Morgunblaðið - 21.07.2005, Síða 16

Morgunblaðið - 21.07.2005, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI LANDIÐ Hengill | Landgræðslan hefur lokið einu af sínum stærstu landgræðsluverkefnum í sum- ar, uppgræðslu á heiðinni vestan Hengils og Húsmúla. Á svæðinu, sem telst til Sveitarfé- lagsins Ölfuss, eru um eitt þúsund hektarar af illa förnu landi, sem samsvarar um fimmtán þúsund einbýlishúsalóðum, og hefur verið langversta landið í nágrenni höfuðborgarinn- ar. Að sögn Andrésar Arnalds, fagmálastjóra Landgræðslu ríkisins, hefur Landgræðslan lengi haft hug á því að græða þetta land enda hafi það verið að blása upp með vaxandi þunga. Það var þó ekki fyrr en Orkuveita Reykjavíkur lagði veg að borstæði í jaðri svæðisins að hægt var að koma þangað nauð- synlegum tækjum. Á síðasta sumri var gerð tilraunasáning í samvinnu við Orkuveituna og gaf hún svo góða raun, að sögn Andrésar, að ákveðið var að ráðast í það verkefni að græða svæðið upp. Í sumar var áburði og fræi dreift um meg- inhluta svæðisins, alls um 170 tonnum á um 800 hektara. Á næsta ári verður lokið við sán- ingu en síðan þarf að bera áburð á næstu árin, á meðan gróðurinn er að ná sér á strik. Verkefnið er unnið í samstarfi við Orkuveit- una, en á svæðinu er meginvatnstökusvæði veitunnar vegna Hellisheiðarvirkjunar; Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og fjáreigendur í Reykjavík og í Kópavogi. Kostaði uppgræðslan í sumar um 8 milljónir kr. Andrés segir að fjármögnun verkefnisins sé tryggð í tvö ár til viðbótar. Verst farna landið á höfuðborgarsvæðinu grætt upp Vestmannaeyjar | Dalabúið í Vestmannaeyjum hefur smám saman verið að ganga í endurnýj- un lífdaga þó hlutverkið sé breytt. Dalabúið var áður kúabú sem sá stórum hluta Eyjamanna fyrir mjólk, síðar varð það tækja- geymsla bæjarins og nú er þar hesthús og síðast en ekki síst leik- hús. Þar er hægt að kynnast magnaðri sögu Tyrkjaránsins í Vestmannaeyjum, þar sem stórum hluta íbúanna var rænt og hann hnepptur í þrældóm í Barbaríinu og enn aðrir voru brytjaðir niður miskunnarlaust. Húsnæðið skapar þessu drama- tískt umhverfi með svipi Þórðar Svanssonar á sviðum í báðum end- um, langborði, listaverkum á veggjum og kertaljósum á borðum og veggjum. Komu Tyrkja minnst Dalabúið er myndarleg bygging í stíl gömlu torfkofanna, með tveimur burstum og millibygg- ingu. Í annarri burstinni hefur Þórður Svansson komið upp vísi að leikhúsi og/eða samkomusal sem minnir á samkomuhúsið í Stuðmannamyndinni, Með allt á hreinu, því þegar inn er komið kemur í ljós að þar er bæði hátt til lofts og vítt til veggja. Þórður hefur viðarklætt báða endana og komið upp sviði báðu megin og eftir endilöngu gólfinu eru borð með áföstum bekkjum. Á berum veggjum eru listaverk eftir Þórð og fjöldi kerta sem saman skapa dulúðlegt andrúmsloft þegar raf- ljósin eru slökkt. Laugardaginn 16. júlí síðastlið- inn voru 378 ár frá því að Tyrkir stigu á land í Vestmannaeyjum og var þess minnst í Dalabúinu með gjörningnum Ópinu sem Þórður Svansson átti veg og vanda að. Árni Johnsen las texta þar sem atburðum var lýst og til að undir- strika áhrifin hljómuðu undir um- hverfishljóð, öldugjálfur, vopna- brak, eldur og angastaróp fólks í neyð. Allt var þetta vel gert og til að leggja enn frekari áherslu á óhugnaðinn stóðu svipirnir hans Þórðar, skúlptúrar í mannsmynd íklæddir dökkum kuflum, sem leikmunir ásamt kertum og upp- lýstum listaverkum Þórðar og burstin í Dalabúinu var leiksviðið. Blóðtaka í byggðarlaginu Sennilega hefur ekkert byggð- arlag á Íslandi orðið fyrir annarri eins blóðtöku og þegar Tyrkir, eða réttara sagt Alsíringar, höfðu á brott með sér 242 Eyjamenn sem þeir hnepptu í þrældóm og drápu aðra 36. Þetta gerðist árið 1627. Hér dvöldu þeir í þrjá daga, frá 16. til 19. júlí, og skildu eftir byggðarlag í auðn. Þórður og Sigurmundur Ein- arsson, ferðafrömuður í Eyjum, ætla að bjóða ferðamönnum og öðrum að kynnast þessum dökka kafla í sögu Vestmannaeyja. Það er vel tímans virði auk þess sem Dalabúið hentar vel fyrir alls kon- ar uppákomur. Saga Tyrkjaránsins sögð í Dalabúinu Morgunblaðið/Sigurgeir Hönnuður Þórður Svansson í Dala- búinu með svipina sína í baksýn. Eftir Ómar Garðarsson GÖNGUGARPARNIR Bjarki Birg- isson, sundþjálfari og