Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 29
um fjörutíu og tvö ár, og ekki var illa tekið á móti mér og alltaf gott að koma til ykkar Ástu. Ykkar líf breyttist mikið þegar þið fluttuð í Hæðargarðinn fyrir tíu ár- um en árin ykkar Ástu urðu alltof fá á nýja staðnum, en hún kvaddi þenn- an heim fyrir sex árum. Þið kynntust mörgum góðum vin- um eftir að þið fluttuð og ekki var slæmt að vera komin í sama hús og nafni minn, svili þinn og mágur Ástu. Það átti eftir að koma sér sér- staklega vel nú síðustu árin þegar þú varst orðin einn og var hægt að stilla klukkuna þegar þið fóruð sam- an í göngutúrana. Valli minn, það var yndislegt að þú gast komið á fjölskyldumótið í bústaðnum okkar í júní og verið í faðmi barna, barnabarna, barna- barnabarna og tengdabarna og varst þú ánægður með helgina þeg- ar þú fórst heim. Engan hefði þá grunað að þú ætt- ir svona fáar stundir eftir. Valli minn, ég vona að þér líði miklu betur núna og sért búinn að hitta Ástu aftur og þið getið rabbað um góðu árin sem þið áttuð saman. Valli minn, ég þakka þér sam- fylgdina, skilaðu kveðju til Ástu. Stefán Pálsson. Elsku afi, nú ertu kominn til ömmu eftir langa fjarveru. Þú varst einstakur afi, alltaf með allt á hreinu hvað sem það var. Þú varst vinsæll hjá okkur systkinun- um, það var gott að vera hjá ykkur ömmu, við vorum mikið hjá ykkur á yngri árum, stundum mörgum sinn- um í viku. Ég er búinn að heyra margar sögur af þér um störf þín, þú varst vinsæll á þínum vinnustöðum, þú varst ekki bara afi heldur eitt sinn verkstjóri minn, ég lærði mikið af þér, þessi fyrstu spor mín á vinnu- markaðinum. Afi, það væri svo margt hægt að segja um þig, þú varst einstakur í alla staði. Grjónin mín biðja Guð að geyma þig, og megi Guð geyma þig og varðveita þig, elsku afi minn. Þinn, Þorvaldur Stefánsson. Elsku besti afi minn, nú hefur þú kvatt okkur og ert farinn yfir móð- una miklu. Ég á von á því að hún Ásta amma hafi tekið mjög vel á móti þér. Núna ertu laus við allar þjáningarnar og líður vonandi betur eftir erfið veikindi síðustu árin. Þrátt fyrir öll þessi veikindi sem þú hefur gengið í gegnum hefur aldrei vantað upp á húmorinn hjá þér, sama hversu veikur þú varst var alltaf stutt í grínið. Að hafa átt þig að afa gerði mig stolta, þú varst alltaf aðal töffarinn þar sem þú komst. Alltaf svo fínn og snyrtilegur og með greiðsluna á hreinu. Að koma til ykkar ömmu í Ás- garðinn var alltaf gaman, þar var alltaf fjör og mikill gestagangur. Ég á margar og skemmtilegar minning- ar úr Ásgarðinum hjá ykkur sem munu ylja mér um hjartarætur um ókomin ár. Þegar aldurinn færðist yfir fluttuð þið ykkur um set yfir í Hæðargarðinn og þar eydduð þið ykkar síðustu æviárum. Þegar amma kvaddi okkur myndaðist mik- ið tómarúm í þínu lífi enda búin að ganga saman í gegnum súrt og sætt í meira en hálfa öld. Ég gleymi ekki þegar við barna- börnin gáfum þér farsíma í 80 ára afmælisgjöf. Það er nú sennilega ekki algeng afmælisgjöf á þeim tímapunkti en þú töffarinn varðst að vera maður með mönnum og eiga GSM. Þar sem ég vann hjá Síman- um á þessum tíma fékk ég ófá sím- tölin þegar þú lentir í vandræðum eða þurftir einhverjar upplýsingar um símann. Það er stutt síðan þú varst nógu hress til að mæta á fjölskyldumótið sem tókst mjög vel og allir skemmtu sér vel. Ég átti því miður ekki kost á því að njóta þess að vera með ykkur öllum. Til stóð hjá mér að fara með fjöl- skylduna til Íslands í ágúst og vera við brúðkaup Gísla bróður en það getur verið stutt á milli hláturs og gráts. Nú mun ég koma fyrr til Ís- lands til að kveðja þig í hinsta sinn. Það getur verið erfitt að vera langt í burtu frá sínum nánustu þeg- ar svona ber að en sem betur fer voru þær mamma og Hulda systir hjá mér þegar þú kvaddir. Við erum búnar að hafa styrk hver frá annarri sem hefur hjálpað okkur mikið í gegnum þetta. Elsku besti afi