Morgunblaðið - 21.07.2005, Side 34

Morgunblaðið - 21.07.2005, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Eyjólfur Sigurð-ur Bjarnason fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 3. janúar 1929. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. júlí síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Bjarna G. Friðriks- sonar, f. 1896, d.1975 og Sigur- borgar S. Jónsdótt- ur, f. 1903, d. 1991. Eyjólfur var fimmti af sextán systkinum. Látin eru óskírður drengur, Elísabet, Berg- þóra, Friðrik, Þórhallur, Andrés, Karl og Sigríður. Á lífi eru Ása, Anna, Páll, Karl, Arnbjörg, Borg- hildur og Hermann. Eyjólfur kvæntist 25. júní 1960 Guðfinnu Vigfúsdóttur, f. 12. maí 1941, foreldrar hennar eru Vigfús Sigurðsson, f. 1912 og Ásta Ó. Júníusdóttir, f. 1916, d. 1999. Börn Eyjólfs og Guðfinnu eru: 1) Ásta, f. 20. júní 1961, maður hennar er Hermann Jónsson, synir Ástu eru Atli, f. 1982, Tryggvi, f. 1983 og Ísak, f. 1992. 2) Sigurborg, f. 7. júlí 1963, maður hennar er Sverrir K. Krist- insson, synir þeirra eru Ingimar Bjarni, f. 1990, og Eyjólfur Árni, f. 1995. 3) Vig- fús, f. 11. maí 1967, kona hans er Rakel Þórðardóttir. Eyjólfur ólst upp á Galtavita og á Suð- ureyri, þar starfaði hann lengst af við sjómennsku. Eyjólf- ur sat í stjórn Verka- lýðsfélagsins Súg- anda í fjölda ára og var formaður þess í sjö ár. Eyjólfur bjó þar til 1970 en þá flutti hann til Hafnar- fjarðar ásamt eiginkonu sinni og átti hann heima þar síðan. Hann starfaði hjá Íslenska álfélaginu í rúm tuttugu ár, hann var trúnað- armaður fyrir starfsmenn í ker- skála um árabil. Þá átti hann trill- una Haförn og stundaði sjóinn frá Hafnarfirði í mörg ár. Einnig sat hann í hafnarstjórn í Hafnarfirði í fjölda ára. Útför Eyjólfs fer fram frá Víði- staðakirkju, Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Haförninn siglir inn höfnina, pabbi stendur við stýrið í bláu lopapeys- unni og appelsínugulu sjóbuxunum. Þetta er sú minning sem er efst í huga okkar þegar við lítum um öxl. Það er skrýtið að sitja og skrifa minningarorð um föður sinn. Við höldum að foreldrar okkar verði allt- af hjá okkur en það er því miður ekki svo. En við eigum fjársjóð af minn- ingum í hjarta okkar um yndislegan föður, tengdaföður og afa. Minningar af honum sparkandi bolta úti í garði með afastrákunum sínum, sitjandi við gluggann að ráða krossgátur, við púttæfingar í garðinum eða sitjandi á pallinum í sólinni með mömmu. Pabbi hefur nú siglt skipi sínu úr höfn í síðasta sinn og siglir nú til allra ástvina sinna á æðri stöðum. Takk fyrir allt sem þú skildir eftir hjá okk- ur. Sigurborg, Sverrir, Ingimar Bjarni og Eyjólfur Árni. Elsku pabbi minn, ég er ekki enn farin að trúa því að þú sért ekki leng- ur hér með okkur. Anna systir þín sagði á þriðjudaginn: „Þeir hljóta að vera að safna í gott lið þarna uppi.“ Þá hugsaði ég; nú fá þau góðan liðs- auka þegar þau fá hann pabba minn. Þú varst aldrei sáttur eftir að þú misstir máttinn og fórst í hjólastól- inn og aldrei hefði okkur grunað þeg- ar við gengum saman inn í Landspít- alann í nóvember, að aðeins átta mánuðum seinna væri þinni þraut- argöngu lokið. Ótal margar minning- ar renna í gegnum hugann og margs að minnast. Ég var víst ekki há í loft- inu þegar ég þekkti hljóðið í bátnum þínum heima á Súganda og þá var ég bara rokin niður Hjallaveginn niður á bryggju