Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 31

Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 31 MINNINGAR myndarlegum hana. Eitt sumarið kom hann með merar með folöldum og seiðum var sleppt í ána. Svo það var mikið líf og fjör þar fyrir krakk- ana og okkur öll eins og alltaf í kring- um Helga. Hann var síkátur og bros- andi og við munum hann með stríðnisglampann í augunum. Hann naut þess að vera með krökkunum enda löðuðust þeir að honum. Helgi hefur nú verið kallaður til annarra veiðilenda og er klárlega að bralla eitthvað nýtt. Hans er sárt saknað en við yljum okkur við frá- bærar minningar um góðan dreng. Ingvar, Helga, Þorleifur, Ját- varður, Sigríður og Halldóra. Elsku Helgi minn. Við höfum verið vinir nánast frá fyrstu kynnum en þau voru fyrir 16½ ári þegar þú komst með mömmu að ná í Jónu Maríu og passa hana á meðan ég fór upp á fæðingardeild að eiga Evu Björgu. Þriðja stelpan kom svo rúmu ári seinna og þú hefur alla tíð verið þeim mjög kær og góður afi. Það eru margar skemmtilegar ferðir og sam- verustundir sem við höfum átt með þér og mömmu sem verða nú kær minning fyrir okkur. Ég veit nú ekki hvort þú lest blöðin þar sem að þú ert núna en ætla samt að þakka fyrir allt það góða og skemmtilega sem þú gerðir fyrir okkur. Það var mér líka mjög mikils virði að komast frá Spáni þar sem við vorum að byrja í fríi og vera hjá þér og fjölskyldunni síðustu dagana á spítalanum. Síðustu dagar hafa verið erfiðir fyrir mömmu og okkur öll en við lofum að vera til stað- ar fyrir hana og gera okkar besta í að standa saman því að það var í þínum anda, eins og til dæmis fjölskyldu- ferðir, matarboð og litlu jólin þar sem þú vildir allt það besta fyrir alla. Með þessum orðum kveð ég elsku Helga og vona að við finnum styrk hvert frá öðru á þessum erfiðu tíma- mótum. Guðný Inga Þórisdóttir. Elsku Helgi. Það er margt í lífinu sem maður skilur ekki, og að þú sért farinn frá okkur í blóma lífsins er sannarlega eitt af því. En minningin um góðan mann lifir kær í hjörtum okkar allra. Það er svo margt sem ég vil þakka þér fyrir og þá sérstaklega að hafa verið svona góður við mömmu og hugsað svo vel um hana, við munum gera það hér eftir fyrir þig. Ég mun reyna að lifa lífinu í framtíðinni eftir því sem ég lærði af þér, því betri mann er ekki hægt að finna. Eitt af því skemmtilegasta sem við fjölskyldan gerðum var að koma í heimsókn til ykkar mömmu, og ef það var um kvöldmatarleyti þá var öruggt að fjörugur og vel útilátinn kvöldmatur var ekki langt undan, og oftar en ekki stjórnaðir þú grillinu. Ekki skipti máli hvort við gerðum boð á undan okkur eða ekki, alltaf var nóg til, það var svo í þínum anda, betra að hafa meira en minna sagðir þú alltaf. Við munum halda áfram þessum skemmtilegu fjölskyldu- skemmtunum og vitum að þú verður ávallt í huga okkar við þau tækifæri. Fjölskyldan var þitt líf og yndi og þér leið best þegar þú varst með öll börnin hjá þér og gast gefið þeim nógu mikið af sleikjó, nammi og/eða ís, þó svo að okkur foreldrunum þætti oft nóg komið. En þetta var þín leið og það var bara allt í lagi. Við munum sakna þín, Helgi. Þeg- ar litið er til baka þá hafa fáir ef nokkur haft jafnmikil áhrif á líf mitt og þú, Helgi minn, og kannski miklu meira en þú vissir um, takk fyrir það, Helgi minn. Ég er þér þakklátur fyr- ir það sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu, á góðum tímum sem erfiðum. Þær eru óteljandi minning- arnar sem við eigum um þig, Helgi, og erum við þakklát fyrir að eiga þær. Á tíma sem þessum langar mann að nota einn af þínum uppá- haldsfrösum og segja „taka tvö“, bæði til að geta haft tækifæri til að segja þér enn betur hve