Morgunblaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 15
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kópavogur | Bæjarstjórn Kópavogs
tók á fundi sínum 19. júlí sl. vel í til-
lögu fulltrúa Samfylkingarinnar um
aðgerðir til að
auka notkun ung-
menna á Strætó í
tengslum við
upptöku á nýju
leiðarkerfi. Hug-
myndir Samfylk-
ingarinnar miða
að því að bjóða
ungmennum sér-
stök kjör og
hvetja þau með
því til þess að nota almennings-
samgöngur. Var samþykkt að vísa
tillögunni til bæjarráðs til áfram-
haldandi vinnu.
Í tillögu fulltrúa Samfylking-
arinnar er mælst til þess að bæj-
arstjórn Kópavogs efni til hvatn-
ingarátaks meðal 12 –18 ára
ungmenna í Kópavogi til að nota
strætó. Hvatningarátakið standi í
a.m.k. einn mánuð og hefjist í lok
ágústmánaðar.
Í greinargerð fulltrúa Samfylk-
ingarinnar segir m.a. að efling al-
menningssamgangna sé brýnt verk-
efni sveitarstjórna á Íslandi í dag.
Með aukinni notkun strætó dregur
úr mengun og álag á umferðaræðum
minnkar. Segir í greinargerðinni að
því sé áhyggjuefni að á und-
anförnum árum hafi dregið nokkuð
úr farþegafjölda í strætó á höf-
uðborgarsvæðinu. „Ástæður þess
geta verið ýmsar en áríðandi er að
bregðast við og reyna með öllum
ráðum að hvetja íbúana til að nota
strætisvagnakerfið mun betur í
framtíðinni,“ segir í greinargerð-
inni.
Mögulega fríkort í einn mánuð
Nýtt leiðakerfi Strætó tekur gildi
laugardaginn 23. júlí nk. og er yf-
irlýst markmið þess að efla almenn-
ingssamgöngur þannig að þær verði
raunhæfur valkostur og fleiri taki
strætó. Fulltrúar Samfylkingar
segja því mikilvægt að ná til unga
fólksins og hvetja það til notkunar á
almenningssamgöngum. „Því er lagt
til að nú þegar nýtt leiðakerfi tekur
gildi verði ungt fólk á aldrinum 12 –
18 ára í Kópavogi hvatt sérstaklega
til að nota strætó,“ segir m.a. í
greinargerð fulltrúa Samfylking-
arinnar. „Það má t.d. gera með því
að gefa þessum aldurshópi kost á að
sækja um fríkort í strætó fyrir
ákveðið tímabil, t.d. einn mánuð, á
heimasíðu bæjarins eða á heimasíðu
Strætó. Þar væri jafnframt hægt að
kanna afstöðu unga fólksins til
strætó og hins nýja leiðakerfis.
Þetta gæti gagnast bænum sem eig-
anda strætó og Strætó bs. þar með
talið og síðast en ekki síst unga fólk-
inu og fjölskyldum þeirra. Lok
ágústmánaðar telst heppileg tíma-
setning þar sem grunn- og fram-
haldsskólar hefja starfsemi sína í
lok mánaðarins.“
Samstaðan afar jákvæð
Að sögn fulltrúa Samfylking-
arinnar felst kostnaður bæjarins í
kynningu á átaksverkefninu sem og
greiðslum fyrir þau kort sem ganga
út en það fari að sjálfsögðu eftir
áhuga unga fólksins. Ljóst sé, að
átaksverkefni af þessu tagi þurfi að
kynna með áberandi hætti.
Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur,
bæjarfulltrúa Samfylkingar, er afar
ánægjulegt að samstaða skuli mynd-
ast um málið í bæjarstjórn. „Það er
gott mál að við getum sameinast um
jákvæð atriði eins og þetta,“ segir
Sigrún. „Sérstaklega leist fulltrúa
okkar Kópavogsbúa í stjórn Strætó
bs., Ármanni Kr. Ólafssyni, vel á
þetta, svo ég er bjartsýn á að þetta
geti gengið vel upp.“
Sigrún segir hér um að ræða
verkefni sem gæti hjálpað til að
auka farþegafjöldann í strætó, ef ýtt
er undir að ungt fólk nýti sér al-
menningssamgöngur. „Það mun
m.a. draga úr þessu skutli sem
margir foreldrar kannast svo vel
við,“ segir Sigrún. „Það á eftir að
koma í ljós hversu vel þetta nýja
leiðarkerfi virkar, en auðvitað von-
um við að það skili þeim árangri að
fleiri geti nýtt sér almennings-
samgöngur en hingað til. Þetta er
okkar fyrsta skref til að efla notkun
á almenningssamgöngum.“
Bæjarstjórn Kópavogs vill auðvelda ungum
Kópavogsbúum að ferðast með strætisvögnum
Sérstök kjör og hvatning
Snjallræði Fyrir nokkrum árum voru gerðar prófanir með smartkort í
höndum unglinga í Kópavogi og þóttu þær heppnast vel. Ungmenni í Kópa-
vogi kunna án efa vel að meta að þeim sé auðveldað að nota strætisvagna.
Þá kunna foreldrar líklega einnig að meta minna skutl.
Sigrún Jónsdóttir
Hafnarfjörður | Sumarhátíð
Íþrótta- og tómstundaráðs
Hafnarfjarðar (ÍTH) verður
haldin í dag. Hátíðin hefst á
Hörðuvöllum kl. 13 og stendur
til 15.30.
Á hátíðinni verður boðið upp
á fjölbreytta skemmtun og
munu yngstu gestirnir hljóta
óvæntan glaðning.
Meðal annars koma fram
listahópar úr Vinnuskólanum,
þar á meðal leiklistarhópur,
fjöllistahópur, tónlistarhópur og
fleiri. Einnig koma fram hljóm-
sveitirnar Úlpa, Spilabandið
Runólfur og Fobia. Þá verður
farið í hið sígilda og sívinsæla
rjómabollukast sem fellur alltaf
í kramið hjá ungum jafnt sem
öldnum.
Þá verða á svæðinu hoppu-
kastalar auk þess sem boðið
verður upp á pylsur og drykki.
Litríkt Það verður mikið um dýrðir á sumarhátíð ÍTH í dag, eins og á
hátíðinni í fyrra þar sem þessir félagar létu ljós sitt skína.
Hafnfirðingar gleðj-
ast á Sumarhátíð
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið