Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 2
FYRSTA kappróðrarmót sumarsins hjá Kayakfélagi Reykjavíkur var í
gær. Mótið var haldið við Geldinganes og veður var með besta móti. Ríf-
lega þrjátíu manns tóku þátt, á aldrinum sextán til 74 ára. Keppt var í
tveimur vegalengdum, 10 km og 3,5 km. Elín Marta Eiríksdóttir sigraði í
kvennaflokki en hún fór tíu kílómetra á rúmri klukkustund. Torben Greg-
ersen varð hlutskarpastur karla á 57 mínútum. Á styttri vegalengdinni
sigruðu Ragnar Björnsson og Ingibjörg M. Guðmundsdóttir.
Þá var einnig sérflokkur fyrir plastbáta en þeir fara nokkru hægar en
trefjabátar. Mads Sircstedt sigraði í þeim flokki en hann fór tíu kílómetra á
klukkustund og fimm sekúndum.
Hörð keppni hjá kajakmönnum
Morgunblaðið/Golli
2 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BUSH RÆÐIR VIÐ PÚTÍN
George W. Bush Bandaríkja-
forseti ræddi við Vladímír Pútín
Rússlandsforseta í gær og lauk
lofsorði á rússnesku þjóðina fyrir
þátt hennar í sigrinum á þýskum
nasistum í síðari heimsstyrjöldinni
fyrir 60 árum. Þrátt fyrir ágrein-
ing ríkjanna að undanförnu um
lýðræðisþróunina í Rússlandi fór
vel á með forsetunum og Bush
þakkaði Rússum fyrir aðstoð í deil-
unni um kjarnorkuáætlun Írans og
við friðarumleitanir í Mið-
Austurlöndum.
Íslendingur slasaðist
Íslendingur slasaðist í sprengju-
árás í Bagdad um helgina. Íslend-
ingurinn var meðal öryggisvarða í
bílalest sem ráðist var á. 22 létust
í árásinni.
Ekki rítal ínheimsmeistarar
Stór hluti barna sem nota örv-
andi lyf hefur mikið gagn af lyfja-
meðferðinni. Þetta segir í yfirlýs-
ingu frá Barnageðlæknafélagi
Íslands þar sem því er mótmælt að
Íslendingar eigi heimsmet í notkun
rítalíns. M.a. er bent á að ekki sé
tekið tillit til þess að 30% notenda
lyfsins séu fullorðið fólk heldur sé
heildarnotkun uppfærð á börn og
unglinga.
Hvetja Blair t i l að fara frá
Nokkrir áhrifamenn í breska
Verkamannaflokknum hafa skorað
á Tony Blair forsætisráðherra að
segja af sér snemma á þriðja kjör-
tímabili sínu. Blair hafði lýst því
yfir að hann stefndi að því að sitja
út kjörtímabilið og nánir sam-
starfsmenn hans sögðu í gær að
hann myndi standa við þá yfirlýs-
ingu.
Taldir eiga sex kjarnavopn
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) telur að Norður-Kór-
eumenn eigi um það bil sex kjarn-
orkusprengjur. Mohamed ElBar-
adei, yfirmaður stofnunarinnar,
staðfesti þetta í gær.
Síldin orðin fastagestur?
Norsk-íslenski síldarstofninn
hefur látið á sér kræla undanfarin
ár eftir þrjátíu ára fjarveru en
veiði úr stofninum er hafin. Tvö
skip eru komin á miðin í Síld-
arsmugunni og það þriðja er á
leiðinni.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 26/28
Viðskipti 11 Dagbók 30
Erlent 18 Víkverji 30
Daglegt líf 15/17 Staður og stund 32
Listir 18/20 Menning 33/37
Forystugrein 20 Ljósvakamiðlar 38
Umræðan 22/25 Veður 39
Bréf 24 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LJÚKA mætti áætlun Hafrannsóknastofnunar
um rannsóknir á hrefnustofninum með því að
leyfa veiðar á 39 dýrum í sumar og 100 á næsta
ári, skv. hugmyndum sem stofnunin hefur lagt
fram í vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins. Það
er hins vegar sjávarútvegsráðuneytisins að taka
ákvarðanir um veiðarnar.
Að sögn Árna M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra hefur ekki verið tekin ákvörðun um
veiðarnar en hann segir það þó líklegra en hitt að
39 dýr verði veidd í sumar. Er m.a. verið að ræða
þessar hugmyndir um veiðarnar í sumar við
hrefnuveiðimenn. Rannsóknaáætlunin hófst 2003
og var upphaflega gert ráð fyrir árlegum veiðum
á 100 langreyðum, 100 hrefnum og 50 sand-
reyðum á tveimur árum. Veidd voru 36 dýr á
vertíðinni 2003 og 25 dýr í fyrra. Að sögn Gísla
Víkingssonar, verkefnisstjóra hjá Hafrannsókna-
stofnun, hafa vísindamenn Hafrannsóknastofn-
unar lagt fram hugmyndir um að ljúka mætti
rannsókninni með veiðum á 39 dýrum í ár og 100
á næsta ári.
