Morgunblaðið - 14.06.2005, Side 27

Morgunblaðið - 14.06.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 27 eg sama hvað sagt hefur verið að alltaf verið fundið upp á einhverju nýju til að þessu máli gangandi með einum eða öðr- tti,“ sagði Halldór ennfremur. a gert úr hlutnum en efni stóðu til n sagðist aldrei hafa vitað af áformum eyjar-Þinganess um að vera með í S- m og hann tæki engan þátt í daglegum m eða ákvörðunum í rekstri fyrirtæk- Sér hefði ekki verið sérstaklega tilkynnt up Skinneyjar í Hesteyri og hann hefði af þeim kaupum „eins og hver annar ri“. Ekkert óeðlilegt hefði verið að gerast órnendum fyrirtækisins og sagðist Hall- kert með það að hafa hvernig lögmenn ækisins gæfu upplýsingar til einkavæð- efndar. Vísaði hann þar til ónákvæmni í ingagjöf til nefndarinnar um eignarhald eyri, sem greint er frá í skýrslunni. dór sagði að í umræðunni hefði oft verið meira úr hlut sínum í Skinney-Þinganesi stæðu til. Daginn sem hann hefði gerst isráðherra hefði á einum stað birst að hans í fyrirtækinu væri upp á einn millj- óna. Stuttu síðar hefði hið rétta komið í ljós, að hluturinn væri 200 milljóna króna virði. Ekki hefði verið fjallað meira um nokkurn hlut stjórnmálamanna í fleiri ár og áratugi. „Virði vilja foreldra minna“ Halldór sagði það ekki standa til að hann seldi hlut sinn í fyrirtækinu. Hann hefði fengið hlutinn í arf frá foreldrum sínum. Það hefði verið ósk foreldra sinna að fyrirtækið myndi starfa áfram á Höfn og vera öflugt í byggð- arlaginu. „Það var ávallt þeirra ósk að fyrirtækið myndi eflast og hefur ekkert staðið til af hálfu okkar systkina að selja þessi hlutabréf. Ég ætla að virða vilja foreldra minna í þeim efn- um,“ sagði Halldór. Hvort betur hefði mátt standa að sölu rík- isbankanna sagði forsætisráðherra að ávallt væri hægt að standa betur að málum. Því mið- ur hefði lítill áhugi verið á sínum tíma um kaup á bönkunum. Þrír aðilar hefðu verið metnir hæfir og þar af hefðu tveir þeirra keypt. Nú væri hins vegar mun meiri áhugi á að kaupa Símann. Morgunblaðið/ÞÖK r ýmsu vanur í stjórnmálum en ég ætlast til þess að fjölskylda mín sé látin í friði,“ sagði ór Ásgrímsson m.a. á fundi með fréttamönnum í gær, þungbúinn á svip. ar um minnisblað Ríkisendurskoðunar bjb@mbl.is ÍNiðurstöðum minnisblaðs Rík-isendurskoðunar segir m.a. aðhagsmunir Halldórs Ásgríms-sonar forsætisráðherra og venslafólks hans sem hluthafa Skinneyjar-Þinganess á Höfn hafi verið óverulegir miðað við umfang viðskipta með óbeinum hlut þeirra í hinum selda hlut ríkisins í Búnaðar- bankanum til S-hópsins. Óþarft sé að hugleiða sérstaklega hæfi Halldórs til að fjalla um söluna til S-hópsins þar sem hann hafi ekki tekið þátt í þeim þætti hennar sem meginmáli skipti. Þegar málið sé metið heild- stætt hafi Halldór ekki verið van- hæfur til að fjalla um sölu á bank- anum. Ríkisendurskoðun ákvað að fara í þessa vinnu í kjölfar fundar með fjárlaganefnd Alþingis í síðustu viku, þar sem fram komu upplýsingar um að Skinney-Þinganes hf., sem Hall- dór átti 1,33% hlut í haustið 2002 og fjölskylda hans samanlagt 25%, hafi átt hlut í félaginu Hesteyri ásamt Kaupfélagi Skagfirðinga. Hesteyri var einn stærsti hluthafinn í félaginu Keri, sem var meðal kaupenda á Búnaðarbankanum. Segir Ríkisend- urskoðun að í upplýsingagjöf S- hópsins til einkavæðingarnefndar hafi gætt ónákvæmni um eigendur Hesteyrar. Vildi Ríkisendurskoðun kanna nánar hvernig tengslum Hall- dórs við Skinney-Þinganes var hátt- að og hvort reynt hefði á hæfisreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1997 í