Morgunblaðið - 21.07.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.07.2005, Qupperneq 48
ÞEIR Smári Tarfur og Jens Ólafsson skipa dúettinn Hot Damn! en sveitin hefur í dag maraþon-tónleikaferð þar sem komið verður víða við. Þeir félagar ætla að halda átta tónleika næstu fjóra dagana, í Reykjavík, í Stykkishólmi, Hvammstanga, Patreksfirði og Ólafsvík. Þeir Jens og Smári segjast sjálfir dreifbýlisdurtar og hlakka til að komast út á landsbyggðina til spila- mennsku. Tónleikaferðin er liður í því að kynna nýjustu og jafnframt fyrstu plötu sveitarinnar, The Biǵn Nasty GroovéO Mutha, sem kom út á dögunum. Tónlist | Hljómsveitin Hot Damn! leikur á ýmsum stöðum um land allt Dreifbýlisdurtar Þeir Smári og Jens leggja af stað í tónleikaferð í dag. Reykjavík 21. júlí; Afmælishátíð Götusmiðjunnar kl. 16. Hvammstangi 21. júlí; Unglist-hátíð kl. 21. Stykkishólmur 22. júlí; Félagsmiðstöðin X-ið kl. 20. Narfeyrarstofa kl. 22. Patreksfjörður 23. júlí; Þorpið kl. 17 og 22. Ólafsvík 24. júlí; Félagsmiðstöðin kl. 18. Hótel Ólafsvík kl. 21. 48 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Létt og skemmtileg rómantísk gamanmynd með Óskarsverðlaunaleikkonunni, Kim Basinger og hinum kynþokkafulla John Corbett úr “Sex and the City þáttunum.” tt til r tí r r l l i i, i i r i f ll r tt r t it tt . Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“ Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd með ensku tali. THE PERFECT MAN kl. 2.30 - 4.30 - 6.30 - 8.30 - 10.30 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2.30 - 4.30 - 6.30 ELVIS HAS LEFT THE BUILDING kl. 4.30 - 8.30 - 10.30 WHO´S YOUR DADDY kl. 6.30 - 8.30 - 10.30 B.i. 14 ára. SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2.30 með ensku tali B.i. 16 ára. B.i. 16 ára. B.i.14 B.i. 12 B.i. 12 -KVIKMYNDIR.IS  -KVIKMYNDIR.IS  KRINGLAN DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 b.i. 12 Madagascar enskt tal kl. 6 - 8 og 10 Elvis has left the building kl. 8 og 10 Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12 Voksne Mennesker kl. 5.45 -S.V. Mbl.  -Steinunn/ Blaðið  Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“ Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.  -S.V. Mbl.  -Steinunn/ Blaðið  MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM JENNIFER CONNELLY MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES) MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES) SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR SIG EKKI AÐ UPPLÝSA SUMA RÁÐGÁTUR BORGAR SIG EKKI AÐ UPPLÝSA HÁDEGISBÍÓ 400 KR. MIÐAVERÐ Á A     -KVIKMYNDIR.IS  Í KVÖLD verða haldnir tónleikar á Bar 11 þar sem fram koma hin hafnfirsk-reykvíska Pan og sig- ursveit Músíktilrauna 2004, Mamm- út. Pan er rúmlega fjögurra ára gömul hljómsveit sem tók meðal annars þátt í Músíktilraunum 2002 en fyrsta plata sveitarinnar Virgin leit dagsins ljós í maí á þessu ári. „Þetta er mjög fjölbreytt plata að okkar mati og það má segja að hún sé einskonar samtíningur síðustu ára. Það er til dæmis margar mis- munandi tónlistargreinar að finna á henni, þó hún sé öll af sama rokk- meiði,“ segir Björgvin Benedikts- son gítarleikari sveitarinnar. „Við erum undir miklum áhrifum frá hljómsveitum eins og Tool, Per- fect Circle, Nine Inch Nails og Dredg en þá síðastnefndu þekkja fáir þó hún sé alveg frábær hljóm- sveit.“ Björgvin segir að sveitin sé þessa dagana að æfa og semja stíft. Eitt- hvað hefur staðið á tónleikahaldi en ástæðan ku að einhverju leyti vera tíðum utanlandferðum hljómsveit- armeðlima að kenna. „Það er einhverra hluta vegna auðveldara að útvega sér „gigg“ á veturna svo að með lækkandi sól er von um að þetta batni. Annars er- um við þessa dagana að semja nýtt efni fyrir næstu plötu og mér sýnist hún ætla að verða aðeins harðari en Virgin.“ Eins og áður sagði eru tónleik- arnir í kvöld á Bar 11 og hefjast þeir upp úr 21. Tónlist | Hljómsveitirnar Pan og Mammút halda tónleika á Bar 11 Hart rokk Morgunblaðið/ÞÖK Hljómsveitin Pan í öllu sínu veldi. Rokksveitin sendi frá sér plötuna Virgin fyrr á þessu ári. Trommarinn og villingurinnTommy Lee er sagður hafa beð- ið fyrrum eiginkonu sinnar Pamelu Anderson í þriðja sinn, en sögusagnir hafa verið á kreiki um það að und- anförnu að þau væru að draga sig saman. Lee, sem er trommari hljóm- sveitarinnar Mot- ley Crue, er sagð- ur hafa beðið Strandvarðagell- unnar fyrrverandi í Las Vegas og gefið henni hring með einum svörtum og tveimur gráum demöntum. Þau Lee og Anderson eiga tvo syni saman og ekki er langt síðan Anderson lýsti því yfir að þrátt fyrir að þau væru skilin að skiptum jafnaðist enginn maður á við Lee í hennar huga. Lee var dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar árið 1998 fyrir að beita Anderson ofbeldi    Breska hljómsveitin Coldplay hef-ur verið tilnefnd til Mercury- verðlaunanna, en þau eru talin virt- ustu verðlaun sem veitt eru í popp- tónlist í Bretlandi. Plata sveitarinnar, sem nefnist X&Y og hefur verið á toppi bæði breska og bandaríska vinsældalistans undanfarið, er á meðal 12 platna sem tilnefndar eru til verð- launanna. Auk Coldplay eru meðal annars hljómsveitirnar Bloc Party, The Magic Numbers, Hard-Fi og Kaiser Chiefs tilnefndar til verð- launanna. Skoska hljómsveitin Franz Ferdinand vann verðlaunin í fyrra, en hún mun halda tónleika í Kaplakrika 2. september næstkomandi. Merc- ury-verðlaunin verða afhent 6. sept- ember. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.