Morgunblaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sæmundur ÁrniHermannsson
fæddist á Ysta-Mói í
Fljótum í Skagafirði
11. maí 1921. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauð-
árkróki 12. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Hermann Jónsson
bóndi og hrepp-
stjóri, f. á Bíldudal
við Arnarfjörð 12.
desember 1891, og
Elín Lárusdóttir
húsfreyja, f. á Vatni á Höfðaströnd
27. febrúar 1890. Systkini Sæ-
mundar Árna eru Halldóra Mar-
grét, f. 11. október 1912, Lárus, f.
4. mars 1914, Níels Jón Valgarð, f.
27. júlí 1915, d. 5. september 1997,
Rannveig Elísabet, f. 12. nóvember
1916, d. 29. júlí 1981, Hrefna, f. 25.
júní 1918, Haraldur, f. 22. apríl
1923, Georg, f. 24. mars 1925, og
Björn Valtýr, f. 16. júní 1928.
Sæmundur Árni kvæntist 26.
janúar 1952 Ásu Sigríði Helga-
dóttur, f. í Vestmannaeyjum 18.
mars 1930. Foreldrar Ásu voru
Helgi Jónatansson útgerðarmað-
ur, f. 1. apríl 1887, d. 1. október
1950, og Ellen Jónatansson húsfrú,
f. í Danmörku 2. mars 1899, d. 17.
Grímsdóttir, f. 31. jan. 1964, synir
þeirra eru Sæmundur Árni, f.
1991, og Helgi Grímur, f. 1995. 7)
Anna Elísabet, f. 14. nóv. 1966,
maki Friðrik Arnar Sigurðsson, f.
9. mars 1965, börn þeirra eru Lára
Margrét, f. 1998 og Sigurvin, f.
2000.
Sæmundur stundaði bústörf á
unglingsárunum, var í vegavinnu,
í síldarvinnu á sumrin og á vertíð í
Keflavík. Hann var síðar með bíla-
útgerð í Fljótum. Sæmundur flutti
til Vestmannaeyja 1950, var þar
hótelstjóri og síðan tollvörður,
tollvörður á Þórshöfn á Langanesi
sumarlangt og loks á Keflavíkur-
flugvelli. Sæmundur flutti til Sauð-
árkróks 1957 og var tollvörður þar
um árabil. Hann tók við starfi
framkvæmdastjóra Sjúkrahúss
Skagfirðinga í ársbyrjun 1961 og
gegndi því til 1991 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Sæ-
mundur helgaði sig hrossarækt
eftir að hann flutti í Skagafjörð og
rak hrossaræktarbú að Ytra-
Skörðugili frá árinu 1971. Sæ-
mundur var alla tíð virkur félagi í
Framsóknarflokknum, sat m.a. í
bæjarstjórn Sauðárkrókskaup-
staðar fyrir flokkinn. Þá var hann
virkur félagi í Lionshreyfingunni
og fyrsti forseti hennar á Sauðár-
króki. Sæmundur var einn af
stofnendum félags eldriborgara á
Sauðárkróki og fyrsti formaður
þess.
Útför Sæmundar Árna fer fram
frá Sauðárkrókskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
nóvember 1941. Börn
Sæmundar og Ásu
eru: 1) Elín Helga, f.
1. mars 1952, maki
Jón Örn Berndsen, f.
20. sept. 1951, börn
þeirra eru Tjörvi, f.
1973, og Arndís, f.
1977. 2) Herdís, f. 30.
júlí 1954, maki Guð-
mundur Ragnarsson,
f. 23. okt. 1953, börn
þeirra eru Helgi Sæ-
mundur, f. 1987, og
Ása María, f. 1989. 3)
Hafsteinn, f. 18. feb.
1956, sambýliskona Sigríður Ólöf
Sigurðardóttir, f. 27. ág. 1955.
Börn Hafsteins og fyrrverandi eig-
inkonu, Önnu Maríu Sverrisdótt-
ur, f. 10. apríl 1958, eru Árni
Sverrir, f. 1980, Þórhildur, f. 1986,
og Birkir, f. 1996. Fyrir átti Haf-
steinn Baldvinu Ýri, f. 1986, dætur
hennar eru Elva Rún, Erla Rut og
Ólöf Rán. 4) Gunnhildur María, f.
22. maí 1957, maki Ragnar Sveins-
son, f. 9. júlí 1955, börn þeirra eru
Ófeigur, f. 1987, Bergþóra, f. 1991,
og Auður, f. 1999. 5) Margrét, f. 27.
des. 1960, maki Árni Kristinsson, f.
6. mars 1963. Synir eru Kristján
Tjörvi, f. 1991, og Sigurður Jó-
hann, f. 1998. 6) Hermann, f. 19.
júní 1965, maki Guðrún Sesselja
Horfinn er af heimi skagfirskur
höfðingi Sæmundur Árni Her-
mannsson. Hann var fæddur á Ysta-
Mói í Fljótum á miklu menningar-
heimili. Foreldrar hans voru Elín
Lárusdóttir og Hermann Jónsson.
