Morgunblaðið - 09.05.2005, Side 32
32 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fugls, 8 grenji,
9 göfugmennska, 10 spils,
11 flýtirinn, 13 fífl,
15 vinna, 18 missa fót-
anna, 21 rimlakassi,
22 lipurð, 23 öskrar,
24 hirðusamt.
Lóðrétt | 2 þor, 3 eldstæði,
4 skynfærin, 5 hreysi,
6 kvenfugl, 7 gljúfri,
12 ferskur, 14 leðja,
15 fiskur, 16 hrella,
17 ærslahlátur, 18 hestur,
19 götum, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 snart, 4 fussa, 7 komma, 8 ártíð, 9 nár, 11 lært,
13 árar, 14 ýmist, 15 fjör, 17 tonn, 20 kná, 22 tegla,
23 tengi, 24 kímin, 25 lerki.
Lóðrétt | 1 sýkil, 2 aumur, 3 tían, 4 flár, 5 sútar, 6 arður,
10 ásinn, 12 Týr, 13 átt, 15 fátæk, 16 örgum, 18 opnar,
19 neiti, 20 kann, 21 átel.
Ekkert er ómögulegt.
Norður
♠D1052
♥Á43 N/Enginn
♦G76
♣ÁD2
Vestur Austur
♠K83 ♠G6
♥10865 ♥KDG92
♦Á ♦KD84
♣G6543 ♣97
Suður
♠Á974
♥7
♦109532
♣K108
Pedro Paul Assumpcao (f. 1935) er
einn af þekktari landsliðsspilurum
Brasilíumanna, auk þess sem hann
hefur oft verið í hlutverki fyrirliða á
alþjóðamótum. Spilið að ofan er frá
Ólympíumótinu í tvímenningi 1978,
en þá var Assumpcao við borðið með
stjörnuspilara landsins sem makker
– Gabriel Chagas. Assumpcao varð
sagnhafi í fjórum spöðum eftir þess-
ar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf 1 hjarta 1 spaði
3 hjörtu 3 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur hóf vörnina með litlu
hjarta og við sagnhafa blöstu minnst
fjórir tapslagir – þrír á tígul og einn
á tromp. Assumpcao sýndi engin
merki þess að honum liði illa. Hann
tók með hjartaás og spilaði strax tíg-
ulgosa úr borði!
Austur uggði ekki að sér og lagði
drottninguna á, sem vestur varð að
taka með stökum ás. Tígulslögum
varnarinnar hafði nú fækkað um
einn. Eftirleikurinn var auðveldur –
hjarta kom til baka, sem Assumpcao
trompaði, fór inn í borð á lauf og
stakk þriðja hjartað. Spilaði svo
spaðaás og spaða. Vestur dúkkaði,
en Assumpcao fór upp með drottn-
inguna og gaf þannig aðeins einn
slag á tromp og tvo á tígul.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn hefur dýpri skilning á heim-
speki, trúmálum og stjórnmálum um
þessar mundir. Þú hefur séð ljósið allt í
einu og áttar þig á samhengi allra hluta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Notaðu daginn endilega til þess að
sinna rannsóknum, hugur þinn er djúp-
ur og rannsakandi þessa dagana. Veltu
hagnýtingu hlunninda sérstaklega fyrir
þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemst að niðurstöðu í samræðum við
vin. Kannski er ekki úr vegi að leggja
spilin á borðið á næstunni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú er ráð að hugsa um framtíðina.
Hvar viltu vera eftir tíu ár eða eftir
fimm ár? Hvað getur þú gert til þess að
byrja leiðina að settu marki?
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið hefur uppgötvað mikilvæg sann-
indi. Það gæti verið eitthvað af trúar-
legum toga eða eitthvað sem tengist
heimspeki. Þú vilt deila uppljómun þinni
með náunganum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan fær góða hugmynd um leiðir til
þess að deila einhverju með einhverjum.
