Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 23

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 23 MENNING Það þyrfti einhver að taka aðsér að rannsaka hvernigfólk „neytir“ lista eftir árs- tíðum. Margir segjast lesa annars konar bókmenntir á sumrin en á veturna og kjósa annars konar bíó- myndir á haustin en vorin. Þetta ætti að vera forvitnilegt rannsókn- arefni fyrir þá sem miðla listum, og einnig fyrir þá sem hafa áhuga á mannlegri hegðun yfirleitt. Það segjast til dæmis margir frekar taka upp léttari bókmenntir á sumrin; lesa reyfara, glæpasög- ur, ástarsögur, ferðabækur og þess konar bókmenntir, en drama- tískari skáldsögur eigi betur við á veturna, og að rómantískar gam- anmyndir eigi betur við á sumrin, en alvörugefnari ræmur passi vetr- inum betur. Hvers vegna þetta er svona er ómögulegt að segja. Sumrinu fylgir léttleiki eftir vetr- arþyngsli – en hvers vegna vill þá fólk ekki einmitt auðvelda sér skammdegið með því að vera á léttari listafóðrum. Auðvitað er þetta allt einstaklingsbundið, þótt margt bendi til ákveðinna al- mennra tilhneiginga í þessa veruna. Hvað sjálfa mig snertir, tek ég vel eftir breyttu hegðunarmynstri í listneyslunni frá vetri til sumars, án þess að ég geti skýrt af hverju það stafar. Síðustu sumur hafa til dæmis verið ævisögubækur í mín- um ranni. Í fyrrasumar las ég stór- merkilega ævisögu Janisar Joplin, Love, Janis, ritaða af Lauru systur hennar, og í framhaldi af því firna- góða ævisögu Duke Ellington eftir Mark Tucker. Sú bók er bæði ít- arleg og vönduð á allan hátt og er gripur sem allir sem á annað borð elska músík Ellingtons ættu að lesa.    Í sumar ætla ég að rifja uppkynnin af ævisögu sem ég las fyrir allmörgum árum, en það er sjálfsævisaga rússnesku óperusöngkonunnar Galínu Vishnjevskaju. Allar eiga þessar ævisögur það sameiginlegt að þær gefa einstaklega víða og marg- slungna sýn á þessar persónur. All- ar lifðu þær á tímum mikilla breyt- inga á 20. öld – Ellington á þeim tímum þegar blökkumenn voru að kveðja sér hljóðs og krefjast jafn- réttis á við hvíta, Janis á umróts- tímum 68-kynslóðarinnar og Gal- ína á tímum seinni heimsstyrj- aldarinnar og kalda stríðsins. Persónuleg lýsing hennar á um- sátrinu um Leningrad, þar sem hún nær svalt til dauða með dauð- vona ömmu sína sér við hlið, er ein áhrifamesta stríðsminning sem ég man eftir. Það er reyndar ótrúlegt að manneskja sem upplifði alla hennar harma, barnamissi, ofbeldi, drykkjuskap, stríð, hungur og fá- tækt, skyldi að endingu standa upp og stíga til frægðar og frama eins og hún gerði. Skrif hennar um samskiptin við Stalín og hans pót- intáta eru einstök heimild um það hverjum augum listir voru litnar í Sovétríkjum þess tíma, og vitna vel um hvílíkan línudans listamenn urðu að stíga til að lifa af með list sinni til þess að glata ekki sam- visku sinni og sannfæringu. Þessi saga var þýdd á íslensku á sínum tíma.    