Hermann var Vestfirðingur en kom
sem kennari í Skagafjörð. Elín var
Skagfirðingur og felldu þau hugi
saman. Bjuggu þau fyrst í Málmey og
voru þar hjá þeim foreldrar Elínar,
Lárus og Margrét, en hún var kunn
ljósmóðir og orð lék á að hún hefði
meira að segja hjálpað álfkonu í
barnsnauð. Margrét var einnig hag-
mælt og lifa sumar vísur hennar enn í
dag. Vorið 1918 fluttu þau búferlum
að Ysta-Mói í Fljótum. Þá var
grimmdarlegt hafísár, mikið harð-
indatímabil og fátækt óskapleg í
þessari harðbýlu sveit. Ekki bætti úr
skák að miklir mannskaðar höfðu
orðið í sjóslysum. Aðkoma var því
kuldaleg í Fljótunum en fljótlega
varð Hermann forystumaður sveit-
unga sinna. Stofnaði hann ásamt
þeim Samvinnufélag Fljótamanna og
fór undir hans forystu að rakna úr
fyrir þeim. Þeir kunnu einnig að meta
forystu hans og seinna sagði einn
þeirra „Þegar neyðin var stærst
sendi Guð okkur Hermann á Mói.“
Sæmundur ólst upp í stórum
systkinahópi en hann var sjötti í ald-
ursröð af níu, sem öll urðu myndar-
og dugnaðarfólk. Eftir nám í Reyk-
holti var Sæmundur viðriðinn bílaút-
gerð í Fljótum með bræðrum sínum,
en gerðist síðan tollvörður. Starfaði
hann fyrst á Keflavíkurflugvelli en
síðan í Vestmannaeyjum, Þórshöfn,
Kópavogi og frá 1957 á Sauðárkróki.
1961 gerðist hann þar sjúkrahúss-
ráðsmaður og síðar framkvæmda-
stjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki. Sæmundur var ótrú-
lega framsýnn og ráðagóður við upp-
byggingu sjúkrahúss og síðar hjúkr-
unarheimilis. Engan forstöðumann
opinberrar stofnunar þekki ég sem
rak betur erindi gagnvart fjárveit-
ingavaldinu. Hann rak stofnunina
einnig með mikilli prýði og reglusemi
og munu Skagfirðingar lengi búa að
góðum verkum hans þar.
Störf við tollvörslu og síðar sjúkra-
hús fullnægðu ekki athafnaþrá Sæ-
mundar. Hann var jarðeigandi leng-
ur en flestir aðrir. Frændi hans gaf
honum jörðina Illugastaði í Fljótum í
SÆMUNDUR ÁRNI
HERMANNSSON
✝ Gréta MjöllStorm Jakobsen
fæddist á Akureyri
20. desember 1967.
Hún lést á Odense
Sygehus 15. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar eru Gréta
Kolbrún Guðvarðar-
dóttir, starfsmaður í
Kjarnalundi, f. á
Siglufirði 18. ágúst
1943 og Steinþór
Haukur Oddsson
tæknifræðingur, f. á
Fáskrúðsfirði 5. júní
1941. Systkini Grétu Mjallar eru;
1) Harpa Þorbjörg Jónsdóttir, f.
28. ágúst 1960. Sonur hennar og
Reinhards Reinhardssonar er
Grétar Þór, f. 1979, sambýliskona
Sara Birgitta Birgisdóttir, f. 1981.
Þau eru búsett í Keflavík. Maki
Guðjón Eiríksson, f. 4. október
1961. Börn þeirra eru Hallur Örn,
f. 1983 og Heiða Björg, f. 1988. 2)
Hallur Þeyr Reykdal, f. 22. júní
1963, maki Kirsten Reykdal, f. 8.
desember 1965, þau eru búsett í
Óðinsvéum. Synir þeirra eru Stef-
an Reykdal, f. 1986, Christoffer
Reykdal, f. 1991, Thomas Reykdal,
f. 1994 og Jonathan Reykdal, f.
1997. 3) Oddur Stefán Steinþórs-
son, f. 14. október 1965, maki I
1946, og Tom Storm Jakobsen
plötusmiður, f. 4. janúar 1944, þau
skildu, sambýlismaður Lone er
Poul Hansen, eiginkona Tom er
Helle Jakobsen. Gréta Mjöll og
Henning eiga tvo syni, Patrick
Storm Jakobsen, f. 30. janúar 1992
og Alexander Storm Jakobsen, f.
27. maí 1994, þeir stunda báðir
nám við Krogårdsskole í Næsby í
Óðinsvéum.
Gréta Mjöll bjó sín fyrstu æviár í
Hafnarstræti (innbænum) og byrj-
aði skólagöngu sína í Barnaskóla
Akureyrar, hún flutti með foreldr-
um sínum á Oddeyrina árið 1975
og lauk grunnskólaprófi frá Odd-
eyrarskóla 1983. Þá um vorið fór
hún til Óðinsvéa í Danmörku til
foreldra sinna sem þar höfðu þá
búið í eitt og hálft ár, en faðir
hennar stundaði þá nám við
Odense Teknikum. Í Óðinsvéum
lauk hún 10. bekk sem myndi sam-
svara 11. bekk hér. Hún kom aftur
heim til Íslands síðla árs 1985 og
vann um tíma í útibúi Kaupfélags
Eyfirðinga á Byggðavegi. Árið
1986 lá leið hennar aftur til Óð-
insvéa. Hún lagði stund á nám við
Tietgenskolen í Odense á sviði
verslunar og skrifstofustarfa. Eft-
ir útskriftina vann hún ýmis skrif-
stofustörf, síðast hjá Odense
kommune eða þar til hún lét af
störfum vegna veikinda sinna.
