Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 4

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KRIKKET er ekki beinlínis þjóð- aríþrótt Íslendinga og hefur lítið verið leikinn hér á landi í gegnum tíðina. Nú er þó orðin breyting á en indverskir og pakistanskir starfsmenn Impregilo koma saman oft í viku og leika krikket. Að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo, er spilað hverja helgi og einnig eftir vinnu á virkum dögum ef vel viðrar. Ómar segir að skipt sé í tvö lið og að í hvoru liði séu þrettán manns. „Liðin heita Kar11 og Kar14 en það eru nöfnin á þeim verkefnum sem Impregilo er með á Kárahnjúkum,“ segir Ómar og vísar annars vegar til vinnu við aðrennslisgöngin og hins vegar til stíflunnar sjálfrar. „Pakistanar og Indverjar spila saman í liði en ekki á móti hver öðrum eins og maður hefði ætlað miðað við hversu köldu andar milli þessara þjóða.“ Ómar segir að krikketleik- ararnir hafi smíðað kylfurnar sín- ar sjálfir og einnig grindur fyrir markstangir. Leikið er á steyptum velli sem er jafnframt notaður sem fótbolta- og körfuboltavöllur. „Það er auðvitað ekkert mikið um tóm- stundir á Kárahnjúkum þannig að þetta er kærkomin viðbót,“ segir Ómar sem enn hefur ekki lagt í að spila með enda segir hann leik- mennina vera þónokkuð góða. Ómar segist hafa heyrt af einu krikketliði á Íslandi og vill koma á framfæri áskorun til þess um að mæta Kárahnjúkaliðinu á heima- velli. Ljósmynd/Ómar R. Valdimarsson Krikket er vinsæl íþrótt meðal Indverja og Pakistana á Kárahnjúkum. Krikket á Kárahnjúkum ICELANDAIR hyggst fljúga til New York í allan vetur en undanfar- in tvö ár hefur félagið gert hlé á áætlunarflugi til borgarinnar frá því í janúar og fram í mars. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, segir að dregið hafi úr eftirspurn eftir ferðum til New York eftir 11. sept- ember 2001. Eftirspurnin hafi hins vegar aukist að undanförnu og félag- ið sé að bregðast við því. Á móti verður hins vegar dregið úr flugi til Minneapolis. Ekki verður flogið þangað á tímabilinu frá 9. jan- úar til 13. mars 2006. Jón Karl segir að sú ákvörðun komi til af því að eft- irspurn eftir flugi til Minneapolis hafi verið lakari yfir háveturinn en á öðrum árstímum. Icelandair heldur uppi reglu- bundnu áætlunarflugi milli Íslands og 22 áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum. Flýgur til New York í allan vetur ÁSDÍS Bergþórsdóttir, kross- gátuhöfundur Tímarits Morgun- blaðsins, hefur opnað krossgátu- vef á slóðinni www.krossgatan.is, en einnig verður hægt að nálgast vefinn í gegnum tengil á mbl.is undir hausnum „Nýtt“ í vinstri dálki. „Vefurinn er hugsaður sem aukastuðningur fyrir þá sem leysa krossgátuna í Tímaritinu og geta þeir sótt þangað fróðleik, leiðbein- ingar og alls kyns athyglisvert sérefni. T.d. verður þarna íslensk/ latnesk krossgáta sem reynir bæði á latínu- og íslenskukunn- áttu. Menn geta reynt við elstu krossgátu í heimi, sem samin var af Arthur Wynne, og þá stefni ég að því að setja inn elstu íslensku krossgátuna frá 1927 núna í júlí,“ segir Ásdís og bætir við að vef- urinn sé fyrst og fremst hugsaður til skemmtunar. Sumum hefur þótt það þraut- inni þyngra að koma sér af stað í krossgátum Ásdísar, en á vefnum verða byrjendaleiðbeiningar sem ættu að auðvelda mönnum fyrstu sporin. Þá verður gefin ein auka- vísbending fyrir krossgátu vik- unnar. Á vefnum geta menn lesið fyrirlestur eftir Ásdísi um hugs- unina á bak við vísbendingarnar og fengið þannig fræðilegri sýn á krossgátuna. Krossgátuvefur