afreksmaður í sundi, og Guðbrandur Einarsson, sem er nuddari, kennari og bóndi, komu til Akureyrar í gær, en þeir eru sem kunnugt er að ganga hring- inn í kringum landið undir yf- irskriftinni: Haltur leiðir blindan. Bjarki er hreyfihamlaður og Guð- brandur er nærri blindur. Þeir hófu gönguna í Reykjavík 20. júní síðast- liðinn þannig að þeir hafa verið á ferðinni í einn mánuð. Þeir áætla að ljúka hringferðinni 4. ágúst næst- komandi. Fjölmenni tók á móti félögunum, m.a. félagsmenn í Sjálfsbjörgu, fé- lagi fatlaðra og Félagi langveikra barna á Norðurlandi, við komuna til bæjarins. Einnig voru þar fulltrúar úr bæjarstjórn og bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson sem gaf sig fyrst á tal við Bjarka og innti frétta af göngunni. „Það er hérna maður sem vill tala við þig,“ kallaði Bjarki svo til Guðbrands fé- laga síns. „Hann getur bara fært sig yfir til mín,“ svaraði Guðbrandur, sem og bæjarstjóri gerði og saman gengu þeir ásamt fjölda fólks áleiðis að Ráðhústorgi þar sem var mót- tökuathöfn síðdegis. Á leiðinni í bæinn var opnuð inn- setning á myndverki Karls Guð- mundssonar og Rósu Júlíusdóttur. Það heitir Hér og nú og er á flöt skammt frá sambýli fyrir fatlaða við Hafnarstræti. Hugmyndina að fékk Kalli nokkru áður en þeir félagar hófu gönguna, en Rósa sem lýsti verkinu sagði það tákna landið, jörðina, sjóinn, rauði hringurinn umhverfis það væri hringurinn um- hverfis landið og blá ísaumuð spor skref þeirra félaga, Bjarka og Guð- brands. Rósa gat þess að mikilvægt væri að framlag og þátttaka fatl- aðra í samfélaginu væri sýnileg og að horft væri til þess sem fatlaðir gætu, ekki bara horfa til þess sem þeir gætu ekki. Göngugarparnir Bjarki og Guðbrandur á Akureyri Hann getur bara fært sig til mín Morgunblaðið/Kristján Göngugarpar Félagarnir Guðbrandur Einarsson og Bjarki Birgisson við verk þeirra Rósu Júlíusdóttur og Karls Guðmundssonar, sem komið hefur verið fyrir á flöt sunnan við sambýli í Hafnarstræti.GUÐMUNDUR VE kom til lönd- unar í Krossanesi í gær eftir hálfs mánaðar veiðiferð á Svalbarðasvæð- inu og í Smugunni. Aflinn var um 450 tonn af frystum síldarflökum og um 700 tonn í bræðslu, þar af 250 tonn af síld og 450 tonn af afskurði. Róbert Hafliðason skipstjóri í veiði- ferðinni sagði að skipið hefði verið á siglingu í um vikutíma í lögsögu Svalbarða án þess að finna síld og það var ekki fyrr en í norðarlega í Smugunni að eitthvað fannst. Ró- bert sagði að þar hefði verið ágætis kropp í flottrollið í blíðuveðri en síld- in þó verið heldur smá, eða um 200 grömm. „Við viljum hafa síldina stærri, enda góðu vanir af heima- miðum.“ Róbert sagði að frystu flökkunum yrði landað í Ólafsfirði en þaðan yrði svo haldið aftur á miðin. „Það þýðir ekkert að hanga í landi. Við erum búnir að sigla margar mílur í þessari veiðiferð en vonandi erum við búnir að finna blettinn aftur þarna í Smug- unni.“ Fundu síld norðar- lega í Smugunni Morgunblaðið/Kristján Síldveiðar Unnið við löndun úr Guðmundi VE í Krossanesi í gær. Skipstjórinn Róbert Hafliðason í brúnni á Guðmundi VE. Djassinn dunar | Píanistinn Sunna Gunnlaugs ásamt bandaríska tromm- aranum Scott McLemore og norska bassaleikaranum Eivind Opsvik leika á Heitum fimmtudegi í Ketilhúsinu í kvöld, fimmtudagskvöldið 21. júlí, kl. 21.30. Þau eru meðlimir í kvartett Sunnu Gunnlaugs sem hefur gert út frá New York og farið í tónleikaferðir um Evrópu, Kanada og Japan und- anfarin ár. Á efnisskránni er nýtt efni eftir meðlimi tríósins í bland við eitt- hvað eldra en það stendur til að hljóð- rita nýja tríóplötu í næstu viku. Sunna Gunnlaugsdóttir hefur um árabil verið í röð okkar fremstu djass- píanóleikara. Henni hafa hlotnast margskonar viðurkenningar og hún hefur vakið athygli með leik sínum bæði austan hafs og vestan. Hún bjó um árabil í New York en er nú flutt heim. Sýning | Eiríkur Arnar Magn- ússon opnar myndlistarsýningu á Café Karólínu á laugardaginn, 23. júlí, kl. 14. Eiríkur Arnar er fæddur á Akureyri 1975. Hann stundaði nám á listasviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og nám við Myndlista- skólann á Akureyri, en stundar nú myndlistarnám í Listaháskóla Ís- lands. Þetta er hans fyrsta einka- sýning.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.