Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ég veit að var í miklum metum hjá öllu sínu frændfólki. Ég hef kynnst lítillega syni hans Ingvari og séð að hann hefur erft eftir pabba sinn hið góða, káta og létta skap. Þó að mikið hafi dunið á hjá honum í lífinu vona ég að hann varðveiti þessa eftir- minnilegu kosti föður síns. Helgi Lárusson. Helgi Ingvarsson frændi okkar er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Við höfum þekkt Helga alla okkar ævi, enda við bræður og Helgi systkina- börn og við höfum ávallt umgengist hann, sem bróðir væri. Sjaldan liðu meira en nokkrir dagar á milli þess að við hittumst eða hefðum símasam- band. Tilefnin voru fjölmörg – að ræða saman um lífið og tilveruna, fjölskylduna, vini og vandamenn, spila bridge og stangveiði. Helgi var vænn yfirlitum, ljósleit- ur, freknóttur og rauðhærður, mjög hávaxinn og sterkbyggður en samt fínlegur. Hann var góður maður, vin- ur, frændi og bróðir, skarpgreindur, réttsýnn, ráðhollur og kurteis, en gat verið stríðinn og kaldhæðinn, án þess að vera meiðandi. Helgi var hægur í hreyfingum en kvikur í hugsun og fljótur til svars. Hann var ávallt yf- irvegaður en samt var stutt í gam- ansemi og léttleika. Lipurð hans var einstök jafnt við skyldmenni, vini sem og viðskiptavini og hafði hann jafnan gaman af að koma mönnum á óvart á jákvæðan hátt. Hann gerði oft góðlátlegt grín af sjálfum sér og hafði gaman af að því að gleðja aðra og börn sérstaklega – „ég er stærsti, feitasti, sterkasti og besti frændi þinn, hvað get ég gert fyrir þig?“ Sögumaður var hann góður og ætl- um við að minnast hans með nokkr- um frásögnum. Helgi var alnafni afa okkar Helga Ingvarssonar yfirlæknis á Vífilsstöð- um. Sú regla var í fjölskyldu okkar að á sunnudögum svo og á helstu há- tíðisdögum hittist stórfjölskyldan hjá afa og ömmu á Vífilsstöðum. Ekki ósjaldan voru þarna um og yfir 30 manns, skyldmenni, vinir og oft fyrrum sjúklingar afa. Það var því oft glatt á hjalla heima á Vífilsstöðum, enda heimilisandinn sá að maður væri manns gaman. Venjulega voru fjörugar umræður í bland við leiki, gönguferðir og eftirmiðdagskaffi í Heiðmörk og árlega fór afi í göngu- ferð frá Vífilstöðum að Stranda- kirkju. Við barnabörnin gistum oft hjá afa og ömmu á Vífilsstöðum, leik- svæðið var stórt eða allt Vífilsstaða- svæðið, túnin, skógurinn, krokket- völlurinn, fjósið og hlaðan stóra svo ekki sé minnst á Vífilsstaðavatnið. Þar var bryggja og tveir seglbátar sem sjúklingar höfðu byggt í smíða- stofu hælisins, forlátasmíð. Afi hafði alla jafna net í vatninu og var þess vitjað kvölds og morgna. Einnig tók Helgi frændi fljótlega upp á því að veiða á stöng og veiddi oft vel. Við krakkarnir máttum líka fara út á hæli, en reglur afa voru afar skýrar: Við áttum að vera kurteis og tillitsöm og háreysti í námunda við hælið var bönnuð á hvíldartíma sjúklinga. Djúp vinátta var með afa og Helga, enda gisti hann á Vífilstöðum flestar helgar og starfaði þar nokkur sumur við garðyrkju. Hann fylgdi afa gjarn- an í ferðalögum og var með honum í nokkrum ferðum starfsmanna og sjúklinga á Vífilstöðum. Ætti Helgi þess kost vitjaði hann netsins í Víf- ilstaðavatninu með afa. Helgi fékk frá afa það hlutverk gagnvart hinum börnunum að gæta þess að reglum væri fylgt. Hann mátti fara með okk- ur hin börnin í fjósið, hlöðuna, báts- ferðir á vatninu og að vitja netsins. Helgi var leiðtogi okkar og virtist þekkja flesta starfsmenn og sjúk- linga. Á kvöldin fór hann gjarna út á hæli til að tefla og spila við sjúklinga eða horfa á kvikmyndir eða sjónvarp, hægt var að horfa á kanasjónvarpið