fyrir áhugasama HALLDÓR Ásgrímsson, forsætis- ráðherra, situr nú tveggja daga sum- arfund forsætisráðherra Norður- landanna, en honum lýkur í dag. Íslendingar héldu fundinn í fyrra, en þar sem Danir gegna nú formennsku í Norrænu ráðherranefndinni eru þeir gestgjafar að þessu sinni. Fund- urinn, sem haldinn er einu sinni á ári, fer fram í Falsled Kro á Fjóni. Halldór sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að rætt hefði verið um norræna samvinnu og hvernig það samstarf hefði verið gert skilvirkara og hagkvæmara. Hann sagði stuðn- ing við þær aðgerðir mikinn og til að mynda hefði ráðherranefndum verið fækkað. „Mikill tími fór í að ræða um Evrópusamband- ið og útlitið þar. Stjórnarskrár- málið er í mikilli sjálfheldu og ljóst er að það skýrist ekki fyrr en á seinni hluta næsta árs í fyrsta lagi. Sambandið glímir við fleiri vandamál, eins og fjárlögin, en menn telja að þau leys- ist. Meiri óvissa ríkir með stjórnar- skrána“. Halldór sagði að alþjóðamál hefðu einnig verið rædd og ætlunin væri að auka samstarf vegna ham- fara og neyðarástands sem gæti skapast, eins og þegar flóðbylgjan fór yfir Suðaustur-Asíu og hafði í för með sér miklar hörmungar fyrir mörg norrænu löndin. „Síðan var rætt um samstarfið við Rússland, svo það bar margt á góma“. Ráð- herrarnir munu halda áfram óform- legum viðræðum í kvöld og á morgun og segir Halldór afar gagnlegt að hittast með þessum hætti. „Það er mikilvægt að menn kynnist, bæði ráðherrar og embættismenn, og geti lyft upp símanum hvenær sem er ef eitthvað kemur upp á.“ Að sögn Steingríms S. Ólafssonar, upplýsingafulltrúa forsætisráðu- neytisins, fer ekki fram stefnumót- un, heldur er hann vinnufundur. Ræddu stöðuna innan ESB og alþjóðamál Halldór Ásgrímsson TILLAGA um að Vinstri grænir velji fram- bjóðendur sína í borgarstjórnarkosningunum næsta vor með innanflokksprófkjöri eða svo- nefndu forvali verður rædd á félagsfundi Vinstri grænna í Reykjavík í kvöld. Fastlega er búist við því að tillagan verði samþykkt, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Þar með hafa Vinstri grænir formlega útilokað hug- myndir, sem upp hafa komið innan Samfylk- ingarinnar í Reykjavík, um að frambjóðendur R-listans verði valdir með opnu prófkjöri. Hvorki samfylkingarmenn né framsóknar- menn í Reykjavík hafa tekið formlega ákvörð- un um með hvaða hætti þeir vilja að frambjóð- endur verði valdir fyrir næstu borgar- stjórnarkosningar. Innan Samfylkingarinnar eru háværar raddir um opið prófkjör í Reykja- vík, eins og áður sagði, þ.e. að almenningur fái að kjósa fólk og borgarstjóraefni, en Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi framsóknar- manna, hefur sagt í samtali við Morgunblaðið að opið prófkjör hugnist ekki framsóknar- mönnum í borginni. Viðræður flokkanna þriggja sem standa að R-listanum héldu áfram á u.þ.b. tveggja tíma fundi í gær. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er einkum deilt um tvennt: í fyrsta lagi hve marga fulltrúa hver flokkur á að fá í átta efstu sætin á sameiginlegum framboðslista og í öðru lagi hvernig velja eigi þá fulltrúa á fram- boðslistann. Óháðir ekki með? Fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar voru framsóknarmenn með tvo fulltrúa í átta efstu sætum R-listans, Samfylkingin með tvo og Vinstri grænir með tvo. Tveir frambjóðendur voru óflokksbundnir, þ.e. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson. Ingibjörg gekk hins vegar formlega til liðs við Samfylk- inguna fyrir síðustu alþingiskosningar. Þar með var Samfylkingin komin með þrjá borg- arfulltrúa. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er vilji meðal samfylkingarmanna um að þeir fái að minnsta kosti fjóra fulltrúa í efstu sæti framboðslistans fyrir næstu kosningar. Fái þeir fjóra hafa hinir flokkarnir tveir fjögur sæti til skiptanna, sé gengið út frá því að óflokksbundnir verði ekki með. Vinstri grænir hafa hins vegar lagt áherslu á að hlutur flokk- anna verði sem jafnastur. Þeir hafa þó viðrað þá hugmynd að þeir fái þrjá fulltrúa í efstu sætin. Framsóknarmenn hafa hins vegar hald- ið sig við tvo fulltrúa, skv. heimildum Morg- unblaðsins. Fleiri þættir gætu þó skipt máli í viðræðunum um hlut flokkanna. Til að mynda hvaða flokkur fær borgarstjóraefnið, forseta borgarstjórnar og formann borgarráðs, svo dæmi séu nefnd. Þessir þættir hafa þó enn ekki verið mikið ræddir innan viðræðuhópsins. Skiptar skoðanir eru meðal viðmælenda Morgunblaðsins um það hvort óflokksbundnir séu enn inni í myndinni eða ekki. Eins og við- ræðurnar hafa þróast að undanförnu hefur þó ekki verið gert ráð fyrir þeim. Engin formleg ákvörðun hefur verið tekin í þessum efnum. Viðmælendur Morgunblaðsins eru hins veg- ar sammála því að ekki hafi komið fram mikill málefnaágreiningur í viðræðum flokkanna. Flokkarnir hafi vissulega ólíkar áherslur í ein- stökum málum, en um málefnapakkann í heild ætti, þrátt fyrir það, að geta náðst samstaða. Vinstri grænir ræða forval í kvöld Eftir Örnu Schram arna@mbl.is SLASAÐUR skipverji af fiski- bátnum Smáey frá Vestmanna- eyjum var fluttur til Hafnar í Hornafirði í gærmorgun og honum komið undir læknis- hendur. Hann hafði dottið um borð í bát sínum og skorist í andliti þegar hann lenti á fiski- kari. Vegna slyssins var björgun- arskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Ingibjörg frá Höfn, kallað út kl. 4.30 aðfara- nótt mánudags. Aðstæður voru góðar og gekk björgunarferðin vel. Slasaður sjómaður sóttur LÖGREGLAN í Reykjavík hefur til rannsóknar meinta nauðgun í Öskjuhlíðinni um helgina. Kona hafði leitað í Neyðarmóttöku á slysadeild og fékk lögreglan vitn- eskju um málið þaðan. Karlmaður sem talið er að hafi verið að verki hefur verið yfirheyrður en konan hefur ekki gefið skýrslu hjá lög- reglu. Konan og karlinn munu hafa verið í tjaldi í Öskjuhlíð undanfarna daga. Lögreglan verst frekari frétta af málinu þar sem upplýs- ingar frá konunni skortir enn. Yfirheyrður vegna nauðg- unarmáls LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hefur tekið saman og gefið út leiðbeining- arrit undir yfirskriftinni „Góðir starfshættir lækna“. Þar er grund- vallarreglum um góða starfshætti og kröfum um lækniskunnáttu, þjónustu og framkomu lýst sem læknar verða að geta uppfyllt á öll- um sviðum í starfi sínu. Sigurður Guðmundsson land- læknir segir tilganginn með útgáf- unni vera þann að koma þessum sjálfsögðu samskiptareglum á framfæri á einn stað en jafnframt að setja Landlæknisembættinu ákveðin viðmið um það hvernig embættið eiga að taka á og snúa sér í þeim kvörtunarmálum sem berist embættinu. Hann segir Landlækn- isembættið fá um 250 kvartanir ár- lega og stór hluti þeirra snýr að samskiptum, minnihlutinn eða um þriðjungur snýr að tæknilegum mistökum sem snerta framkvæmd aðgerða og fleira. Hann bendir á að samskipti lækna við sjúklinga og við aðra innan sinnar stéttar sé ekki síður mikilvæg en góð lækn- iskunnátta. Leiðbeiningarritið er á vefasíðunni www.landlaeknir.is. Góð samskipti lækna við sjúk- linga mikilvæg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.