Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 35 MINNINGAR um og ótal aðrar yndislegar minn- ingar sem aldrei munu gleymast. Fremst stendur þó minningin af ykk- ur ömmu, hlæjandi og brosandi sam- an. Elsku afi, við hefðum ekki getað óskað okkur betri afa, við elskum þig af öllum hjartans krafti og biðjum Guð um að geyma þig. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Atli, Tryggvi og Ísak. Eyjólfur fæddist á Suðureyri og fluttist með fjölskyldunni, vorið sem hann fermdist, út í Galtarvita, en þar tók Bjarni afi við starfi vitavarðar. Allir aðdrættir voru erfiðir á Galt- arvita og þurfti stundum að beita mikilli útsjónarsemi til koma hlutun- um í verk. Keypt var kýr á Ingjalds- sandi við Önundarfjörð og fluttu þeir feðgar Bjarni afi og Eyjólfur kúna sjóleiðis á bát frá Suðureyri út í Galt- arvita og tókst að koma henni heilli í land í stórgrýttri fjörunni neðan við Galtarvita sem liggur fyrir opnu út- hafi. Eftir að kýrin var komin í höfn leið ekki á löngu þar til Eyjólfur var sendur inn í Selárdal í Súgandafirði til að sækja tarf og síðar hest frá Ísa- firði. Hann kom skepnunum heilu og höldnu upp og yfir Göltinn, leið sem sýnist ófær öðrum en fuglinum fljúg- andi. Þrátt fyrir greinargóðar lýs- ingar Eyjólfs á því hvernig honum tókst að nudda þessum stórgripum yfir Göltinn hafa þessar ferðir hans ætíð haft yfir sér ólíkinda- og æv- intýraljóma. Á vormánuðum 1946, þegar Eyjólfur var 17 ára, var hann sendur eftir ljósmóður inn á Suður- eyri, þar sem Sumarlína amma var komin að því að fæða sitt 15. barn, Borghildi Fríðu. Þau fóru svokallaða „klungurleið“ fyrir Göltinn, um stór- grýttar fjörur undir snarbröttu hamrabelti. Þurftu þau að sæta sjáv- arföllum og rétt sluppu undan skriðu, fyrir snarræði Eyjólfs. Þegar heim var komið þá var barnið fætt, en Bjarni afi hafði tekið á móti því og heppnaðist fæðingin vel. Eftir 7 ára vist í Galtarvita fluttist fjölskyldan aftur til Suðureyrar. Byggt var íbúðarhús að Eyrargötu 6, Suðureyri, en þar fékk sá sem þetta ritar og Stefán, yngri bróðir minn, að njóta þess að alast upp með Sum- arlínu ömmu og Bjarna afa og systk- inahópnum eða „stórfjölskyldunni“ og var tekið sem einu af systkinun- um. Á uppvaxtarárum undirritaðs var fremur fátítt að fólk ferðaðist til út- landa, en Eyjólfur hafði mikla útþrá og fór nokkrar ferðir til útlanda, m.a. heimsótti hann Páfagarðinn í Róm í tíð Píusar Páfa XII. Þegar heim var komið sýndi hann okkur ungmenn- unum ljósmyndir og minjagripi og sagði okkur ferðasögur á sinn leiftr- andi hátt og við lifðum okkur inn í menningu og ævintýraheima fjar- lægra landa. Árið 1955 keyptu Eyjólfur og Bjarni afi fjögurra tonna trillu, Svan ÍS-570. Undirritaður reri með þeim á handfærum í fimm sumur, frá 1965– 1970. Það reyndist mikil lífsreynsla og þroskandi að vera með þeim feðg- um til sjós en þeir voru óþreytandi við að leiðbeina og fræða piltinn um sjómennsku og leggja honum lífs- reglurnar. Hart var sótt og vorum við iðulega með fyrstu bátum á sjó- inn á morgnana og komum með þeim síðustu í land á kvöldin og voru afla- brögð jafnan með ágætum. Eyjólfur var með eindæmum fiskinn. Undir- ritaður reyndi hvað hann gat að til- einka sér hvernig Eyjólfur bar sig að veiðunum, háttum hans og hreyfing- um, en allt kom fyrir ekki, fiskurinn sótti stöðugt áfram á færið hjá Eyj- ólfi. Það kom fyrir um borð að Eyjólfur tók sig fyrirvaralaust til og stökk upp á lestarlúguna sem hún væri leiklist- arsvið og fór með gamanmál. En eins og þá var siðs í Súgandafirði var efni- viðurinn fluttur með því að herma eftir þeim sem við átti og var þá bæði notað tungutak og líkamstjáning