Morgunblaðið - 09.05.2005, Page 28

Morgunblaðið - 09.05.2005, Page 28
28 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Raðauglýsingar 569 1111 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Heilsuhringsins 2005 verður haldinn þriðjudaginn 10. maí kl. 20 í Norræna húsinu. Að loknum aðalfundarstörfum kl. 20.30 flytur Jóhann Ágúst Sigurðsson læknir erindi. Haldbær heilbrigðisþjónusta Aðgangur er ókeypis. — Allir velkomnir. Stjórnin. Fyrirtæki Meðleigjandi/ Skrifstofuhúsnæði Óska eftir meðleigjanda að mjög fallegu skrif- stofuhúsnæði við Skútuvog. 2 herb. 13 og 10 fm. Sameiginlegt fundarherbergi, salerni og eldhús. Áhugasamir sendi upplýsingar á net- fangið steinpet@simnet.is . Félagslíf I.O.O.F. 19  186598 I.O.O.F. 10  186597  Lf. Góður maður er genginn, Halldór Guð- jónsson, eða Dóri, eins og hann var ávallt kall- aður. Dóri var einn af þessum skemmtilegu mönnum sem hafa skoðanir á öllum málefnum og láta þær óspart í ljós. Dóri var hrókur alls fagnaðar og einstaklega hjálp- fús ef til hans var leitað. Heimsókn- irnar í Kópavoginn verða aldrei eins eftir að hann er fallinn frá, en við munum áfram koma í heimsókn og heilsa upp á Sirrý, Sigga og Bjössa. Elsku Dóri, nú er komið að kveðjustund. Við þökkum þér fyrir hvað þú varst alltaf elskulegur við okkur hjónin og strákana okkar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við biðjum Guð að styrkja ástvini þína. Hvíl í friði. Ragnar, Hólmfríður og strákarnir. Það er alltaf erfitt að kveðja. Þegar að kveðjustund kemur verð- ur oft lítið sagt og þegar henni er lokið koma orðin en þá er það of seint. Ég minnist Halldórs sem góðs manns, sem vildi allt fyrir alla gera. Hann var maður fram- HALLDÓR GUÐJÓNSSON ✝ Halldór Guðjóns-son fæddist í Hafnarfirði 22. mars 1929. Hann lést á heimili sínu 26. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Digraneskirkju 4. maí. kvæmda og gerði strax það sem þurfti að gera. Einnig man ég að hon- um þótti gaman að spjalla um málefni líð- andi stundar og ekki var verra að viðmæl- andinn væri honum ósammála. Ég man að þegar ég var lítil stúlka fannst mér hann og pabbi minn alltaf vera að rífast, en hann horfði alltaf á mig, brosti og sagði: „Þetta er allt í góðu, það er svo gaman að tala við hann pabba þinn, við erum svo oft ósammála.“ Mig langar að þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þessum góða manni. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Ég vil senda Sirrý móðursystur minni, Sigga, Bjössa, Guðjóni og Möggu, Loga, Sindra og Petru mína innilegustu samúðarkveðju. Sigríður Guðrún Stefánsdóttir. Við minnumst vinar okkar, Hall- dórs Guðjónssonar. Dóri var af- skaplega góður og greiðvikinn mað- ur. Fengum við að njóta þess ríkulega í gegnum þau 55 ár sem við nutum samvistar við hann. Það var alltaf jafn gott að koma í Bræðratunguna og njóta hlýju og gestrisni þeirra hjóna. Hann kvaddi okkur ávallt með þeim orðum að við værum alltaf velkomin og kæmum fljótlega aftur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna, Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Við vottum Sirrý systur minni, Sigga, Bjössa, Guðjóni, Möggu, Loga, Sindra og Petru dýpstu sam- úð okkar. Herdís og Stefán. MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá stjórn Barnageð- læknafélags Íslands. Tilefnið er fjöl- miðlaumræðu og svar heilbrigðis- ráðherra