minn, takk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Linda Guðmundsdóttir, Danmörku. Elsku besti afi minn. Þegar ég settist niður með það í huga að setja niður á blað nokkur orð um þig, þá hreinlega fylltist hugur minn af fal- legum minningum um þig allt frá því ég var lítil stelpa þar til dagsins í dag. Það er svo yndislegt að eiga svona margar góðar og fallegar minningar til að hugga sig við á erf- iðum stundum sem þessum, elsku afi minn. Já, það voru sko forréttindi að hafa haft þig svona lengi með okkur. Ég mun án efa oft hugsa til ísbílt- úranna okkar á gamla hvíta Skod- anum, göngutúranna á stokknum með viðkomu á róló, heimsóknunum okkar í vinnuna til ömmu í Bústaða- kirkju á miðvikudögum til að sníkja eitthvert góðgæti hjá henni, ferðirn- ar enduðu svo með viðkomu á bóka- safninu í kjallaranum þar sem ég fékk alltaf að velja mér tvær bækur og án undantekninga voru það Einar Áskell og Langamma á þakinu. Þú varst sá sem huggaðir mig þegar ég datt í fyrsta sinn af hjólinu mínu í brekkunni í Ásgarðinum, ég fékk sár á handarbakið sem ég ber enn í dag merki eftir. Þær eru sko margar minningarnar um þig og þeim mun ég aldrei gleyma. Eftir að ég flutti svo til Reykja- víkur í fyrra, fór heimsóknum mín- um til þín að fjölga og kíkti ég oft inn hjá þér fyrir eða eftir skóla. Þá sát- um við yfirleitt og spjölluðum um allt milli himins og jarðar, gömlu og nýju dagana. Þú minntir mig statt og stöðugt á það að nú mættir þú al- veg fara að verða svolítið gleyminn því að þú værir ekkert unglamb lengur, þó svo að útlit þitt hafi nán- ast ekkert breyst síðan ég fæddist, eða í 23 ár. Þú varst alltaf svo gæjalegur og sama hversu veikur þú varst, afi minn, þá var aldrei langt í brosið og húmorinn hjá þér og gantaðist þú við hjúkkurnar á spítalanum og heillaðir alla upp úr skónum með sjarmanum þínum. Við mæðgurnar vorum staddar hjá Lindu systur í Danmörku þegar þú kvaddir og hélst í ferð þína til Ástu ömmu. Það var svo sárt að geta ekki knúsað þig á þessum síðustu stundum, afi minn. Ég hugga mig þó við það að hafa kvatt þig vel þegar ég fór til Danmerkur viku áður en þú fórst. Ég og mamma höfðum eytt vikunni með þér í Hæðargarðinum og notið hennar vel, þessa viku hlóg- um við mamma mikið að því þegar kom að matmálstímum og þú fórst að tala um hvað þig langaði að borða, þá var ekki eins og að við værum að tala við tæplega 85 ára gamlan mann heldur minntir þú helst á ungling þar sem þú baðst um kjúkling, franskar og kók eða eitt- hvað djúpsteikt frá Nings. Já, afi minn, það er sko óhætt að segja að þú varst engum líkur. Aldrei grunaði mig það þegar ég kvaddi þig að þetta væri mín síðasta kveðja, þú virtist alltaf ná þér upp úr öllum veikindum, en nú kom að því að líkaminn gæfi sig. Ekki er langt síðan við sátum á spítalanum og ræddum um ömmu og þá sagðir þú að þig væri nú bara farið að langa að komast til hennar. Þó svo að sökn- uðurinn sé óbærilegur þá er gott að hugsa til þess að nú ertu kominn til ömmu og Fannars bróður og þau hafa án efa tekið vel á móti þér. Ég sakna þín svo rosalega sárt, elsku afi minn. Hvíl í friði. Þín Hulda. Jæja, elsku afi minn, þá er komið að kveðjustund. Með stolti kveð ég afa, vin, töffara og Þróttara. Allt sem ég á eftir í þessu lífi á ég eftir að sakna þín, það er bara eðli- legt eftir allt sem við áttum saman, en samt brosi ég nú líka svolítið í gegnum tárin. Veikindum þínum er lokið, þú ert kominn til ömmu sem þú saknaðir svo mikið. Þú hefur skil- að þínu, komið þínum vel til manns, eins og sagt er, og litlu grjónin þín sem dýrkuðu þig og dáðu og sakna nú afa og langafa. Við hin skulum standa í stykkinu og gera það með sóma eins og þú kenndir okkur. Elsku afi minn, með þessum orð- um kveð ég þig, rík af nærveru þinni ást og umhyggju. Er sit ég ein með sjálfri mér og syrgi það sem miður fer þá er gott að vita að alltaf er hérna