„Við höfum hins vegar ekki lagt þetta formlega
til við ráðuneytið. Það má alveg eins búast við að
farið verði hægar í sakirnar og við teljum það
ekki skaða rannsóknina að neinu verulegu
marki,“ segir Gísli.
Áætlanir Hafrannsóknastofnunar um rannsóknir á hrefnustofninum
Veiða mætti 39 dýr í ár
Morgunblaðið/Jim Smart
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Maðurinn
sem lést eft-
ir að hafa
fengið aðsvif
undir stýri á
bíl sínum á
Breiðholts-
braut,
skammt frá
hesthúsa-
hverfinu í Víðidal, á föstudag
hét Jóhannes Guðvarðarson.
Hann var til heimilis í Vestur-
bergi 36 í Reykjavík. Jóhannes
fæddist 25. desember 1938 og
var því 66 ára að aldri þegar
hann lést. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og fjögur uppkomin
börn auk barnabarna og barna-
barnabarna.
HREIN raunávöxtun Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins, stærsta líf-
eyrissjóðs landsins, var 9,31% á
árinu 2004, sem er ívið lakari
raunávöxtun en árið á undan þeg-
ar ávöxtunin var 10,63%. Eignir
sjóðsins í árslok námu tæpum 180
milljörðum króna.
Meðalávöxtun sjóðsins á síðustu
fimm árum er 3,89% og síðustu tíu
ár 4,94%.
Ávöxtun á einstökum eigna-
flokkum sjóðsins var mjög mis-
munandi á síðasta ári. Þannig var
raunávöxtun innlendra hlutabréfa í
eigu sjóðsins 54,4%, en ávöxtun er-
lendra hlutabréfa var lítið eitt nei-
kvæð eða sem nam 0,23% þegar
tekið hefur verið tillit til geng-
isvarna. Samkvæmt upplýsingum
sjóðsins er ástæða lækkunarinnar
styrking krónunnar sem rýrir
eignir í erlendri mynt.
Fjórðungur eigna í
erlendum hlutabréfum
Raunávöxtun innlendra skulda-
bréfa var einnig betri en á erlend-
um skuldabréfum. Þannig var
raunávöxtun innlendra skulda-
bréfa 8,59% en 5% á erlendu
skuldabréfunum. Langstærstur
hluti af eignum sjóðsins var í inn-
lendum skuldabréfum í árslok
2004 eða tæp 60%. Tæp 16% voru í
innlendum hlutabréfum, innan við
1% í erlendum skuldabréfum og
rúm 24% í erlendum hlutabréfum.
Fram kemur að 11% af eignum
sjóðsins að meðaltali á árinu 2004
voru í innlendum hlutabréfum.
Meðalávöxtun allra lífeyrissjóð-
anna í landinu er talin hafa verið
10,5% í fyrra.
Raunávöxtun
LSR var 9,31%
á síðasta ári
JÓHANNA Björg Jóhannsdóttir, ný-
krýndur Íslandsmeistari stúlkna í
skák, sigraði á stelpumóti Olís og
Hellis sem haldið var á laugardag. Jó-
hanna er tólf ára gömul og gerði sér
lítið fyrir og sigraði bæði yngri og
eldri stelpur á mótinu og endaði með
fimm og hálfan vinning af sex.
Jóhanna var hin ánægðasta með
árangurinn en hún segir að skákirnar
hafi verið strembnar. Hún var þó ekki
þreyttari en svo að hún tefldi á úr-
slitamóti Tívolísyrpu Hróksins og Ís-
landsbanka í gær og lenti þar í öðru
sæti með sjö og hálfan vinning af átta.
Það var Ingvar Ásbjörnsson sem
sigraði á móti Hróksins og skaut þar
með Jóhönnu aftur fyrir sig.
Jóhanna segir að faðir hennar hafi
kennt henni að tefla þegar hún var
fjögurra ára og að henni hafi alltaf
þótt það skemmtilegt. Hún æfir
venjulega fjórum til fimm sinnum í
viku og stundum daglega ef eitthvert
mót er framundan. „Ég fer til Frakk-
lands í sumar að keppa á heimsmeist-
aramóti barna og unglinga en við er-
um sjö sem förum héðan.“
Jóhanna segist eiga sinn eftirlæt-
isskákmann, Mikail Tal, töframann-
inn frá Riga. „Hann var mikið fyrir
brellur og fléttur og ég er það líka.“
Jóhanna keppir á skólaskákmeist-
aramóti Salaskóla í dag en hún segir
að 123 krakkar taki þátt í mótinu. Jó-
hanna á titil að verja.
Jóhanna Björg
heldur sínu striki
Morgunblaðið/Ómar
Jóhanna Björg lærði að tefla þegar hún var fjögurra ára gömul og hefur
alltaf haft gaman af því. Í dag keppir hún á skákmóti í Salaskóla.
Lést eftir
bílslys í
Víðidal