Morgunblaðið - 21.07.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 37
HESTAR
L
andsliðið í hesta-
íþróttum fyrir
Heimsmeist-
aramótið í Svíþjóð
hefur nú verið val-
ið og lokaundirbúningur fyrir
mótið að hefjast. Það var létt
yfir liðinu í Grasagarðinum á
mánudaginn þegar lands-
liðseinvaldurinn Sigurður Sæ-
mundsson tilkynnti fullskipað
lið.
„Næstu helgi söfnum við
saman hestunum sem eru hér á
landi og þá verður farið yfir öll
smáatriði varðandi búnað, járn-
ingar, beislabúnað og allt sem
viðkemur reglum um mótið,“
sagði hann þegar hann var
spurður um hvað væri fram-
undan hjá liðinu. „Síðan förum við að gera
hrossin klár í ferðina en þau fara utan 26. júlí.
Einhverjir knapar fara með í þeirri ferð en
flestir liðsmenn fara út 28. eða 29. júlí.“
Sigurður hefur fylgst vel með álitlegum
knöpum í landsliðið að undanförnu, en fjórum
sætum var enn óráðstafað að lokinni úrtöku-
keppninni í júní. Hann hefur einnig fylgst með
íslenskum knöpum sem starfa erlendis og hafa
staðið sig vel á mótum undanfarið. Nið-
urstaðan varð sú að úr þeim hópi
komu allir fjórir knaparnir sem
átti eftir að velja. Styrmir Árnason
varð þýskur meistari í fimmgangi,
Bergþór Eggertsson sigraði í
skeiði á þýska meistaramótinu,
Rúna Einarsdóttir Zingsheim náði
góðum árangri þar líka og Vignir
Jónasson varð sænskur meistari í
fimmgangi.
„Ég tel mig hafa valið með tilliti
til þess að ég vil ná sem mestum
árangri. Ég hef fylgst vel með
knöpum bæði hér heima og er-
lendis og því séð hvar var verið að
gera góða hluti og eins hvar glufur
eru í sýningum. Ég er ánægður
með dreifinguna á greinarnar. Við
höfum til dæmis átt við ramman
reip að draga í skeiðgreinunum en
nú erum við alla vega að senda út fljótasta
skeiðhestinn sem við eigum, þ.e. Feykivind frá
Svignaskarði.“
Eitt er víst að í þessu landsliði er óvenju-
mikill reynslubanki. Jafnvel hjá ungu knöp-
unum sem orðnir eru mjög keppnisvanir.
Landslið Íslands í hesta-
íþróttum sem fer á HM 2005:
Hinrik Bragason á Sæla frá Skálakoti.
Keppir í tölti og fjórgangi.
Sigurður Sigurðarson á Silfurtoppi frá
Lækjarmóti. Keppir í tölti og fjórgangi.
Sigurbjörn Bárðarson á Sörla frá Dalbæ II.
Keppir í tölti, fimmgangi og gæðingaskeiði.
Styrmir Árnason á Hlyni frá Kjarnholtum
I. Keppir í slaktaumatölti, fimmgangi, 250 m
skeiði og gæðingaskeiði.
Bergþór Eggertsson á Lótusi frá Aldeng-
hoor. Keppir í 250 m skeiði, 100 m skeiði og
gæðingaskeiði.
Rúna Einarsdóttir Zingsheim á Nonu frá
Mosfelli. Keppir í tölti og fjórgangi.
Vignir Jónasson á Hrannari frá Svaða-Kol-
Kir. Keppir í tölti, fimmgangi, 250 m skeiði,
100 m skeiði og gæðingaskeiði.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Vini frá Minni-
Völlum. Keppir í tölti og fjórgangi.
Valdimar Bergstað á Feykivindi frá Svigna-
skarði. Keppir í 250 m skeiði og gæð-
ingaskeiði.
Sigurður Straumfjörð Pálsson á Prinsi frá
Syðri-Skörðugili. Keppir í tölti, fimmgangi,
100 m skeiði og gæðingaskeiði.
Núverandi heimsmeistarar
sem verja ætla titla sína:
Jóhann Skúlason á Hvini frá Holtsmúla.
Keppir í tölti og fjórgangi.
Berglind Ragnarsdóttir á Krapa frá Ak-
ureyri. Keppir í slaktaumatölti, fimmgangi og
gæðingaskeiði.
Sigurður V. Matthíasson á Reyni frá Hóls-
húsum. Keppir í tölti og fjórgangi.
Kynbótahross sem
valin hafa verið í landsliðið:
Marel frá Feti, 5 vetra stóðhestur undan
Von frá Feti og Orra frá Þúfu.
Knapi Daníel Jónsson
Von frá Efri-Rauðalæk, 5 vetra hryssa und-
an Hrafntinnu frá Dalvík og Huga frá Haf-
steinsstöðum.
Knapi Baldvin Ari Guðlaugsson.
Snorri frá Sauðanesi, 6 vetra stóðhestur,
undan Skikkju frá Sauðanesi og Otri frá Sauð-
árkróki.
Knapi Baldvin Ari Guðlaugsson
Maístjarna frá Útnyrðingsstöðum, 6 vetra
hryssa undan Glöð frá Útnyrðingsstöðum og
Gusti frá Hóli.
Knapi Þórður Þorgeirsson.
