Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 23
UMRÆÐAN FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur
byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa
lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir
sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina.
Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega
hafið samband og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Átt þú
5-8 ára
barn?
Skóli Ísaks Jónssonar er lítill og persónulegur skóli sem
hefur sérhæft sig í kennslu 5 til 8 ára barna frá árinu 1926.
Forskot í lestri og íslensku
Markmið skólans er að lestrarkunnátta í lok 6 ára bekkjar
sé sambærileg við það sem aðrir skólar ná í lok 7 ára bekkjar.
Enska í öllum bekkjum
Enn betri undirbúningur undir frekara nám.
Áhersla á heilbrigða lífshætti
Skólinn leggur mikið upp úr því að nemendur
temji sér heilbrigða lífshætti og jákvætt lífsviðhorf.
Lífsleikniþjálfun er snar þáttur í skólastarfinu.
Vinnufriður í skólastofum
Við leggjum áherslu á að kenna nemendum markviss
og öguð vinnubrögð.
Skráning stendur yfir í Ísaksskóla
Skáning og nánari upplýsingar
í símum 553 2590 og 893 1440.
Einnig má senda fyrirspurnir á
isaksskoli@isaksskoli.is.
UNDANFARIÐ
hafa borist fréttir af
góðum árangri af for-
varnastarfi hér í borg
og um landið allt.
Rannsóknir á tóbaks-,
áfengis og vímu-
efnaneyslu sýna að ís-
lensk ungmenni kjósa
fremur að halda út í líf-
ið án þessara efna. Þessar gleði-
fregnir kalla fram spurninguna hvað
valdi? Engin ein skýring er haldbær
enda hafa margir lagt sitt lóð á vog-
arskálarnar, ekki síst ungmennin
sjálf, en oft vill gleymast að þessi ár-
angur er fyrst og fremst þeirra.
Áhrif foreldra á börn þannig að þau
velji heilbrigðan lífsstíl verða seint
ofmetin. Rannsóknir sýna að slag-
orðið foreldrar eru bestir í for-
vörnum er í fullu gildi. Þegar kemur
að neyslu tóbaks, áfengis eða ann-
arra vímuefna skiptir umhyggja, eft-
irlit og aðhald foreldra miklu máli.
Í nýrri samevrópskri könnun á
tóbaks-, áfengis- og vímuefnaneyslu
kom fram að eftirlit foreldra og að-
hald skiptir miklu hvað varðar það
hvort unglingar byrji að reykja,
neyta áfengis eða annarra vímuefna.
Í könnuninni voru nemendur spurðir
hvort foreldrar vissu hvar þeir væru
á laugardagskvöldum. Í 30 löndum
af 31 kom fram fylgni milli þessara
þátta þannig að ef foreldrar vissu
ekki um unglingana var líklegra að
þeir reyktu, drykkju eða notuðu
önnur efni. Sterkust var fylgnin fyr-
ir alla þættina þrjá hér á Íslandi. Ís-
lenskar rannsóknir sýna skýrt að
þeir unglingar sem telja sig njóta
umhyggju og aðhalds foreldra fara
síður að reykja eða drekka.
Foreldrar sem fyrirmyndir
Börn líta mjög til foreldra sinna
eftir leiðbeiningum um hegðun og
þau gera eins og við gerum frekar en
eins og við segjum. Foreldrar ættu
sérstaklega að hafa þetta í huga þeg-
ar um er að ræða tóbak, áfengi og
önnur fíkniefni. Hvernig foreldrar
fara með þessi efni og hvaða viðhorf
þeir hafa til þeirra skiptir gríð-
armiklu máli fyrir það hvort og þá
hvernig barnið velur að nota þau.
Stuðningur og reglur
Mikilvægt er að foreldrar sýni
börnum sínum stuðning og leiði þau
til heilbrigðs lífs. Skilaboðin til
barnanna verða að vera skýr og regl-
urnar sem þau eiga að fylgja verða
að liggja ljósar fyrir. Það hefur sýnt
sig að ef foreldrar eru samtaka um
þær reglur sem eiga að gilda um líf
barnanna þá verða þær fljótt sjálf-
sagður hlutur sem allir fylgja.
Kannanir á viðhorfum foreldra til
ýmissa þátta sem snúa að lífi ung-
menna hafa verið gerðar nokkuð
reglulega undanfarin ár. Í nið-
urstöðum þeirra kannana hefur
komið fram skýr rammi sem for-
eldrar vilja hafa um líf barna sinna.
Sem dæmi má nefna að meirihluti
foreldra segist ekki leyfa eftirlits-
laus partí fyrir börn sín á grunn-
skólaaldri, ekki útvega þeim áfengi,
virða reglur um útivistartíma og
ekki leyfa þeim að fara
eftirlitslausum á útihá-
tíðir.
Fjöldi rannsókna á
samskiptum unglinga
og foreldra og
tengslum þeirra við
áhættuhegðun sýna að
foreldrar eru lykilað-
ilar í forvarnastarfi.
Með leiðandi uppeld-
isháttum sem einkenn-
ast af hlýju, nálægð,
eftirliti og aðhaldi er
líklegra að barnið velji
heilbrigða lífshætti. Foreldrar hafa
sýnt í verki vilja og getu til að vera
þessir aðilar. Til þess þarf að hvetja
og fræða foreldra og búa tilþannig
samfélag sem styður við bak þeirra í
þessu verkefni.
Foreldrar eru bestir
Hildur Björg Haf-
stein fjallar um for-
varnastarf
’Fjöldi rannsókna ásamskiptum unglinga
og foreldra og tengslum
þeirra við áhættu-
hegðun sýna að for-
eldrar eru lykilaðilar í
forvarnastarfi. ‘
Hildur Björg Hafstein
Höfundur er verkefnastjóri
hjá Lýðheilsustöð.