til ykkar afa. Þú stússaðist í brennunum á gamlárskvöld, varst út um allt á sjómannadaginn á Súg- anda, þetta var bara sjálfsagður hlutur hjá þér. Áhugi þinn á fótbolta var gríðarlega mikill, hvort sem það voru barnabörnin sem voru að spila eða fullorðnu mennirnir skipti ekki máli, þið mamma komuð með á Lottó, Shell og Essó mótin þar sem afastrákarnir voru að spila. Svo var reynt að fara á alla leiki með FH og yfirleitt sagðir þú þegar þú settist inn í bílinn hjá mér; jæja nú verða þeir að hafa það. Þú varst svo mikill fjölskyldukarl og það var orðin hefð að systkini þín kæmu í kaffi á afmæl- isdaginn þinn, þetta var bara hluti af þessu hefðbundna. Þú varst svo ánægður þegar ættarmótið var hald- ið í vor á afmælisdaginn hennar Línu ömmu, um 140 manns komu og þú varst orðinn dauðþreyttur, en samt sastu þarna með bros á vör og hafðir rosalega gaman af að sjá alla þessa afkomendur frá Línu ömmu og Bjarna afa. Handtak þitt var alltaf þétt og þú vildir að fólk heilsaði þannig og alveg fram á síðasta dag tókst þú þétt í höndina á okkur og það sýndi hvað þú varst sterkur, eins og sagt var í einni ræðunni á ætt- armótinu þá héldu strákarnir á Súg- anda að þú værir Herkúles. Nei, að gefast upp var ekki til í þínum huga heldur átti að reyna eins og hægt væri að láta hlutina ganga upp og það gerðir þú, elsku pabbi minn, fram á síðasta dag, þrjóskaðist við eins lengi og þú gast. Þú varst ótrú- legur í þessum veikindum þínum, alltaf varst þú rólegur og yfirvegað- ur, alveg sama hvaða aðstæður voru, enda gefst maður ekki upp þótt móti blási. Nú situr þú ekki lengur við gluggann og gerir krossgátur heldur horfir þú út um stóra gluggann þarna uppi og fylgist örugglega með okkur öllum þaðan. Kannski heldur þú litla ræðu þar sem þú ert núna fyrir þau í systkinaliðinu sem tók á móti þér og hún byrjar ábyggilega þannig; mig langar að segja örfá orð. Takk fyrir allt, elsku pabbi minn, og megi minning þín lengi lifa. Þín dóttir, Ásta. Það er bæði sárt og erfitt að þurfa að kveðja þig elsku afi en þótt þú sért sofnaður svefninum langa þá ertu samt ennþá hérna hjá okkur. Ég lít á það sem ómetanleg for- réttindi að hafa átt þig sem afa. Þú hefur gefið mér svo mikið og kenndir mér svo margt sem mun nýtast mér allt mitt líf. Allt frá því ég var lítill kenndir þú mér að koma fram fyrir annað fólk, kenndir mér að vera ófeiminn og vera ég sjálfur. Eitthvað sem hefur reynst mér ómetanlegt síðustu ár og á eftir að reynast mér ennþá betur í framtíðinni. Þú varst alltaf mjög ofarlega í huga mér þegar ég var að koma sem mest fram í fé- lagsstörfunum í Flensborg. Hvort sem það var kynning á söngkeppni, veislustjórn á árshátíð eða stutt kynning fyrir fullum matsal í skól- anum þá hugsaði ég alltaf: Ég verð að segja afa frá þessu. Þú varst alltaf svo ótrúlega stoltur af okkur afastrákunum þínum. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sagði þér frá því að ég myndi flytja ávarp nýstúdents í útskriftinni minni. Þá tókstu í höndina á mér, brostir brosinu þínu og sagðir: ,,Manstu þegar þú varst lítill og stóðst upp á stól?“ Ég sagði já og þú sagðir: ,,Þetta er alveg eins!