Númi frá Þóroddsstöðum, 7 vetra stóðhest-
ur undan Glímu frá Laugarvatni og Svarti frá
Unalæk.
Knapi Daníel Jónsson
Hekla frá Oddgeirshólum, 7 vetra hryssa
undan Barónessu frá Oddgeirshólum og
Kveiki frá Miðsitju.
Knapi Sigurður V. Matthíasson.
Lokaundirbúningur fyrir HM í Svíþjóð hafinn
Óvenjumikill reynslubanki í þessu liði
Sigurður er ánægður
með landsliðið fyrir HM
2005 í Svíþjóð.
VEL heppnuðu Íslandsmóti í hesta-
íþróttum lauk á laugardaginn á Kjóa-
völlum í Garðabæ. Mikil vinna var
lögð í nýtt mótssvæði hjá hesta-
mannafélaginu Andvara með góðri
þátttöku bæjaryfirvalda. Auðvitað er
það ekki draumastaðan hjá þeim sem
eru að taka nýjan völl í notkun að fá
úrhellisrigningu ofan í hann á úrslita-
stundu. En allt fór þó vel.
Völlurinn er 250 metra hringvöllur
og var keppt samkvæmt FIPO-
reglum á mótinu. Eftir fótaskoðun
fóru keppendur inn á gamla völlinn,
sem er bein braut, þar sem þeir gátu
hitað upp. Síðan riðu þeir beint inn á
völlinn og þegar keppni var lokið út
annars staðar. Í hringnum voru verð-
launapallar og stigu knapar af baki og
upp á verðlaunapallinn. Það er spurn-
ing hvort gamla aðferðin að veita
knöpum verðlaun á baki virki ekki
bara betur. Alltaf gaman að hafa hest-
ana með á verðlaunamyndunum til
dæmis.
Þátttaka var góð á mótinu og marg-
ir mjög sterkir knapar og hestar
mættu til leiks. Keppni var því spenn-
andi og þó nokkrar sviptingar urðu í
nokkrum greinum. Helsti hástökkvari
mótsins var Ísleifur Jónasson sem
keppti á Sval frá Blönduhlíð, en hann
varð efstur í B-úrslitum í fimmgangi í
1. flokki og vann þar með rétt til að
keppa í A-úrslitum. Hann tók sig til
og sigraði þar líka og hlaut að launum
Íslandsmeistaratitil.
Landsliðsmaðurinn Sigurður Sig-
urðarson sýndi einnig og sannaði að
hann og Silfurtoppur eru ekki í lands-
liðinu af tilviljun. Hann sigraði glæsi-
lega erfiðan keppinaut, Olil Amble á
Suðra frá Holtsmúla, í fjórgangi í
meistaraflokki. Það verður því spenn-
andi að fylgjast með þeim félögum á
HM í ágúst.
Sigurbjörn Bárðarson var ánægður
að lokinni keppni í fimmgangi á Sörla
frá Dalbæ II og sagði sigurinn svo
sannarlega gott veganesti á heims-
meistaramótið.
Upp kom sérkennilega staða þegar
9 knapar unnu sér sæti í A-úrslitum í
fjórgangi í 1. flokki samkvæmt FIPO-
reglunum. Þegar til úrslita kom var
óneitanlega dálítið þröngt inni á vell-
inum. Edda Rún Ragnarsdóttir á
Reyni frá Hólshúsum hélt forystunni í
úrslitunum frá fyrsta atriði og sigraði
örugglega. Greinilegt að hún var eft-
irlæti áhorfenda sem fögnuðu ákaft í
lokin. Þrátt fyrir sýnishorn af öllum
veðrum verður að telja þetta Íslands-
mót vel heppnað. Boðið var upp á
spennandi keppni á skemmtilegu
mótssvæði sem eflaust á eftir að verða
enn betra með tímanum. Áhorfendur
fengu fjölbreytt veðursýnishorn,
glampandi sól og úrhellisrigningu, en
þá fylgdust flestir með úr bílum sínum
frekar en úr áhorfendabrekkunni,
sem reyndar er í brattara lagi.
Úrslit er að finna á www.mbl.is/
mm/sport/hestar og www.andvari.is.
Gott Íslandsmót á skemmti-
legu mótssvæði á Kjóavöllum
Ísleifur Jónasson á Sval frá Blönduhlíð vann sig upp úr B-úrslitum í fimm-
gangi í 1. flokki og lét sig ekki muna um að vinna A-úrslitin líka.
Edda Rún Ragnarsdóttir var eftirlæti áhorfenda á Reyni frá Hólshúsum.
Hún hampaði titlinum í fjórgangi í 1. flokki eftir sigur við erfiðar aðstæður
því alls voru níu keppendur inni á vellinum í úrslitunum.
Sigurbjörn Bárðarson og Sörli frá Dalbæ.
Viðar Ingólfsson, Íslandsmeistari í tölti í meistaraflokki, á Tuma frá Stóra-
Hofi sigraði með glæsibrag.
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Silfurtoppur var glæsilegur hjá Sigurði Sigurðarsyni. Sigurður hampar nú
Íslandsmeistaratitli í fjórgangi í meistaraflokki eftir að hafa sigrað Olil
Amble á Suðra frá Holtsmúla sem hefur verið þaulsetin á toppnum.