Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI AUSTURLAND Egilsstaðir | Álftir hafa gert óskunda í túnum það sem af er sumri. Á dögunum sátu hvorki fleiri né færri en 46 álftir á túni á Egilsstaðanesinu og gerðu sér gott af nýgræðingnum. Fleiri flugu yfir og hugsuðu sér gott til glóðar- innar af gnægtaborði akursins. Bændur eru leiðir á þessum ágangi en segja lítt tjóa að reka þær burt, þær séu umsvifalaust komnar aftur. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Af gnægtaborði akursins Reyðarfjörður | Alcoa Fjarðaál hefur sýnt því mikinn áhuga að fá konur til vinnu í álverinu. Undanfarið hafa staðið yfir kynningar á starfsaðstöðu og vinnuumhverfi sem konum jafnt sem körlum býðst þar. Hrönn Péturs- dóttir, starfsmanna- og kynningar- stjóri hjá Alcoa Fjarðaáli, hefur stýrt fundum og segir að álverið muni þarfnast starfsfólks með mjög fjöl- breytta menntun og reynslu. Á kynningum hefur m.a. komið fram að það að vinna í álveri sé al- mennt eftirsóknarvert, margir sæki um, laun séu góð og starfsmannavelta lítil. Æskilegt sé að hafa fólk á öllum aldri við störf. Vinnuvikan er skv. könnun Kjararannsóknarnefndar fyrir verkafólk í stóriðju árið 2004 að meðaltali 42,4 klst. og hjá Alcoa Fjarðaáli verða vaktirnar 8 klst. dag-, kvöld- og næturvaktir. Innan við helmingur starfsmanna vinnur í vaktavinnu, hinir í dagvinnu ein- göngu. Öll menntun veitir forskot Álverið er komið til að vera, þar er atvinnuöryggi og starfsemin 24 klst. á sólahring alla daga ársins. Í álverinu fer fram hátækni- og þekkingarvinna, almenn framleiðslu- störf felast að miklu leyti í stjórnun framleiðslutækja, vinnuvéla og fram- leiðslustýrikerfa og við það eiga kon- ur að geta unnið jafnt og karlar. Ekki er seinna vænna en að byrja strax að afla sér menntunar; öll menntun veit- ir forskot þegar kemur að umsóknum um störf í álverinu. Fræðslunet Aust- urlands og framhaldsskólarnir bjóða fram fjölbreytt úrval námsefnis m.a. í ýmsum iðngreinum og tölvulæsi, einnig ýmis vinnuvélaréttindi o.fl. Álverið verður fjölskylduvænn vinnustaður, áhersla er á að öll störf verði fjölbreytt, góður stuðningur við starfsmenn og stöðugt leitað að úr- bótum til framþróunar. Áhersla verð- ur á virka þátttöku starfsmanna í öll- um þáttum starfseminnar, í gegnum sjálfstýrð teymi og þátttöku ein- stakra teymismeðlima í stoðþjónustu- verkefnum. Á þeim fundum sem haldnir hafa verið með konum hefur verið rætt um gæslu barna, ekki sé sveigjanleiki á leikskólum, möguleikar á hlutastörf- um, tungumálaörðugleikar o.fl. Ís- lenska verður tungumál álversins svo konur ættu ekki að láta tungumála- kunnáttu aftra sér frá að sækja um starf. Konur geta, vilja og þora Eftir Hallfríði Bjarnadóttur eth1@simnet.is Reyðarfjörður | Útibú Landsbanka Íslands á Reyðarfirði er flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði í verslunar- og þjónustumiðstöðinni Molanum. Þar eru nýjustu tæki og tækni hvert sem litið er og mjög vel búið að starfsfólki sem og viðskiptavinum. Húsnæðið er 150 fermetrar og stöðugildi þrjú. Hraðbanki hefur verið settur upp í vesturinngangi Molans. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Glænýtt útibú Sigurður Ásgeirsson, útibússtjóri Landsbankans á Reyðar- firði, mátar einn gjaldkerastólinn. Landsbankinn flytur Egilsstaðir | Hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands voru ný- verið veitt í sjötta sinn. Héraðsprent á Egilsstöðum hlaut hvatningarverð- laun ársins fyrir metnaðarfulla upp- byggingu á prentsmiðjurekstri, ára- tuga farsælan rekstur og vandaða þjónustu. Verðlaunagripurinn kom að venju úr höndum handverksfólks á Austurlandi og var að þessu sinni áletraður stuðlabergslampi frá fyr- irtækinu Álfasteini á Borgarfirði eystra. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra þann aðila (einstakling, fyr- irtæki, stofnun, félagasamtök eða stjórnvald) sem að mati dómnefndar félagsins er best að slíkri viðurkenn- ingu kominn, fyrir vel unnin störf í þágu fyrirtækja eða stofnana á Aust- urlandi og/eða hafi verið öðrum í at- vinnulífi á Austurlandi sérstök hvatning eða fyrirmynd. Áður hafa Kristbjörg Krist- mundsdóttir á Reyðarfirði, Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði, Síldar- vinnslan hf. í Neskaupstað, Gísli Jónatansson á Fáskrúðsfirði og Smári Geirsson í Neskaupstað hlotið hvatningarverðlaun Þróunarfélags- ins. Auk verðlaunanna eru árlega veittar þrjár viðurkenningar fyrir athyglisverða nýsköpun og metnað- arfull þróunarverkefni í austfirsku atvinnulífi. Í ár hljóta slíkar viður- kenningar Ferðaskrifstofa Austur- lands á Egilsstöðum, Íslensk Olíu- miðlun á Norðfirði og Hótel Svartiskógur í Jökulsárhlíð. Héraðsprent hlaut hvatningarverðlaun Boðið var upp á glæsileg til-þrif á árlegri Flughelgisem fram fór á Akureyrium helgina. Það var ekki síst listflugið sem heillaði viðstadda, þar sem m.a. þekktir flugkappar eins og Arngrímur Jóhannsson og Magn- ús Norðdahl sýndu listir sínar. Magnús er orðinn 77 ára, en sýn- ing hans vakti mikla athygli og full- yrti Ómar Ragnarsson, sem var kynnir á hátíðinni, að enginn annar maður í heiminum svo gamall léki sömu kúnstir og Magnús. En listflug var ekki bara sýnt, heldur fór Íslandsmót í greininni fram. Helgi Kristjánsson varð Ís- landsmeistari á rússneskri Yak 55- vél og Ingólfur Jónsson varð annar í keppninni, á Pitch Special. Vert er að geta þess að sérstakir gestir hátíðarinnar að þessu sinni voru nokkrir meðlimir 269. her- sveitar Konunglega breska flughers- ins sem staðsett var á Kaldraðarnesi á stríðsárunum, en sú sveit fann ein- mitt og fangaði fyrsta þýska kafbát- inn sem þá náðist hér við land. „Þessir karlar hafa tekið miklu ástfóstri við Ísland,“ sagði Arn- grímur Jóhannsson í samtali við Morgunblaðið, en hann bauð þeim 11 sem lifandi voru úr sveitinni hingað til lands 1997. Fimm sveitarmenn komu að þessu sinni. Eitt af því sem mesta aðdáun vakti um helgina var framlag Írans Brend- ans O’Brian sem þykir sérlega fimur við að stýra Piper Cub. Hann flaug m.a. á hlið dágóðan spöl og lék sér svo að því að snerta flugbrautina með vinstra og hægra framhjólinu á víxl; dansaði eftir brautinni. Sýning helguð Jóhannesi Á laugardag var opnuð í Flugsafn- inu á Akureyrarflugvelli sýning helg- uð Jóhannesi Snorrasyni, fyrrver- andi flugstjóra. Hann er fæddur 12. nóvember 1917, á Flateyri, en ólst upp á Akureyri. Jóhannes fékk ungur áhuga á flugi og var í hópi ungra manna á Akur- eyri sem stofnuðu Svifflugfélag Ak- ureyrar árið 1937. Jóhannes var flugstjóri í fyrsta millilandaflugi Íslendinga með far- þega árið 1945. Var það til Skotlands og var farkosturinn Catalina flug- bátur. Af öðrum flugvélategundum sem Jóhannes flaug má nefna Grumman Goose, Douglas DC-3, DC-4, DC-6, Vickers Viscount og síð- ast Boeing 727 þotu. Hann varð yfirflugstjóri Flug- félags Íslands árið 1946 og gengdi því hlutverki þar til hann lauk ferli sínum 7. nóvember 1980, þá í þjón- ustu Flugleiða. Var þá 37 ára at- vinnuflug að baki og 30.000 flug- tímar, þar með eru taldar sekúndurnar sem hann flaug Grunau 9 í Eyjafirði - en það var rennifluga (sviffluga) sem stofnendur Svifflug- félags Akureyrar hófust handa við að smíða strax eftir stofnun félagsins, eftir þýskri teikningu. Á þessari vél lærðu þeir svo að fljúga. Rennifluga þessi er enn til, í Flug- safninu á Akureyri, og er enn flug- hæf. Glæsilegar kúnstir. Írinn Brendan O’ Brian sýnir listir sínar á Piper Cub J3. Hann er þekktur fyrir ýmislegt óvenjulegt og hefur t.d. stundað það að lenda á vörubílspöllum á Cub! Sæll, frændi! Ingólfur Jónsson á Pitch Special heilsar áhorfanda að sýningunni, einum af fugl- um himinsins. Ingólfur varð í öðru sæti á Íslandsmótinu í listflugi. Glæsileg tilþrif í flugveislunni Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skrifað í skýin! Arngrímur Jóhannsson sýnir listir sínar við Akureyrar- flugvöll um helgina á Pitch-vél sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.