Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 195. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Óvænt
faðmlag
Sigríður Hulda Jónsdóttir hitti
óvænt Nelson Mandela | 20
Viðskipti | Til sunds með þeim stóru Svipmynd Yfirmaður eBay
Íþróttir | FH úr leik Lukkan ekki með HK Neftchi númeri of stórir
Málið | Tískan Sævar Karl Sesamfræ Ertu á sæmilegum launum?
Viðskipti, Íþróttir og Málið
EKKI geta allir fyrrverandi af-
greiðslumenn í matvöruverslunum
alið með sér drauma um að verða
aðalsmenn. Bill Capell, sem er 52
ára og kominn á eftirlaun, er und-
antekningin. Hann er Bandaríkja-
maður og býr í Yuba í Kaliforníu.
Ef núverandi jarl af Essex í Bret-
landi fellur frá án þess að eignast
erfingja er Capell næstur í röðinni.
„Ég hef vitað þetta síðan 1966, ég
var táningur, þá var hringt í pabba.
Innst inni hef ég svo sem vitað þetta
en ekki velt því fyrir mér að ráði.“
Núverandi jarl, Paul Capell, er 61
árs piparsveinn og barnlaus. Erfi
Capell í Yuba titilinn verður hann
hinn háæruverðugi William Capell
lávarður, með rétt til setu í lávarða-
deildinni og drottningunni bæri
skylda til að ávarpa hann með orð-
unum „okkar tryggi og mjög elsk-
aði frændi“, segir Capell. „En þar
með er allt upp talið. Maður fær tit-
ilinn en enga peninga.“
Hann viðurkennir að möguleik-
inn að geta kannski setið í lávarða-
deildinni og tekið þar mikilvægar
ákvarðanir í þjóðmálum kitli sig.
Vandinn er að Capell verður að af-
sala sér bandarískum ríkisborg-
ararétti ef hann vill gerast breskur
lávarður og hann er ekki viss um að
hann vilji það.
Af kassa
í lávarða-
deildina?
AP
Bill Capell á heimili sínu í Yuba í
Kaliforníu. Hann gæti orðið næsti
jarlinn af Essex í Bretlandi.
ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN telur að
efla þurfi starfsemi Seðlabanka Íslands og jafnvel
endurskoða lagalegan grundvöll hans að hluta til
að hann sé betur í stakk búinn til að fylgjast með
efnahagskerfinu og fjármagnslífinu. Þá vill sjóð-
urinn m.a. að aðgengi notenda að tölfræðilegum
upplýsingum verði breytt og aðferðafræði að baki
þeim verði breytt.
„Sjóðurinn telur að lagastoðin mætti vera skýr-
ari og ákveðnari þegar kemur að aðgengi bankans
að upplýsingum á fjármagnsmarkaði. Það verður
að viðurkennast að sumir aðilar í viðskiptalífinu
hafa verið tregir til að veita okkur upplýsingar um
umsvif sín. Því höfum við verið þeirrar skoðunar
að æskilegt væri að geta beitt harðari viðurlögum
til að tryggja þennan aðgang,“ segir Jakob Gunn-
„Sjóðurinn hvetur einnig til aukinnar samvinnu
við alþjóðlegar stofnanir, til að bregðast við aukn-
um umsvifum fyrirtækja á erlendri grundu. Þeir
vilja skerpa á eftirlitsþættinum, bæði hjá okkur og
Hagstofunni, og ég hugsa að viðbrögðin verði þau
að við tökum þetta til athugunar og gerum brag-
arbót,“ segir Jakob.
arsson, deildarstjóri á tölfræðisviði Seðlabanka
Íslands. „Það er hins vegar ekki okkar hlutverk að
grennslast fyrir um skattamál eða þess háttar, við
viljum einungis hafa sem gleggsta mynd af hag-
kerfinu á hverjum tíma í heild sinni. Hlutverk
Seðlabankans er m.a. að stýra stöðu mála eftir vís-
bendingum um hvert stefnir, og reyna að sjá fyrir
hvað gerist á næstu misserum. Til þess þurfum við
sem mestar upplýsingar.“
Hvatt til aukinnar samvinnu
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur undanfarna
mánuði gert úttekt á opinberri tölfræði þjóðarinn-
ar, þar á meðal upplýsingum frá Seðlabanka Ís-
lands. Samsvarandi úttekt fór fram á upplýsinga-
gjöf fjármálaráðuneytisins og Hagstofu Íslands.
Sjóðurinn ræðst í þessa úttekt að eigin frum-
kvæði og liggja bráðabirgðaniðurstöður fyrir, en
lokaniðurstaðna er að vænta í september.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
vill láta efla Seðlabankann
Telur að styrkja þurfi lagalegan grundvöll bankans til að hægt sé
að fylgjast betur með efnahagskerfinu og fjármagnslífinu á Íslandi
Eftir Sindra Freysson
sindri@mbl.is
Aðferðafræði | 4
Morgunblaðið/Brynjar
Á MÁNUDAGINN fæddist þessi
agnarsmáa kvíga á bænum Lækj-
arbakka í Mýrdal en hún vó ein-
ungis ellefu kíló við fæðingu.
Ragnhildur Gísladóttir, bóndi á
Lækjarbakka, segist ekki áður
hafa séð svo smáa kvígu – það hafi
heldur ekki neinn sem hana hefur
augum litið.
„Hún er fædd að minnsta kosti
mánuði fyrir tímann en mjög
spræk engu að síður,“ segir Ragn-
hildur.
Kvígan hefur fengið nafnið
Grýta en hún dvelur í fjósinu við
góðan kost þar sem henni er veitt-
ur matur oft á dag – en einungis
lítið í einu.
Kúasmalarnir á Lækjarbakka,
Hugi Þeyr Gunnarsson og Karen
Ósk Guðlaugsdóttir, gefa Grýtu
mjólkursopa.Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Agnarsmá
kvígan Grýta
á Lækjar-
bakka
Washington. AP. | George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, hvatti í gær
öldungadeild þingsins til að staðfesta
John Roberts sem hæstaréttardóm-
ara áður en rétturinn kemur saman á
ný 3. október næstkomandi.
Demókratar hafa á móti heitið því
að fara nákvæmlega yfir feril Ro-
berts og fá á hreint hver afstaða
hans sé í tilteknum málum, sérstak-
lega hvað varðar rétt kvenna til fóst-
ureyðinga. Slíkt ferli tekur tíma en
ekki er búist við að demókratar grípi
til málþófs til að tefja staðfest-
inguna.
„Ég mun þrýsta á að ferlið gangi
hratt og vel fyrir sig,“ sagði forset-
inn.
Repúblikanar fögnuðu tilnefningu
Roberts, sem Bush segir að hafi „af-
bragðs meðmæli“ til að gegna stöð-
unni.
Ljóst er að umræðan um skipan
Roberts í dómarasæti mun að mestu
leyti snúast um rétt kvenna til fóst-
ureyðinga. Frjálslynd öfl í landinu
óttast mjög að Roberts, sem er
íhaldsmaður, muni taka afstöðu
gegn fóstureyðingum og að hæsti-
réttur muni takmarka rétt kvenna til
þeirra.
Ferlið gangi hratt fyrir sig
Bush vill að Roberts fái dómarasæti fyrir haustið
Íhaldssamur | 13