Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 45

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 45 MENNING Í KVÖLD verður opinn fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti um forn- leifarannsóknir á staðnum. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræð- ingur fjallar um stöðu rannsókn- anna, en erindið er liður í röðinni Fyrirlestrar í héraði. Í fréttatilkynn- ingu segir að fornleifauppgröfturinn í Reykholti sé afar áhugavert við- fangsefni, ekki síst vegna frægðar staðarins og þeirra fornminja, sem dregið hafa fjölda ferðamanna þang- að. „Óhætt er að fullyrða að upp- greftrinum hafi miðað vel áfram og hefur komið í ljós fjöldi merkilega minja, ekki hvað síst í þeim kirkju- grunni, sem haldið var áfram að rannsaka nú í sumar.“ Guðrún Sveinbjarnardóttir er verkefnis- stjóri þeirra fornleifarannsókna, sem fram hafa farið í Reykholti á sl. árum, þ.e. frá 1987 og til 1989 og frá 1998. Hún lauk M. Phil.-prófi frá University College London árið 1975 og doktorsprófi frá Háskól- anum í Birmingham á Englandi árið 1987. Titill doktorsritgerðarinnar er ,,Settlement patterns in medieval and post-medieval Iceland: an int- erdisciplinary study“ og eins og tit- illinn gefur til kynna hefur Guðrún sérhæft sig í þróun byggða með rannsóknum á eyðibýlum. Meðal fjölmargra ritsmíða hennar eru bækurnar Rannsókn á Kópavogs- þingstað, sem kom út árið 1986, Farm abandonment in medieval and post-medieval Iceland: an inter- disciplinary study, sem gefið var út á Englandi árið 1992 og Leirker á Ís- landi, sem Fornleifadeild Þjóðminja- safns Íslands gaf út árið 1997. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30. Að honum loknum verður boðið upp á veitingar en síðan gefst gestum tækifæri til að ræða efni hans. Að- gangseyrir er 500 kr. og eru allir vel- komnir! Fornleifa- fræði í Snorrastofu Morgunblaðið/Þorkell Þessi gullni hringur fannst í upp- greftri gamla kirkjugrunnsins í Reykholti á dögunum. NÝ STJÓRN var kjörin á aðalfundi Leik- minjasafns Íslands fyrir skömmu. Stjórnar- formaður var kjörinn Sveinn Einarsson, en aðrir í stjórn eru Ólafur J. Engilbertsson, varaformaður, Björn G. Björnsson, gjaldkeri, Ingibjörg Björnsdóttir, ritari, Guðrún Helga- dóttir, Jón Þórisson og Ágústa Skúladóttir. Forstöðumaður Leikminjasafnsins er Jón Við- ar Jónsson. Jón Viðar sagði í samtali við blaðið að sitt hvað væri á döfinni hjá Leikminjasafninu með haustinu. Opnuð verður sýning í Þjóðleikhús- inu um líf og starf Lárusar Ingólfssonar leik- mynda- og búningateiknara í tilefni aldar- afmælis hans nýlega, auk þess sem sýning um brúðugerð Jóns E. Guðmundssonar verður sett upp í anddyri Borgarleikhússins. Jón, sem féll frá í fyrra, hefði orðið níræður á þessu ári. Hann var merkasti frumkvöðull íslenskrar brúðuleiklistar á síðustu öld og rak í áratugi eigið leikhús, Íslenska brúðuleikhúsið. Þá verður opnaður ítarlegur gagnagrunnur um verkefni íslenskra leikhúsa á endurbættri heimasíðu safnsins í haust. Safnið hefur enn ekki eignast fasta sýningaraðstöðu og sagði Jón Viðar að úr því hlyti að rætast, safnið yrði vitaskuld að eignast fast húsnæði fyrr en síðar. Ýmsir kostir hefðu verið skoðaðir, en enginn enn fundist sem mönnum litist á og safnið gæti hugsanlega ráðið við. Það sem helst háði Leik- minjasafninu væri þó skortur á geymslurými. Jón Viðar sagði að safninu væru sífellt að berast gjafir af margvíslegu tagi, sumar mjög verðmætar. Sem dæmi nefndi hann þrjú áður óþekkt handrit frá Guðmundi Kamban að þremur þekktustu leikritum hans, Marmara, Vér morðingjar og Stjörnur öræfanna. Hand- ritin bárust safninu frá afkomendum Gísla Jónssonar, bróður skáldsins. Annars legði safnið mikla áherslu á að ná til sín gögnum frá frjálsum leikhópum eða sjálfstæðum leik- húsum þar sem slík gögn vildu gjarnan glatast þegar hóparnir legðust niður. Safnið ætti til dæmis orðið góð söfn frá merkum leikhópum á borð við Grímu og Alþýðuleikhúsið, auk þess sem það ætti orðið gott safn leikskráa og plak- ata. Meðal framtíðarverkefna væri að kort- leggja það sem til væri af leiklistarsögulegu efni í öðrum söfnum, þar á meðal söfnum úti á landsbyggðinni. Ný stjórn í Leikminjasafninu Frá aðalfundi Leikminjasafnsins í Iðnó á dögunum. CENTER for Icelandic Art – CIA.IS er upp- lýsingamiðstöð um samtímamyndlist, vett- vangur upplýsinga fyrir íslenska myndlist- armenn, jafnt sem erlenda og alla þá sem eru áhugasamir um íslenska myndlist. Mennta- málaráðuneytið leggur fé til miðstöðvar- innar. CIA.IS styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningahalds erlendis. Styrkir til vinnustofudvalar, verkefna og útgáfu munu nú verða veittir í fyrsta sinn. Umsóknar- frestur rennur út 30. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu CIA.IS eða á heimasíðu www.cia.is. Morgunblaðið/Þorkell Upplýsingamiðstöð myndlistarinnar er til húsa í Hafnarstræti 16. Síðustu forvöð að sækja um styrk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.