Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það verður ekkert „hægt og hljótt“ í valdabaráttunni um Ísland. Það lætur nærri að ánæstu þremur ár-um eigi framleiðsla á rafmagni með jarðgufu eftir að þrefaldast. Hægt er að framleiða um 200 MW í dag í þeim gufuafls- virkjunum sem eru í rekstri, en horfur eru á að þessi tala verði komin upp í 540 MW árið 2008. Kostnaður við þær virkj- anir sem nú eru í byggingu eða í undirbúningi hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja er tæplega 50 milljarðar. Bjarnarflagsvirkjun var fyrsta jarðgufuvirkjunin sem reist var á Íslandi, en hún var tekin í notkun árið 1969. Hún er enn í rekstri og getur framleitt um 3 MW. Virkjunin var eins konar til- raunavirkjun, en reynslan af henni þótti gefa fullt tilefni til að stíga stærri skref á þessu sviði. Í framhaldinu var ráðist í byggingu Kröfluvirkjunar. En það gekk hins vegar á ýmsu við að koma henni í gagnið. Boranir gengu mis- jafnlega og eins setti það strik í reikninginn að miklar jarðhrær- ingar hófust á svæðinu þegar framkvæmdir voru langt komnar. Virkjunin hóf engu að síður fram- leiðslu árið 1975. Uppsett afl virkj- unarinnar í dag er um 60 MW. Að sögn Þorsteins Hilmarsson- ar, upplýsingafulltrúa Landsvirkj- unar, eru uppi áform um að stækka virkjunina upp í 100 MW og jafnvel enn frekar síðar. Stækkunin muni þó að öllum lík- indum haldast í hendur við aukna orkusölu á svæðinu þar sem ráð- ast þurfi í miklar fjárfestingar á raflínum ef það eigi að flytja orkuna um langan veg. Stækkun Kröflu er hins vegar hagstæður kostur og bendir Þorsteinn á að borholur á svæðinu gefi nú þegar meiri orku en vélar Kröfluvirkjun- ar geti nýtt. Reykjanesvirkjun tekin í notkun eftir eitt ár Hitaveita Suðurnesja hóf fyrst orkufyrirtækja hér á landi að sam- hæfa sölu á heitu vatni til húshit- unar og framleiðslu á rafmagni. Þetta var gert í virkjun í Svarts- engi, en virkjunin getur í dag framleitt 45 MW. Hitaveita Suðurnesja er núna að byggja 100 MW virkjun á Reykjanesi sem tekin verður í notkun í maí á næsta ári. Áætlaður kostnaður við virkjunina er 9–10 milljarðar. Öll orkan frá Reykja- nesvirkjun fer til Norðuráls á Grundartanga. Albert Albertsson, aðstoðarfor- stjóri HS, segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um stækkun Reykjanesvirkjunar. Gera þurfi frekari rannsóknir á svæðinu og meta reynsluna af virkjuninni áð- ur en farið verði að skoða það. Hann sagði að áhugi væri hins vegar á betri nýtingu á virkjuninni í Svartsengi. HS er einnig með rannsóknar- leyfi í Trölladyngju og er búin að bora þar eina tilraunaholu. Framleiðsla OR fer úr 90 MW í 330 MW Orkuveita Reykjavíkur stendur núna í miklum fjárfestingum í jarðgufuvirkjunum. Fyrirtækið framleiðir í dag 90 MW á Nesja- völlum og í september verður tek- in í notkun ný vél sem framleiðir 30 MW. Þá er fyrirtækið að byggja stóra virkjun á Hellisheiði. Fyrri áfangi virkjunarinnar, 90 MW, verður tekinn í notkun haustið 2006 og sá seinni, 30 MW, árið eftir. Þá er OR að láta vinna umhverfismat vegna stækkunar Hellisheiðarvirkjunar um 90 MW, en miðað er við að þessi hluti virkj- unarinnar verði tekinn í notkun 2008. Guðmundur Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sagði að kostnaður við fyrstu tvo hluta Hellisheiðarvirkjunnar væri áætlaður um 25 milljarðar. Stækkunin sem áformað er að tek- in verði í notkun 2008 myndi kosta 9–10 milljarða til viðbótar. Guðmundur sagði að það færi eftir mögulegri orkusölu hvað tæki við eftir árið 2008. Það væri mat sérfræðinga að það væri hægt að taka um 600 MW orku úr Heng- ilssvæðinu, en þegar búið væri að hrinda núverandi áformum um uppbyggingu fyrirtækisins á svæðinu í framkvæmd yrði fram- leiðslan 330 MW. Auk þeirra virkjana sem þegar hafa verið nefndar rekur Hita- veita Húsavíkur litla gufuafls- virkjun, en hún nýtir lághita. Virkjunin getur framleitt um 1,7 MW. Almennt er talað um að það sé heldur ódýrara að byggja gufu- aflsvirkjun en vatnsaflsvirkjun, en rekstur gufuaflsvirkjana sé hins vegar talsvert hærri. Með því að samnýta heitavatnið til húshitun- ar og raforkuframleiðslu fæst veruleg hagræðing. Oft hefur verið rætt um að gufu- aflsvirkjanir séu mun umhverfis- vænni en vatnsaflsvirkjanir. Hafa þarf þó í huga að með gufunni kemur talsvert mikið af koltvísýr- ingi, sem er sama efnið og kemur frá útblæstri bíla. Þá verður ekki horft framhjá því að talsvert jarð- rask fylgir gufuaflsvirkjunum. Fréttaskýring | Framleiðsla á raforku með jarðgufuvirkjunum er að aukast mikið Þreföldun á framleiðslu Kostnaður við byggingu virkjananna er áætlaður tæplega 50 milljarðar króna Fyrsti áfangi Hellisheiðarvirkjunar verður tekin í notkun haustið 2006. Í dag eru framleidd um 200 MW með jarðgufu  Í dag er hægt að framleiða um 200 MW af raforku með gufuafls- virkjun. Til samanburðar geta allar vatnsaflsvirkjanir landsins framleitt um 1.150 MW, en það þýðir að 78% orkunnar koma frá vatnsafli. Hlutur jarðgufunnar mun aukast á næsta ári þegar Hellisheiðar- og Reykjanesvirkj- arnir verða teknar í notkun. Það breytist svo aftur 2007 þegar Kárahnjúkavirkjun kemur með 690 MW inn á markaðinn. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.