Morgunblaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 11
FRÉTTIR
TÆPLEGA 400 íslenskar konur á
15 stöðum erlendis tóku þátt í
kvennahlaupi ÍSÍ Kvennahlaup ÍSÍ
fór fram í 16 sinn sl. laugardag.
Áætlað er að á bilinu 17-18.000 kon-
ur á öllum aldri hafi tekið þátt á yf-
ir 90 stöðum hérlendis. Er þetta
sambærileg þátttaka og í hlaupinu
á síðasta ári.
Í Garðabænum var mikil og góð
stemning í blíðskaparveðri og voru
þátttakendur um 6.000 talsins. Elsti
þátttakandinn í Garðabænum var
Hulda Þorbjörnsdóttir 95 ára en sú
elsta sem vitað er um í hlaupinu á
landsvísu er Torfhildur Torfadóttir
101 árs sem tók þátt í Kvennahlaupi
ÍSÍ á Ísafirði. Í Mosfellsbæ tóku um
1000 konur þátt og á Akureyri
sprettu tæplega 700 konur úr spori.
Ljósmynd/Ragnar Schram
Íslenskar konur tóku þátt í Kvenna-
hlaupinu á 15 stöðum erlendis en
hér sjást nokkrar þeirra hlaupa í
Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu.
400 íslensk-
ar konur
hlupu
erlendis
STJÓRN Samfylkingarfélagsins í
Reykjavík samþykkti á fundi um
helgina ályktun þar sem hvatt er til
viðræðna um endurnýjað samstarf í
borgarstjórn undir merkjum Reykja-
víkurlistans. Fulltrúaráð Samfylking-
arfélaganna í borginni kemur saman
til fundar á miðvikudagskvöld vegna
undirbúnings fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar, en það fer með fram-
boðsmál fyrir hönd flokksins. Beinir
stjórn Samfylkingarfélagsins því til
fulltrúaráðsins að veitt verði umboð
til samningaviðræðna við alla þá sem
starfa vilja undir merkjum Reykja-
víkurlistans.
Í ályktun stjórnar Samfylkingar-
félagsins segir að samfylkingarmenn
eigi að ganga til viðræðna um end-
urnýjað samstarf innan Reykjavíkur-
listans. „Árangur síðustu þriggja
kjörtímabila á nær öllum sviðum
borgarmála er slíkur að það væri
ábyrgðarlaust og óskynsamlegt að
ganga frá þessu máli að óreyndu.
Stjórn SffR hefur fulla trú á því að
saman geti gengið, bæði um menn og
málefni, og vísar í þeim efnum meðal
annars til umræðna og skoðanaskipta
borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans
um skipulagsmál undanfarnar vikur.“
Hvetja til við-
ræðna um
nýjan Reykja-
víkurlista
STOFNUN Fræðasetra Háskóla Ís-
lands og Þróunarfélög (atvinnuráð-
gjafar) héldu í gær vinnufund í Sand-
gerði um svæðisbundna stefnu í
rannsókna- og þróunarstarfi. Ráð-
gjafar frá Þróunarfélögum og sam-
tökum sveitarfélaga leiddu vinnu-
hópa, en í hópunum voru jafnframt
helstu fulltrúar sveitarfélaga, rann-
sókna-, mennta- og menningarsetra.
Í dag verður síðan haldið opið mál-
þing, þar sem niðurstöður hópanna
verða kynntar.
Á undanförnum árum hefur verið
mikil uppbygging á rannsóknum,
mennta- og þróunarstarfi á lands-
byggðinni og hafa ráðuneyti mennta-
mála, iðnaðar og umhverfis til dæmis
öll komið að mótun rannsóknastefnu
fyrir ólík svæði. Stefanía G. Krist-
insdóttir, verkefnisstjóri fyrir stofn-
un fræðasetra, segir að vinnuhóp-
arnir hafi skilað góðu verki og vinnan
gengið vel. „Við eruð að finna út að
svæðin geta lært svo margt hvert af
öðru. Til dæmis á Þingeyjarsýslan
svo margt sameiginlegt með Austur-
landi og Vatnajökulsþjóðgarði og svo
framvegis. Rannsóknatækifærin eru
ólík eftir svæðum, en hér er fólk frá
ólíkum stöðum að ræða saman.“
Kynning fór fram í gær á svoköll-
uðum „best practice“, sem eru verk-
efni úr mismunandi landshlutum.
Meðal þeirra eru landnámssetur í
Borgarfirði, Rannsóknamiðstöð um
kvíaeldi og veiðarfæri og Jöklasýn-
ingin á Höfn, sem Morgunblaðið
fjallaði um í síðustu viku.
Ólík rannsóknatæki-
færi eftir svæðum
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
DILBERT
mbl.is