við- komandi. Eyjólfur skáldaði upp gamansögur, þó með mátulegu sann- leiksívafi, af þekktum persónum úr þjóðlífinu og sveitungum sínum. Þetta gerði hann af miklu skopskyni og frábærum meðfæddum leiklistar- hæfileikum svo unun var á að hlýða. Árið 1970 fluttu Eyjólfur, Guð- finna og fjölskylda til Hafnarfjarðar og hafa búið þar síðan. Í Hafnarfirði starfaði Eyjólfur við ýmis störf til sjós og lands og loks í Álverinu í Straumsvík frá 1976 í 20 ár. Hafið heillaði og Eyjólfur keypti sér litla skektu sem hann nefndi „Litla Svan“ og hóf grásleppuveiðar frá Hafnarfirði. Hann lét síðan smíða 3 tonna trillu í Hafnarfirði sem sjó- sett var með viðhöfn 1985 og hlaut nafnið Haförn HF-132. Einkaleyfi var þá komið á nafnið Svan og valdi Eyjólfur þá af lítillæti heiti næst- stærsta fuglsins. Á Haferninum reri Eyjólfur á grásleppu og rauðmaga með störfum sínum hjá ÍSAL og áfram eftir að hann hætti þar störf- um. Útgerð Eyjólfs lauk í fyrravor, er hann kenndi sér þess sjúkdóms sem hann er nú fallinn fyrir. Ævi Eyjólfs var viðburðarík, enda fór þar litríkur maður sem stormaði af svo eftir var tekið. Alla tíð var hann trúr, traustur og hjálpsamur. Orð hans stóðu ætíð sem stafur á bók og þurfti ekki að fara í grafgötur um skoðanir hans á mönnum og málefn- um. Hann var afburða hraustmenni og sterkur og hamhleypa til allra verka. Á yngri árum reyndist hann, eins og svo mörg systkini hans, liðtækur í frjálsum íþróttum sökum afls og snerpu, en kúluvarp lá sérlega vel fyrir honum. Samheldni og ættrækni niðja Bjarna afa og Sumarlínu ömmu voru Eyjólfi mikið hjartans mál og þrátt fyrir alvarleg veikindi Eyjólfs stóð hann og fjölskylda hans að því að halda ættarmót í Hafnarfirði í tilefni af því að Sumarlína amma hefði orðið 102 ára hinn 23. apríl sl. Þar lék Eyj- ólfur á als oddi og hélt kjarnyrta ræðu þar sem hann hvatti viðstadda til að dáða, en sjá mátti þó að veru- lega var dregið af honum líkamlega. Með Eyjólfi er genginn mikill áhrifamaður á líf þess sem þetta ritar og minnist þess með þakklæti að hann var ætíð til staðar, leiðbeindi, fylgdist með og bar hagsmuni und- irritaðs fyrir brjósti og hvatti til dáða. Það er mikil lífsfylling og heið- ur að fá að kynnast og verða sam- ferða slíkum sómamanni og vini. Guðfinnu sem staðið hefur við hlið Eyjólfs í erfiðum veikindum hans og hlúð að honum af kostgæfni sem og börnunum, sem einnig hefur mætt mikið á, færum við Hrefna og Ása okkar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Eyjólfs Bjarnasonar. Bjarni Stefánsson. Fráfall Eyjólfs Bjarnasonar kom ekki á óvart. Hann hafði tekist á við sjúkdóminn af æðruleysi sem var honum í blóð borið. Þeir sem þekktu til vissu að hann myndi mæta örlög- um sínum af sömu skapfestu. Hug- arfari hins sterka manns sem veit þegar hann er sigraður. Ég kynntist honum í flokknum okkar þar sem hann var alla tíð sér- staklega góður og traustur liðsmað- ur og það myndaðist strax hlý taug á milli okkar. Á sinn hátt sterkari af því við vorum bæði að vestan. Tvennt er efst í minningunni þeg- ar ég hugsa um áralöng samskipti. Í fyrsta lagi hve hann er samofinn góðum minningum um samkomur okkar „stelpnanna“ í Sambandi Al- þýðuflokkskvenna. Hvað það var honum eiginlegt að standa með sinni konu í þeim verkum og hversu heim- ili þeirra Guðfinnu stóð okkur flokks- systrum þeirra opið við hverskyns tækifæri. Gilti þá einu hvort um var að ræða pólitíska fundi, boð fyrir er- lendar jafnaðarkonur sem oft sóttu okkur heim á þessum árum eða að halda fjölmenna kvennaveislu til heiðurs varaformanni okkar, félags- málaráðherranum, þegar við jafnað- arkonurnar eignuðumst loks ráð- herra í ríkisstjórn úr okkar