Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.003
WWW.BORGARBIO.IS
Frá leikstjóra
Die Another Day
Sýnd kl. 8 og 10 B.I 12 ÁRA Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.I 12 ÁRA
TV
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.20 , 8 og 10.45. B.I 16 ÁRA
Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy Irons fara
á kostum í epískri stórmynd. Missið ekki af þessari
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Ridley Scott, leikstjóri
Gladiator, færir
okkur eina
mögnuðustu mynd
ársins!
Ridley Scott, leikstjóri Gladiator, færir
okkur eina mögnuðustu mynd ársins!
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
ÓÖH DV
Orlando Bloom, Liam
Neeson og Jeremy
Irons fara á kostum í
epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari
Sýnd kl. 5.30. B.I 16 ÁRA Sýnd kl. 6. m. ísl taliSýnd kl. 10.15 . B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 og 10.30.
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 5.45 og 8.
kl. 7 og 10.
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.
Frá leikstjóra
Die Another Day
Frá leiks óra
Die Another Day
Þ
að er ekki að undra, eins
og heimurinn veltist
þennan tímann, að
trúarbrögð séu viðfangs-
efni í kvikmyndum og víðar –
söluhæsta bók í Frakklandi
fjallar um það efni, eða öllu
heldur um gildi þess að vera
trúlaus, eftir heimspekinginn
Michel Onfray.
Það er tími krossferðanna
sem ameríski leikstjórinn Ridley
Scott (Blade Runner, Gladiator)
fjallar um í Kingdom of Heaven,
nánar tiltekið þriðja krossferð.
Þetta er mikilfengleg afþreying
sem gleður augað mjög, hvergi
slakað á kröfum. Togstreitan
milli tveggja aðalpersónanna er
líka frumleg, nokkurs konar
samkeppni í umburðarlyndi milli
riddarans Balian sem Orlando
Bloom leikur og soldánsins Sal-
adin sem er leikinn af sýrlenska
leikaranum Ghassan Massoud.
Sá síðarnefndi er stjarna mynd-
arinnar með sinn mikilúðlega
persónuleika, en hin góða og
laglega söguhetja dauf í fram-
göngu. En það er þekkt listrænt
vandamál að erfitt er að gera
góðar persónur nógu litríkar til
þess að þær haldi athygli. Ég
held það hefði verið til bóta að
hafa þessa tilteknu algóðu sögu-
hetju ekki alveg svona óskap-
lega snotra líka, og jafnvel
sæma hana athyglisverðum út-
litsgalla eins og valbrá eða
klumbufæti.
Það er einn kostur við King-
dom of Heaven að hún er gerð
af einlægni (leikstjórinn segir að
kaldhæðnin sé auðveld) og vilja
til þess að vega upp á móti ein-
faldri og fordómafullri mynd af
heiminum. Og riddarinn góði
sem endar á því að verja Jerú-
salem lætur borgina af hendi til
þess að bjarga fólkinu sem í
henni er. Það má alveg kalla
Kingdom of Heaven „politically
correct“ bíómynd (þótt franska
blaðið Le Monde dragi reyndar
í efa að þétttrúuðum Banda-
ríkjaleiðtogum fyndist það) en
hún er það ekki svo augljóslega
að hún líði fyrir það.
Með þessari mynd var borðað
á veitingastaðnum Verdi, rétt
við aðaltorgið í Montpellier.
Þessi staður er í fremsta flokki
þeirra sem ég hef prófað, og
ódýr líka. Hráefnið að hluta til
kunnuglegt, nætursaltaður
þorskur, en ég hef ekki áður
kynnst honum djúpsteiktum
eins og hér, með mjög stökkri
húð úr fínu raspi. Forréttur var
innbökuð snilld úr eggaldini,
tómötum og ferskum geitaosti,
og eftirréttur kökuafbrigði (flan)
spækað upp með amaretti-líkjör.
Við drukkum Chianti með
þessu, þótt úr nógu sé að velja
af víni frá svæðinu kringum
Montpellier. Þjónninn sagði
okkur eitt og annað um það efni
sem að gagni má koma. Þegar
komið er í nýtt land eða á nýtt
svæði er það jafnan góð aðferð
að leita fróðleiks um vínin í
kring hjá vínfróðum veitinga-
manni.