Það er sama með tónlistina. Núþegar vetrartónlistin er komin upp í hillu tekur sumarmúsíkin við. Það þekkja vafalaust ekki margir hér argentínska söngvameistarann Edouardo Falú. Í heimalandi sínu er hann þó mikils metinn snill- ingur. Fyrir nokkrum árum áskotnaðist mér diskurinn Resol- ana, þar sem hann syngur og spilar á gítarinn sinn eigin lög, og mér fannst hann himnasending. Falú er gítarsnillingur og hefur til dæmis löngum verið í miklum metum hjá flamencokónginum Paco Peña. Þýð barítonrödd hans hefur ein- stakan sjarma, farin að reskjast, en full þokka, hlýju og tilfinninga. Lögin hans eru einstök og þegar þau eru komin í spilarann er sum- arið sannarlega komið. Annar gít- armeistari sem hefur stungið upp kollinum mörg sumur í röð í spil- aranum mínum er Eric Clapton. Þessi diskur, From the Cradle, er trúlega ekki einn af þekktustu diskum hans – en ég held svei mér að hann hljóti að vera einn af þeim allra bestu. Þarna er Clapton á svipuðum nótum og hann var þeg- ar hann byrjaði í tónlistinni – í blúsnum. Þarna eru margar perlur eldri meistara, lög sem hann gerir fantavel og af mikilli tilfinningu og virðingu fyrir músík og texta. Þetta er sumardiskur af bestu gerð. Listasumarið á náttborðinu ’Falú er gítarsnillingurog hefur til dæmis löngum verið í miklum metum hjá flamenco- kónginum Paco Peña. Þýð barítonrödd hans hefur einstakan sjarma, farin að reskj- ast, en full þokka, hlýju og tilfinninga.‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Reuters Eric Clapton kom fram á tónleik- unum Blowin’ the Blues Away í Appollóleikhúsinu í New York á dögunum, og hefur vísast spilað þar einhverja þeirra blúsa sem hann tekur á plötunni From the Cradle. begga@mbl.is ÍTALSKIR, spænskir og íslenskir tónar munu hljóma í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar í kvöld þegar Helga Þórarinsdóttir víóluleikari og Kristinn H. Árnason gítarleikari munu flytja nokkur verk á einum af mörgum sumartónleikum safnsins þetta árið. Helga segir hljóðfærin klæða hvort annað mjög vel þótt samsetn- ingin sé frekar óvenjuleg. „Það er íslenskur maður, Arn- aldur Arnarson, sem rekur gít- arbúð í Barcelona og einhvern tím- ann pantaði ég heilmikið af verkum bæði fyrir selló og gítar og víólu og gítar hjá honum. Það var úr þeim verkum sem við völdum fyrir kvöld- ið,“ segir hún aðspurð um efnis- skrána. Dramatík og gleði Tónleikarnir hefjast á Sónötu í G-dúr eftir Benedetto Marcello, feneyskan aðalsmann, fiðluleikara og tónskáld, og segir Helga verkið létt og glaðlegt. Þá verður flutt Sónata nr. 5 í E-moll eftir Antonio Vivaldi, sem einnig var frá Fen- eyjum, og er sónatan ein af síðustu verkunum sem gefin voru út eftir hann. „Ég hef haldið upp á þessa sónötu Vivaldis síðan ég var lítil stelpa og heyrði hana fyrst í út- færslu fyrir selló og strengjasveit,“ lýsir Helga. „Það er merkilegt að Marcello og Vivaldi voru uppi á sama tíma en þessar sónötur þeirra eru mjög ólíkar. Á meðan Vivaldis er dramatísk samdi Marcello mun glaðlegra verk.“ Dúett op. 137 nr. 1 í C-dúr eftir tónskáldið Ferdinando Carulli er þriðja verkið á dagskránni í kvöld, en Carulli var gítarleikari frá Nap- ólí. Verkið er skrifað fyrir víólu og gítar og er í snemmklassískum stíl. Íslenska skáld tónleikanna er Árni Thorsteinsson og munu Helga og Kristinn flytja þrjú verk eftir hann í útsetningu Kristins. Að lokum flytja þau spænskt verk eftir Manuel de Falla, Prem- iere Danse Espagnole, sem samið var upp úr óperueinþáttungnum La Vida Breve. Lágvær en skemmtileg Helga, sem hefur leitt víóludeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá 1983, og Kristinn, sem hlaut Ís- lensku tónlistarverðlaunin árið 1997 fyrir geisladisk með verkum Sor og Ponce, hafa einungis spilað einu sinni saman áður, á hádegistón- leikum í Norræna húsinu. Helga segir samspilið einkar skemmtilegt og hún vonar að þau muni leika meira saman í framtíðinni. „Hljóð- færin eru fyrirferðarlítil svo auðvelt væri að ferðast um með þau. Mig myndi jafnvel langa að fara út á land og spila í sveitakirkjum svo það er aldrei að vita hvað við ger- um næst.