Hún tekur hlutunum ekki af léttúð
þessa dagana og hugsar vel og vandlega
um eitt og annað.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Taktu þátt í djúpum samræðum við
maka og vini á næstunni. Vogin er til í
að tala um hluti núna sem hún að jafn-
aði vill alls ekki ræða.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn kemur miklu í verk í
vinnunni núna. Ekkert er of mikil fyr-
irhöfn. Hann er til í að leggja sig sér-
staklega fram við að hafa allt sitt á
hreinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Geta bogmannsins til þess að útskýra
fyrir eða kenna ungu fólki þessa dagana
er meiri en ella. Hann skilur hvað knýr
aðra og kann að höfða til þeirra sam-
kvæmt því.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gerðu við það sem þarfnast lagfæringar
á heimilinu núna. Það gildir bæði um
dauða hluti og sambandið við sína nán-
ustu. Þú sérð undir yfirborðið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er einstaklega sannfærandi
þessa dagana. Tjáskipti þín við aðra eru
ekki bara kraftmikil, það er engu líkara
en að þú lesir hugsanir núna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn fær snilldarhugmynd til þess
að auka tekjur sínar. Skrifaðu niður það
sem þér dettur í hug. Treystu innsæinu,
hugur þinn er djúpur og rannsakandi
núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur ríka réttlætiskennd og berst oft
fyrir málstað þeirra sem minna mega
sín. Í eðli þínu ertu umhyggjusöm og já-
kvæð manneskja. Krafti stafar beinlínis
af mörgum sem fæddir eru þennan dag.
Þú ert fagurkeri og andsnúin(n) ofríki.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Salurinn | Vortónleikar Fjölmenntar eru
kl. 18. Fram koma hljómsveitirnar Plútó,
Hraðakstur bannaður, Munnhörpu-
hljómsveit íslenska lýðveldisins, Hryn-
sveitin og Trommusveitin. Þá kemur
Tónakórinn fram, einnig einleikarar sem
leika m.a. á píanó, blokkflautu, gítar og
munnhörpu, söngvarar o.fl. Þjóðlagatríó-
ið Undir björkunum stígur sín fyrstu spor.
Frítt inn.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Benedikts S. Lafleur myndlistarmanns er
á 1. hæð. Sýningin er þriðja í röð sýninga
á verkum listamanna sem eiga listaverk í
Artóteki – Listhlöðu í Borgarbókasafni.
Sjá vefsíðu http://www.artotek.is
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót
lista og minja.
Café Karólína | Myndlistarsýning Bald-
vins Ringsted.
Gallerí Kambur | Sýning á myndum Þor-
steins Eggertssonar.
Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson
sýnir myndir unnar með blandaðri tækni.
Gel Gallerí | Ólafur grafari sýnir verk sín.
Grafið er komið til að vera.
Hafnarborg | Jóhannes Dagsson – „End-
urheimt“. Á sýningunni eru verk unnin
með blandaðri tækni.
Sýning um danska og íslenska listamenn
og túlkun þeirra á íslenskri náttúru á 150
ára tímabili. Þema sýningarinnar er „List
og náttúra með augum Norður-
landabúans“.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í
menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Milanó | Jón Arnar Sigurjónsson
sýnir olíumyndir á striga. Myndefnið er
borgarlíf, tónlist og árstíðirnar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Martin
Smida, þýsk/tékkneskur listamaður, sýnir
365 fiska. Verkið samanstendur af 365
skúlptúrum úr alls kyns efnum og vakti
athygli í Þýskalandi þegar það var fyrst
sýnt í september árið 2001. Þetta er
fyrsta sýning Martins Smida á Íslandi.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Útskriftarsýning nemanda við Listahá-
skóla Íslands.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn-
ing á verkum Dieters Roth opnar á
Listahátíð 14. maí.
Listasafn Íslands | Sýning á verkum
Dieters Roth opnar á Listahátíð 14. maí.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf
Opdahl.
Salurinn Kópavogi | Leifur Breiðfjörð.
Saltfisksetur Íslands | Jónas Bragi er
með sýninguna Ólgur í Saltfisksetrinu.
Sýningin er opin alla daga frá 11–18.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýn-
ingarnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione – ljósmyndir úr fórum Man-
fronibræðra.
Listasýning
Geysishúsið | Íslenska bútasaumsfélagið
stendur fyrir sýningu í Geysishúsi. Sýn-
ingin ber heitið Áskorun 2005 og eru öll
teppin ný.
Listhús Ófeigs | Halla Ásgeirsdóttir sýnir
raku-brennd leirverk.
Smáralind | Sýndir eru einstaklingar sem
félagar Íslandsdeildar Amnesty Int-
ernational hafa átt þátt í að frelsa á 30
árum. Heitið er tekið úr bréfi samvisku-
fanga: „Á dimmustu tímum fangavistar
minnar komu orð ykkar og bréf sem
dropar af regni, sem lengi hefur verið
beðið eftir í endalausri eyðimörk …“
Fundir
Al-Anon | Al-Anon-fjölskyldudeildirnar
halda fund alla daga vikunnar. Al-Anon
hefur aðeins einn tilgang: Að hjálpa fjöl-
skyldum og vinum alkóhólista. Skrifstofa
Al-Anon er opin mánudaga og fimmtu-
daga kl. 10–13, þriðjudaga kl. 13–16. Nán-
ari upplýsingar á www.al-anon.is.
