Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 41 DAGBÓK Það var árið 1955 að Heilsustofnun Nátt-úrulækningafélags Íslands var opnuð aðfrumkvæði Jónasar Kristjánssonarlæknis. Var fljótlega hægt að veita 40 gestum móttöku en umfang starfseminnar hefur síðan þá farið vaxandi og þjónar nú Heilsustofn- unin yfir 2.000 manns árlega. Um helgina fagnar Heilsustofnunin 50 ára af- mæli með fjölbreyttri dagskrá og útgáfu afmæl- isrits sem dreift er með Morgunblaðinu. „Þetta er stofnun sem hefur þjónað öllum landsmönnum um árabil,“ sagði Anna Pálsdóttir í samtali við blaðamann, en Anna hefur á sinni könnu sölu- og markaðsmál stofnunarinnar. „Flestir koma til okkar að læknisráði en einnig er hægt að koma á eigin vegum. Þess má geta að baðhúsið er opið um helgar fyrir utanaðkomandi gesti og er þá upplagt að snæða t.d. hádegisverð í matsal Heilsustofnunar í leiðinni. Markmið okkar er heilsubót og heilsuvernd. Í hnotskurn: að fólk taki ábyrgð á eigin heilsu.“ Í Heilsustofnun í Hveragerði eru stundaðar bæði hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar. Þannig segir Anna að böðin sem stunduð eru hjá stofnuninni hafi reynst fólki afskaplega vel, þá sérstaklega leirböðin, s.s. við gigt og húð- sjúkdómum. Hefðbundin sjúkraþjálfun eftir slys, sjúkdóma og liðaðgerðir er einnig stór þáttur í starfinu. „Við leggjum ríka áherslu á holla lífs- hætti með góðu mataræði, hreyfingu og slökun – n það síðastnefnda er þáttur sem ekki má gleym- ast.“ Mikil aðsókn er í þjónustu stofnunarinnar og segir Anna að vel sé bókað í þau pláss sem til boða standa. Stofnunin er með þjónustusamning við ríkið og er því kostnaður gesta stofnunarinnar í flestum tilvikum að stórum hluta niðurgreiddur en leitast er við að halda kostnaði í algjöru lág- marki. Anna segir að vinsældir stofnunarinnar fari vaxandi: „Fólk er orðið miklu meðvitaðra um það hvað heilsan skiptir miklu máli, og mikilvægi þess að grípa til forvarna áður en skaðinn er skeð- ur og læra að meta og efla lífsgæði miðað við ástand.“ Margt verður um að vera á sunnudaginn vegna afmælisins, en dagskrá dagsins hefst strax um morguninn með stofnun hollvinasamtaka Heilsu- stofnunar. Eftir hádegi hefst síðan formleg dag- skrá þar sem ýmsir góðir gestir taka til máls. Davíð Smári Idol-stjarna kemur fram, frítt verður í sundlaug staðarins, myndlistarsýning og skoð- unarferð um húsið. Hoppkastali og risarennibraut verður fyrir yngstu gestina auk þess að víkingar og trúðar bregða á leik. Einnig verða til sýnis þjónustuhús sem Íslenskir aðalverktakar hafa reist við heilsustofnunina, en kaupendur þeirra húsa hljóta með aðgang að ýmissi þjónustu Heilsustofnunarinnar. Nánar má sjá á heimasíðu Heilsustofnunar- innar, www.hnlfi.is og í afmælisblaði stofnunar- innar með Morgunblaðinu á laugardag. Heilsa | Heilsustofnun NLFÍ fagnar 50 ára afmæli Heilsulind í hálfa öld  Anna Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 20. maí 1947. Hún útskrif- aðist frá MR 1967 og er lífeindafræðingur að mennt. Hún lauk námi í stjórnun og rekstri heilbrigðisþjónustu frá Endurmenntun Háskóla Íslands 1998. Und- anfarin ár hefur hún starfað við Heilsu- stofnun NLFÍ við kynningar- og markaðsmál. Hafnarfjall FURÐULEGT þykir mér að efn- istaka skuli stunduð neðarlega í Hafnarfjalli. Er þetta áhættusamt atferli því skammt er í að gröft- urinn hafi áhrif á sjálfar skriður fjallsins. Þessar einstöku skriður eru með fegurri fjallshlíðum er sjást á þessu landi, í göngufæri við þjóðveg eitt. Nóg er að Ingólfsfjall sé stór- skemmt, þurfa landsmenn að horfa upp á annað fjall eyðilagt. Ragnar Ingi Ingason. Verðmunur á að fanga hunda ÁSTA hringdi og hafði hundur dóttur hennar sloppið út. Hún sagði að í Reykjavík kostaði 21.500 kr. að handsama hunda, í Hafn- arfirði kostaði það 5.000 kr. í fyrsta skipti og 16.000 kr. í annað skipti og í Mosfellsbæ 8.000 kr. Hún sagði að einnig þyrfti að greiða 1.300 kr. fyrir sólarhringinn á Leiruhótelinu og henni finnst verð- munurinn á milli bæjarfélaganna óréttlátur. Ásta Björnsdóttir. Frábær leiksýning í Iðnó ELDRI kona hringdi og hrósaði sýningu Ferðaleikhússins í Iðnó. Þar væri leikin nútímaútgáfa af Gullna hliðinu á ensku og væri sýn- ingin mjög sniðug. Þarna væri fal- legur