við fyrirspurn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, þing- manns, um notkun geðlyfja barna með ofvirkniröskun. „Á undanförnum árum hefur þekkingu og meðferð geð- og þroskaraskana barna fleygt mikið fram. Fjölmargar og ýtarlegar læknisfræðilegar rannsóknir hafa verið framkvæmdar og þannig orðið æ ljósara að hægt er að hjálpa þess- um hóp barna eftir ýmsum leiðum. Ein þeirra er meðferð með örvandi lyfjum, t.d. methylphenidat, og hef- ur jafnframt verið sýnt fram á það í viðamiklum, aðferðafræðilega vel gerðum langtímarannsóknum að lyfjameðferð er áhrifaríkust allra meðferðarforma í því að slá á trufl- andi áhrif ofvirkniseinkenna. Í raun er því svo farið að fá lyf sem notuð eru til meðferðar ýmsum kvillum og sjúkdómum æskuáranna hafa að baki jafn digran sjóð reynslu og rannsókna og örvandi lyf við trufl- andi áhrifum ofvirkni. Ein afleiðinga ofvirknisröskunar er að henni fylgir aukin hætta á þróun ávana- og fíkni- vandamála. Því er rétt að taka fram að methylphenedat (Ritalin®) er ekki ávanabindandi í læknisfræði- legum skömmtum og einstaklingar sem hafa fengið árangursríka lyfja- meðferð eru ekki líklegri en aðrir til að lenda í slíkum vandamálum. Örvandi lyf voru fyrst notuð árið 1937 gegn einkennum sem hafa síð- ar verið skilgreind sem truflun á virkni og athygli. Lyf voru þó ekki notuð að neinu marki fyrr en eftir 1950 og upp úr 1960 jókst notkun þess mikið, einkum í Bandaríkjun- um og hefur farið vaxandi þar eins og annars staðar. Á Norðurlöndum var þó ekki farið að nota lyf að neinu marki fyrr en nokkru síðar. Niðurstöður rannsókna víða um heim eru samhljóma og benda til þess að 3-5% barna á grunnskóla- aldri eigi við ofvirkniröskun að stríða. Greining byggist á nákvæmri þroska- og sjúkrasögu eins og hún er gefin af foreldrum en það er einn- ig leitað upplýsinga annarsstaðar frá og með örum hætti. Upplýsinga er aflað frá kennara barnsins í leik- skóla eða grunnskóla. Vitnisburðar- blöð eru könnuð, svo og athuganir annarra sem e.t.v. áður hafa komið að málefnum barnsins. Spurst er fyrir um líkamlega heilsu og frekari upplýsinga um hana aflað frá viðeig- andi aðilum ef ástæða er til. Sál- fræðilegt mat er iðulega framkvæmt til að skoða vitsmunalegar forsendur til náms og til að leita skýringa á hegðun og/eða til leiðbeininga við að sníða kennsluaðferðir að erfiðleikum barnsins. Stuðst við staðlaða ein- kennamatskvarða til að skoða fjölda og gráðu einkenna í samanburði við önnur börn og svo til að bera saman ástand fyrir og eftir upphaf með- ferðar og framvindu meðferðar. Það er rétt að halda því til haga að of- virkni er ekki einföld óþekkt og óhlýðni heldur röskun sem oft fylgir einstaklingnum út ævina og jafnvel til næstu kynslóðar bæði með líf- fræðilegri og félagslegri erfð. Of- virkni fer yfirleitt ekki ein sér því að í 70% tilvika fylgir einhver önnur röskun sem gerir ástandið illvígara og meðferðina flóknari og horfur verri. Gagnrýnisraddir tala um sjúk- dómsvæðingu, ofgreiningu, oflyfjun barna eða þá að verið sé að með- höndla hegðun eða óþekkt með lyfja- gjöf. Það er áleitin spurning af hverju börn með þroskaraskanir þurfi vera skotmark ólíkra aðila með rakalausum málflutningi? Börn eru auðveld bráð þar sem þau geta ekki sjálf borið hönd fyrir höfuð og for- eldrar þeirra svara ógjarnan fyrir sig. Það skyldi þó ekki vera svo