mikið við elskum þig, og til að fá fleiri ár með þér. Ég vil þakka þér, Helgi minn, fyrir það sem þú hefur gefið börnum mínum og sérstaklega allt það sem þú gerðir fyrir hana Telmu Rut mína – ég veit að það verður þungt á vog- arskálunum í framtíðinni. Lífið verður erfitt án þín en við munum halda áfram að standa okkur eins og þú hefðir viljað og ef við lifum eftir þínum gildum og hugarfari þá fer allt vel. Við munum hugsa vel um mömmu fyrir þig, Helgi. Megi Guð gefa þinni stórfjölskyldu styrk á þessum erfiða tíma. Blessuð sé minn- ing þín, elsku Helgi. Gylfi Þórisson og fjölskylda. Kæri Helgi, þá ertu farinn frá okk- ur, alltof snemma. Þú ert farinn í veiði handan þessarar veraldar, á grænum engjum og við straumfagr- ar ár, það er ég viss um. Það voru forréttindi að fá að kynn- ast þér, hressari og jákvæðari mann er vart hægt að ímynda sér. Þegar fundum okkar bar fyrst saman að Valshamri á Skógarströnd snemma árs 1997 hafði ég nýlega kynnst dóttur þinni Ástu Sigríði. Ég var nokkuð spenntur að hitta þig enda hafði ég mikið heyrt um þig tal- að og vildi gjarna að allt gengi vel. Allar áhyggjur um að ekki færi vel á með okkur gufuðu upp á andartaki við þétt handartakið og hlýjuna sem frá þér stafaði sem var svo einkenn- andi fyrir þig. Alltaf var stutt í grínið hjá þér og sérstaklega lagðir þú þig fram um að gleðja barnabörnin. Myndin af þér með inniskó dóttur okkar á eyrunum að sprella fyrir hana stendur ljóslif- andi fyrir hugskotssjónum og ég er viss um að hún mun eiga þá minn- ingu líka. Litlu jólin í Urðarhæðinni voru ávallt tilhlökkunarefni og eng- inn var spenntari en þú sjálfur að sjá að allt gengi vel og að smáfólkið myndi njóta andartaksins. Þú varst sögumaður góður, marg- ar perlur runnu af vörum þínum um ýmsa atburði og uppákomur og ekki síst um ástríðu þína, veiðimennsku. Að mörgu var að taka, enda hafðir þú farið víða og margan hitt. Aldrei varð maður var við að þú færir í mann- greinarálit eða upphefðir sjálfan þig á nokkurn hátt. Þó að stundum liði nokkur tími á milli þess að við hittumst varst þú alltaf hrókur alls fagnaðar þegar mikið stóð til hjá okkur, brúðkaup okkar Ástu kemur upp í hugann og ekki síst skírn dóttur okkar þegar þið Sigga lögðuð á ykkur langt ferða- lag til vesturhluta Bandaríkjanna til að vera viðstödd hana. Ég þakka þér fyrir þær stundir sem þú gafst okkur, þær hefðu átt að verða miklu fleiri, en þær sem við fengum verða hluti af fjársjóði minn- inganna. Góður drengur genginn er, en minningin lifir. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Sigurgeir. Helgi veiðimaður er látinn. Um- hyggja þín fyrir öðrum og hjartalag þitt var einstakt og því hefur nú myndast mikið tómarúm í fjölskyld- unni sem ekki verður fyllt. Þú varst einstakur maður, Helgi, og mikill og merkur afi í augum fjölskyldunnar. Þú varst þekktur fyrir öll þín eftir- minnilegu heimboð en þú vildir ætíð hafa mikið líf í kringum þig. Afi Helgi – það kemur enginn til með að feta í þín fótspor hvað kærleika og um- hyggju varðar. Það var fyrir um 14 árum að ég kom inn í fjölskylduna og það var með eindæmum hvað við náðum strax vel saman en það kom í ljós við fyrstu kynni að þú hafðir verið mikill vinur pabba heitins og unnið með honum um tíma. Mér varð það fljótt ljóst að þú varst mikill fjölskyldukall og þú vildir ætíð hafa helst alla fjöl- skylduna inni á gafli hjá þér alla daga. Enda var það svo að þú versl- aðir aldrei einvörðungu inn fyrir ykkur hjónakornin heldur vildir þú ætíð versla frekar myndarlega ef svo vildi til að einhver myndi nú líta við. Hin síðari ár urðum við enn tengdari, enda nágrannar, og má segja að börnin mín hafi átt annað heimili hjá ykkur