Morgunblaðið - 09.05.2005, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÝMSAR nýjungar verða í boði í
hinni nýju tækni- og verkifræðideild
Háskólans í Reykjavík, að sögn dr.
Bjarka A. Brynjarssonar, forseta
deildarinnar.
Tækni- og verkfræðideild HR hef-
ur tekið þá afstöðu að vera ekki í
beinni samkeppni við verkfræðideild
Háskóla Íslands. Bjarki horfir fram
til þess að verkfræðideildir háskól-
anna tveggja veiti hvor annarri hóf-
legt aðhald, en eigi einnig samstarf
þar sem það á við. Hann segir að í
tækni- og verkfræðideild verði lögð
áhersla á þær verkfræðigreinar sem
þykja hvað mest spennandi í dag.
Nýjar námsgreinar
„Við erum í fyrsta sinn að bjóða upp
á verkfræði og þar erum við með
greinar sem eru nýjar hér á landi.
Fjármálaverkfræði, rekstrarverk-
fræði, heilbrigðisverkfræði og iðn-
aðarverkfræði. Þó að iðnaðarverk-
fræði hafi áður verið kennd hér á
landi leggjum við áherslu á há-
tæknihönnun í okkar iðnaðarverk-
fræði sem er nýjung. Heilbrigð-
isverkfræðin er ein helsta
vaxtargrein verkfræðinnar í dag,“
segir Bjarki. „Nemendur fá þar
verkfræðilegan grunn og að auki
innsýn í lífeðlisfræði, líffærafræði,
lífefnafræði og efnafræði. Þeir læra
því að tala bæði tungumál tækni-
manna og heilbrigðisstarfsfólks.
Þetta fólk verður í lykilstöðu við þró-
un tækni fyrir heilbrigðisgeirann,
t.d. við þróun gervilíffæra, gerviliða
og gervilima, beitingu tækni til
lækninga og allt yfir í rekstur heil-
brigðiskerfa. Þá verður hægt að
taka svona grunnnám og bæta
rekstrarfögum við það. Fyrst og
fremst erum við að horfa á að til
verði mjög öflugt tæknifólk, sem
bæði hefur yfirsýn yfir tæknibúnað
og getur beinlínis tekið þátt í lækn-
ingum sem samstarfsfólk lækna.
Tæknibúnaður á sjúkrahúsum er sí-
fellt að verða flóknari. Þetta nær t.d.
yfir lífupplýsingatækni, lækn-
HR verður að velja inn fá
endur, eða um 100, í verk
ar í haust.
„Við ætlum að velja va
30 nemendur í hverja nám
fylgja þeim þétt eftir. Ge
fremur en að taka inn stó
með tilheyrandi brottfall
ur því ekki kennt í stórum
t.d. stærðfræði, sem er h
grunnnámi í stórum hásk
viljum hafa hærra þjónus
vinna vel að þessu. Það s
munir þegar nemendur f
námi, fyrir utan annan sk
teljum að námið verði ein
það myndast bæði samsp
milli nemenda og milli þe
kennara í svo litlum hópu
vinna náið í tuttugu til þr
manna hópi í 3–5 ár að ve
skapar öflugar heildir.“
Í hinni nýju tækni- og
fræðideild verða kennslu
námsfyrirkomulag með ö
tíðkast hefur á fyrstu áru
náms hér á landi.
„Í stað þess að kenna f
skeið í fimmtán vikur ver
námskeið kennd í tólf vik
ur með prófum. Síðan ge
tekið fimmta fagið á þrem
þar sem kennslan verður
þjöppuð. Þar geta þeir ei
að einni grein í einu. Þett
okkur að fá erlenda gesta
og fara í námsferðir inna
utan í tengslum við námi
Bjarki segir að vel haf
manna kennarastöður. „V
með alla tölvunarfræðina
fræðina, iðnfræðina og fr
arnar fyrir. Á næsta mis
við að kenna nýju verkfr
arnar og þörfin fyrir nýja
vex samhliða uppbygging
Það berast töluvert marg
ir um störf og virðist ver
áhugi á skólanum og þes
greinum.“ Bjarki segir a
isfræðilega myndgerð og margt ann-
að.“
Bjarki segir að tölur frá Banda-
ríkjunum sýni að konur sæki mikið í
að læra heilbrigðisverkfræði. Um-
sóknir sem þegar hafa borist til HR
um þetta nám benda til þess að ís-
lenskar konur hafi einnig mikinn
áhuga á þessari grein.