að skyldmennin fáfræði og fordómar og aðrir úr þeirri ætt séu á ferli? Oft er einnig spurt hvar þessi börn voru áður úr því greining og meðferð hef- ur aukist að svo miklu marki. Hvar voru þessi börn fyrir 20-30 árum? Í mörgum skólum voru sérstakir bekkir í hverjum árgangi fyrir börn sem voru líklegri en önnur til að ganga verr í námi. Þessir bekkir voru stundum kallaðir tossabekkir. Í dag vitum við að ein alvarlegasta af- leiðing ofvirkni er að nám barns mis- ferst og að mörg börn, þrátt fyrir eðlilega greind, voru talin treggáfuð vegna hegðunar sinnar og fengu þess vegna takmarkaðan möguleika á námi. Að sjálfsögðu hafði þetta djúp áhrif á sjálfsímynd og fé- lagsþroska margra. Í dag, þegar þekkingu á eðli þessara þroskaþátta hefur fleygt fram og meðferðar- möguleikar aukist, láta foreldrar ekki bjóða börnum sínum slíkt, þeir leita úrræða til að auka líkur á eðli- legum þroska barna sinna og ár- angri í námi. Við erum misjafnlega gerð en flestir gera eins vel og þeir geta en það nægir oft ekki eða þá að ástand- ið sem veldur erfiðleikum er svo ill- viðráðanlegt að jafnvel bestu kring- umstæður duga ekki til. Það er erfið staða að geta ekki leitað úrræða fyrir barn sitt, sé það ofvirkt, án þess að vera litinn horn- auga. Ofan á vandamál sín, sem oft eru víðtæk og valda mikilli hömlum í daglegu lífi, mega börnin og foreldr- ar þeirra þola mikla og ósanngjarna gagnrýni. Ef ekki með beinum hætti þá óbeinum. Umræða af því tagi sem fram hefur farið er fáum til fram- dráttar en mörgum til skaða. Reynsla undanfarinna áratuga hefur sýnt það. Í þeirri fjölmiðlaumræðu sem hef- ur farið fram nú að undanförnu hef- ur verið fullyrt að notkun Ritalins, þ.e methylphenidats, sé hvergi meiri en á Íslandi og er notkunin gjarnan eingöngu heimfærð upp á börn og unglinga en þess ekki getið að a.m.k. 30% heildarnotkunarinnar er meðal fullorðinna. Má í því sambandi geta þess að af kvenkyns notendum lyfs- ins er u.þ.b. helmingur notkunarinn- ar meðal fullorðinna kvenna. Einnig hefur þess ekki verið getið að víða erlendis eru önnur lyf úr flokki örv- andi lyfja á markaði en þau lyf hafa ekki reiknast með þegar verið er að bera saman notkun á Íslandi við önnur lönd. Hinn umdeildi og vafa- sami heiður að vera handhafi heims- meistaratitils í notkun örvandi lyfja er því ekki okkar enn sem komið er. Hins vegar má líta alla hluti og mál- efni frá fleiri en einu sjónarhorni og það má því spyrja hvort það sé í raun eitthvað slæmt að vera heims- meistari í notkun lyfs sem hefur ver- ið margreynt og notað í áratugi með góðum árangri. Íslendingar eiga fjölda heimsmeta eða eru í fyrstu sætunum. Þar má nefna ævilengd, burðarmálsdauða og nýburadauða eða hlutfall bólusettra við ýmsum barnasjúkdómum. Við stöndum okk- ur vel í læsi í alþjóðlegum saman- burði, bílaeign landsmanna og íbúð- areign er með því mesta sem þekkist og sama er að segja um tekjur og efnahag og svona mætti lengi telja. Þetta er árangur þeirrar þjóðar sem var fátækust í Evrópu fyrir einni öld. Væri það ekki í samræmi við allt þetta ef við gætum náð tökum á þroska- og hegðunartruflun sem er íþyngjandi og hefur slæmar horfur? Stór hluti barna sem nýtur lyfja- meðferðar hefur mikið gagn af henni og öðlast í raun nýtt líf m.t.t. líðanar, félags- og námsstöðu. Hvers vegna á þessi hópur að þola samfellda gagn- rýni byggða á fordómum og