dans og söngur og sýningin væri sérlega vel leikin. Sérstaklega væri Kristín G. Magnús alveg stór- kostleg í hlutverki kerlingarinnar. Hún mælti með að allir sem væru vel að sér í ensku mættu og síðan væri tilvalið fyrir fólk með erlenda gesti að fara á sýninguna. Sjálf var hún með erlendan gest sem var mjög hrifinn. Eldri borgari. Glæsileg þjónusta í Kirkjuhúsinu ÉG vil þakka mjög góða þjónustu sem ég fékk í Kirkjuhúsinu núna í júlí. Þar aðstoðaði Guðbjörg mig og veitti mér frábæra þjónustu og ráð- gjöf sem vert er að þakka. Takk fyrir. Kona að norðan. Kisusystkini fást gefins 3 YNDISLEG og kelin lítil kisu- systkini óska eftir góðu og ástríku heimili. Uppl. gefur Heiða í síma 697- 8663. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Á góðum stað við Sæbraut er nú til leigu 340 fm björt og skemmtileg hæð með góðu útsýni. Auðvelt er að breyta innra skipulagi og laga það að margvíslegri starfsemi, t.d. hægt að nýta undir skrifstofur eða aðra þjónustu. Liggur vel við umferð, mikið auglýsingagildi, góð aðkoma og næg bílastæði. Upplýsingar veitir Árni í síma 892 4243. TIL LEIGU - 104 REYKJAVÍK SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÆÐ Létt drykkjarjógúrt með perum Nýjung! 1 3 1 0 .3 0 A u g l. Þ ó rh ild ar án viðbæ tts sykurs 50 ÁRA afmæli. Laugardaginn 23.júlí verður Ólafur Sturla Njáls- son fimmtugur. Að því tilefni verður veisla á afmæl- isdaginn í Básnum í Ölfusi, 3 mín. akst- ur frá Nátthaga. Vinir, vandamenn, núverandi og fyrrverandi starfsmenn, nemendur, gamlir skólafélagar, kærir sveitungar og aðrir velunnarar hjart- anlega velkomnir að njóta óp- erutónlistar, dansa og skemmta sér eins lengi og líf og lyst þráir. Ólafur óskar þess að allir mæti í ein- hverju bleiku! Árnaðheilla dagbók@mbl.is EM ungmenna. Norður ♠D52 ♥K ♦Á1082 ♣ÁKDG9 Suður ♠K943 ♥ÁD1072 ♦K6 ♣63 Suður verður sagnhafi í sex gröndum og fær út tíguldrottningu. Hvernig myndi lesandinn spila? Þetta hagstæða útspil gefur sagn- hafa kost á slag á tígultíu og þá duga þrír á hjarta. Því er freistandi að drepa á tígulkóng, svína tíunni, taka hjartakónginn og treysta svo á spaðaásinn í austur. Þannig spilaði hollenski sagnhaf- inn í virðureign við Letta á Evr- ópumóti ungmenna. En því miður var spaðaásinn í vestur og samning- urinn fór tvo niður: Norður ♠D52 ♥K ♦Á1082 ♣ÁKDG9 Vestur Austur ♠Á107 ♠G86 ♥9865 ♥G43 ♦DG95 ♦743 ♣75 ♣10842 Suður ♠K943 ♥ÁD1072 ♦K6 ♣63 Á hinu borðinu kom út lauf gegn sama samningi. Sagnhafi tók fyrst fimm slagi á lauf, síðan hjartakóng, fór heim á tígulkóng og lagði niður ÁD í hjarta. Þegar gosinn féll þriðji voru 12 slagir öruggir og sá þrett- ándi kom sjálfkrafa því vestur lenti í vandræðum með spaðaás og DG í tígli. Auðvitað er beittara að spila spaðadrottningu í öðrum slag og búa þannig í haginn fyrir hugsanlega kastþröng á síðari stigum, en út- spilið (tíguldrottningin) er skemmti- legt dæmi um það sem enskumæl- andi menn nefna gríska gjöf og við köllum bjarnargreiða. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is BANDARÍSKI stúlknakórinn Penn- sylvania Girlchoir heldur tónleika í Hallgrímskirkju í dag kl. 12. Við- burðurinn er hluti af sum- artónleikaröð Hallgrímskirkju og verða á efnisskrá m.a. norður- amerísk þjóðlög, indjánasöngvar, kvekarasöngvar, negrasálmar og kirkjutónlist. Kórinn syngur undir stjórn Mark Anderson en hann hefur reglulega komið til Íslands til tónleikahalds, bæði sem orgelleikari og kórstjóri auk þess sem hann hefur haldið námskeið. Aðstoðarstjórnandi er Jodi Bohr. Stúlknakór Pennsylvaníu var stofnaður í september 2004 og sam- anstendur af 80 stúlkum, 18 ára og yngri, frá Philadelphiu-svæðinu í Bandaríkjunum. Er kórinn þrí- skiptur: Tónleikakór, Borgarkór og Kammerkór, en sá hópur sem ferðast um Ísland í sumar er Borg- arkórinn. Eitt af markmiðum kórs- ins er að veita ungum stúlkum með tónlistarhæfileika menntun við bestu aðstæður og tækifæri til að koma fram, án tillits til félagslegra aðstæðna. Undanfarna viku hefur kórinn komið við m.a. á sumartónleikum í Mývatnssveit, á Akureyri og í Kristskirkju í Landakoti. Indjána- og kvekarasöngvar Stúlknakór Pennsylvaníu og stjórnandi kórsins Mark Anderson. Fréttir á SMS Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.