Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 33

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 33
Eiginleiki þinn til að skynja hve- nær þínir nánustu þurftu á einhverju að halda var með ólíkindum. Hringd- ir á réttu augnabliki og vissir án þess að spyrja, áttir aflögu, kunnir þann galdur að gera mikið úr litlu. Þú varst svo lítil þegar mamma þín veiktist af berklum, bara tveggja ára gömul. En þú fékkst skjól hjá afa þínum og ömmu á Veðrará. Þau voru kölluð gimsteinar guðs. Og þú sýndir mér brekkuna sem þú grést í þegar enginn sá til. Þú lést þig varða vini mína, þau öf- unduðu mig af þér. Þú hefðir átt að vera sagnfræð- ingur, varðveittir skjöl, bréf forfeðr- anna, hvert einasta bréf okkar systk- inanna á ferðum okkar um lífið. Fjársjóður. Ég fletti lúinni vasabók afa þíns þar sem hann skrifar hjá sér inn- kaupalista fyrir systur sína í annarri sveit: tvö ál af tvisttaui, fjögur lóð garn, þrjár litlar tölur, eina lakkr- ísstaung, bollapör, blekbittu, rússín- ur og kanelolíu. Útreikningar bú- fræðingsins, smákrot, galdrastafir til hversdagsnota, eins og hvernig mað- ur skilur fuglamál eða ver sig gegn illum sendingum, Þú áttir líf með honum pabba mín- um í 27 ár. Hann kom að norðan og þú að vestan. Þið komuð upp hópi mannkostabarna, barnabarna og langömmubarna, yfir fjörutíu afkom- endur. Mér finnst þú hafa séð hvern og einn og átt þín einstöku tengsl við, t.d. Sólborgu, elsta barnabarn þitt og Önnu tengdadóttur þína sem reyndust þér ómetanlegar. Þær eiga nú báðar um sárt að binda vegna frá- falls Jónu og Bóra. Þú sáðir gild- ismati sem varir um ókomna tíð; mannúð, seiglu, hagsýni og óbilandi reisn, þrátt fyrir veikindi og kvalir. Í seinni blóma lífsins barstu gæfu til að hitta hann Bárð Jakobsson, óhefðbundinn gáfumann sem bar þig á höndum sér í 12 góð ár, allt til hans dauðadags 21. júní 1984. Einlægur áhugi þinn á fólki, eðl- islæg gleði og hjartahlýja skapaði þér vini á öllum aldri. Margir hafa gengið inn í sólarlagið á undan þér sem taka nú fagnandi á móti þér. Þú baðst alltaf Guð að geyma mig og nú bið ég hann að geyma þig, elskan mín. Þú ert komin inn í ljós- ið … Þín Gunnhildur. Ekkert gladdi ömmu meira en heimsókn frá barnabörnunum og til hennar var gott að koma. Amma sagði sögur af fólkinu í myndaalbúmunum, ættingjunum af Vestfjörðum, og laumaði kandís í lít- inn lófa. Hún kunni að segja sögur, enda afar minnug og áhugasöm um sögulegan fróðleik. Hún var stolt af fólkinu sínu, forfeðrum jafnt sem af- komendum, og var alltaf einstaklega frændrækin. Ríkidæmi hennar var fjölskyldan, afkomendurnir hennar dýrgripir. Á menntaskólaárunum var gott að koma til ömmu til að fá næði frá amstri hversdagsins. Það var eins og tíminn liði einhvern veginn hægar hjá ömmu. Henni þótti vænt um það þegar ég fékk stundum að vinna heimavinnuna hjá henni og leitaði þá stundum í bókasafnið. Nánast und- antekningarlaust var að finna í bók- unum hennar ömmu ítarefni, blaða- greinar sem tengdust efni bókanna á einhvern hátt sem hún hafði klippt út og varðveitt. Þannig var amma. Hún fylgdist alltaf vel með fréttum, var vel lesin og hafði ríkan áhuga á mönnum, málefnum og heimsmálun- um. Amma hafði stórt hjarta og kenndi börnum sínum að vera góð við menn