þar. Góður keppnisandi ríkti heima á Vífilstöðum jafnt í líkamlegum sem andlegum íþróttum, en tekist var á í góðu. Helgi starfaði lengst af við bílafyr- HELGI INGVARSSON irtæki fjölskyldunnar. Hann hafði gaman af að keyra góða bíla og var einstakur ökumaður. Hann var vel lesinn um kosti og galla bíla og ekki bara þeirra sem Ingvar Helgason hafði umboð fyrir. Þótt ótrúlegt sé voru bílar honum ekki áhugamál og sjaldan ræddi hann þá að fyrra bragði. Helgi sagði um fyrirtæki föð- ur síns, Ingvars Helgasonar, þegar það var í sem mestum blóma: „Við sem fyrirtæki erum kannski stór á ís- lenska vísu, en í reynd erum við bara bílasalinn á horninu. Við verðum að vera aðgengileg og vilja þekkja við- skiptavininn og óskir hans, við þurf- um líka að hafa að markmiði að veita góða, skjóta og sanngjarna þjónustu. Ef þetta gleymist er voðinn vís.“ Helgi var náttúruunnandi og hafði gaman af dýrum, einkum fuglum og fiskum. Hann gerði sér far um að skilja hver væri drifkrafturinn á bak- við hegðun þeirra og ferðir. Hann var veiðimaður góður og kættist ef hann var kallaður Helgi veiðimaður. Helga afa þótti bleikjan í Vífilsstaða- vatninu lostæti, en urriðann sagði hann kattamat. Eitt haustið þegar Helgi var unglingur vaktaði hann lít- inn læk, sem rennur út í Vífilsstaða- vatnið. Í októberlok hafði urriðinn gengið upp í lækinn til hrygningar. Lækurinn var girtur af með neti, nokkur hundruð urriðar veiddir, mikil veisla fyrir ketti á Vífilsstöðum og víðar. Bleikjustofninn í vatninu styrktist verulega eftir þetta. Helgi vildi gera lax- og silungsveiði að fjöl- skylduíþrótt. Hann hefur haft á leigu veiðiréttindi í Laxá á Refasveit um árabil, í seinni tíð með okkur bræðr- um ásamt Ingvari bróður sínum. Af- ar góð og ánægjuleg samvinna hefur verið við heimamenn, einkum for- menn veiðifélagsins, þá Árna á Sölvabakka, sem féll frá sviplega í fyrra, og síðan Magnús á Syðra Hóli. Áhersla lögð á fagurt umhverfi og veiði fyrir fjölskylduna. Eftir að Helgi veiktist þá talaði hann um að ekki yrði hann langlífur og við ræddum tilgang lífsins. Helgi sagði að í sínum augum væri höfuð- tilgangur að vera hamingjusamur og í því sambandi mikilvægt að láta gott af sér leiða. Það var gott að eiga þig að sem hauk í horni og við munum sakna samverustundanna, en eins og höf- uðskáldið sagði: „En eg veit, að lát- inn lifir, það er huggun harmi gegn“. Við sendum að lokum samúðar- kveðjur til hans nánustu, Sigríðar Gylfadóttur eiginkonu, Sigríðar Guð- mundsdóttur móður, Ingvars Júl- íusar sonar, uppeldisbarna, tengda- barna, barnabarna, systkina og annarra ástvina og biðjum þann sem öllu ræður að varðveita Helga Ingv- arsson, frænda okkar og fóstbróður. Helgi, Stefán og Grétar Már Sigurðssynir. Kæri vinur. Nú nýtur þín ekki lengur við. Mikið er það sárt. Og hver á nú að kenna manni alla spila- klækina? Okkar kynni voru ekki löng en mér finnst eins og ég hafi þekkt þig alla tíð. Fyrir 8 eða 9 árum sá ég þig fyrst. Á Ekru heima hjá Ingvari. Til stóð að spila. Ég var búinn að telja mér trú um að nú kæmi einhver stór- bokkinn sem líklega liti stórt á sig. Það hlyti að eiga við stórbílasalann Helga Ingvarsson. En það var nú aldeilis ekki. Fljótt kom í ljós hvaða mann þú hafðir að geyma. Ef ég væri spurður hvað orðið góður þýddi mundi ég segja „eins og hann Helgi Ingvars var“. Göfugmenni sem aldr- ei skipti skapi en var stundum góð- látlega stríðinn. Það var nú helst við spilaborðið þegar einhver undarleg sögn kom frá þér inn á milli þegar samningur var að nást. Allt fór á versta veg og þið bræður toppuðuð spilið. Svo lærðum við á þig með tím- anum og stundum