ömmu. Börnin voru fljót að finna að það var gott að vera hjá afa og ömmu og gekk það svo langt að krakkarnir tóku mjög fljótt upp á því að hringja yfir á matmálstímum og kanna hvað yrði á boðstólum í kvöld- matinn því ávallt vildu þau vera þar sem betri matur var borinn fram að þeirra mælikvarða. Ég gat ekki keppt við þig á þessu sviði en ég man að þegar ég taldi mig hafa vinninginn hvað matseld varðaði þá tókstu bara upp á því að bjóða öllum út að borða. Það skipti engu máli hvort það var McDonalds eða Perlan. Ég minnist einnig þeirra daga sem ég var í loka- prófum í Háskólanum og ég fékk að lesa undir prófin heima í Urðarhæð- inni á meðan þið hjónin voruð við vinnu. Þrátt fyrir mótmæli mín komstu ávallt aðeins fyrr heim úr vinnu hlaðinn steikum fyrir 10 manna veislu. En það vorum bara við tveir sem átum á okkur gat þessa nokkra daga. Og ég tala nú ekki um veiðiferðirnar þar sem þú kenndir mér allt það sem ég kann í dag. Ég lofa því, Helgi minn, að bera þessa visku þína á veiðisviðinu áfram til barnanna minna og barnabarna og sjá til þess að veiðisögurnar af afa Helga veiðimanni verði ódauðlegar. Það var svo hin síðari ár að það kom enn skýrar í ljós hve einstakur maður þú varst, Helgi minn. Í gegn- um þá erfiðleika sem ég og fjölskyld- an höfum verið að feta okkur í gegn- um síðustu misseri stóðst þú enn nærri okkur en fyrr og tókst okkur öll í þinn stóra faðm og þá sérstak- lega hann Tóta okkar. Það er ekki of- sagt að þú hafir gengið mér í föð- urstað á vissan hátt og eins og fjölskyldan öll veit ert þú honum mikil fyrirmynd í dag. Ég verð þér ávallt þakklátur og mér þykir miður að hafa ekki þakkað þér nóg, Helgi minn. Við söknum þín öll ógurlega mikið en minningin um þig er sterk og okkur mjög skýr. Minningarnar eru margar og verða fjölskyldunni ógleymanlegar. Og amma Sigga, við stöndum öll þétt við bakið á þér á þessum erfiðum tímum og minningin um afa Helga er og verður okkur ávallt ofarlega í huga. Og Ingvar minn – hugur okkar er hjá þér og fjölskyldu þinni. Bjarni Sigurðsson. Helgi mágur var einstaklega góð- ur drengur og skemmtilegur. Ég kynntist honum þegar ég fór að bera mig eftir Júlíu systur hans. Fljótlega komu leiðbeiningar um hvernig ég ætti að umgangast slíka konu, svo hvað biði ef ég klikkaði, loks hrossa- hlátur. Í fjölskyldunni var hann frægur af sölumennsku og bridsspili, auk veiða á fuglum og fiskum, kallaði sig Helga veiðimann við börn. Uppá- tæki hans og stríðni hefðu orðið öðr- um dýr, en kætin var svo fölskvalaus að enginn erfði neitt við hann. Hann var dæmalaust góður við börn og tók á sig krók til að hlúa að þeim og sprella við þau. Hann setti upp dýra- garð á sumarsetri foreldra sinna á Valshamri á Skógarströnd og gerði alla krakka að dýrapössurum. Hann leiðbeindi þeim á öngla og púður og tók í ökutíma langt fyrir aldur, allt frá því daginn eftir bílpróf, segir sú sem naut kennslunnar. Barngæskan var meðfædd. Fimm ára tók hann ársgamla systur undir sinn verndar- væng þegar þau lentu í sóttkví, langt frá pabba og mömmu og hann sá hve hún tók upplifunina nærri sér. Það er munað og þakkað. Það einkenndi líka Helga að hann greip augnablikið af ákefð. Þannig var bílskúrinn okkar Júlíu einungis plata þegar Helgi ók í hlað á jeppa. „Ég verð fyrstur í skúrinn,“ sagði hann, og óð yfir sand og steypu- styrktarjárn og skellihló út um bíl- stjóragluggann. Sama var fyrir mán- uði, þegar hann geystist með móður sína á hermannajeppa yfir vegleysur vestur á Valshamri. Ekkert hik á Helga. Kannski var hann flottastur þegar heilsan bilaði. Enginn bar sig betur. Hann skoraði á menn í kappgöngur þótt hann fyndi fyrir hverju skrefi. Fór í síðustu vikunni með