„Fjármálaverkfræðin er mjög vin-
sæl og vaxandi í fjármálaheiminum.
Við sjáum að verkfræðingar eru í
lykilstöðum í bönkum þar sem kem-
ur að greiningu, útreikningum og
mati á áhættu og þvíumlíku.“
Iðnaðarverkfræðin í HR verður
fremur á sviði hátæknihönnunar en
verksmiðjuverkfræði, að sögn
Bjarka. „Hátæknihönnun þar sem
verið er að hanna flókin kerfi sam-
sett úr tölvubúnaði, vélbúnaði, hug-
búnaði, rafmagnstækni og stýri-
tækni fer mjög vaxandi. Við teljum
okkur ekki vera að fara í sama far og
Háskóli Íslands á þessu sviði. Ef til
vill þarf að fínpússa nafngiftina eitt-
hvað til að þetta sé ljóst.“
Auk þessara greina verður boðið
upp á meistaranám (MSc) í tölv-
unarfræði, verkfræði og tæknifræði.
Meistaranám fyrir tæknifræðinga er
nýlunda hér á landi.
„Okkar sýn er að fólk geti haldið
áfram í tæknifræðinni og eigi kost á
að bæta við sig meistaragráðu. Hún
getur annaðhvort falist í sérþekk-
ingu innan faggreina og aukinni sér-
hæfingu, eða verkefnastjórnun og
framkvæmdafræði. Eins geta þessir
nemendur valið tilteknar fræðilegar
greinar í meistaranámi og orðið
verkfræðingar þegar þeir ljúka nám-
inu. Sérstaða greinanna verður samt
áfram skýr. Verkfræðin er fremur
fræðileg en tæknifræðin fagleg.
Þeirri aðgreiningu er hægt að halda
alveg upp í meistaragráðu, en einnig
að skipta úr tæknifræði í verkfræði,“
segir Bjarki.
Stefnan í verkfræðikennslu við
Engin hætta á offra
verk- og tæknimenn
Morgunblaðið/
Bjarki A. Brynjarsson, forseti tækni- og verkfræðideildar HR.
Tækni- og verkfræði-
deild hefur göngu sína
við Háskólann í Reykja-
vík á komandi hausti.
Deildin er að stofni til
byggð á tæknideild,
heilbrigðisdeild og
frumgreinadeild
Tækniháskólans og tölv-
unarfræðideild HR.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
FORTÍÐIN SÆKIR RÚSSA HEIM
Í dag fara fram mikil hátíðahöldí Moskvu til þess að minnastþess að 60 ár eru liðin frá lok-
um heimsstyrjaldarinnar síðari.
Þessara tímamóta er hvergi minnzt
með jafn veglegum hætti og í Rúss-
landi. Og Rússar hafa fulla ástæðu
til að minnast þessara atburða.
Herir Þjóðverja voru brotnir á
bak aftur í Rússlandi. Að vísu voru
þeir sigraðir annars staðar líka og
af herjum annarra þjóða, bæði
Breta og Bandaríkjamanna og her-
sveitum Frjálsra Frakka. En stríð-
ið á hinum rússnesku sléttum var
blóðugra en annars staðar og Rúss-
ar færðu meiri fórnir. Þess vegna
er eðlilegt að þeir minnist þessa
dags með stolti og minnist þeirra,
sem féllu og heiðri þá, sem lifðu af.
En á þessum tímamótum standa
Rússar frammi fyrir því, að þeirra
eigin fortíð sækir þá heim. Þjóð-
verjar voru sigraðir en hvað tók
við? Rauði herinn lagði undir sig
hvert landið á fætur öðru í austur-
hluta Evrópu og þar á meðal hluta
Þýzkalands. Hernám Sovétríkjanna
í þessum löndum stóð fram til árs-
ins 1989, þegar Berlínarmúrinn féll
og veldi kommúnismans hrundi.