Eineltissamtökin | Eineltissamtökin eru
með fundi alla þriðjudaga kl. 20–21, í húsi
Geðhjálpar, Túngötu 7.
UBAA | UBAA: Uppkomin börn, alkóhól-
istar og aðstandendur halda sporafundi
öll mánudagskvöld frá kl. 20.30–22.
Stuðst er við tólf spora kerfið.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið
er heiti sýningar sem segir frá ferðum
fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormón-
anna sem settust að í Utah.
Mannfagnaður
Rangárbakkar, hestamiðstöð Suður-
lands | Stóðhestasýning fer fram á Gadd-
staðaflötum dagana 9.–12. maí með yf-
irlitssýningu föstudaginn 13. maí. Nánari
upplýsingar: Búnaðarsamb. Suðurl., s
480-1800, eða á www.bssl.is.
Fyrirlestrar
Karuna-búddamiðstöð | „Skref til ham-
ingju“ er fjögurra vikna námskeið sem
fjallar um kenningar Búdda, um hvernig
þróa má afslappað viðhorf til lífsins og
vandamála. Einnig verða kynntar aðferðir
til að bæta samskipti við aðra, s.s. maka,
fjölskyldu, vinnufélaga o.fl. Háskóli Ís-
lands – Lögberg stofa 204 www.karuna-
.is.
Námskeið
Foreldraskólinn | Námskeiðið er haldið í
Grafarvogskirkju á vegum foreldraskól-
ans. Efni: Svefn og svefnvenjur barna.
Tengsl matarvenja og lundarfars barna
við svefn. Frekari upplýsingar á heimasíð-
unni www.foreldraskoli.is.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
HINAR árlegu Vorvindavið-
urkenningar IBBY á Íslandi
voru afhentar við hátíðlega at-
höfn í Norræna húsinu á laug-
ardaginn.
Þetta er í 18. skipti sem IBBY
veitir þessar viðurkenningar og
eru þær veittar fyrir fram-
úrskarandi menningarstarf í
þágu barna og unglinga.
Vorvindahafar að þessu sinni
eru Ragnheiður Gestsdóttir sem
fær verðlaunin fyrir höfund-
arverk sitt sem rithöfundur;
Brian Pilkington fær verð-
launin fyrir höfundarverk sitt
sem myndlistarmaður og Embla
Ýr Bárudóttir og Ingólfur Örn
Björgvinsson sem nýliðar fyrir
bækurnar Blóðregn og Brennan. Morgunblaðið/Ómar
Vorvindaviðurkenningar
ÚTSKRIFTARNEMENDUR á list-
námsbraut við Iðnskólann í Hafn-
arfirði opna í dag sýningu á verk-
um sínum í húsnæði Marels.
Sýningin samanstendur af verkum
23 nemenda sem allir eru að út-
skrifast frá skólanum í vor. Verkin
eru af ýmsum toga en nemendur
hafa unnið að þeim í gegnum skóla-
göngu sína í Iðnskólanum. Nem-
endurnir héldu sýningu í Hafn-
arborg í Hafnarfirði um síðustu jól
en þá höfðu þau hannað og gert
gjafir fyrir þjóðþekkta Íslendinga.
Sýningin stendur til 22. maí og
verður opið á virkum dögum frá
klukkan 9 til 16 og á laugardögum
frá klukkan 13 til 16.
Iðnskólanemar
í Hafnarfirði sýna
smáauglýsingar
mbl.is
VORTÓNLEIKAR Raddbanda-
félags Reykjavíkur í ár bera titilinn
„Líttu á lífsins björtustu hlið“ og
eru það þau skilaboð sem kórinn
vill koma á framfæri nú þegar sum-
arið fer í hönd. Tónleikarnir verða
haldnir í Laugarneskirkju á mið-
vikudaginn og byrja klukkan 20.
Miðaverð er 1.500 kr.
Á efnisskrá tónleikanna mun fjöl-
breytnin ráða ríkjum og má þar
finna allt frá miðaldatónlist til dæg-
urlaga nútímans, sem sérstaklega
hafa verið útsett fyrir kórinn.
Raddbandafélagið var stofnað
haustið 2002 og hefur á að skipa
söngmönnum sem flestir hafa sung-
ið í kórum um árabil, jafnframt því
sem margir þeirra stunda einsöngs-
nám. Stjórnandi kórsins er Sigrún
Grendal.
Á tiltölulega stuttum starfsferli
sínum hefur Raddbandafélagið
haldið fjölda tónleika víða um land-
ið og á síðastliðnu hausti fór félagið
í söngferð til Búlgaríu.
Vortónleikar
Raddbandafélagsins
www.raddbandafelag.is.