Útför Grétu Mjallar fór fram í
Broby kirkju í Óðinsvéum 22. júlí.
Minningarathöfn verður í
Grundarkirkju í Eyjarfjarðarsveit
í dag og hefst hún klukkan 14.
Helle Steinþórsson, f.
11. janúar 1968, börn
þeirra eru Freyja Sif,
f. 1991, Rósa Sól, f.
1993, og Ásbjörn
Sebastian, f. 1997.
Maki II Medha Sect-
or, f. 12. mars 1973,
þau eru búsett á
Borgundarhólmi,
sonur hennar er
Micha Sector, f. 1996.
Börn þeirra eru
Petra Maria, f. 2002,
og Samúel Viðar, f.
2004. 4) Guðvarður
Steinþórsson, f. 7. nóvember 1966,
maki Saichon Khlaiput, f. 8. apríl
1969, þau eru búsett í Keflavík,
sonur þeirra er Maron Þór, f. 2005.
5) Heiðbrá Rósa Steinþórsdóttir, f.
3. febrúar 1974, maki Rúnar Ingvi
Eiríksson, f. 29. janúar 1968, þau
eru búsett í Keflavík. Börn þeirra
eru: Díana Karen, f. 1992, Thelma
Lydía, f. 1994, Aron Darri, f. 1997,
Gabríel Rökkvi, f. 2001, og Camilla
Nótt, f. 2002.
Gréta Mjöll giftist hinn 17. nóv-
ember 2001 í Silkiborg á Jótlandi
Henning Storm Jakobsen, grafísk-
um hönnuði hjá Grafisk Datacen-
ter í Óðinsvéum, f. 25. febrúar
1966. Foreldrar hans eru Lone
Jakobsen fatahönnuður, f. 3. ágúst
Mig langar að minnast systur
minnar með örfáum orðum, en það
gengur erfiðlega að hafa orðin örfá,
samt tek ég bara brotabrot af minn-
ingum í grein mína. Þegar ég var um
tólf ára samdi ég ljóð til systur minn-
ar sem mig langar að láta fljóta með.
Mér fannst ljóðið lýsa vel litlu systur
minni, sem og það gerir enn:
Gréta Mjöll er sæt og góð,
hleypur með söng um bæinn.
Enginn á eins fínan kjól,
og enginn syngur eins falleg ljóð,
eins og stúlkan við sæinn.
Ég man alltaf eftir litlu ljóshærðu
hnátunni þegar ég og mamma vorum
GRÉTA MJÖLL
STORM JAKOBSEN
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
LILJA SIGFINNSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
sem lést mánudaginn 15. ágúst á St. Jóseps-
spítala, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Garðakirkju mánudaginn 22. ágúst kl. 13.00.
Guðmundur H. Pétursson, Sigríður Sch. Guðbjörnsdóttir,
Hrönn Pétursdóttir, Óskar Pálsson,
Hildur Pétursdóttir, Steinþór Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og bróðir,
SIGGEIR ÓLAFSSON
bifreiðastjóri og sölumaður,
Flétturima 36,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. ágúst.
Útförin auglýst síðar.
Ester Haraldsdóttir,
Vignir Þór Siggeirsson, Katrín Jónsdóttir,
Haraldur B. Siggeirsson, Margrét Á. Jóhannsdóttir,
Ólafur Karl Siggeirsson,
Guðlaug Edda Siggeirsdóttir, Helgi Hafþórsson,
barnabörn og systkini hins látna.
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
JENNÝ ODDSDÓTTIR,
Kárastíg 13B,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 18. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Lárus Arnþór Brown,
Hjalti Már Hjaltason, Hjördís Jóna Sigvaldadóttir,
Guðni Pálmi Oddsson, Kolbrún Hansen
og frændsystkini.
Ástkær vinur okkar og starfsfélagi,
CLIFF BARBER
löndunar- og þjónustuverktaki,
Grimsby,
Englandi,
lést fimmtudaginn 18. ágúst. Útförin fer fram í
Grimsby næstkomandi föstudag þann 26. ágúst.
Frekari upplýsingar fást hjá skrifstofu Icebrit í
Englandi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Icebrit.
Ástkær amma okkar,
RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn 18. ágúst.
Útför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bára Kristín Pétursdóttir,
Gunnar Pétursson.
Ástkær faðir okkar,
ÆGIR ÓLAFSSON,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
18. ágúst.
Guðrún Ægisdóttir,
Gunnar Ægisson,
Ólafur Ægisson,
Eva Ægisdóttir,
Bennó Ægisson,
Marcela Ægisdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.