“ Blönduna af víólu- og gítarleik, sem eru bæði lágvær hljóðfæri, segir Helga skemmtilega. „Sam- starf okkar Kristins er búið að vera fínt. Við höfum æft mikið og það er búið að vera ægilega gaman.“ Tónleikarnir í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar hefjast klukkan 20.30 í kvöld. Tónlist | Sumartónleikar í Sigurjónssafni Hefur haldið upp á Vivaldi síðan í æsku Morgunblaðið/Þorkell Helga Þórarinsdóttir og Kristinn H. Árnason leika ítölsk, íslensk og spænsk verk á víólu og gítar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld. Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@mbl.is MYNDLISTARKONAN Rúna, Sig- rún Guðjónsdóttir, var á dögunum valin bæjarlistamaður Hafn- arfjarðar en valið fór fram í tengslum við árlega afmælishátíð bæjarins í byrjun mánaðarins. „Það er afskaplega ánægjulegt að vera valin fyrsti bæjarlistamaður Hafnarfjarðar og mér er þetta mikill heiður,“ sagði Rúna í samtali við Morgunblaðið. „Ég hlaut styrk að upphæð 600 þúsund krónur sem ég mun nýta á ýmsan máta. Hann held- ur mér við efnið.“ Marín Hrafnsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðar, segir að það hafi verið lengi á döfinni að bæjarfélagið veldi sér bæjarlista- mann. Það var þó ekki fyrr en í ár að fjármagn fékkst. „Áður höfum við veitt viðurkenningar á Sverrisdegi Hafnarborgar og veitt útnefndum farandgrip. En í ár er það í fyrsta skipti sem nafnbótin bæjarlistamað- ur er veitt ásamt peningagjöf,“ segir Marín. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar óskaði eftir tilnefn- ingum og umsóknum en var þó ekki bundin þeim. Fjölmargar ábend- ingar og umsóknir bárust. Ásamt því að Rúna hlaut 600 þús- und krónur voru þeim Brynhildi Pálsdóttur hönnunarnema og Eyj- ólfi Eyjólfssyni söngnema veittir hvatningarstyrkir að upphæð 200 þúsund krónur hvor. Heldur sínu striki Marín segir mjög mikla einingu hafa verið innan nefndarinnar vegna valsins í ár og er stefnt að því að út- nefna bæjarlistamann næstu árin í tengslum við afmælishátíðina en Hafnarfjörður átti 97 ára afmæli í ár. Myndir Rúnu hafa verið til sýnis á Hrafnistu í Hafnarfirði í júnímánuði og stefnir hún að því að halda aðra sýningu á næsta ári. Hún segist halda sínu striki og vinnur bæði að akrýlmyndum á handgerðan jap- anskan pappír ásamt flísamyndum. „Ég er gömul í hettunni og vinn enn þá út frá lýrískum abstraktsjón- um. Landslagið er aldrei langt und- an, það kveikir í mér þegar ég ferðast og svo blunda í mér gamlar minningar,“ segir Rúna en jafnframt segist hún aldrei ferðast nóg. Rúna segir mikilvægt að listafólki landsins sé veitt viðurkenningar og styrkir og þykir löngu tímabært að koma á nafnbót sem þessari. „Allt sem styrkir menninguna er mikils virði,“ segir hún að lokum. Listir | Bæjarlistamaður Hafnar- fjarðar valinn í fyrsta sinn „Gömul í hettunni“ en á nóg eftir enn Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@mbl.is Ljósmynd/Þorgrímur Gestsson Rúna við teikniborðið á heimili sínu í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.