því sambandi. Ríkisendurskoðun bendir á það í minnisblaði sínu, sem er upp á tíu síður, að svar við spurningum um hæfi eða vanhæfi stjórnvaldshafa sé lögfræðilegt álitaefni, sem löggjaf- inn hafi alls ekki ætlað Ríkisendur- skoðun að leysa úr. Þó beri á það að líta að fyrri athugun Ríkisendur- skoðunar á sölu ríkisbankanna árið 2002 hafi verið stjórnsýsluendur- skoðun. Ítrekar Ríkisendurskoðun að gögn málsins á sínum tíma hafi ekki gefið tilefni til að kanna sérstak- lega hæfi eða vanhæfi þeirra sem komu að ákvörðunum af hálfu stjórnvalda. Ekki fjölskyldufyrirtæki Hlutinn í Skinney-Þinganesi fékk Halldór í arf eftir föður sinn, 1,33%. Samkvæmt minnisblaði Ríkisendur- skoðunar nam hlutafé í fyrirtækinu 650 milljónum króna í október 2002 og nafnvirði hlutar Halldórs því um 8,6 milljónir króna. Hluthafar í félag- inu á þeim tíma voru tæplega 200. Segir í skýrslunni að samanlagðir eignarhlutir Halldórs og þeirra sem voru skyldir honum í beinan legg eða mægðir honum í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar á þessum tíma, samanber ákvæði stjórnsýslulaga, hafi verið um 27%. Af þessu ræður Ríkisendurskoðun að umrætt hluta- félag hafi ekki verið „fjölskyldufyr- irtæki“ í hefðbundnum skilningi þess orðs. Skömmu áður en sala Búnaðar- bankans gekk í gegn til S-hópsins urðu eignarbreytingar í félögum tengdum hópnum, m.a. í Hesteyri þar sem Skinney-Þinganes seldi Kaupfélagi Skagfirðinga sinn hlut, auk þess sem skipti á hlutabréfum í Keri og VÍS fóru fram. Vekur Rík- isendurskoðun athygli á að engar peningagreiðslur hafi farið fram á milli aðila við þessi skipti og enginn söluhagnaður verið hjá Hesteyri. Í minnisblaðinu segir að sam- kvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafi ráðherranefnd um einkavæð- inguna ekki sem slík tekið beinan þátt í samningaviðræðum um sölu Búnaðarbankans. Hún hafi á hinn bóginn tekið stefnumarkandi ákvarðanir í málinu, sem fyrst og fremst hafi falist í að ákveða að aug- lýsa bankana til sölu og fallast á til- lögur framkvæmdanefndarinnar um sölufyrirkomulag og þau skilyrði sem hafi átt að gilda um söluna. Við- skiptaráðherra, Valgerður Sverris- dóttir, hafi eftir sem áður lögum samkvæmt farið með eignarhlut rík- isins í Búnaðarbankanum, hrint söluferlinu af stað, verið í forsvari fyrir það af hálfu stjórnvalda og gengið að lokum frá sölunni með dyggri aðstoð framkvæmdanefndar um einkavæðingu, eins og reglur hafi kveðið á um. „Þegar leggja þarf mat á það hvort Halldór Ásgrímsson hafi verið vanhæfur til setu í ráðherranefnd- inni, sem starfar samkvæmt verk- lagsreglum um útboð og sölu ríkis- fyrirtækja við sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum, verður að líta heildstætt á málið. Annars vegar er til þess að taka að eignarhlutur Hall- dórs í Skinney-Þinganesi hf. var að- eins 1,33% og hlutur venslafólks hans svaraði til u.þ.b. fjórðungs hlutafjár í félaginu. Jafnframt voru hagsmunir Halldórs og venslafólks hans vegna óbeins hlutar í hinum selda hlut ríkisins í Búnaðarbankan- um til S-hópsins í gegnum eignarað- ild þeirra í Skinney-Þinganesi hf. óverulegir miðað við umfang við- skiptanna. Hins vegar verður við matið á hugsanlegu vanhæfi að horfa til þess að lögformleg staða ráð- herranefndarinnar er óljós svo og eðli þeirra ákvarðana sem hún tek- ur,“ segir í niðurstöðum Ríkisendur- skoðunar. Segist stofnunin hafa áður bent á óljósa lögformlega stöðu bæði ráðherranefndar og framkvæmda- nefndar um einkavæðingu. Hvatt hafi verið til endurskoðunar á verk- lagsreglum og þær lögfestar. Ekki vanhæfur samkvæmt