna inn í
björg sín.
Minning stríðsloka hlýtur að
vera öllum hugsandi, velviljuðum
mönnum áminning og heitstreng-
ing: Slíkt má aldrei endurtaka sig.
Aldrei! Og sameinumst í að semja
sátt og flytja frið, og í bæn fyrir
friði, friði milli þjóða, kynþátta,
trúarbragða, bæn, borna uppi af
fyrirheiti þeirrar framtíðarsýnar
sem Jesaja spámaður lýsti endur
fyrir löngu, og þau orð eru reynd-
ar skráð á útvegg aðalstöðva Sam-
einuðu þjóðanna: „Guð mun dæma
meðal lýðanna og skera úr málum
margra þjóða. Og þær munu smíða
plógjárn úr sverðum sínum og
sniðla úr spjótum sínum. Engin
þjóð skal sverð reiða gegn annarri
þjóð, og ekki skulu þær temja sér
hernað framar (Jes. 2.4).“
Tóku sinn toll
Davíð Oddsson utanrík-
isráðherra sagði við athöfnina að
það væri vert að minnast þess „að
til voru menn og til voru þjóðir
sem höfðu kjark, styrk og stað-
festu til að bjóða harðstjóranum
byrginn.“
Davíð minntist einnig þeirra Ís-
lendinga sem lögðu sitt af mörkum
í styrjöldinni. „Við Íslendingar
stóðum ekki hjá sem ósnortnir
áhorfendur. Við héldum framan af
að yfirlýsingar okkar um ævarandi
hlutleysi hefðu raunverulegt gildi.
Við felldum engan mann í styrjöld-
inni, svo vitað sé, en hún tók samt
sinn toll hér og þess er vert að
minnast með söknuði og þökk til
þeirra sem stóðu sig svo vel við
þær aðstæður,“ sagði Davíð.
Biskup Íslands við samkirkjulega minningarstund vegna stríðslokanna
„Slíkt má aldrei endurtaka sig“
Morgunblaðið/Golli
Biskupinn yfir Íslandi, Karl Sigurbjörnsson, Davíð Oddsson utanríkisráðherra og séra Jón Dalbú Hróbjartsson,
sóknarprestur í Hallgrímskirkju, við minningar- og bænastundina í Hallgrímskirkju í gær.
Morgunblaðið/Golli
Rabbíi tónaði Kaddish, hina hebresku bæn fyrir hinum látnu, til minningar
um þau sem létu lífið í helförinni. Margir sóttu athöfina í Hallgrímskirkju.
ÖLVAÐUR ökumaður var tekinn á
146 km hraða á Hafnarfjarðarveg-
inum um klukkan tíu í gærmorgun
þar sem hámarkshraði er 70 km.
Hann var að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirði ekki sviptur ökurétt-
indum á staðnum en mun missa þau
í kjölfar atviksins.
Ölvaður á
146 km hraða
SÝNING hefur verið opnuð á til-
lögum í alþjóðlegu hugmynda-
samkeppninni, Akureyri í öndvegi,
en úrslit samkeppninnar voru til-
kynntar á laugardag. Tillaga
skoska arkitektsins Graeme Massie
í Edinborg í Skotlandi hlaut fyrstu
verðlaun. Massie hlaut 3,3 milljónir
króna í verðlaun fyrir hugmynd
sína sem m.a. gerir ráð fyrir að síki
verði gert frá Pollinum og upp í
gegnum miðbæinn að Skátagili.
Hugmynd fjögurra ungra arki-
tekta frá Póllandi, Juliusz Dudnic-
zek, Magdalena Kalinowska, Karol-
ina Salska og Ewu Wielinska hlaut
önnur verðlaun, 2,5 milljónir
króna.
Á sýningunni í Glerárgötu 36 á
Akureyri verða til sýnis allar tillög-
urnar, 151 talsins, en þær eru frá
35 löndum. Sýningin verður opin til
16. maí. Fjölmargir skoðuðu sýn-
inguna um helgina.
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar þeirra arkitektastofa sem hlutu verðlaun í alþjóðlegu hugmyndasamkeppninni um skipulag miðbæjarins
á Akureyri, auk fulltrúa þeirra stofa sem keyptar voru hugmyndir af. Sýning á tillögunum stendur yfir.
Margir skoðuðu sýninguna um helgina
UMHVERFISRÁÐ Reykjavíkur
samþykkti á fundi fyrir helgi bók-
un þar sem segir að ráðið hafi talið
rétt að samráð hefði verið haft við
það þegar Háskólanum í Rekjavík
var úthlutað lóð í Vatnsmýrinni.
Furðu sæti að þetta skuli ekki
hafa verið gert. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins lögðu bókunina
fram og var hún samþykkt sam-
hljóða.
„Lóðin er á svæði sem er að
hluta til á svæði sem skipulagt
hefur verið sem útivistar- og
grænt svæði. Þar að auki er fyr-
irhugað byggingarland alveg ofan í
vinsælum útivistarsvæðum –
Öskjuhlíðinni, göngustíg með
ströndinni og ylströndinni í Naut-
hólsvík – og því enn meiri ástæða
fyrir Umhverfisráð að taka málið
til umfjöllunar. Það sætir því furðu
að það ráð sem helst á að sinna
grænum svæðum og umhverfis-
málum í borginni skuli aldrei hafa
tekið málið til umfjöllunar og ein-
setur ráðið sér að láta slíka hand-
vömm ekki henda aftur. Ráðið
fagnar því hins vegar að Háskól-
inn í Reykjavík hefur fengið lóð í
Reykjavík,“ segir í bókuninni.
Lóðin í Öskjuhlíð
Aldrei haft
samráð við
umhverfisráð
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var
kallað að Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri kl. 15 í gær en þar
logaði sinueldur sunnan við ný-
byggingu spítalans. Þegar
slökkvilið kom á staðinn var þar
mikill reykur, sem m.a. lagði yfir
spítalann. Greiðlega gekk að
slökkva sinueldinn með hjálp lög-
reglu. Einhver reykur fór í loft-
ræstikerfi spítalans og olli óþæg-
ingum, mismiklum þó, og ekki
kom til þess að rýma þyrfti
sjúkrastofur, að sögn Einars
Bjarnasonar, tæknimanns á FSA.
Að sögn lögreglu voru það ungir
drengir að fikta með eld sem ollu
sinubrunanum.
Sinubruni í
nágrenni FSA
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
hefur meiri stuðning kjósenda
Samfylkingarinnar en Össur
Skarphéðinsson í formannsslag
flokksins. Össur hefur aftur á
móti meiri stuðning ef horft er til
allra landsmanna. Þetta eru nið-
urstöður könnunar sem Frjáls
verslun gerði í síðustu vikunni í
apríl. Könnunin var gerð í gegn-
um síma og úrtakið var rétt yfir
800 manns. 655 svöruðu og þar af
tóku 68% afstöðu til þess hvort
Ingibjörg eða Össur ætti að verða
formaður Samfylkingarinnar.
Sex af hverjum tíu sögðust
styðja Össur í formannskjörinu
en af kjósendum Samfylking-
arinnar voru það aðeins þrír af
hverjum tíu. 70% sögðust styðja
Ingibjörgu.
Össur átti einnig fleiri stuðn-
ingsmenn meðal þeirra sem ekki
voru vissir um hvaða flokk þeir
ætluðu að kjósa; þar hafði Ingi-
björg aðeins 36% atkvæða en Öss-
ur 64%.
Fleiri velja Össur
en flokksmenn
vilja Ingibjörgu