Morgunblaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 47
Nýr og betriMiðasala opnar kl. 17.00
- BARA LÚXUS
553 2075☎
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Sýnd kl. 6 og 9 B.I 10 ÁRA
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i 14 ára
Blaðið
Blaðið
Blaðið
Blaðið
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Frá leikstjóra Bourne IdentityFrá leikstjóra Bourne IdentityBourne Identity
Bourne Identity
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims! Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Sýnd kl. kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i 14 ára
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktarmeð rauðu
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Sýnd kl. 8 og 10.45 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 5.20
Frá framleiðendum
Lock Stock & Snatch
r fr l i
t t
kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I 16 ÁRASýnd kl. 6 og 9 B.I 10 ÁRA
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
Downfall
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
Sýnd kl. 6, 8 og 10
FRÁBÆR GRÍNMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
Þrælgóð skemmtun
Ó.Ö.H - DV
Þrælgóð skemmtun
Ó.Ö.H - DV
Þrælgóð skemmtun
Ó.Ö.H - DV
Þrælgóð skemmtun
Ó.Ö.H - DV
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 35.000 gestir
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 35.000 gestir
YFIR 12.000 GESTIR
Á AÐEINS 4 DÖGUM
YFIR 12.000 GESTIR
Á AÐEINS 4 DÖGUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 47
Hverjir skipa sveitina?
Óskar Þór Arngrímsson trommur,
Trausti Laufdal Aðalsteinsson söngur og
gítar, Oddur Ingi Þórsson bassi og söng-
ur, Baldvin Albertsson orgel.
Hver er heimspekin á bakvið hljómsveitina?
Heimsspekin eða heimskspekin eins og
við kjósum að kalla það er án efa kær-
leikur ef speki má kalla.
Hvenær var hún stofnuð og hvernig atvik-
aðist það?
Hún var stofnuð endanlega 2002 eftir
mikið basl við að finna hina fullkomnu
fernu. Baldvin og Óskar stofnuðu bandið,
svo kom Trausti og stuttu seinna fylgdi
Oddur. Þá var þetta fullkomnað. Við er-
um allir hver úr sinni áttinni en núna vit-
um við varla hver er hvað við náum svo
vel saman.
Hvaða tónlistarmenn eru hetjur ykkar?
David Bowie, John Lennon, John Bon-
ham, Jim Morrison, Marshall Mathers,
Billy Corgan, Jimmy Page, Ringo Starr,
George Harrison, Danny Elfman, Paul
McCartney, Syd Barrett og svona getum
við lengi talið upp. Við eigum marga
áhrifavalda en við göngum ekki í spor
eins né neins, þó við áhrifin megi skína í
gegn ... við förum ótroðnar slóðir.
Eru einhverjir innlendir áhrifavaldar?
Jájá ... fullt alveg ... Sérstaklega
Hljómar og Trúbrot, Vilhjálmur Vil-
hjálms, Bubbi og auðvitað Hemmi Gunn
... og af nýrri böndum eru það Jet Black
Joe, Sigur Rós, Maus og Jan Mayen.
Hvað finnst ykkur um íslenska tónlist í dag?
Íslensk rokktónlist hefur verið í svolítilli lægð að okkar mati en sumarið framundan mun
vera uppreisn æru fyrir íslenska rokkara þar sem mörg snilldarbönd eru að koma upp As We
Speak og mun það vera sprenging. En þó er íslensk tónlist 90% ekki alveg nógu góð, það virð-
ist enginn geta einbeitt sér að neinu einu, allir í 2–3 hljómsveitum. Ætli það sé ekki bara mál-
ið.
Er auðvelt að fá að spila á tónleikum?
Nei, það var það alls ekki í byrjun en þegar nafnið fór að ferðast kom það af sjálfu sér. En
til að fá að spila á tónleikum reglulega þarf maður að hafa einhvað sérstakt fram að færa, til
að fólk nenni að hlusta á mann jafnvel 2–3 sinnum í viku á tónleikum. Við spilum alla tónleika
eins og þeir séu lokatónleikarnir okkar.
Er auðvelt að gefa út?
Ónei. Alls ekki. Langt því frá, en þegar maður situr á jafn góðri tónlist og við töldum okkur
gera þá er það engin fyrirstaða.
Segið eitthvað um lögin sem þið eruð með á Rokk.is?
Þau hressa okkur gríðarlega. Og vonandi aðra líka. Þetta eru hráar upptökur af lögum okk-
ar. En endanlegar upptökur af þessum sömu lögum er hægt að nálgast á breiðskífu okkar
Army of Soundwaves.
Hver er mesti gleðigosinn í sveitinni?
Án efa trymbillinn Óskar ... annars erum við allir yfir meðallagi glaðir og nett gosalegir líka.
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
Lokbrá hefur loksins gefið út plötu, planið er bara að rokka úr okkur líftóruna og enda eins
og Rúni Júl að dæma í Idol. Annars bara fylgja eftir plötunni og gera allt vitlaust, enda kunn-
um við fátt annað. Eina planið sem er pottþétt er að við munum ekki hætta fyrr en takmark-
inu er náð. Og þá kannski göngum við aðeins lengra ...
Eitthvað að lokum?
Varið ykkur, herinn nálgast ... Neglið fyrir gluggana og felið ykkur undir rúmi ... Innrás er
yfirvofandi ...
Ljósmynd/Sigurjón Guðjónsson
Lokbrá skipa Óskar Þór Arngrímsson trommur, Trausti Laufdal Aðalsteinsson söngur og gítar,
Oddur Ingi Þórsson bassi og söngur og Baldvin Albertsson orgel.
HLJÓMSVEIT Fólksins þessa
vikuna er Lokbrá, en Morg-
unblaðið og mbl.is velja Hljómsveit
Fólksins á tveggja vikna fresti.
Tilgangurinn er að kynna og styðja
við grasrótina í íslenskri tónlist, en
sífellt er að verða auðveldara að
taka upp tónlist og fjölgar þeim
mjög sem það stunda. Um leið er
ákveðin hætta á að hæfileikaríkir
tónlistarmenn týnist í fjöldanum.
Hljómsveit Fólksins er í samstarfi
við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að
lesa viðtalið á Fólkinu á mbl.is. Þar
eru einnig tenglar á lög sveit-
arinnar sem geymd eru á Rokk.is.
Lag með Lokbrá verður spilað í
dag í þætti Ólafs Páls Gunn-
arssonar, Guðna Más Hennings-
sonar og Freys Eyjólfssonar á Rás
2, Popplandi, sem er á dagskrá kl.
12.45–16 virka daga.
Hljómsveit Fólksins | Lokbrá
Slæmur aðbúnaður fanga í Guantanamo áKúbu, þar sem Bandaríkjamenn hafa í
haldi meinta hryðjuverkamenn, hefur sætt
gagnrýni víða um heim. Mörg hundruð ísl-
amstrúarmanna mótmæltu
notkun Kóransins við yf-
irheyrslur í síðasta mánuði
og margir hafa látist í
mótmælaöldum í Afganist-
an og Pakistan. Danska
dagblaðið Politiken greinir
frá því í dag að margar að-
ferðir hafi verið notaðar
við yfirheyrslur fanga.
Meðal annars hafi þeir
verið látnir hlusta á tónlist bandarísku söng-
konunnar Christinu Aguilera.
Í blaðinu kemur fram að fangi, sem sleppt
hafi verið úr fangabúðum, hafi greint frá yf-
irheyrsluaðferðunum. Segir hann að yf-
irheyrslurnar hafi oft byrjað klukkan fjögur
að nóttu til og staðið yfir langt fram undir
morgun. Í öðrum tilvikum hafi yfirheyrsl-
urnar byrjað um miðnætti.
Maðurinn segir að ýmsar aðferðir séu not-
aðar til að vekja fangana. Í sumum tilfellum
hafi verið hellt yfir þá úr fötu með köldu
vatni en í öðrum tilvikum hafi þeir verið
vaktir með tónlist. Ekki hafi þó verið um að
ræða róandi fiðlutóna heldur tónlist banda-
rísku tónlistarkonunnar Christinu Aguilera,
sem spiluð er á fullum styrk. Engum sögum
fer hins vegar af því hvort söngur Aguilera
kom að gagni sem pyntingaraðferð.
George Lucas, höfundur Stjörnustríðs-myndanna, hefur viðurkennt að hann sé
ekki besti rithöfundur í heimi. Hefur hann
þakkað Francis Ford Coppola fyrir að hafa
hjálpað sér að liðka pennann.
„Hann bjargaði mér
þegar ég gat ekki skrifað
staf í kvikmyndahandriti
og nú er ég orðinn
ókrýndur konungur hinna
stirðu samtala,“ sagði Lu-
cas er hann tók við við-
urkenningu frá Banda-
rísku
kvikmyndastofnuninni í
Los Angeles í síðustu viku.
Frá þessu greinir fréttavefur kanadíska
ríkisútvarpsins, CBC.
Tekjurnar af Stjörnustríðsmyndunum
nema milljörðum dollara en gagnrýnendur
hafa þó verið lítt hrifnir af því hvernig per-
sónurnar í myndunum tala. Þannig sagði
Roger Ebert í umfjöllun sinni um nýjustu
myndina, Revenge of the Sith, að persón-
urnar í myndinni töluðu „undirstöðuensku“,
litlausa og án allrar hnyttni.
Frægt varð þegar Harrison Ford sagði
við tökur á fyrstu myndinni: „George, það er
hægt að skrifa svona, en það er óhugsandi
að nokkur segi svona.“
Fólk folk@mbl.is