og dýr, allir voru jafnir í hennar aug- um. Henni var umhugað um velferð sinna nánustu og gaf sér alltaf tíma til að setjast niður og spjalla um það sem ég var að fást við hverju sinni, í námi, starfi og einkalífi. Áhugi henn- ar á öllu því sem ég tók mér fyrir hendur var einlægur og ósvikinn. Hún hvatti mig ávallt til dáða og fyr- ir það er ég henni ævinlega þakklát. Síðustu æviár sín dvaldist amma í Sunnuhlíð í Kópavogi við einstaka umönnun starfsfólks sem sinnti henni af alúð og hlýju. Dagurinn sem amma dó var bjart- ur og fallegur, sól skein í heiði, prest- urinn komst þannig að orði að það viðraði vel til ferðalaga. Amma hafði þráð að leggja upp í sína hinstu ferð lengi, enda líkaminn orðinn lúinn og hennar hlutverki lokið að eigin mati. Ég efast ekki um að hún hafi lagt á sig krók yfir Önundarfjörðinn til að líta gamla bæinn sinn, fjöllin og fjör- una, líkt og ég er sannfærð um að hún hafi fengið hlýjar móttökur á áfangastað. Guð geymi þig, elsku amma, Sunna. Elsku amma mín. Það hryggir mig meira en orð fá lýst að fá ekki tæki- færi til að fylgja þér síðasta spölinn í Dómkirkjunni í dag. Ég sit hér og horfi á fallega mynd af okkur, kinn við kinn, á dásamlegum sumardegi í Blönduhlíðinni. Minningarnar sem skjóta upp kollinum eru margar og góðar. Ristað brauð með kavíar og eggi, kruður, bruður, sauðskinns- skór, gulur Wrigleys, draugasápa og loðinn ormur hlykkjast yfir stofu- borðið á Ásbrautinni. Ég og Sunna, liggjandi á maganum að hlusta á Eniga Meniga, Ævintýri í Maraþara- borg eða Gullna hliðið, lykt af nagla- lakki. Þegar ég byrjaði í MH skaust ég ósjaldan til þín í heimsókn til að spjalla, hlusta á sögur af nútíð og fortíð, fá mér í svanginn og oftar en ekki til að fá mér lúr í rúminu þínu sem var einhverra hluta vegna alltaf hlýtt og mjúkt. Þarna upplifði ég dýrmætar stundir með þér, við kynntumst á okkar forsendum og það varð ekki aftur snúið. Þú gafst mér svo mikið, sýndir mér svo mikla umhyggju og ást, varst svo óend- anlega örlát og vildir allt fyrir mig gera. Þannig man ég þig, elsku amma mín, og þetta allt og miklu fleira mun Mirra litla, yngsta lang- ömmubarnið þitt, fá að heyra um þig. Litla Maríumyndin sem þú fékkst frá langömmu þinni þegar þú varst lítil hangir nú fyrir ofan rúmið henn- ar, í rammanum sem hann pabbi þinn tálgaði. Ég faðma þig og kyssi bless, elsku besta amma mín. Sendi þér svo einn fingurkoss og annan í dyragættinni. Þín Birta. Lokið er langri vegferð mætrar konu, konu sem kunni þá list öðrum fremur að sjá alltaf bjartari hliðarn- ar á lífinu þó leiðin hafi oft verið brött og brekkurnar langar. Guðrún hafði þó beðið ferðalokanna í nokkur ár, farin heilsu, og hlakkaði til að hitta þá vini og ættingja sem á undan voru farnir. Hún þurfti að upplifa þá sorg að horfa á eftir þremur af fimm börnum sínum, þar af tveimur þeim elstu með tveggja vikna millibili að- eins þrem vikum áður en hún sjálf lést. Þá bognaði Guðrún. Hún elskaði fjölskylduna sína skil- yrðislaust og gaf öllum afkomendum sínum gott veganesti út í lífið eins og að verja alltaf minnimáttar og vera nægjusamur. Hamingjan væri ekki fólgin í peningum heldur mannauði og sannri vináttu sagði hún svo oft. Réttlætiskennd hennar var mjög sterk og lá hún ekkert