mistókst að plata okkur hina. Þá kom „Sorry makker, geri þetta ekki aftur“. Þetta voru yndislegar stundir. Snilli þín í spilamennskunni var áberandi og fór ekki á milli mála að þú kunnir ýmislegt fyrir þér. Kennd- ir manni margt. Þú komst ýmsu á, eins og að leggja peninga í ferðasjóð, að bjóða öllum klúbbnum með mök- um í villibráð sem þú hafðir sjálfur veitt. Þú kenndir okkur að borða sushi. Síðastliðin misseri fór sjúkdómur- inn að segja meira til sín og það var greinilegt að þú naust þess ekki eins og áður að eiga góðar stundir. Ég er viss um að þér leið oft illa, en aldrei heyrðist kvörtunarorð. Þú vildir frekar láta okkur heyra þinn sér- staka hlátur, klóra þér í hnakkanum og spila svo út eitruðu spili. Kæri vinur, ég vil fá að þakka þér fyrir stundirnar sem ég upplifði með þér. Þær voru einstakar enda fá- dæma þægilegt að umgangast þig. Þráðurinn til þín er lengri þessa stundina en einhvern tíma styttist í honum aftur. Elsku Sigga og fjölskylda, kæri Ingvar og fjölskylda, Ingvar sonur og allir ættingjar, ég og Lóa vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð. Megi Guð vera með ykkur öllum. Konráð Konráðsson. Helgi Ingvarsson hafði stærsta faðm sem ég hef kynnst. Faðm sem rúmaði alla, ekki bara fjölskyldu og vini heldur líka þá sem minna máttu sín í samfélaginu. Við Helgi tengdumst fjölskyldu- böndum þegar Bjarni sonur minn kom inn í fjölskyldu hans fyrir 11 ár- um. Frá fyrsta degi urðu þeir mjög nánir og Bjarni gat leitað til Helga sem föður. Á erfiðleikatímum þegar stundum var erfitt að segja hlutina eins og þeir voru, átti Helgi það eyra sem alltaf var hægt að treysta að hlustaði og hann réði heilt. Hann var heill í öllum sínum gjörðum, ótrúleg- ur mannvinur. Ef dimmdi yfir hjá einhverjum var öruggt að það lýsti aftur í návist Helga. Þótt fjölskyldubönd okkar Helga hafi aðeins varað í ellefu ár, þekkt- umst við mun lengur því hann var vinur eiginmanns míns heitins, Sig- urðar Friðrikssonar. Það kom okkur Helga því þægilega á óvart þegar leiðir barnanna okkar lágu saman. Frá þeim tíma hef ég átt ógleyman- legar samverustundir með þeim hjónum, Sigríði og Helga, jafnt utan lands sem innan þar sem við nutum samvista með börnum okkar og barnabörnunum. Helgi var sérstakur fjölskyldu- maður og einstakt hvernig hann hafði alltaf tíma til að sinna barna- börnunum sínum, jafnt með um- hyggjusemi og kátínu. Það lýsir kannski Helga einmitt hver viðbrögð yngsta barnabarnsins míns voru þegar honum var tilkynnt um lát afa síns: ,,En hver á þá að djóka í okkur fyrst afi er dáinn?“ Það er gott að geta kvatt með minningum sem þessum hjá afkomendum. Ótal sinnum fylltu rauðar rósir af hæstu gerð heimili mitt, enda lét Helgi sér ekki nægja að kaupa slíkar handa Siggu sinni heldur líka handa tengdamömmu Maríu. Svona rósum lét hann líka senda eftir síðasta dag- inn sem hann var í meðferð á Land- spítalanum, til að færa starfsfólki deildarinnar. Ekki til að kveðja það, heldur aðeins til að gleðja. Daginn eftir hafði hann kvatt þetta líf. Helga Ingvarssyni þakka ég langa og góða samfylgd, fyrir allar góðu minningarnar sem hann skilur eftir sig hjá mér, en mest fyrir það hversu vel hann reyndist Bjarna syni mínum og barnabörnunum. Valborg Bjarnadóttir. „Sæll vertu vinur, ævinlega“, voru upphafsorð félaga míns og vinar Helga Ingvarssonar þegar við hitt- umst eða ræddum málin. Hægt er að fullyrða að þær sam- verustundir hafi haft góð áhrif á sál- artetrið enda málin tekin til skoðun- ar og rædd til hlítar. Þessar lærdómsríku, góðu og oft sársaukafullu stundir eru nú að baki og eftir situr minningin ein, um