stjórnsýslulögum Ríkisendurskoðun segir hlutverk ráðherranefndarinnar samkvæmt verklagsreglum ekki felast í því að taka ákvarðanir um afgreiðslu ein- stakra mála sem telja megi ígildi stjórnvaldsákvarðana. Staðfesting hennar á tillögum framkvæmda- nefndarinnar um sölu Búnaðarbank- ans verði fremur að telja eðlisskylda afgreiðslu mála í ríkisstjórn. Heim- ildin til að selja hlutabréfin í ríkis- bönkunum hafi óumdeilanlega verið í höndum viðskiptaráðherra og hafi hvorki verið af honum tekin né fram- seld nema á grundvelli skýrra laga- heimilda. Telur Ríkisendurskoðun „í raun óþarft“ að hugleiða sérstaklega hæfi Halldórs til að fjalla um söluna til S- hópsins þar sem hann hafi ekki tekið þátt í þeim þætti hennar sem meg- inmáli skipti. Jafnframt þessu telur stofnunin að þegar litið sé til allra þessara þátta og þeir metnir heild- stætt, hafi Halldór ekki verið van- hæfur til að fjalla um söluna á sínum tíma á vettvangi ráðherranefndar- innar. Vísar Ríkisendurskoðun í þessu efni til 6. töluliðar 1. málsgreinar 3. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. sömu greinar. Samkvæmt fyrra ákvæðinu, 6. tölulið, telst starfsmaður eða nefndarmaður vanhæfur til með- ferðar máls ef fyrir hendi eru þær aðstæður sem eru til þess fallnar að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu. Í seinna ákvæðinu, 2. mgr. 3.gr, er mælt svo fyrir að ef hags- munir viðkomandi máls eru svo smá- vægilegir og eðli málsins með þeim hætti eða þáttur starfsmanns eða nefndarmanns í meðferð máls það lítilfjörlegur að ekki er talin hætta á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun þá er starfsmaður ekki talinn vanhæfur. Bendir Ríkisendurskoðun á að þessum reglum hafi ekki eingöngu verið ætlað að koma í veg fyrir að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á efni stjórnvaldsákvörðunar, heldur sé þeim einnig ætlað að stuðla að því að almenningur og þeir sem hlut eigi að máli, geti treyst því að stjórnvöld leysi úr málum á hlutlægan hátt. Sem fyrr segir telur Ríkisendur- skoðun að Halldór og fjölskylda hans hafi haft óverulegra hagsmuna að gæta við kaup S-hópsins á hlut í Búnaðarbankanum, miðað við um- fang viðskiptanna. Þannig metinn sé hinn óbeini hlutur Halldórs af hinu selda um 0,03% eða sem svari til um 3,5 milljóna króna. Óbeinn hlutur venslafólks hans sé með sama hætti metinn um 0,55% eða sem svari til um 66,5 milljóna króna. Veikindaleyfi Halldórs Í minnisblaðinu er bent á að Hall- dór hafi átt við veikindi að stríða árið 2002 og hafi m.a. verið frá störfum vegna þeirra frá 14. október til 26. nóvember það ár. Af þessum sökum hafi hann hvorki tekið þátt í umfjöll- un um bankasöluna né önnur mál í ráðherranefndinni eða í ríkisstjórn, ef frá er talinn fundur ríkisstjórnar 8. nóvember. Á þeim fundi var að frumkvæði menntamálaráðherra rætt um málverkaeign ríkisbank- anna en önnur mál tengd einkavæð- ingunni ekki rædd. 4. nóvember 2002 staðfesti ráð- herranefnd um einkavæðingu tillögu framkvæmdanefndar um að ganga til viðræðna við S-hópinn. Á sama hátt staðfesti nefndin tillögu fram- kvæmdanefndar um að fá heimild til að ganga frá samkomulagi um kaup- in 15. nóvember sama ár. Ríkisend- urskoðun segir að ef frá sé talinn fundur ríkisstjórnar 8. nóvember hafi Halldór verið í veikindaleyfi og ekki komið til starfa fyrr en 26. nóv- ember þegar salan var afstaðin. „Þegar þessi atriði eru höfð í huga þykir ljóst að hugleiðingar um hæfi hans [Halldórs] til að fjalla um fram- angreindar tillögur framkvæmda- nefndarinnar séu í raun óþarfar, þar sem hann tók