Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 35

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 35 MINNINGAR ✝ GuðmundurOttesen Gunn- arsson fæddist á Eystra-Súlunesi í Leirár- og Mela- hreppi í Borgarfirði 18. desember 1919. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut 19. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Gunn- ar Oddsson, bóndi á Bjarnastöðum, frá Gröf í Lundar- reykjadal í Borgar- firði, f. 22. september 1884, d. 30. september 1974, og kona hans Sigurlaug Guðmundsdóttir Otte- sen frá Ingunnarstöðum í Brynju- dal í Kjós, f. 19. febrúar 1890, d. 17. júní 1960. Systkini Guðmund- ar eru Sigurður, búsettur á Bjarnastöðum í Grímsnesi, f. 1. ágúst 1931, kona hans er Elín Lára Sigurðardóttir, f. 16. febr- úar 1950, og Ása, búsett í Reykja- vík, f. 25. október 1932, eigin- Sólveig, f. 24. júní 1953, gift Ragnari Þorvaldssyni, f. 17. febr- úar 1949. Börn þeirra eru Sigríð- ur, f. 1. maí 1974, í sambúð með Þóri Guðlaugssyni, f. 30. nóvem- ber 1968, synir þeirra eru Andri Snær, f. 20. ágúst 2000, og Sævar Þór, f. 24. júní 2002; og Guð- mundur, f. 2. maí 1979, í sambúð með Sigrúnu Elsu Stefánsdóttur, f. 5. febrúar 1981. 3) Gunnar, f. 30. mars 1959, kvæntur Margréti Kristinsdóttur, f. 2. október 1954. Börn þeirra eru Helga Birna, f. 27. nóvember 1977, í sambúð með Berry Timmermans, f. 5. júlí 1974, dóttir þeirra er Emma Mar- grét, f. 26. janúar 2005; og Guð- mundur Ottesen, f. 28. apríl 1985. Guðmundur flutti sjö ára gam- all með foreldrum sínum að Bjarnastöðum í Grímsnesi þar sem hann sleit barnsskónum. Hann fór til náms í Héraðsskól- anum á Laugarvatni og að því loknu lá leið hans til Reykjavíkur og hóf hann störf hjá Reykjavík- urhöfn en flutti sig síðan yfir til Áhaldahúss Reykjavíkurborgar, en lengst af starfaði hann hjá Vegagerð ríkisins þar sem hann var skipaður birgðavörður. Þar starfaði hann til 70 ára aldurs. Hann stundaði hestamennsku af lífi og sál svo lengi sem heilsan leyfði. Útför Guðmundar verður gerð frá Seltjarnarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. maður hennar er Karl P. Ólafsson, f. 20. september 1920. Hinn 3. júlí 1948 gekk Guðmundur í hjónaband með Sig- ríði Gunnsteinsdóttur frá Nesi við Seltjörn á Seltjarnarnesi, f. 28. júní 1925, d. 4. september 2001. For- eldrar hennar voru Gunnsteinn Einars- son, bóndi í Nesi, frá Kerlingadal í Vestur- Skaftafellssýslu, f. 23. júní 1871, d. 17. maí 1937, og Sólveig Jónsdóttir, f. 4. maí 1889, d. 21. janúar 1961. Börn Guðmundar og Sigríðar eru: 1) Gunnsteinn, f. 28. sept- ember 1949, kvæntur Áslaugu I. Skúladóttur, f. 15. febrúar 1953. Börn þeirra eru Hanna Sigríður, f. 22. september 1971, í sambúð með Ólafi Svanssyni, f. 30. maí 1972; og Skúli Þór, f. 17. apríl 1978 í sambúð með Eyþóru Hjart- ardóttur, f. 28. október 1980. 2) Ríð ég háan Skjaldbreið skoða, skín á tinda morgunsól, glöðum fágar röðulroða reiðarslóðir, dal og hól. Beint er í norður fjallið fríða, fákur eykur hófaskell, sér á leiti Lambahlíða og litlu sunnar Hlöðufell. (Jónas Hallgr.) Það er alltaf erfitt að kveðja en góðar og ljúfar minningar renna í gegnum hugann sem gera kveðju- stundina bærilegri. Minningar sem ylja og kalla oft fram bros. Guðmundur var stjórnsamur mað- ur og fastur fyrir en hann var einnig raunsær og hjartahlýr. Greiðviknari manni hef ég ekki kynnst. Hann var traustur og stóð þétt að baki sínum þegar á þurfti að halda. Lengi býr að fyrstu gerð. Guð- mundur var góður fjölskyldumaður og ræktaði það hlutverk mjög vel og á hann þakkir skildið. Kom hann úr bændasamfélaginu en þar voru börnin mikilvægur hlekkur í keðju lífsins. Þau tóku þátt í hinu daglega lífi hvort sem um var að ræða um- hirðu dýra eða afkomu fólksins þannig að þau voru beinir þátttak- endur í lífsbaráttunni, bæði í sorg og gleði. Þessa fengu börn hans að njóta og síðar barnabörn. Þau hjón voru ákaflega gestrisin og tóku einstaklega vel á móti fólki. Það breyttist ekkert eftir að hann var orðinn einn. Þegar gesti bar að garði tíndi hann eitthvað til og hellti á könnuna. Hann var alltaf reiðubú- inn að snúast í kringum konu sína og börn. Tengdamóðir mín sagði gjarn- an: „Hann Guðmundur minn kemur með