Nú standa Rússar, sem mynduðu
kjarna Sovétríkjanna, frammi fyrir
kröfu um að þeir biðjist afsökunar
á framferði Sovétríkjanna að stríð-
inu loknu. Leiðtogar Eistlands og
Litháens fara ekki til Moskvu í
mótmælaskyni við þá ákvörðun
Pútíns að biðjast ekki afsökunar á
því ofbeldi, sem beitt var til að inn-
lima Eystrasaltsríkin í Sovétríkin.
Rússar neita að biðjast afsök-
unar og hafa í hótunum við þá, sem
setja slíkar kröfur fram. Þeir
segja, að krafan sé móðgun við þær
27 milljónir borgara Sovétríkjanna,
sem létu lífið í styrjöldinni. Þetta
er rangt. Neitun ráðamanna í
Moskvu er móðgun við þetta fólk,
þessa almennu borgara, sem
hröktu Þjóðverja á braut. Það var
ekki fólk, sem vildi kúga aðra. Það
var fólk, sem vildi fá að lifa í friði.
Ekki eru margir dagar síðan Pútín
sjálfur lýsti Stalín sem harðstjóra
og sagði að sumir litu jafnvel á
hann sem glæpamann.
Staðreyndin er sú, að glæpir
Stalíns voru ekki minni en glæpir
Hitlers. Raunar lét Stalín drepa
margfalt fleira fólk en Hitler tókst
að láta drepa. Glæpir Stalíns eru
ekki minni en glæpir Hitlers gagn-
vart gyðingum. Talið er að um 6
milljónir gyðinga hafi verið drepn-
ar í fangabúðum og stór hluti
þeirra í gasklefum. Í Úkraínu einni
lét Stalín svelta 10 milljónir manna
í hel.
Þessi fortíð kommúnismans í
Sovétríkjunum hefur aldrei verið
gerð upp. Forystumenn Þjóðverja
eftir stríð hafa hvað eftir annað be-
ðizt afsökunar á glæpaverkum naz-
ista. Sú afstaða er lykillinn að því
að Þjóðverjar voru teknir í sátt svo
fljótt, sem raun varð á eftir stríð.
Hvað eftir annað hefur verið spurt
hversu stór þáttur þýzku þjóðar-
innar sem slíkrar hafi verið í glæp-
um Hitlers og hans manna og sagt
hefur verið að nánast óhugsandi
hafi verið að þýzkur almenningur
hafi ekki vitað hvað var að gerast.
Það er mikið til í því. Hvernig gat
það farið fram hjá nágrönnum hvað
var að gerast í Sachsenhausen?
Engar umræður hafa farið fram
um það að nokkru ráði hvernig
Stalín hafi getað drepið, ekki bara
10 milljónir Úkraínumanna heldur
sennilega um 35 milljónir manna í
Sovétríkjunum öllum í valdatíð
sinni. Vissi enginn hvað var að ger-
ast? En þetta eru innri málefni
þeirra ríkja, sem mynduðu Sovét-
ríkin á sínum tíma og þær þjóðir
verða að gera þessi mál upp á þeim
vettvangi.
Sovétríkin kúguðu fólkið, sem
býr í Eystrasaltsríkjunum. For-
ráðamenn Sovétríkjanna létu flytja
fólk í stórum stíl frá þessum þrem-
ur löndum til Síberíu. Þeir kúguðu
Pólverja og börðu niður byltingar-
tilraun í Posnan 1956. Þeir sendu
skriðdreka út á götur Austur-Berl-
ínar 1953. Þeir sendu skriðdreka út
á götur Búdapest 1956. Þeir sendu
skriðdreka út á götur Prag 1968.
Jan Palach er ekki gleymdur. For-
ystumenn Sovétríkjanna notuðu
hernaðarmátt sinn til þess að kúga
þær sömu þjóðir og þeir sögðust
hafa frelsað undan oki nazismans.
Það reyndist skammvinn frelsun.
Það er kominn tími til að þessar
gerðir forystusveitar Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna verði gerðar
upp. Það er kominn tími til að nú-
verandi forystumenn Rússlands
axli þá ábyrgð, sem forystumenn
Þjóðverja hafa gert, viðurkenni
kúgun og ofbeldi forvera sinna í
Moskvu gagnvart nálægum þjóðum
og biðjist afsökunar á því fram-
ferði.
