Morgunblaðið - 28.06.2005, Síða 19
Laugavegi 170, 2. hæð • virka daga kl. 9:00-17:00 • Sími • Fax 552 1405 • www. • fold@fold.is
Viðar Böðvarsson
viðskiptafræðingur og löggiltur
fasteignasali
Þjónustusími sölumanna
eftir lokun 694 1401
Flyðrugrandi - 107 Rekjavík Vorum að
fá í einkasölu sérlega góða 2ja til 3ja
herb. íbúð á jarðhæð með sérsuðurver-
önd. Mjög góð staðsetning rétt við KR-
völlinn. Björt og falleg íbúð. Hús hefur
verið töluvert endurnýjað og lítur mjög
vel út að utan sem innan. Verð 14,5
millj. 6811
Brekkulækur - 105 Reykjavík Glæsileg
62 fm íbúð á fyrstu hæð í fallegu fjölbýl-
ishúsi. Íbúðin skiptist í svefnherbergi,
stofu, eldhús með fallegri innréttingu og
gott baðherbergi. Útgengi frá herb. út á
svalir og í garð. Verð 12,9 millj. 6933
Sogavegur - 108 Reykjavík Vel skipu-
lögð, rúmgóð og falleg 2ja herb. 60 fm
íbúð með sérinngangi á jarðhæð - geng-
ið beint inn. Snyrtilegur garður og góð
aðkoma. Róleg og góð staðsetning í
botngötu. Verð 12,9 millj. 6787
Engihjalli - 200 Kópavogi Falleg og vel
um genginn 64 fm rúmgóð 2ja herbergja
íbúð á þessum skemmtilega stað í
Hjallahverfi Kópavogs, sem nú er að
verða eitt mesta miðsvæðishverfi á stór-
Reykjavíkursvæðinu. Íbúðin er skemmti-
lega skipulögð, stór stofa, rúmgott her-
bergi og svalir meðfram allri íbúðinni.
Verð 12,3 millj. nr. 6812
Sveitasetur - Kiðjaberg 801 - Selfossi
Stórglæsilegt nýtt 70 fm sumarhús með
um 140 fm verönd. 3 svefnherb., stór
stofa og sérlega fallegt baðherbergi.
Sérsmíðaðar innréttingar, halogen-lýs-
ing, brunavarnarkerfi, auka hljóðeinangr-
un í veggjum. Eikarparket og viðhaldsfrí-
ar náttúruflísar á gólfi. Bústaðurinn er
mjög vel staðsettur. Frá honum er stór-
fenglegt útsýni yfir Hvítá og til fjalla.
Stutt er í golfvöllinn á Kiðjabergi, sem er
einstaklega fallega staðsettur völlur.
Stutt er í sund í Hraunborgum. Tækifæri
til að eignast nýjan og glæsilegan bú-
stað á frábærum stað.
Sumarbústaðir
Eignir vikunnar
Eignin
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 19
MINNSTAÐUR
Keflavík | „Fyrst þegar ég fékk fréttirnar fannst
mér þetta óraunverulegt. Núna er tilhlökkun efst í
huga, að fá tækifæri til að helga mig því sem ég hef
mestan áhuga á,“ segir Bylgja Dís Gunnarsdóttir,
sópransöngkona og stjórnandi Barnakórs Kefla-
víkurkirkju. Hún heldur til Skotlands í haust með
fjölskyldu sinni til að stunda meistaranám við
óperudeild tónlistarskóla í Glasgow.
Frá því Bylgja Dís lauk námi við Söngskólann í
Reykjavík 2003 hefur hún verið að huga að fram-
haldsnámi. Hún hefur farið til Ítalíu og Bandaríkj-
anna en segir að það hafi ekki gengið upp, meðal
annars vegna barnanna. Síðast fór hún í nokkra
tíma til söngkennara í Wales. „Kennarinn þar
hvatti mig mjög til að fara yfir til Skotlands og
hitta yfirmann söngdeildarinnar þar. Þá var um-
sóknarfresturinn liðinn en yfirmaðurinn var tilbú-
inn til að taka við síðbúinni umsókn og bað mig um
að syngja fyrir,“ segir Bylgja Dís. Og hún komst
inn í óperudeildina við Royal Scottish Academy of
Music and Drama.
„Þetta er frábært tækifæri, maður verður ekki
ungur að eilífu. Það sækja margir um þetta nám og
mín umsókn kom seint. Ég hafði því ætlað mér að
syngja fyrir á fleiri stöðum en allir bentu mér á
þennan skóla sem væri sá mest spennandi á Bret-
landseyjum um þessar mundir. Ég var því ekki
með neina varaáætlun og það kom sér vel að kom-
ast þar að,“ segir hún.
Gaman að vinna með börnum
Bylgja Dís er fædd og uppalin í Keflavík. Hún
hefur verið í Kirkjukór Keflavíkurkirkju und-
anfarin ár og sungið mikið einsöng með kórnum og
án hans við ýmsar athafnir. Þá hefur hún sungið
með kammerkór í Reykjavík. Fyrir tveimur árum
ákvað sóknarnefnd Keflavíkurkirkju að stofna
barnakór við kirkjuna og fól henni og Hákoni
Leifssyni söngstjóra að undirbúa það og Bylgja
Dís tók síðan að sér að stjórna kórnum.
„Þetta hefur gengið mjög vel. Mikill áhugi hefur
verið á kórnum frá upphafi og margir krakkar tek-
ið þátt. Þá hefur þetta verið gott fyrir starfið í
kirkjunni, að fá börnin þangað inn,“ segir Bylgja
Dís.