röðum. Alltaf var hægt að treysta á hjónin í Víðivangi 8 og þar nutum við aðstoð- ar hans hans við að skapa þá aðstöðu og andrúmsloft sem á þurfti að halda. Hitt er hvernig hann sem afkom- andi fólks sem bjó við nyrsta haf og háði lífsbaráttu við kröpp kjör og óblíða náttúru bar með sér arf kyn- slóðanna fyrir vestan í fasi sínu og framkomu. Þannig var það líka í lok- in. Hann kvartaði ekki, heldur sló á létta strengi og gerði lítið úr sjúk- dóminum sem hann vissi þó að myndi hafa betur. Maður mætir örlögum sínum með jafnaðargeði. Þannig var Eyjólfur. Við kveðjum góðan félaga um há- sumar þegar umhverfið skartar sínu fegursta, allt er í fullum blóma og túnin kringum heimilið kæra á Víði- vangi standa iðjagræn. Og það á vel við. Ég þakka Eyjólfi hlýja og trausta samfylgd í Alþýðuflokknum og Sam- fylkingunni. Mér þótti vænt um vin- áttu hans. Elsku Guðfinna, við Sverrir vott- um þér, börnunum og fjölskyldunni allri innilega samúð okkar. Rannveig Guðmundsdóttir. Það er ekki langt síðan við fé- lagarnir heimsóttum Eyjólf Bjarna- son og Guðfinnu Vigfúsdóttur, eig- inkonu hans, á þeirra fallega heimili á Víðivanginum í Hafnarfirðinum. Eyjólfur var alvarlega veikur, í hjólastól og ljóst var að erfið barátta var framundan. En þótt líkaminn væri að gefa sig, þá var svo langt frá því að hugurinn væri beygður. Kraft- urinn, einbeitingin og staðfestan voru til staðar. Honum þótti hins vegar verst að geta ekki stundað vinnu. Það væri afleitt að þurfa að vera að þessu slugsi, eins og hann orðaði það. Við ræddum pólitíkina, en Eyjólf- ur var ævinlega mikill jafnaðarmað- ur og hafði fylgt Alþýðuflokknum að málum alla tíð. Fyrst vestur á Súg- andafirði og síðan um áratugaskeið í Hafnarfirðinum. En hann hafði sínar ákveðnu skoðanir á því hvernig vinna átti málin og lét okkur stundum heyra það í kratapólitíkinni í Firð- inum, þegar það átti við. Hann var og ófeiminn að taka til máls á fundum okkar jafnaðarmanna og setti fram viðhorf sín á kjarnyrtan og mark- vissan hátt. Það vissu allir hvar þeir höfðu Eyjólf Bjarnason – hann kom framan að hlutunum og sagði þá um- búðalaust. En um leið var ekki traustari og betri félaga að finna, þegar í baráttuna var komið. En á þessu síðdegi spjölluðum við einnig um æskuslóðir Eyjólfs og fór- um í huganum vestur á Súganda- fjörð. Hann fór á kostum þegar hann lýsti fyrir okkur lífsins gangi vestur þar fyrr á tímum. Lífið var ekki alltaf dans á rósum og meitlaði í stein kraftmikið og dugmikið fólk á borð Eyjólf Bjarnason. Hann var Vest- firðingur og stoltur af því. Þetta sein- asta síðdegi með vini okkar Eyjólfi hérna megin strandar mun aldrei líða okkur félögunum úr minni. Eyjólfur Bjarnason gegndi mörg- um trúnaðarstöðum fyrir Alþýðu- flokkinn í Firðinum. Hann var við- loðandi hafnarstjórn um áratuga- skeið, enda trillukarl af lífi og sál. Hann lét sér mjög annt um uppbygg- ingu hafnarinnar og á þeim vettvangi eins og öðrum hafði hann ákveðnar og mótaðar skoðanir og lá ekki á þeim. Eyjólfur á sannarlega þakkir skildar fyrir aðkomu að mörgum framfaraskrefum á vettvangi hafnar- mála í Hafnarfirði. Fyrir nokkrum árum fóru Hafn- arfjarðarkratar í heimsókn til flokks- systkina í Cuxhaven í Þýskalandi, en þýskir flokksvinir höfðu árinu á und- an sótt okkur heim til Hafnarfjarðar og ferðast um landið. Í mikilli mót- tökuveislu í Cuxhaven, þar sem haldnar voru margar ræður á þýsku, þá bað Eyjólfur um orðið. Síðan flutti hann þrumandi ræðu á íslensku, á þann hátt sem honum var einum lag- ið. Hlaut að launum mikið lófatak, en Þjóðverjarnir sem ekki skildu auka- tekið orð í íslensku, sögðust engu að síður hafa í raun skilið vel inntak