“ Og þú hafðir svo sannarlega rétt fyrir þér. Lítið ráð sem á eftir að hjálpa mér svo ótrúlega mikið í framtíðinni. Þau eru ófá ráðin sem þú hefur gefið mér og hinum afastrákunum þínum í gegnum tíðina. Þú fylgdist alltaf svo vel með okkur, vissir alltaf hvert við stefndum og varst alltaf jafn stoltur afi. Ég veit það elsku afi að þú munt halda áfram að vera stoltur af okkur þegar þú fylgist með okkur í framtíð- inni. Ég sakna þín sárt afi en veit að þú ert komin á góðan stað þar sem þú segir nýjum hlustendum sögurnar sem þú sagðir svo oft. Ég er óend- anlega stoltur af því að hafa átt þig sem afa og mun alltaf líta jafn mikið upp til þín. Þú ert sá maður sem ég vil verða! Guð geymi þig, Tryggvi. Þá ertu farinn, elsku afi, sofnaður hinsta svefninum. Við afastrákarnir kveðjum þig með miklum söknuði en við vitum þó að þú munt vera hjá okkur, rétt eins og þú hefur alltaf verið. Það skipti ekki máli hvað það var sem við gerðum, spiluðum fót- boltaleik, kláruðum próf eða þegar við komum heim úr ferðalagi, alltaf varst þú mættur fullur af áhuga á því sem við gerðum og hlustaðir stoltur þegar við sögðum frá afrekum okkar. Þú kallaðir okkur alltaf stæl-gæja, kúreka villta vestursins, stoltur og ástríkur afi og alltaf vorum við spenntir að koma í heimsókn til ykk- ar ömmu á Víðivanginn. Þar eigum margar af bestu minningum okkar, á mínigolfvellinum úti í garði, ræðu- keppninni í gamla daga, áramótun- EYJÓLFUR SIG. BJARNASON Afi Eyjólfur var góður mað- ur. Hann elskaði fjölskyld- una sína og börnin sín. Hann hjálpaði ömmu í garðinum. Hann vann á báti og veiddi rauðmaga, grá- sleppu og ýsu, hann var góð- ur veiðari. Afi var skemmti- legur, hann spilaði fótbolta við mig. Eyjólfur Árni. HINSTA KVEÐJA Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Elskuleg móðursystir okkar, ÞÓRUNN EINARSDÓTTIR fóstra, Lindargötu 57, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barna- spítalasjóð Hringsins. Guðrún Sigríður Friðbjörnsdóttir, Birna Magnúsdóttir og fjölskylda. Elsku móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, HELGA GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR, Hraunbæ 80, Reykjavík, lést þriðjudaginn 12. júlí. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. júlí kl. 13.00. Helga Margrét Söebech, Gunnar Örn Guðmundsson, Þórður Freyr Söebech, Guðmundur Örn Gunnarsson, Helgi Valur Gunnarsson, Jódís Þorsteinsdóttir, Jón Níelsson. Innilega þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs sonar okkar, bróður og mágs, GUNNÞÓRS ÆGISSONAR, Brúarlandi, Dalvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar á Akureyri fyrir frábæra aðstoð. Guð blessi ykkur öll. Ægir Þorvaldsson, Alma Stefánsdóttir, Gylfi Ægisson, Björg Malmkvist, Garðar Ægisson, Bryndís Reynisdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og tengdadóttir, KOLBRÚN KRISTINSDÓTTIR, Sunnuvegi 4, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 25. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Engilbert Ó. H. Snorrason, Jóhann Engilbertsson, María Kristjánsdóttir, Helgi Karl Engilbertsson, Þóra Helgadóttir, Snorri Engilbertsson, Perla Kolbrún Jóhannsdóttir, Baldur Kári Helgason, Snorri Jónsson, Olga Hafberg og aðrir aðstandendur. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, VALGEIRS ÞORMAR, Granaskjóli 74, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir einstaka umönnun. Sigurlaug Pétursdóttir Þormar, Sigmar Þormar, Alfa Kristjánsdóttir, Anna Þormar, Auðunn G. Guðmundsson, Pétur Þormar, Sigurður Þormar og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.