B í ó k v ö l d í M o n t p e l l i e r
Úr Himnaríki
Eftir Steinunni Sigurðardóttur
Kingdom of Heaven er nýjasta mynd leikstjórans Ridley Scott.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Iceland
International Film Festival, IIFF,
lauk síðasta mánudag. Alls sóttu
34 þúsund gestir hátíðina á þeim
rúma mánuði sem hún stóð. Að-
standendur kvikmyndahátíð-
arinnar segja aðsóknina hafa farið
fram úr björtustu vonum en annar
eins fjöldi hefur aldrei sótt
kvikmyndahátíð á borð við þessa,
hér á landi og stenst hátíðin fylli-
lega samanburð við margar er-
lendar hátíðir. Svokallaðar „Spurt
& svarað“ sýningar þar sem gest-
um gafst tækifæri til að spyrja
leikstjóra og leikara út í kvik-
myndir þeirra, slógu í gegn og lofa
aðstandendur áframhaldandi
gestakomum á hátíðir í framtíð-
inni.
Best sótta mynd hátíðarinnar
var Der Untergang en sú vinsæl-
asta var að mati bíógesta Hotel
Rwanda og hlýtur leikstjóri mynd-
arinnar Terry George þar með
verðlaun IIFF, Jökulinn.
Stærstu kvikmyndahátíð Íslands lokið
Bruno Ganz í hlutverki Adolfs Hitlers í Der Untergang.
1. Downfall
2. Motorcycle Diaries
3. Bad Education
4. Hotel Rwanda
5. House of Flying Daggers
6. A Hole in My Heart
7. Napoleon Dynamite
8. 9 Songs
9. Vera Drake
10. Maria Full of Grace
Topp 10 aðsókn
1. Hotel Rwanda
2. Motorcycle Diaries
3. Downfall
4. Garden State
5. Vera Drake
6. Bad Education
7. Maria Full of Grace
8. Napoleon Dynamite
9. House of Flying Daggers
10. Woodsman
Topp 10 kosning
EIN þekktasta þungarokkssveit
allra tíma, Megadeth, mun halda
hljómleika í Kaplakrika, Hafn-
arfirði, 27. júní næstkomandi. Tón-
leikarnir eru lokatónleikar á Evr-
óputúr sveitarinnar sem hefst 3.
júní í Hollandi.
Þessi goðsagnakennda sveit, sem
leidd er af fyrrverandi Metallica-
meðlimnum Dave Mustaine, lagði
grunninn að hinni svokölluðu
„thrash-metal“ tónlist ásamt Metal-
lica, Slayer og Anthrax í upphafi ní-
unda áratugarins. Megadeth hefur
marga fjöruna sopið á löngum ferli
en sneri þríefld til baka í fyrra með
plötunni The System Has Failed.
Sú plata hefur fengið feiknagóða
dóma og þykir Mustaine hafa náð
að fanga rétta tóninn á nýjan leik,
eftir áralangt þrugl og bull. Sveitin
var reyndar lögð niður árið 2002 og
var útlit fyrir að Mustaine gæti
aldrei leikið á gítar framar þar sem
taugar í öðrum handleggnum
sködduðust eftir að hann hafði sofið
eitthvað fáranlega á honum. Auk
þess glímdi hann við heróínfíkn. En
þegar ráðist var í endurútgáfu á
eldri plötum Megadeth í fyrra
kviknaði neisti í Mustaine á nýjan
leik og áðurnefnd plata var hljóð-
rituð.
Þykir hún það besta sem sveitin
hefur gert síðan hin stórgóða Rust
in Peace kom út 1990. Þrjár fyrstu
plötur Megadeth eru þá allar vel yf-
ir meðallaginu. Fyrsta platan, Kill-
ing Is My Business ... And Business
Is Good! kom út árið 1985 og og ári
síðar kom Peace Sells ... But Who’s
Buying? en hún er að flestra mati
meistaraverk sveitarinnar. So Far,
So Good...So What! kom svo út árið
1988.
Her manna hefur gengið í gegn-
um raðir sveitarinnar, en hinn hæfi-
leikaríki Mustaine ku „erfiður“ og
ekki skrýtið að hann hafi ekki þolað
við í röðum Metallica þar sem tveir
herforingjar, þeir Ulrich og Het-
field, voru þegar fyrir. Sveitin sem
hingað kemur er skipuð Mustaine
(gítarar, söngur) Glen Drover (gít-
arar), James MacDonough (bassi)
og Shawn Drover (trommur).
Miðaverð verður 4500 krónur og
hefst sala 22. maí. Nánari upplýs-
ingar munu birtast á www.rr.is.
Megadeth til Íslands
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Megadeth. Dave Mustaine er annar frá vinstri.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is