ræðunnar, þegar þeir heyrðu fossa- og árniðinn í hverju orði Eyjólfs og þá fundist sem þeir væru komnir til Íslands aftur. Eyjólfur var mikill fjölskyldumað- ur og átti þar láni að fagna. Guðfinna kona hans, mikill dugnaðarforkur og góð kona, er af miklu kratafólki kom- in. Börnin og barnabörnin eru öll myndarfólk og fjölskyldan hefur æv- inlega staðið þétt saman í blíðu og stríðu. Þau Guðfinna og Eyjólfur voru mjög áhugasöm um framgang mála hjá FH, enda börnin og barna- börnin öll í leik og starfi hjá félaginu. Á þessari stundu viljum við fé- lagarnir þakka Eyjólfi frábært sam- starf og tryggan stuðning í gegnum tíðina. Það er gott að eiga vin á borð við Eyjólf Bjarnason. Við og fjölskyldur okkar sendum Guðfinnu, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ættingjum Eyjólfs innilegar samúðarkveðjur. Megi minning um góðan og traustan mann milda sára sorg. Ingvar Viktorsson, Guðmundur Árni Stefánsson. Um hásumar kveður Hafnfirðing- urinn Eyjólfur Bjarnason okkur og við fylgjum eftir í huganum lífshlaupi þessa jafnaðarmanns sem sagði okk- ur skoðun sína þegar honum fannst þess þurfa. Eyjólfur hefur lagt mikið til lands og þjóðar á sinni lífsleið. Hann og hans kona Guðfinna Vigfús- dóttir og öll þeirra fjölskylda hafa oftar en ekki komið mikið að verk- efnum jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Þakkir eru færðar Eyjólfi fyrir hans hug, vilja og atorku. Undanfarna mánuði hefur hugur margra dvalið hjá Eyjólfi og fjöl- skyldu vegna þess stóra verkefnis sem beið þeirra dag hvern. Í erli dagsins beið okkar gefandi kaffi- spjall, sem mun nú verða tekið á öðr- um stað og á öðrum tíma. Á stundum sem þessum minnumst við einnig fjölmargra funda með Eyj- ólfi og lifandi umræðu. Kjarnyrtar og orðhvassar ræður hans fengu okkur hin til að hlusta á með athygli. Umræðan endurspeglaði hugsjónir jafnaðarmanns, áhuga hans á Hafn- arfirði, en ekki hvað síst mikils áhuga á Hafnarfjarðarhöfn. Höfnin, út- gerðin og sjósóknin var það sem skipti ungan dreng miklu og þær tengingar og þekking nýttust vel þegar hann kom að málefnum stjórn- ar Hafnarfjarðarhafnar. Að leiðarlokum þökkum við Eyj- ólfi fyrir allt það sem hann hefur gert fyrir bæjarfélag sitt á liðnum árum og þann stuðning sem jafnaðarmenn sóttu til hans í ráðum og ræðum. Það sæti sem hann er nú sestur í er gott sæti, við hin yljum okkur við minn- ingarnar um góðan dreng sem varð að góðum manni. Mikill er missir Guðfinnu og fjölskyldunnar allrar. Hugur okkar, samúð og bæn beinist til þeirra nú um stundir. Drottinn gef þú dánum ró – hinum líkn er lifa. Gunnar Svavarsson og Lúðvík Geirsson. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista Innilegt þakklæti til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR BENEDIKTU JÓNSDÓTTUR, Byggðavegi 86, Akureyri. Guðmundur Magnússon, Jóna Guðmundsdóttir, Þórólfur Geir Matthíasson, Magna Guðmundsdóttir, Úlfar Björnsson, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Katrín Dóra Þorsteinsdóttir, Rannveig Antonía Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Grímsson, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON húsasmíðameistari og slökkviliðsstjóri, Akranesi, lést mánudaginn 18. júlí. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðju- daginn 26. júlí kl. 14.00. Kristín Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Morgunblaðið birtir minningargrein- ar alla útgáfudagana. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsing- ar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi að- eins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargreinun- um. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.