Rússar geta ekki látið sem morð-
in í Katyn-skógi í Póllandi hafi
aldrei verið framin. Þeir geta ekki
yppt öxlum og sagt að það komi
þeim ekki við að útsendarar Stalíns
drápu 4500 pólska hermenn, komu
þeim fyrir í fjöldagröfum og
reyndu að láta líta svo út sem Þjóð-
verjar hefðu framið óhæfuverkin
og þeir geta ekki látið sem þeim
komi ekki við að 10 þúsund ein-
staklingar hurfu sporlaust á þess-
um slóðum. Hafa einhver réttar-
höld farið fram í Moskvu yfir þeim,
sem báru ábyrgð á þessum voða-
verkum eftir fall Sovétríkjanna?
Nei.
Pútín veit það, sem aðrir vita, að
það voru ekki Stalín og félagar
hans, sem sigruðu heri Hitlers. Það
var rússneska þjóðin sjálf og sam-
verkamenn hennar. Hann veit líka
að það var ekki rússneska þjóðin
heldur Stalín og félagar hans, sem
stóðu fyrir kúgun nágrannaþjóð-
anna.
Forsendan fyrir því, að Rússar
geti náð eðlilegu sambandi við aðr-
ar þjóðir er, að forystumenn þeirra
nú viðurkenni og biðjist afsökunar
á glæpaverkum þeirra manna, sem
stjórnuðu Sovétríkjunum í tíð
kommúnista. Forsendan fyrir því
að eyða þeirri tortryggni sem enn
er til staðar hjá nágrannaþjóðunum
er afsökunarbeiðnin. Þegar sú af-
sökunarbeiðni liggur fyrir verða
fullar sættir á milli Rússa og ná-
grannaþjóða þeirra. Fyrr ekki.
SAMTÖK iðnaðarins (SI) telja
einsýnt að íslenskur hátækniiðn-
aður eflist mjög á næstu árum.
Samtökin hafa látið vinna tvær
skýrslur um hátækniiðnað sem
lagðar voru fram á iðnþingi í
mars síðastliðnum. SI benda á
velgengni íslenskra hátæknifyr-
irtækja sem vaxið hafa upp úr
því að vera lítil sprotafyrirtæki
upp í stórfyrirtæki á borð við
Actavis, Össur, Marel og Ís-
lenska erfðagreiningu.
Hlutdeild hátæknigreina í
verðmætasköpun þjóðarinnar óx
úr 1% árið 1998 í 4% á liðnu ári.
Því er spáð að hún verði orðin
um 8% af landsframleiðslu árið
2010. Það er svipað hlutfall og hlutdeild veiða
og vinnslu sjávarafla, eða allrar mann-
virkjagerðar. Gert er ráð fyrir að gjaldeyr-
istekjur hátækniiðnaðar vaxi úr 25 milljörðum
á ári nú í 75 milljarða árið 2010 og að vægi há-
tækniiðnaðar í gjaldeyristekjum, sem nú er
7%, vaxi í 14% árið 2010. Til samanburðar mun
verk
aður
N
mati
þjón
hana
að st
þeirr
ný tæ
Reyk
fólk
„G
ildar
þeirr
Svei
2004
þurf
með
árin.
okku
Fag
Sv
bakh
síðar
stóriðjan, með öllum fyrirsjáan-
legum viðbótum, skila um 23% af
gjaldeyristekjum 2010 og sjávar-
útvegurinn um 25%.
Af einstökum greinum há-
tækniiðnaðar er talið að mestur
vöxtur verði í útflutningi hugbún-
aðar, ef þessar spár ganga eftir.
Útflutningur hans er talinn muni
nema um 40 milljörðum króna og
útflutningur lyfja, líftækni, lækn-
ingatækja og hátæknibúnaðar
fyrir matvælaiðnað nemi sam-
anlagt svipaðri upphæð.
Efla þarf raungreina-
menntun
Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að
framtíðarsýnin um vöxt hátæknigreina og efl-
ingu menntunar á sviði tækni-, verk- og raun-
greina sé ekki einungis hugsjón SI, heldur
beint hagsmunamál þjóðarinnar. Ýmsar stoðir
þarf að styrkja til að ná þessum árangri, að
mati SI. Aukin menntun á sviði tækni-, iðn- og
Aukin menntun er forsen
Sveinn Hannesson