rósabunka handa hjúkkunum sem önnuðust hann reglulega, eins og hann vissi hvert stefndi. Notaði sérhvern sól- skinsblett til að gleðjast með ástvin- um. Það er út í hött þegar forsjónin tekur mann sem á gáska, gleði og hlýju upp á miklu meir. Konan hans, móðir hans og krakkarnir hans eiga samúð okkar alla. Hann gleymist ekki, og við sem þekktum hann verð- um ríkari af minningunni og farsælli af fordæminu. Markús Möller. Fráfall Helga Ingvarssonar mágs míns er erfið raun. Þegar Sigríður systir mín kom með hann heim til okkar hjóna við fyrstu kynni þeirra laðaðist ég að þessum einstaka manni og við bundumst sterkum vinaböndum sem og öll mín fjöl- skylda til enda hans lífdaga. Helgi var einstakur maður í allri um- gengni, hann var nærgætinn og góð- ur við samferðamenn sína, skipti ekki máli hvort hann tók á móti við- skiptavinum inni á gólfi Ingvars Helgasonar hf. eða í samskiptum við fjölskyldufólk sitt, vini eða aðra á lífsleiðinni. Helgi var mikið náttúrubarn, lax- og silungsveiðimaður, sem dáði og virti náttúru Íslands og átti heima „frammi í heiðanna ró.“ Hann var konu sinni og börnum þeirra ástríkur og yndislegur maður við allar að- stæður. Í skemmtilegum fjölskyldu- þorrablótum okkar lék hann stórt hlutverk í „tengdasonafélaginu“ en við „systurnar“ vorum alltaf heldur á móti þeim félagsskap, sem allir gátu hlegið að allt árið um kring og lifnaði mikið upp við einhver fjölskyldutil- efni eins og þorrablót. Helgi Ingv- arsson skilur eftir sig í samfélaginu ákveðin merki um nærveru góðs manns, sem sýndi áræði, festu, góð- vild og ástúð í garð samborgara sinna á lífsleið sem mátti vera mikið lengri. Með þessum skrifum vil ég ásamt systrum mínum og fjölskyldum okk- ar senda Sigríði systur okkar, Sigríði Guðmundsdóttur móður hans og Ingvari syni hans, fjölskyldum þeirra og velunnurum Helga Ingv- arssonar samúðarkveðjur. Gylfi Guðjónsson. Fyrir tæplega tveimur áratugum vorum við hjónin svo lánsöm að kynnast miklum ágætismanni, Helga Ingvarssyni, þegar hann gekk að eiga Sigríði Gylfadóttur, systur konu minnar. Helgi reyndist öllum, sem honum kynntust, traustur, alúðlegur, barn- góður og í alla staði einstaklega góð- ur heimilisfaðir. Hann var jafnframt mikill athafnamaður, sem þó verður ekki rakið í þessum fáu kveðjuorð- um, en í hverju sem hann tók sér fyr- ir hendur var hann raungóður og heiðarlegur. Helgi var gestrisinn og skemmtilegur heim að sækja og var með í öllu sem fjölskyldan stóð að, eins og fjölskyldufundum, þorrablót- um og starfi „tengdasonafélagsins“ sem tók upp á ýmsu, til að sameina fjölskylduna og nánustu ættingja og vini. Það er því sár söknuður eldri sem yngri að Helgi skuli nú fallinn frá á besta aldri og lifir aðeins í ljúfri minningu um elskulegan heimilisföð- ur og vin. Við biðjum góðan Guð að styrkja Sigríði, móður hans, öll börnin og barnabörnin og alla hans ættingja og vini í söknuði þeirra, en erum jafn- framt innilega þakklát fyrir að hafa átt hann að og þökkum að leiðarlok- um alla þá ástúð og þann kærleika, sem hann veitti okkur öllum. Reynir G. Karlsson. Lífið spyr ekki að sanngirni. Að sá skuli vera sviptur lífinu á besta aldri sem unni því svo mjög og sem svo margir unnu er mótsögn sem erfitt er að sætta sig við. Helgi Ingvarsson lifði lífinu af lífi og sál. Stundum bauð hann lífinu byrginn en þá var það af því að hann fann kraft þess ólga í sér. Ógleymanlegar eru minningar frá ferðalögum með honum og að hlusta á hann skýra út fyrirbæri náttúru og dýralífs sem sakir áhuga hans og at- hyglisgáfu lágu fyrir honum eins og opin bók sem hann las upphátt fyrir ferðafélaga sína. Helgi Ingvarsson var í umgengni við samferðamenn sína eins og við