innra með mér mynd af þér. Þessi mynd sem ég í brjósti ber hún er birtan sem þú gefur mér, þegar hugur minn á flugi fer þá finn að ég á skjól hjá þér. Og úr mínum huga myrkið flýr þegar myndin þín þar verður skýr og ég finn að hjá þér birtan býr þegar brosir til mín dagur nýr þessi mynd sem ég í brjósti ber hún er birtan sem þú gefur mér, þegar hugur minn á flugi fer þá finn að ég á skjól hjá þér. (Kristján Hreinsson.) Takk, elsku afi fyrir allt, eins og þú sagðir við mig þegar amma dó, „verum ekki sorgmædd, gleðjumst yfir stundunum sem við áttum sam- an“. Lifi minning þín. Þín Ásta Birna. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 29 MINNINGAR ar minningar upp í hugann en erfitt er að festa þær á blað. Erfitt að koma þeim tilfinningum sem þeim minningum tengjast í orð. Orð eru lítils megn þegar kemur að því að kveðja kæran vin. Kæran vin sem hefur ávallt verið til staðar. Kristján Loftsson, eða Kitti eins og hann var alltaf kallaður, hefur kvatt okkur í síðasta sinn. Viljum við minnast hans eins og hann var þeg- ar við hittum hann síðast á Hrafn- istu þar sem hann bjó þessi síðustu tvö ár. Hann var að spila pútt þegar við komum við hjá honum. Og hann var lunkinn við að koma kúlunni of- aní og náði meðan við stoppuðum að fara tvisvar holu í höggi. Hægur og brosandi, hálf feiminn þegar honum var hrósað, þannig var hann. Ekki mikið fyrir að láta bera á sér eða hampa. Öll sín verk vann hann af al- úð, samviskusemi og vandvirkni. Kitti var aldrei ríkur en hafði nóg fyrir sig og hann gerði ekki kröfur um meira. Hann vann lengst af við landbúnaðarstörf og einnig við fisk- vinnslu á Drangsnesi. Hann var ekki fjármargur bóndi en fáir hafa hugs- að eins vel um og ræktað upp sinn bústofn eins og hann gerði. Hann var hluti af okkar fjölskyldu alltaf, alveg frá upphafi því hann var þarna þegar Jón fæddist. Hann var í fæði og þjónustu hjá foreldrum hans eins og oft tíðkaðist í þá daga. Þrátt fyrir að Kitti væri ókvæntur og ætti enga afkomendur þá átti hann mörg börn og barnabörn. Systkinin á símstöðinni á Drangs- nesi voru hans börn og síðan börnin þeirra og barnabörn einnig. Þannig var það bara. Börn sóttu mjög til hans og hann var þeim góður. Á okkar heimili kom Kitti fyrir tæplega 30 árum. Fyrst í fæði en bjó síðan hjá okkur í rúm tuttugu ár. Þægilegri mann í allri umgengni er vart hægt að finna. Allt vildi hann fyrir okkur gera og gerði ekki mikl- ar kröfur um þægindi sér til handa. Það voru ekki margir matartímar í mörg ár sem Kitti var ekki með stelpuhnokka í fanginu meðan hann mataðist. Hann las fyrir þær á kvöldin og kenndi þeim bænirnar. Þegar óþekktin í þeim var að gera út af við heimilisfriðinn var Kitti alltaf til staðar og til hans leituðu þær eftir og fengu stuðning. Hjá Kitta áttu þær alltaf öruggt skjól, hann var þeirra Kitti og verður allt- af. Börnin þeirra áttu líka hans ást og umhyggju. Kitti naut trausts og virðingar samferðamanna sinna. Var í sveit- arstjórn Kaldrananeshrepps og sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið. Hann vann ötullega fyrir Verkalýðsfélag Kaldrananes- hrepps og var gerður að heiðurs- félaga fyrir vel unnin störf í þágu verkafólks á starfssvæði þess. Kitti var mikill og góður dansmaður og hafði mikið gaman af að hlusta á góða harmonikkutónlist. Það er með miklum söknuði og hlýju sem við kveðjum okkar góða vin. Kveðjustundina bar brátt að og enginn var viðbúinn en þannig vildi hann fá að fara. Hann var á leið á Drangsnes í heimsókn í nokkra daga en í staðinn er hann nú alkom- inn heim aftur. Jenný og Jón. Í dag kveðjum við Kristján Hólm Loftsson, þann mann sem ég hef lit- ið hvað mest upp til og borið mesta virðingu fyrir. Leiðir okkar Kitta, eins og hann var alltaf kallaður, lágu fyrst saman þegar ég ungur maður var sendur af mínum vinnuveitanda ásamt fleiri mönnum á Drangsnes um hávetur til þess