hvorki þátt í umfjöll- uninni um val á aðila til viðræðna um kaupin né tillögu framkvæmda- nefndarinnar um að fá heimild til að skrifa undir samkomulag um söl- una,“ segir Ríkisendurskoðun m.a. Morgunblaðið/ÞÖK Halldór Ásgrímsson kynnir minnisblaðið og á hann hlýða Björg Eva Er- lendsdóttir fréttamaður og Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður. Hagsmunir óveruleg- ir miðað við umfang bankasölunnar  Meira á mbl.is/itarefni MAGNÚS Stef- ánsson, formað- ur fjárlaga- nefndar, gerir ekki athuga- semdir við það að Halldór Ás- grímsson hafi kynnt minn- isblað Ríkisend- urskoðunar í gær áður en það hafi verið kynnt fjár- laganefnd. Ríkisendurskoðun sendi Magn- úsi minnisblaðið í gær en fjár- laganefnd hafði áður beðið stofn- unina um að rannsaka betur ýmsa þætti í tengslum við einkavæð- ingu ríkisbankanna. Fram kemur aftast í minnisblaðinu að afrit hafi verið sent Halldóri Ásgrímssyni. Að sögn Magnúsar var það alfarið ákvörðun Halldórs að kynna efni þess með þeim hætti sem gert var. Magnús segist hafa dreift minnisblaðinu í gær til þing- manna í fjárlaganefnd. Nefndin hafi verið boðuð til fundar í dag til að fjalla um framkvæmd fjár- laga. Greinargerð Ríkisend- urskoðunar sé ekki þar á dagskrá og í gærkvöldi hafi engin beiðni komið fram um það frá nefnd- armönnum. Um niðurstöðu Rík- isendurskoðunar segir Magnús hana sýna og sanna að ásakanir um vanhæfi Halldórs hafi ekki átt við rök að styðjast. Stjórnarand- staðan hafi að ástæðulausu farið hamförum í málinu. Magnús telur að með áliti ríkisendurskoðanda sé málinu lokið og meirihluti fjár- laganefndar muni ekki aðhafast frekar. Ákvörðun Halldórs að kynna efnið Magnús Stefánsson ÓN Arnar nsson, ur ynda ns, hafði n haft ri til að kýrslu ndurskoð- andlega. agði þó málið i að fá álit „Stjórnarandstaðan mun hittast, væntanlega á morgun, og ræða næstu skref,“ sagði Guðjón Arnar og bætti við að þar sem skýrsla Ríkisendurskoðunar væri stíluð á formann fjárlaganefndar, gerði hann ráð fyrir því að fjárlaganefnd myndi hittast og ræða málið á fundi. „Mér finnst nú samt hálf furðulegt að þarna segi að hann hefði ekki verið vanhæfur ef hann hefði tekið meiri þátt í þessu ferli. En það á alveg eftir að skoða það með tilliti til stjórnsýslulaganna,“ sagði Guðjón Arnar og bætti við að lokum að málinu væri hvergi nærri lokið af hálfu Frjálslynda flokksins eða stjórnarandstöðunnar. ti EINAR Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, hafði ekki kynnt sér skýrslu Ríkis- endurskoðunar í gærkvöldi en hann taldi það ekki óeðlilegt að forsætisráðherra hefði kynnt niðurstöður skýrslunnar áður en hún var kynnt fjárlaganefnd. „Þessi athugun var ekki á okkar veg- um. ríkisendurskoðandi tók það upp hjá sjálfum sér að gaumgæfa þetta atriði betur en hann hefur ekkert rætt það við fjárlaganefnd.“ Einar segir að ríkisendurskoðandi sé frjáls af því hvað hann taki til skoðunar og hvernig hann birti það. „Ég hef engar athugasemdir við þetta. Við höfum lokið umfjöllun um málið og ætlum ekki að skoða þetta nánar vegna þess að umfjöllun nefndarinnar um málið þjónaði ein- göngu þeim tilgangi að nefndarmenn væru vel upplýstir um málið.“ Athugun ekki á okkar vegum Einar Oddur Kristjánsson æfa þessa Ríkisend- málsins,“ r um þrjá nu. „Í a túlkun á ðru lagi ra sem Og að lok- erði. Eng- ta leiddur. n gert með r í raun- mun rík- lfur í ki á það út laga- ó var bú- r fáeinum aldrei líða a mál með undur. ðun, þá aðri þings- nginu í að- t fram- eð ins. Að ráðherra gn, kynna legt að “

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.