það,“ og „Guðmundur minn“ kom, stoppaði ekki lengi en sinnti er- indi sínu og fór. Við gerðum gjarnan grín að því að amma sendi bara afa þegar henni þóknaðist. En þetta breyttist heldur ekkert þó að ömmu nyti ekki lengur við. Afi var alltaf boðinn og búinn að skreppa til okkar eða fyrir okkur á meðan heilsan leyfði. Sveitin og skepnur toguðu í hann alla tíð. Hann naut þess að fara ríð- andi um landið á hestamannamót og sjá fallegustu gæðinga landsins sam- an komna á einum stað. Best þótti honum ef hann gat keypt eins og tvo, þrjá hesta, þá var ferðin fullkomnuð. Hann tók þátt í smalamennsku með Sigurði bróður sínum og var þá riðið um svæðið í kringum Hlöðufell og Skjaldbreið. Hann unni þessu svæði og naut þess að tala um það og rifja upp með okkur eftir að við hjónin höfðum gengið um það með bakpok- ana okkar. Hann nýtti sér þarfasta þjóninn hverju sinni, fyrst hestinn og síðan bílinn, og hafði yndi af að ferðast um landið, hvort sem það var ríðandi á hesti eða akandi um í bíl. Við ferðuðumst saman um landið meðan börnin okkar voru lítil og nut- um við þess að afi hafði gjarnan kom- ið á staðina áður, vissi hverjir bjuggu á hverjum bæ og ekki skemmdi það fyrir ef viðkomandi hafði átt góðan gæðing, þá var umsögnin fullkomn- uð. Hann gerði allt á frekar nettan hátt og einnig þegar hann kvaddi í hinsta sinn. Allt svo klippt og skorið. Guðmund, tengdaföður minn, kveð ég með miklu þakklæti og virð- ingu og munum við alltaf geyma minningu um heiðarlegan og kraft- mikinn persónuleika í hjörtum okkar en ekki hvað síst vináttu sem aldrei bar skugga á. Ef skoðanaskipti urðu þekktum við hvort annað það vel að við vissum nákvæmlega hvað hitt vildi. Blessuð sé minning hans. Áslaug I. Skúladóttir. Kær tengdafaðir minn, Guðmund- ur Ottesen Gunnarsson, er fallinn frá. Andlát hans kom ekki á óvart, þótt fyrirvarinn yrði styttri en fjöl- skyldan hafði búist við, en þannig var hann, gerði hlutina hratt og örugglega og þarna gerði hann enga undantekningu á. Guðmundur var hávaxinn, mynd- arlegur maður með sterkan svip. Hann var orðvar, var ekkert sérstak- lega málgefinn, en það sem hann sagði meinti hann. Hann gat verið þrjóskur og þver og þegar hann var búinn að mynda sér skoðun, varð honum ekki haggað. Hann lét það ekki á sig fá þó aðrir væru honum ósammála og fylgdi sinni sannfær- ingu. Hann hafði mjög ákveðnar pólitískar skoðanir og skipti aldrei um lit í þeim efnum. Hjálpsemin var honum í blóð borin, hann hafði alltaf tíma til að hjálpa öðrum og lagði sig fram við það, en engu máli skipti þó hann hefði minni tíma fyrir sjálfan sig. Honum var umhugað um velferð fjölskyldu sinnar og lagði sitt af mörkum til að koma börnum og barnabörnum til manns og gladdist með þegar vel gekk. Hann var gest- risinn og veitti vel þegar hann bauð til veislu. Sú síðasta sem hann hélt fyrir afkomendur sína var til að halda upp á 85 ára afmæli sitt í des- ember sl. Þá lét hann þau orð falla að þetta væri síðasta veislan sem hann byði til svo hann gerði það með glæsibrag og hélt hana í Grillinu á Hótel Sögu. Þetta varð síðasta veisl- an hans í þessari jarðvist. Guðmundur var mikill dýravinur og stundaði hestamennsku í áratugi sér til ánægju og yndisauka. Hann reyndi mikið til að smita börn sín og síðar barnabörn af þessum brenn- andi áhuga sínum en án árangurs. Hundtíkurnar okkar Gunnars voru vinkonur hans og hafði hann oft á orði að þær væru nú ekki illa haldnar og fengju greinilega nóg að éta, hvort það væri nú ekki ráð að fara að megra þær svolítið, en fór svo í ís- skápinn og sótti góðgæti handa þeim. Guðmundur missti konu sína fyrir tæpum fjórum árum eftir nokkuð erfið veikindi hennar, en sjálfur var hann við góða heilsu og gekk vel að bjarga sér heima við þar til fyrir einu og hálfu ári að fór að halla undan fæti hjá honum. Þá kom að því að hann þurfti að láta frá sér hestana sína sem var honum þungbært. Hann tók því þó með jafnaðargeði eins og hans var von og vísa. Hann hafði ennþá bílinn sinn og fór allra sinna ferða einn og óstuddur þar til fyrir nokkr- um vikum. Þá var ekkert annað eftir en að játa sig sigraðan, því það að verða ósjálfbjarga og öðrum háður á hjúkrunarheimili var ekki