á skoðunum sínum um menn og málefni hvort sem hún var sammála eða ekki. Guðrún var hafsjór fróðleiks, ótrú- lega minnug alveg fram í andlátið, bæði á fólk og atburði liðinna ára. Það var einstaklega gaman að hlusta á frásagnir hennar frá æskuárunum að Veðrará. Mér var hún sem móðir, tók mig inn á heimili sitt þegar ég gekk með sonarson hennar, kenndi mér svo að hugsa um litla fyrirburann, baðaði hann fyrir ungu móðurina sem ekki kunni handtökin og var alltaf tilbúin til aðstoðar með góð ráð. Á þeim ár- um var það ég sem var þiggjandi, hún veitandi. Seinni ár vona ég að mér hafi tekist að borga örlítið fyrir mig þó það væri ekki nema með heimsóknum öðru hvoru og spjalli sem var hennar líf og yndi. Við grín- uðumst oft með uppgjörið á milli okkar sem við ætluðum að gera þeg- ar við hittumst á „Endastöðinni“, hún taldi það vera í jafnvægi, en ég er viss um að hallar á mig. Ég og fjölskylda mín kveðjum Guðrúnu með trega en gleðjumst jafnframt yfir hvíldinni sem henni var svo sannarlega kærkomin og biðjum öllum ástvinum hennar bless- unar. Ég veit að hún vakir yfir þeim öll- um. Björk. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 33 MINNINGAR Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR ANNASAR JÓNSSONAR frá Gestsstöðum, áður til heimilis í Markholti 7, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Guð blessi ykkur öll. Sæberg Þórðarson, Magný Kristinsdóttir, Guðbjörg Þórðardóttir, Stefán Magnús Jónsson, Guðmundur Vignir Þórðarson, María Kristjánsdóttir, Bergþóra Þórðardóttir, Viggo Jensson, Brynjar Viggósson, Svanlaug Aðalsteinsdóttir, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓRUNN AXELSDÓTTIR, Tunguseli 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Seljakirkju miðviku- daginn 29. júní kl. 15.00. Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir, Atli Sverrisson, Karen Guðmundsdóttir, Auðunn Örn Jónsson, Hafdís Guðmundsdóttir, Þorsteinn Kjartansson, Bryndís Halla Guðmundsdóttir, Óðinn Guðbrandsson, Guðlaugur Guðmundsson, Anna Þórdís Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku pabbi okkar, tengdafaðir og yndislegur afi, VÍKINGUR ÞÓR BJÖRNSSON fyrrv. eldvarnaeftirlitsmaður, Munkaþverárstræti 2, Akureyri, sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 21. júní sl., verður jarðsunginn frá Akureyrakirkju miðvikudaginn 29. júní kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á heimahlynningu á Akureyri. Kristján Víkingsson, Guðrún Óðinsdóttir, Björn Víkingsson, Þórunn Árnadóttir, Guðrún Björg Víkingsdóttir, Pálmi Stefánsson, Þóra Víkingsdóttir, Snorri Snorrason, Finnur Víkingsson, Steinunn Ragnarsdóttir og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI FINNBJÖRNSSON, Hvassaleiti 39, Reykjavík, fæddur á Hesteyri 16. júní 1921, sem lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum föstudaginn 17. júní sl., verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 1. júlí kl. 15.00. Guðrún Gestsdóttir, Hólmfríður Árnadóttir, Jón Gauti Jónsson, Elísabet G. Árnadóttir, Ingþór Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐMUNDUR SKAGFJÖRÐ FRIÐÞJÓFSSON, frá Siglufirði, andaðist á Sjúkrahúsi Siglufjarðar sunnudaginn 26. júní. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.