að setja þar upp nýja ljósa- vél en Kitti sá þá um að halda raf- magni á staðnum. Ég veitti strax athygli þessum hægláta og traustvekjandi manni sem tók á móti okkur og sá til þess að okkur liði sem best á meðan á dvölinni stóð en við vorum þarna í þrjár vikur. Aftur lágu leiðir okkar saman um vorið er við Ransý tókum saman og ég flutti á Drangsnes, en segja má að Kitti hafi átt sinn þátt í uppeldi þeirra systkina á símstöðinni með Elíasi og Ingibjörgu en hann var þar í heimili á uppvaxtarárum þeirra. Við Kitti skiptumst á að vakta ljósavélina nokkuð mörg ár og má segja að Kitti hafi leitt mig inn á þá starfsbraut sem er enn þann dag í dag mín aðalatvinna. Af Kitta hef ég lært að virða náungann og að reyna að koma til móts við skoðanir annarra eins og kostur er og ekki hvað síst að sætt- ast við alla ef um ágreining var að ræða. Börnin okkar Ransýjar hafa notið hlýju og góðmennsku Kitta eins og allir samferðamenn hans og erum við öll ríkari af að hafa fengið að njóta samvista við hann. Við söknum þín öll og biðjum al- góðan Guð að styrkja okkur, systur hans og afkomendur þeirra í sökn- uðinum. Blessuð sé minning þín. Tryggvi Ólafsson. Nú er elsku Kitti farinn og situr örugglega á góðum stað með afa og öllum sem hann þekkir þar og fylg- ist með okkur. Kitti „stóri“ eins og við kölluðum hann alltaf var okkur systkinunum afar góður og við litum alltaf á hann sem afa okkar. Hann var stoltur af okkur öllum og fylgdist vel með því sem við tókum okkur fyrir hendur og heldur því örugglega áfram það- an sem hann er núna. Það var alltaf gaman að hitta Kitta, hann lumaði alltaf á einhverju góðgæti og skemmtilegum sögum. Það voru ófá skiptin sem Kitti kom röltandi yfir götuna á Drangsnesi með eitthvert góðgæti handa okkur, eða bara til að spjalla. Við vorum líka tíðir gestir í fjárhúsunum hjá honum. Hann var alltaf tilbúinn til að gera hvað sem var fyrir okkur. Sama hvað við báð- um hann oft að fara með okkur í sund, hann var alltaf til í það. Við eigum honum mikið að þakka og er- um heppin að hafa fengið að kynnast honum og vera honum samferða í gegnum lífið. Elsku Kitti, við vonum að þér líði vel þar sem þú ert og að við hitt- umst aftur á þeim stað. Við biðjum góðan guð um að geyma þig og að styrkja alla ástvini þína í sorginni. Kær kveðja Kristján Hólm, Katla og Ólafur. Elsku Kitti, nú er kveðjustundin runnin upp. Hlýjar og góðar minn- ingar streyma fram. Þær eru ófáar minningarnar sem sækja á hugann og þegar við hugs- um um allar þær stundir sem að við áttum saman, þá kemur minning um hlýjan, elskulegan og góðan mann fyrst í huga okkar. Þú varst alltaf svo góður við okkur systurnar þegar við komum norður með foreldrum okkar. Það var alveg sama hvað þú varst að gera eða hvert þú varst að fara, þú varst alltaf tilbúinn að leyfa okkur að koma með þér. Þegar sá tími kom að þér fannst orðið tíma- bært að flytja suður þá komstu oftar í heimsókn til okkar á Selfoss og þær minningar eigum við eftir að geyma vel í hjarta okkar. Þú gafst þér alltaf tíma til að setjast niður og tala við okkur og það var alltaf svo gott að leita til þín, því að þú sýndir öllu sem að við vorum að gera mik- inn áhuga. Það er svo erfitt að kveðja þig, elsku Kitti, en minning um góðan mann lifir og þú munt alltaf eiga góðan stað í hjarta okkar. Guð geymi þig. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Kristín Jóna Johnnysdóttir, Ingibjörg Anna Johnnysdóttir og fjölsk. Elsku besti langafi. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Takk fyrir allt sem þú hef- ur kennt okkur. Skilaðu kveðju til lang- ömmu frá okkur öllum. Við elskum þig Fríða Karen, Elísabet, Tómas Ingi og Agnar Darri. HINSTA KVEÐJA Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út- för hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birt- ingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.