góð- an dreng, sem var vinur vina sinna og náði sú vinátta til allra í minni stórfjölskyldu enda vorum við í dag- legum samvistum á árum áður. Upphafsár vináttu okkar má rekja til námsáranna að Laugarvatni en þar var námið sótt af hörku í lífsins skóla, auk þeirra fræða sem okkur var ætlað að nema af skólastjórnend- um á þeim góða stað. Við vorum nær allan tímann herbergisfélagar enda bekkjarbræður og útskrifuðumst á sama ári. Við tóku aðrir tímar, annað um- hverfi og vissulega nýir félagar en sú vinátta sem varð til á þessum árum og er aðalsmerki þeirra sem útskrif- ast frá Laugarvatni, hélst allt til lokastundar sem Helga var ætluð hérna megin. Þegar Halldóru þína þú hittir það var lán þitt og hamingjuspor í gegnum sælu í sorgina glittir geymd sem hugljúfust minning um vor. Að loknum skúrum kom sólin þó aftur skín í fegurð og heiðloftið blátt. Með Sigríði kom sumar og kraftur, saman tilveru nutuð í sátt. Hægt væri að rifja upp góðar stundir er við áttum hjónin með Helga og Halldóru, sem var fyrri kona hans, m.a. við veiðar í Andakíln- um eða á heimili þeirra á Seltjarn- arnesi en Helgi missti Halldóru langt fyrir aldur fram og við tóku sárs- aukafullir tímar hjá Helga, mikið vinnuálag og mikil uppbygging í fyr- irtæki Ingvars Helgasonar sem Helgi átti stóran þátt í að byggja upp með stórfjölskyldu sinni. Helgi fann síðar tryggan förunaut, hana Sigríði og áttum við einnig margar góðar stundir með þeim hjónum við veiðar í ám og vötnum m.a. á Valshamri eða í frábærum menningarferðum um Reykjavík eða París, svo eitthvað sé nefnt. Góðar stundir í sumarhúsi á Spáni eru einn- ig ofarlega í huga okkar hjóna. Synir mínir minnast samveru- stunda með Helga með þakklæti, enda var hann einstakur í nærveru barna og unglinga og kom það vel í ljós þegar hann tók að sér föðurhlut- verk sinna lífsförunauta. Helgi eignaðist son sinn Ingvar fljótlega eftir menntaskólaár sín á Laugarvatni. Ingvar sér í dag á bak föður en áður hefur hann kvatt móð- ur sína og hálfbróður. Átökin eru því mikil hjá syni Helga og er það von okkar að hann nái að vinna úr sorg sinni í þeim anda sem faðir hans hefði viljað. Ófáa bíla hef ég átt eða ekið sem tengdust eða komu frá Helga. Eitt símtal varð að kaupum á nýjum bíl sem ég hafði ekki ráðgert þá stund- ina en varð að góðri minningu um frábær samskipti sem ég mun búa að alla tíð. Oft við brosum er lítum til baka býsna margt er sem segjum ei frá. Þó af ýmsu er þar til að taka sem trauðlega fer okkur frá. Ætíð glatt var á hjallanum hjá þér hljóðlát kímnin og létt var þín lund og það létti á lífinu hjá mér löngum með þér að eiga hér stund. Hér kveðjumst við, kæri vinur. Það er von mín og trúa að ég muni vakna þín megin í fyllingu tímans við þessi notalegu orð sem þú viðhafðir hérna megin; „Sæll vertu, vinur, æv- inlega.“ Við þökkum góðar samverustund- ir og biðjum góðan guð að halda verndarhendi yfir fjölskyldu Helga vinar okkar Ingvarssonar. Sigurður Valur Ásbjarnarson og Hulda Stefánsdóttir. Helgi minn, mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Þar sem við vorum góðir vinir þeg- ar ég var ung, og oft hjálpaðir þú mér þegar ég þurfti á því að halda. Við kynntumst þegar þú komst inn í fjöl- skylduna og þú varst unnusti systur minnar Sesselju (Daddý) og eignað- ist með henni einkasoninn yndislega Ingvar Júlíus. Svo skildu leiðir ykkar og þú kynntist Dóru sem átti eina dóttur og þú gerðist fósturfaðir hennar og Ingvar kallar hana alltaf Siggu systur þar sem Ingvar bjó hjá þér eftir 5 ára aldur og gekk í Ísaks- skóla. Í dag á Ingvar góða konu og þrjú yndisleg börn. Það eru Helgi, Sesselja Júlía og Kári Jökull. Elsku Ingvar og Begga, sem betur fer eigið þið mjög góða vini að sem styðja ykkur í þessari sorg sem þið hafið þurft að ganga í gegnum síðast- liðin átta ár þar sem þú ert búinn að missa bróður þinn og móður og nú föður ykkar. Allý og Ingi hafa staðið eins og klettar við ykkar hlið og vil ég þakka þeim fyrir. Elsku Sigríður mín, ég vil þakka þér fyrir þinn hlýhug þegar ég kom inn á heildsölu til þín. Ég vil votta þér og systkinum hans og öðrum aðstandendum mína inni- legustu samúð. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Elsku Ingvar, Begga, Helgi, Sess- elja Júlía og Kári Jökull. Megi ykkar algóði guð styðja ykkur og styrkja í þessari miklu sorg. Með kveðju, Anna frænka. Þakklæti er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við setjumst nið- ur og minnumst Helga vinar okkar Ingvarssonar, þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að kynnast og fá að eiga að vini þennan einstaka mann. Leiðir okkar Helga lágu fyrst saman þegar ég kom til starfa í fyr- irtæki föður hans við Sogaveginn fyrir þremur áratugum. Eðlilega lað- aðist maður strax að þessum mikla manni því að hann hafði einstaka nærveru. Þegar hugsað er til þeirra eiginleika sem helst einkenndu Helga kemur svo margt upp í hug- ann. Hann var hjartahlýr með ein- dæmum, góður vinur vina sinna og einstakur afi. Það var ekki oft sem maður sá Helga skipta skapi og þó svo að við værum ekki alltaf sammála gaf hann sér ævinlega tíma til að hlusta. Þær voru ófáar samverustundirn- ar og þá helst í útlandaferðum sem við fórum saman til að semja við er- lenda birgja og var Helgi slyngur samningamaður. Hann tamdi sér að vingast við viðsemjendur sína og átti í þeirra hópi marga góða vini. Við hjónin fórum einnig í ófáar skemmti- ferðir með Helga og Siggu og standa þar helst upp úr ferðir til Kaup- mannahafnar, Amsterdam og ævin- týraleg, 10 daga ferð um 9 Evrópu- lönd þar sem Helgi var í essinu sína undir stýri en hann treysti fáum bet- ur en sjálfum sér í því hlutverki. Mest hafa þau misst Sigga, Ingv- ar, Sigríður, barnabörnin og systkini hans og vottum við hjónin þeim öll- um okkar dýpstu samúð. Megi góður Guð geyma Helga og hjálpa ástvinum hans að ylja sér við góðar minningar. Jakob og Sigrún. Lífsgleðin lá svo létt við honum og áran hans var svo öflug í umhverfinu. Það er grábölvað að missa hann fyrir aldur fram, þennan öðlingsdreng sem þekkti vandamál að því einu að leysa þau. Helgi Ingvarsson átti stað í hjarta allra sem kynntust honum vegna þess að viðmót hans var slíkt, fullt af hlýju og glettni, hispursleysi og drif- krafti. Hann var einn af þessum geislandi persónuleikum og slíkir töfrar verða ekki keyptir. Slíkir töfrar eru meðfæddir og ræktaðir. Það brást aldrei að það var skemmtilegt að hitta Helga því sjálf- ur var hann á sinn hátt hátíð. Hann var kaupmaður og lífskúnstner af lífi og sál og sigldi ekki alltaf hefðbundn- ar leiðir í þeim efnum. Ég held að hann hafi stundum not- ið áhættunnar, en er líka jafn sann- færður um að hann vissi nákvæm- lega hvað hann var að gera og hvað hann ætlaði sér þótt beitt væri upp í á óhefðbundinn hátt með jafn snörp- um hætti og þegar léttast leikur í misvindi. Helgi Ingvarsson var traustur og stórhuga eins og ætt hans öll, ein- stakt ljúfmenni og ötull kaupsýslu- maður sem söknuður er að, vinur og félagi og mikill fjölskyldumaður. Megi góður Guð vernda vandamenn og vini og gefa þeim styrk á erfiðum tímamótum. Það er mikill styrkur í því að eiga góðar minningar um mann lífsgleðinnar. Árni Johnsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.