Hlakka til að byrja
Bylgja segist alltaf hafa haft gaman af því að
vinna með börnum. Hún hafi ætlað að verða leik-
skólakennari og byrjað í því námi á sínum tíma. Því
hafi stjórnun barnakórsins átt vel við hana og verið
gefandi starf. „En nú er ég búin að skila þessu af
mér og sé svolítið eftir börnunum,“ segir hún.
Bylgja Dís er gift og móðir tveggja barna, 6 og 9
ára. Fjölskyldan fer með henni til Glasgow. Börnin
hafa fengið inni í skóla og eiginmaður hennar stefn-
ir líka að því að fara í nám, þótt ekki verði það
fyrstu mánuðina. „Ég er sérstaklega lánsöm að
eiga fjölskyldu sem vill taka þátt í þessu með mér
og styður við bakið á mér í þessu púsluspili,“ segir
hún. „Fólkið sem ég hef kynnst við skólann er vin-
gjarnlegt og uppörvandi og ég hlakka mikið til að
byrja.“
Bylgja Dís Gunnarsdóttir söngkona fer í framhaldsnám til Skotlands
Sé svolítið eftir barnakórnum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gamli vinnustaðurinn Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópransöngkona hefur verið í Kirkjukór Keflavík-
urkirkju og stjórnað barnakór kirkjunnar undanfarin ár. Hún er nú á förum til Skotlands.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SUÐURNES
LANDIÐ
Mývatnssveit | Bygging sem hýsa á
fuglasafn Sigurgeirs verður reist í
sumar á bakka Neslandavíkur Mý-
vatns. Félag um uppbyggingu safns-
ins fékk úthlutað 150 þúsund króna
styrk úr Þjóðhátíðarsjóði á dög-
unum.
Sigurgeir Stefánsson í Ytri-
Neslöndum var mikill fuglavinur,
hann bæði safnaði fuglshömum og
myndaði fugla. Hafði hann safnað yf-
ir 300 fuglum og 100 tegundum eggja
þegar hann fórst í sviplegu slysi á
Mývatni 26. október 1999 við þriðja
mann. Hann var þá 37 ára. Vinnu-
félagar Sigurgeirs í Kísiliðjunni, fjöl-
skylda og vinir hafa síðan stefnt að
byggingu húss yfir fuglasafn hans.
Lagður hefur verið vegur að svæð-
inu við Neslandavík og tekinn grunn-
ur að glæsilegu safnhúsi sem Man-
freð Vilhjálmsson arkitekt hannaði.
Margir hafa lagt málinu lið svo sem
Kiwanisklúbburinn Herðubreið og
Starfsmannafélag Kísiliðjunnar, auk
fjölmargra einstaklinga og fyr-
irtækja.
Að sögn Péturs Bjarna Gísla-
sonar, framkvæmdastjóra verkefn-
isins, er ætlunin að byggja safnhúsið
á þessu ári. Þar til sú bygging rís
verður safnið í mjög ófullkomnu 13
fermetra húsnæði í Neslöndum. Þar
geta þeir sem þess óska fengið að líta
á safnið þó aðstaða til sýningar sé
slæm.
Sparisjóður Þingeyinga hefur um-
sjón með minningarsjóði. Þar er
hægt að styrkja byggingu fugla-
safnsins. Heimasíða fuglasafns
Sigurgeirs er á slóðinni fuglasafn.-
nett.is.
Byggt yfir fuglasafn
Sigurgeirs í Neslandavík
Morgunblaðið/BFH
Í safninu Feðgarnir Pétur Bjarni Gíslason og Stefán Jón Pétursson stadd-
ir innan um fuglana hans Sigurgeirs Stefánssonar í Neslöndum.
Eftir Birki Fanndal Haraldsson
Hólmavík | Heimamenn verða í
aðalhlutverki á Hamingjudög-
um á Hólmavík, fyrstu bæjarhá-
tíðinni sem þar er haldin. Hátíð-
in hefst með hagyrðingakvöldi
næstkomandi fimmtudagskvöld
en lýkur síðdegis á sunnudag.
Hreppsnefnd Hólmavík-
urhrepps kaus menningar-
málanefnd síðastliðinn vetur og
lét hún það verða sitt verkefni
að efna til bæjarhátíðar. „Svona
hátíð hefur samfélagsleg áhrif.
Vekur alla bæjarbúa til um-
hugsunar um umhverfið og bæ-
inn sinn. Það met ég mest,“ seg-
ir Bjarni Ómar Haraldsson,
framkvæmdastjóri Ham-
ingjudaga. Hann bætir því við
að tækifæri gefist fyrir heima-
menn að gera sér glaðan dag og
kalla saman brottflutta Hólm-
víkinga. Vegna hins skamma
undirbúningstíma var erfitt að
fá skemmtikrafta og lögð
áhersla á að gefa heimamönn-
um tækifæri.
Dagskráin er með hefð-
bundnu sniði slíkra bæjarhátíða.
Hátíðin verður sett formlega á
föstudagskvöld, á hátíðarsvæði í
Kirkjuhvammi. Þá heldur Idol-
stjarnan Heiða Ólafs, sem er frá
Hólmavík, tónleika með hljóm-
sveit sinni. Fjölmörg tónlistar-
og skemmtiatriði verða á úti-
palli á laugardeginum. Þá um
kvöldi verður blót að heiðnum
sið við Galdrasýninguna og síð-
an blysför þaðan, varðeldur og
fjöldasöngur. Á sunnudag verða
tónleikar með KK og Ellen
Kristjánsdóttur í Hólmavíkur-
kirkju, svo nokkuð sé nefnt af
atriðum á dagskránni.
Heimamenn í
aðalhlutverki á
Hamingjudögum