náttúruna, kom fram við alla af nærgætni og virðingu og skipti þá ekki máli hvort í hlut áttu háir eða lágir. Hann spurði ekki um stöðu eða stétt manna sem á vegi hans urðu, enda löðuðust allir að þessum manni við fyrstu kynni. Ekki er að efa að þessi þáttur í fari hans átti drjúgan þátt í velgengi fjöl- skyldufyrirtækisins en Helgi stjórn- aði þar sviðum þar sem mikið reyndi á mannleg samskipti. Á börn og ung- linga virkaði hann sem segull sem þeim sem ekki urðu vitni að kann að þykja ósennilegt því maðurinn var mikill að burðum, stór og með kraft- mikla rödd. „Hver er stærstur, feit- astur og sterkastur?“ spurði hann gjarnan yngra fólkið í fjölskyldunni með dillandi hlátri sem lýsti glettni hans sem hann átti ríkulega. Spurn- ingin þarfnaðist ekki svars því að hann var uppáhaldsafinn og uppá- haldsfrændinn. Það vissu bæði þau og hann. Hjartalagið var þannig að engum gat dulist að þar fór hrein- skiptinn, kjarkmikill og heiðarlegur maður. Í sárum missi hlýtur það að veita nánustu aðstandendum hugarfró að vita að í Helga Ingvarssyni brann lífsneistinn óvenju skært og að hafa hlotnast þau forréttindi að sigla með honum um skeið á fleyi hans undir fullum seglum, í meðbyr sem mót- byr. Blessuð mun minning Helga Ingvarssonar. Eggert B. Ólafsson. „Skjótt hefir sól brugðið sumri.“ Þessi orð listaskáldsins koma í hug- ann, er ég minnist frænda míns, Helga Ingvarssonar. Hann var ein- hver besti drengur sem ég hef kynnst, ljúfur í lund, vammlaus og góðviljaður. Fyrstu minningar mínar um Helga eru frá barnæsku hans. Ég sá hann oft á Vífilsstöðum hjá ömmu okkar og afa, þeim Guðrúnu Lárus- dóttur og Helga Ingvarssyni lækni. Helgi frændi var þá þegar hvers manns hugljúfi og eftirlæti og auga- steinn ættingja og vina. Helgi var ekki hár í loftinu þegar hann fór að hjálpa til við rekstur lít- ils, en þó ört vaxandi fyrirtækis föður síns. Þetta varð síðar ævistarf Helga og hann átti drjúgan þátt í uppbygg- ingu þess. Hann var glaðsinna og bjartsýnn að eðlisfari, hann var hlý- legur í framkomu, sanngjarn og mik- ils metinn af viðskiptavinum. Helgi var barngóður maður og þess nutu börn á hans vegum. Hann hafði greinilega yndi af því að gleðja þau. Hann var og ræktarsamur við aldraða og mér er minnisstætt hve vel hann reyndist ömmu okkar og afa er aldur færðist yfir þau. En lífið var Helga stundum harla erfitt. Hann missti í byrjun árs 1988 fyrri konu sína, Halldóru Guðrúnu Tryggvadóttur, eftir þungbær veik- indi. Hann tregaði hana mjög og þetta varð honum erfið og sár reynsla. En betri tíð fór þó í hönd í lífi Helga er hann nokkru síðar kynntist seinni konu sinni, Sigríði Gylfadóttur. Þau voru greinilega mjög samrýnd, og þau áttu saman allmörg góð ár. Ýmsar ytri aðstæður voru Helga síðar erfiðar, en ekki skal um það fjallað nánar hér. Hann var og heilsuveill hin síðari ár, þótt hann bæri sig jafnan vel, en hann hafði sjálfur hugboð um að hann yrði ekki langlífur. Fráfall hans var þó óvænt og grimmt, 56 ár eru ekki hár aldur og mér finnst að hann hefði átt skilið að lifa mörg góð ár enn. Ég sendi að lokum innilegar sam- úðarkveðjur til eiginkonu, sonar, móður og annarra ástvina, sem eiga nú um sárt að binda. Það var sérstök gæfa að fá að kynnast þessum góða dreng. Blessuð sé minning Helga Ingvarssonar. Ólafur Oddsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Ótrúlegt var að heyra að Helgi Ingvarsson frændi væri látinn langt um aldur fram. Hann var góður drengur, skemmtilegur og gaf sér alltaf tíma til að spjalla. Hann hafði frá mörgu að segja, ekki síst ef spjallað var um veiði og brids. Það er mikill missir að þessum manni sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.