fáfræði sem jafnvel er sett fram af einstak- lingum sem ættu að kallast vel upp- lýstir eða ættu að minnsta kosti hafa alla burði og möguleika til að vera það? Barnageðlæknar eiga hlut að minna en helmingi heildarávísana á örvandi lyf, því hefur Barnageð- læknafélag Íslands á undanförnum árum haft frumkvæði að samvinnu við Landlæknisembættið um tillögur að vinnureglum varðandi greiningu ofvirkni og notkunar örvandi lyfja. Vinnureglur hafa verið samdar og teknar í notkun en hugur okkar hef- ur alla tíð staðið til umfangsmeiri að- gerða á þessu sviði og öðrum en það hefur skort verulega á vilja til sam- starfs eða aðgerða frá opinberum aðilum. Hins vegar er enginn hörg- ull á skýrslum, bréfum, ráðstefnum, nefndarálitum og öðru þess háttar. Það er eðlilegt að skoða gerðir sínar og því er vinnulag barnageð- lækna í sífelldri endurskoðun og mótun. Félagið vonast eftir áfram- haldandi og auknu samstarfi við Landlæknisembættið og aðra opin- bera aðila um þessi málefni og er nú sem fyrr reiðubúið til samstarfs. Stjórn félags barnageðlækna fagnar því ef það næst að færa umræðuna um meðferð þroskaraskana og trufl- andi hegðunar úr farvegi upphróp- ana og fordóma. Við fögnum tillögu heilbrigðisráðherra sem í svari við fyrirspurn Ástu Ragnheiðar leggur til að skoðað verði á breiðari grund- velli hvernig best verði brugðist við aukningu athyglisbrests og ofvirkni barna. Við vonumst til þess að þann- ig athugun leiði til þess að þau börn sem þess þurfa fái viðeigandi aðstoð innan skólakerfisins og félagsþjón- ustunnar því þar er í dag víða pottur brotinn og mörg verkefni sem bíða aðgerða. Hvort Miðstöð heilsu- verndar barna í samráði við sál- fræðiþjónustu skóla og félagsþjón- ustu sveitarfélaga sé rétti aðilinn til að skoða það mál, eins og ráðherra hefur nefnt, er hins vegar allt annar handleggur. Stjórn barnageðlækna- félagsins hefur skoðun á því hvernig gagnlegt væri að standa að slíkri at- hugun. Barnageðlæknafélagið og einstak- ir félagar þess hafa á undanförnum árum beitt sér með einum eða öðrum hætti fyrir því að þjónusta opinberra aðila við börn með geðraskanir verði bætt, en árangurinn er rýr. Það er mál að fagurgala og lýðskrumi linni. Upplýsingar um hvar skórinn kreppir og hvaða úrræði séu vænleg til árangurs hafa legið hjá ráðuneyt- inu í áraraðir og þeim verið fylgt eft- ir með fundum, bréfum og öðrum til- tækum ítrekunum en fyrir daufum eyrum. Vinnulag heilbrigðisráðu- neytisins hefur verið hægt og ómarkvisst. Tillögur verkefnisstjóra ráðuneytisins um aðgerðir til bættr- ar þjónustu við börn með geðrask- anir hafa nánast allar komið fram áður. Svo kvað Egill Skallagrímsson um kukl: „Skalat maðr rúnar rista nema ráða vel kunni. Það verðr mörgum manni er um myrkvan staf villist.“ Það hefur vakið áhyggjur hvernig og hvert ráðuneytið hefur leitað fag- legrar ráðgjafar um málefni barna með geðraskanir og svo virðist nú sem að bæði þing og ráðuneyti fari stafavillt. Það hefur alltaf verið ósk okkar að friður skapist um þennan málaflokk þannig að við og aðrir getum veitt þessum börnum og öðrum aðstoð með þeim aðferðum sem við þekkj- um best hverju sinni. Börnin eiga rétt á griðum fyrir fordómum þjóð- félagsins.“ Yfirlýsing frá stjórn Barnageðlæknafélags Íslands Gagnrýni á lyfjanotkun byggð á fordómum og fáfræði FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.