Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 30

Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR tæpu ári kynnti Jón Krist- jánsson heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra að hann vildi beita sér fyrir lagasetningu um reykleysi á veitinga- og skemmtistöðum. Með því var á pólitískan hátt byrjað að marka þá stefnu hér á landi sem hófst í Bandaríkjunum og síðar í nokkrum Evrópulöndum og verður án efa fljótt hin almenna stefna í Evrópu. Rökin eru ein- föld og skýr: Óbeinar reykingar valda sjúk- dómum og dauða og því ber að tryggja öllu fólki reyklaust vinnuum- hverfi. Í janúar sl. hélt Læknafélag Íslands málþing um óbeinar reykingar. Þar var Erna Hauksdóttir frá Samtökum ferðaþjón- ustunnar (SAF) einn framsögumanna og fram kom í máli hennar að ýmsir rekstraraðilar veitinga- og skemmtistaða hefðu stigið skref í átt til reykleysis og því yrði að halda áfram. Nokkrum vikum síðar kom fram á Alþingi frumvarp sem tók á þessu máli og fyrsti flutningsmaður var ein þeirra sem sat áðurnefnt mál- þing, Siv Friðleifsdóttir. Mikil við- brögð urðu í samfélaginu með til- komu frumvarpsins. Í byrjun fóru örfáir einstaklingar mikinn, höfðu allt á hornum sér og reyndu með rök- leysu að hnekkja réttmæti frum- varpsins. Þeir voru hins vegar mun fleiri sem studdu frumvarpið og rödd þeirra hefur heyrst reglulega fram að þessu. Mál hafa þróast hratt og skemmst er frá því að segja að stétt- arfélög fólks sem vinnur á viðkom- andi stöðum hafa látið sig málið varða og vilja tryggja sínu fólki sama rétt og öðru vinnandi fólki. Þannig hafa bæði Mat- vís og Efling tekið sterklega undir mik- ilvægi lagasetningar í þessa veru. Í mars sl. héldu svo rekstraraðilar þessara vinnustaða (SAF) aðalfund sinn. Þeir setja greinilega heilsu starfsmanna sinna í öndvegi, því að- alfundurinn var skýr í þeirri afstöðu að banna beri reykingar. Ekki bann með einhvers kon- ar reyksvæðum eða öðrum afslætti, heldur algjört bann og án undantekn- inga. Þetta er ábyrg afstaða, að vilja ekki bara skapa sumum heldur öllum sínum starfsmönnum heilsusamlegar vinnuaðstæður alls staðar og alltaf. Rekstraraðilar í mörgum löndum hafa ekki sýnt svona ábyrgt fordæmi. Í þessu þarfa máli hefur unnist áfangasigur. Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kom því á dagskrá og fól ráðgjöfum sínum smíði frumvarps og greinargerðar. Þegar ekki reyndist grundvöllur fyrir því að ríkisstjórnin sameinaðist um málið, kom sú vinna sér vel og flýtti fyrir þegar Siv Friðleifsdóttir og félagar lögðu fram sitt frumvarp. Mitt mat er að mikill meirihluti þjóðarinnar telji löggjöf í þessa veru bæði réttmæta og tímabæra. Þeim rökum gegn frum- varpinu, að starfsmenn hafi ekki ósk- að eftir þessu, hefur verið hnekkt með því að stéttarfélög margra þeirra og starfsmenn hafa lýst vilja sínum til að fá þessi sjálfsögðu réttindi. Aðal- fundur SAF hefur rutt veginn fyrir þá stjórnmálamenn og aðra sem ekki treystu sér til að styðja málið, með þeim rökum að rekstraraðilar ættu sjálfir að ákveða þetta. Þeir hafa talað og rödd þeirra er há, skýr og einróma – bann skal það vera og reyklaust loft við vinnu – fyrir alla starfsmenn, allt- af og án undantekninga. Af þessum skýra vilja mun hæstvirt Alþingi án efa taka mið og þingmenn allra flokka sameinast um lagasetningu á haust- þingi 2005, sem tryggi öllu fólki reyk- laust vinnuumhverfi. Reykleysi við vinnu – húrra! Pétur Heimisson fjallar um löggjöf um reykingar ’Mitt mat er að mikillmeirihluti þjóðarinnar telji löggjöf í þessa veru bæði réttmæta og tíma- bæra.‘ Pétur Heimisson Höfundur er heimilislæknir á Egils- stöðum og formaður tóbaksvarnaráðs Lýðheilsustöðvar. Mikið af góðum 50% tilboðum Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 Mörkinni 6, sími 588 5518 Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrir- munað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum til- vikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppn- islög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á hon- um. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hags- muni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrver- andi. Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heim- ilisofbeldi og kortleggjum þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel. Svava Björnsdóttir: Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa landsmenn að fyrir- byggja að það gerist. Forvarnir gerast með fræðslu almenn- ings. Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræðisþróun á Íslandi hef- ur, þrátt fyrir allt, verið til fyr- irmyndar og á að vera það áfram.“ Pétur Steinn Guðmundsson: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu sam- ræmi við áður gefnar yfirlýs- ingar framkvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleigurnar.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar ÞRÁTT fyrir að mikið gangi á í Brussel þessa dagana, bæði varð- andi neitun Frakka og Hollendinga á stjórnarskrá ESB og deilur vegna fjár- mögnunar Sam- bandsins, er langt því frá að einhver hætta sé á því að ESB sé að liðast í sundur. Sameig- inlegir hagsmunir aðildarríkjanna eru það miklir að öruggt er að þau munu að lokum ná málamiðl- unum í þessum stóru málum. Á margan hátt má líkja þessu við vaxtarverki ung- lings sem er að breytast í fullorðna manneskju. Mörg stór mál bíða Evr- ópusambandsins á næstu árum. Króat- ía, Búlgaría og Rúm- enía eru við anddyr- ið og aðildarviðræð- ur við Tyrkland hefjast í lok þessa árs. Erfiðleikar eins og hafa komið upp í kringum stjórn- arskrá Evrópusam- bandsins eru ekki nýir af nálinni. Sam- bærileg mál komu upp í tengslum við Maastricht-samninginn og sátt- málana í Nice og Amsterdam. Einnig man vel upplýst áhugafólk um Evrópumál stirðleikann á milli Bretlands og hinna aðild- arríkjanna þegar Thatcher var við völd í London. Þar að auki má rifja upp að De Gaulle gerði allt vitlaust á árunum 1964–66 með því að reyna að auka áhrif Frakka innan ESB. Sambandið stóð þetta allt af sér og kom mun sterkara út úr þessum erfið- leikum en áður. Því er hins vegar ekki að leyna að flækjustigið er mun meira um þessar mundir því nú koma 25 ríki að mál- inu, hvert með sínar áherslur. Það þarf því ekki að koma mjög á óvart að ekki tókst að klára stjórnarskrár- málið í Frakklandi og Hollandi. Það er þó ljóst að það var tölu- vert pólitískt áfall fyrir Sambandið að svo fór. Ljóst er að stjórnmálamennirnir stíga ekki í takt við hinn almenna kjós- anda og þurfa að finna þá tónlist sem íbúar Evrópu eru til- búnir að hlusta á. Það er hins vegar ljóst að öll skynsamlega rök hníga að því að finna sameiginlega leið til að þróa Evrópu áfram. Ríki ESB munu því finna lausn á þessum vanda því það er ekki nein önnur skyn- samleg leið til fyrir þau varðandi framtíðina, hvort sem er fé- lagslega, stjórnmálalega og efna- hagslega. Einnig er það ljóst að hræðsluáróður andstæðinga Evr- ópusambandsins um yfirþjóðlegt vald og súperríki Evrópu á ekki við rök að styðjast. Smáríkin inn- an ESB bera ekki skarðan hlut frá borði í stækkaðri Evrópu og ef eitthvað er þá eru smærri rík- in að styrkja stöðu sína í Evrópu nútímans. Evrópa er svarið Andrés Pétursson fjallar um vandamál Evrópusambandsins Andrés Pétursson ’Ríki ESBmunu finna lausn á þessum vanda því það er ekki nein önnur skynsamleg leið til fyrir þau varðandi fram- tíðina, hvort sem er félags- lega, stjórn- málalega og efnahagslega.‘ Höfundur er formaður Evrópusamtakanna. OFÞYNGD og of- fita meðal íslenskra grunnskólabarna hefur aukist gríð- arlega á undan- förnum árum. Tíðni ofþyngdar á þessum aldri hefur fjórfald- ast frá fyrri helmingi síðustu ald- ar og nú eru um 15–20% þeirra of þung miðað við alþjóðleg viðmið- unargildi. Faraldsfræðileg rann- sókn gerð á einstaklingum fædd- um 1914–1935 sýndi að nánast allir sem voru of þungir sjö ára voru það einnig á fullorðinsaldri. Því er þessi aukning ofþyngdar grunnskólabarna mikið áhyggju- efni. Ofþyngd á fullorðinsaldri fylgja áhættuþættir fyrir sjúk- dóma eins og fullorðins syk- ursýki, hjarta- og æðasjúkdómar sem er ein algengasta dán- arorsökin hér á landi, og tengsl hafa einnig fundist við ýmsar gerðir krabbameina s.s. rist- ilkrabbamein. Hvað er til ráða? Aldrei er of seint að byrja að huga að góðri næringu og bætt- um lífsháttum eins og aukinni hreyfingu. Grunnurinn að góðri heilsu er þó lagður fyrr. Næring í móðurkviði Forvarnirnar ættu að byrja strax við getnað, ef ekki fyrr, því góð heilsa móður fyrir meðgöngu er líka mikilvæg. Næringarþörf eykst hlutfallslega meira en orkuþörf