fýsilegur kostur fyrir Guðmund Ottesen Gunnarsson. Hann verður nú jarðsettur við hlið Sigríðar konu sinnar nákvæmlega 80 árum eftir fæðingu hennar. Þá halda þau sína veislu saman. Hafi hann þakkir fyrir allt sem hann gerði fyrir mig og mína. Bless- uð sé minning hans. Margrét Kristinsdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Við viljum þakka honum afa fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Við trúum því að honum líði vel þar sem hann er nú og vakir með henni Siggu ömmu yfir okkur öllum. Guð geymi hann Guðmund afa okkar. Megi ljósið fylgja honum til hennar ömmu og annarra ástvina. Helga Birna Gunnarsdóttir og Guðmundur Ottesen Gunnarsson. Við bræðurnir urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Guð- mundi Gunnarssyni í æsku. Hann var með hesta í Nesi og fengum við að fylgja honum eftir. Hann var óspar að lána okkur hesta og leið- beina okkur í hestamennskunni. Margir halda að við séum synir Guð- mundar en hann var kvæntur afa- systur okkar en reyndist okkur sem besti uppalandi í hestamennskunni. Ávallt átti Guðmundur góða hesta úr sinni ræktun. Eitt skiptið sem við vorum að fara heim eftir járningar leysti hann Hjálm út með því að gefa honum folald sem var fyrsti hestur- inn hans. Þegar tognaði úr okkur fórum við með honum víða á Nov- unni í hestakaup. Alltaf átti Guð- mundur eitthvað í hestakaupum og hafði gaman af þeim. Ófáar ferðirnar voru farnar austur á Bjarnastaði sem áttu hug hans all- an og þurfti hann að fá fréttir þaðan, helst daglega. Það voru ekki aðeins hestarnir sem heilluðu heldur einnig féð. Hafði hann sérstakt dálæti á mislitu fé. Einnig þótti honum gam- an að því að fara á fjall og varð hann sér alltaf úti um smalahund. Við fengum að fara með honum á hesta- mannamót um allt land og voru tjald- stæðin vel valin af honum, helst hátt uppi í brekku þar sem við fengum frið. Stundum var hallinn svo mikill að við runnum næstum út úr tjald- inu. Það væsti samt aldrei um okkur því að Sigga nestaði bónda sinn vel að heiman og kaldar kótelettur minna okkur enn á þessar ferðir. Til margra ára heyjuðum við túnin í Nesi. Þar naut hann sín í bústörf- unum. Guðmundur var alltaf fínn í tauinu, hvort sem hann var við hey- skap eða á hestbaki þá var hann í jakka og í skyrtu með bindi. Það gat komið honum í koll. Eitt sinn var hann að gefa Lappa nýslegið hey. Þá launaði klárinn honum greiðann með því að bíta í bindið svo hann þurfti að skera á það. Síðustu ár hefur hann verið viðloð- andi Víðidalinn. Hann sá um hrossin í Reiðhöllinni og gaf víða morgun- gjafir á svæðinu. Við eigum ætíð eft- ir að minnast góðra stunda með Guð- mundi og erum þakklátir fyrir samfylgdina. Sendum við samúðar- kveðjur til ættingja Guðmundar. Tryggvi og Hjálmur Þorsteinn Guðmundssynir. GUÐMUNDUR OTTESEN GUNNARSSON Innilegar þakkir fyrir hlýju og samúð vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR ANDRÉSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr- unarheimilinu Skjóli. Andrés Svanbjörnsson, Björk Timmermann, Sigríður Halldóra Svanbjörnsdóttir, Ásgeir Thoroddsen, Agnar Fr. Svanbjörnsson, Ásta Sigríður Hrólfsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Innilegt þakklæti til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, JÓNS TRYGGVASONAR, Grænumýri 10, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar á Akureyri fyrir frábæra aðstoð. Guð blessi ykkur öll. Inga Skarphéðinsdóttir, Björk Jónsdóttir, Stefán Alfreðsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Jón Ingi Sveinbjörnsson, Arnar Sveinbjörnsson, Íris Harpa Stefánsdóttir, Eva Sóley Stefánsdóttir. Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim sem sýndu hlýhug og stuðning vegna veikinda og andláts móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, BERGLJÓTAR ÞORSTEINSDÓTTUR fyrrum húsfreyju, Byggðarholti, Lóni, Hornafirði, sem lést fimmtudaginn 9. júní sl. Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Skjól- garðs, Höfn, fyrir góða umönnun. Guðmundur Þórðarson, Freysteinn Þórðarson, Guðlaug Þorgeirsdóttir, Arnór Þórðarson, Ólöf Rafnsdóttir, Erla Ásthildur Þórðardóttir, Hugi Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.