á meðgöngu og áríðandi er að fæða sé næringarrík og fjölbreytt fyrir þroska og vöxt barnsins. Á Íslandi fæðast börn að meðaltali þyngri en víðast hvar annars staðar í heiminum. Rannsóknir benda til þess að regluleg fiskneysla á meðgöng- unni stuðli að hærri fæðing- arþyngd og hafi verndandi áhrif gegn offitu barns síðar meir. Hugsanlega tengist þetta því að þau börn sem hafa lægri fæðing- arþyngd þyngjast hlutfallslega meira fyrsta árið en það er talið áhættuþáttur fyrir offitu síðar. Þetta er auðvitað ekki algilt og það að fæðast léttur þarf ekki endilega að þýða of mikla líkams- þyngd síðar á ævinni. Tiltölulega nýlega var farið að veita offitu þungaðra kvenna athygli sem lýðheilsufræðilegs vanda. Of- þyngd móður á meðgöngu fylgir aukin áhætta bæði fyrir móður og barn um áframhaldandi of mikla líkamsþyngd og fylgikvilla hennar. Fyrsta árið Ráðlagt er að móðurmjólk auk D-vítamíns sé eina næring barns- ins fyrstu 6 mánuði ævinnar. Móðurmjólkin veitir alla þá nær- ingu sem barnið þarfnast þessa fyrstu mánuði. Að auki inniheld- ur hún meltingarensím sem að- stoða við meltingu fæðunnar og mótefni gegn sýkingum og líkur á þróun ofnæmis minnka. ß-lacto- globulín og kasein eru prótein í kúamjólk sem eru talin geta vald- ið ofnæmi. Þegar barnið byrjar að fá aðra fæðu er móðurmjólkin góð viðbót allt fyrsta árið. Nokkrar rannsóknir, bæði hér- lendar og erlendar, sýna að brjóstagjöf minnkar líkur á of- fitu. Á fyrsta árinu þyngjast brjóstabörn að meðaltali hægar og talið er að þau læri að tempra inntökuna. Einnig eru tengsl milli mikillar próteinneyslu á fyrsta ári og hærri líkamsþyngd- arstuðuls við sex ára aldur. En prótein var mun minna í fæði barna hérlendis sem voru á brjósti sex til tólf mánaða gömul en þau sem voru skemur á brjósti fengu á þeim tíma sem rann- sóknin var gerð meira af venju- legri kúamjólk. Ef móðurmjólkur nýtur ekki við einhverra hluta vegna er ráð- lagt að gefa þurrmjólkurblöndur að sex mánaða aldri og að stoð- mjólk komi í stað venjulegrar kúamjólkur til 2 ára aldurs, en neyslu venjulegrar kúamjólkur fylgir til dæmis mun meira af próteinum. Stoðmjólkin inniheld- ur minna af próteinum, er járn- bætt og gerð samkvæmt alþjóð- legum reglum um samsetningu mjólkur fyrir ung börn. Járn- skortur hjá eins og tveggja ára börnum, sem var algengur hér- lendis fyrir nokkrum árum, var nátengdur mikilli kúamjólk- urneyslu. Prótein í kúamjólkinni geta leitt til smáblæðinga í melt- ingarvegi sem ýtir undir járn- skort og blóðleysi, auk þess sem kúamjólk er rýr af járni og tekur pláss frá öðrum næringarríkum mat. Brugðist hefur verið við þessu með ráðleggingum um brjósta- gjöf og í kjölfar hennar notkun stoðmjólkur. Þannig fær barnið passlega mikið af próteinum og orku, járnið nýtist betur og líkur á ofþyngd í byrjun skólagöngu minnka að öllum líkindum einnig. Leikskólabarn Á leikskólum þarf að koma upp góðum matarvenjum hjá börnum. Almennt er vel staðið að mat- armálum á leikskólum og margir leikskólar útbúa matseðla sam- kvæmt ráðleggingum manneld- isráðs. Tilbúnar unnar kjötvörur eru til dæmis sjaldséður kostur en meiri áhersla er lögð á fersk matvæli, fisk, ávexti og græn- meti. Rannsóknir á mataræði barna hafa sýnt fram á mikla neyslu á sykruðum ávaxta- og gosdrykkjum sem veita oft um- fram orku en lítið sem ekkert af næringarefnum eins og vítamín- um og steinefnum. Foreldrar sem fyrirmyndir Regluleg hreyfing er mik- ilvægur þáttur til að sporna við ofþyngd rétt eins og gott mat- aræði. Foreldrar eru helstu fyr- irmyndir barna sinna og mik- ilvægt er að þeir axli þá ábyrgð og komi upp áhuga hjá barninu á hollu og góðu líferni. Því er fræðsla til verðandi foreldra um mikilvægi góðrar næringar nauð- synleg. Þó er ekki nóg að búa yf- ir ákveðinni þekkingu heldur þarf einnig að kunna að nýta sér hana. Ekki er nóg að vera með hollan mat fyrir börnin og unglingana ef foreldrarnir gúffa í sig óhollustu. Því börn gera eins og þeim er sýnt en ekki eins og þeim er sagt. Næring snemma og heilsa síðar Ása Vala Þóris- dóttir og Hrönn Harðardóttir fjalla um næringu og heilsu Ása Vala Þórisdóttir ’Ofþyngd grunn-skólabarna er mikið áhyggjuefni.‘ Höfundar sitja námskeið í næring- arfræði við Háskóla Íslands. Hrönn Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.